Kjósum konur - 03.12.1982, Page 11

Kjósum konur - 03.12.1982, Page 11
Framhald af bls. 8 Skóli fyrir millistétt Margt bendir til þess að ríkis- skólinn taki ekki tillit til mis- munandi menningararfleifðar stéttanna, heldur viðhaldi þeirri menningu sem er við völd. Skólinn hefur það sem yfir- borðsmarkmið að allir fái notið sín til fulls. Það er að mínu mati bara rómantík og afneitun á sannleikanum um eðli þjóð- félagsins. Það er fremur grunnt á því markmiði skólans að aðlaga fólkið ríkjandi þjóð- félagi. Jafnframt heldur hann á lofti gildum millistéttarinnar og reynir að telja verkalýðstéttinni trú um að hennar gildi séu minna virði og ómerkilegri. Hér eru margs konar þjóðfélagsöfl að verki. Þörf vitundarvakningar Ef breytingar eiga að verða á skólastefnunni þarf að verða vit- undarvakning meðal kennara, for- eldra, nemenda og annarra sem vilja hafa áhrif á þjóðfélagsþró- unina. Menn þurfa að læra að spyrja spurninga, taka ekki allt gott og gilt án umhugsunar. Að mínu mati er sá skóli góður skóli sem viðurkennir mismunandi menningararfleifð og mismunandi vitsmunalegan þroska stétta og kynja. Andlegt og verklegt nám er stundað jöfnum höndum. Vísindaleg þekking er þar ekki talin meira virði en sú þekking sem aflað er í daglegu lífi og oft er nefnd hagnýt þekking. Sá skóli er opinn fólki á öllum aldri á ýmsum tímum dagsins. Þjóðfélagsdraumsýnin er ein- hvers konar samruni vinnu, menningar og mennta, þar sem hvorki er um að ræða heils dags vinnu né heils dags nám og þar sem mismunun eftir aldri, kyni, hæfileikum og stétt er þurrkuð út. Skólinn er þá ekki til þess að undirbúa einstaklinginn undir líf og starf í framtíðinni heldur er hann lífið sjálft. Neskaupstað í nóv. 1982 Þessi grein er úrdráttur úr erindi fluttu á kennaraþingi í Mennta- skólanum á Akureyri 24. sept. s.I. Það birtist í heild örlítið breytt í tímaritinu Rétti. HEIMILDIR Björnsson, Sigurjón. Börn í Reykjavík. Iðunn, Reykjavík, 1980. Greene, Maxine. Landscapes of Learning. Teachers College Press, New York and Lon- don, 1978. Grace, Gerald. Teachers, Ideo- logy and Control. Routledge & Kegan Paul, London, Hen- ley and Boston, 1978. Sharp, Rachel and Green, Ant- hony. Education and Social Control, A Study in Progress- ive Primary Education. Rout- ledge & Kegan Paul, London, Henley and Boston, 1975. Willis, Paul. Learning to La- bour. How working class kids get working class jobs. Saxon House, Westmead, 1977. Young, Michael and Whitty, Geoff. Society, State and Schooling. The Falmer Press, Barcombe, 1977. Vorum að taka upp: Töfl, skákklukkur og ýmsar gerðir af spilum. SKÁKTÖLVURNAR væntanlegar. Bóka- og Blaðasalan Brekkugötu 5. á flestar stærðir bifreiða. Þverbönd, tangir, krókar o.m.fl. Hagstæðasta verðið í bænum ALVÖRUÚR FYRIR ALVÖRUMENN A ALVÖRUVERÐI MEO ALVÖRUÞJÓNUSTU Jón Bjarnason úrsmiður Kaupvangsstræti 4 - Akureyri. Sími (961-24175. Við erum fluttir í Hafnarstræti 98 Feröaskrtfstofan PTSÝN FUJGLEIDIR, Síminn er 22911 Húsmæður - Húsmæður Erum byrjuð að taka á móti pöntunum í okkar vinsæla laufabrauð. Brauðgerð KEA. AKUREVRARBÆR AUGLÝSIR Frá Strætisvögnum Akureyrar Akstur á laugardögum í desember verður sem hér segir: Ekið samkvæmt leiðabók laugardaginn 4. des., fyrsta ferð frá Ráðhústorgi kl. 8.35, síðasta ferð kl. 17.05. Laugardaginn 11. des., fyrsta ferð frá Ráð- hústorgi kl. 8.35, síðasta ferð kl. 19.05. Laugardaginn 18. des., fyrsta ferð frá Ráð- hústorgi kl. 8.35, síðasta ferð kl. 23.05. Þorláksdag 23. des., ekið til kl. 24.00. Síðasta ferð á aðfangadag kl. 12.35. Forstöðumaður. AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR Tilboð óskast í eftirtalin tæki 1. Austin- Western super500 veghefill, árg. 1967 2. JCB-3 grafa, árg. 1963 3. Weatherhill 12H ámokstursvél, árg. 1959 4. Weatherhill L62 ámokstursvél, árg. 1967 5. Ford Bronco, árg. 1974 S. W.V. með tvöföldu húsi og palli, árg. 1974 Tæki þessi eru til sýnis við Áhaldahús Akureyr- arbæjar við Tryggvabraut og verða upplýsingar veittar þar. Tilboðum sé skilað á skrifstofu bæjarverkfræð- ings fyrir hádegi þriðjudaginn 7. des. 1982. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Bæjarverkfræðingur. Akureyringar - bæjargestir Olíulampar í úrvali, einnig óska- Ijósið DROPINN. Tilvalin jólagjöf. búðin Tryggvabraut 3, Akureyri Sími 24345 SJÚKRALIÐAR Kristneshæli óskar að ráða sjúkraliða. Barnaheimili á staðnum. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 21100. Kristneshæli. FÓSTRUR Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Fóstrur vantar frá næstu áramótum á Barna- heimilið Stekk, sem rekið er á vegum Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri. Allar nánari upplýsingar gefur yfirfóstran Þórlaug Baldursdóttir í síma 96-24477. .KJÚSUM KONUB - 11

x

Kjósum konur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjósum konur
https://timarit.is/publication/1251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.