Norðurslóð - 25.11.1977, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 25.11.1977, Blaðsíða 1
NORÐURSLÓÐ SVARFDÆLSK BYGGÐ OG BÆR 1. árg. Föstudagur 25. nóvember 1977 1. tbl. p m I • : 2YZ lesenda Um leið og þetta blað hleypur af stokkunum þykir okkur að- standendum þess hlýða að gera nokkra grein fyrir því, hvað fyrir okkur vakir með útgáfu þess og skýra jafnframt fyrir væntanlegum lesendum í bæ og byggð, hvaða áform við höfum í sambandi við útgerð þess. I mjög stuttu máli má segja að megintilgangurinn með útgáfu blaðs hér sé sá að skapa vett- vang fyrir umræður, skoðana- skipti, upplýsingar og fréttir um hvað eina, sem uppi er á teningnum í hinu svarfdælska byggðalagi og nágrenni þess á líðandi stund. Sú er von okkar að regluleg útkoma slíks hér- aðsblaðs geti stuðlað að al- mannaheill, byggðalagið verða menningarlegri og skemmtilegri staður fyrir þá, sem hér búa, og að hinir, sem brott eru fluttir, en eiga rætur sínar hér, eigi auð- veldara með að fylgjast með gangi mála og halda lifandi tengslum við heimabyggðina. Auðvitað gerum við okkur fulla grein fyrir því að það kann að vera miklum erfiðleikum háð að halda úti blaði í 1500 manna byggð án þess að eiga bakhjarl í hagsmuna- eða hugsjónasam- tökum af einhverju tagi, póli- tískum eða ópólitískum. En slíku er alls ekki til að dreifa. Margföld reynsla sýnir að slík iblöð vilja verða skammlíf. Af- drif þessarar tilraunar hljóta því að ráðast öðru fremur af þeim undirtektum almennings, sem það fær þegar í upphafi og isíðan af frammistöðu og úthaldi þeirra, sem að blaðinu standa nú og framvegis. Þessvegna skal lögð áhersla á það að hér er um tilraun að ræða, sem getur farið allavega. Á þessari stundu er ekki annað ákveðið en að koma út tveimur tölublöðum nú fyrir áramótin, nóvember- og desemberblaði. Það á ekki að bregðast. Síðan er áformað að út komi tölublað mánaðarlega eða a.m.k. 10 á ári. Stærð og gerð blaðsins verð- ur væntanlega sú, sem hér má sjá, lesmál með myndum á rúmi, serii nemur þremur síð- um, en á íjórða partinum aug- lýsingar. Án þeirra er örugglega enginn íjárhagsgrundvöllur fyr- ir útgáfu blaðsins. Trú okkar er sú að auðvelt eigi að vera að viða efni að blað- inu meðal annars og ekki síst aðsendum greinum frá lesend- um, sem vekja vilja máls á áhugamálum, gera tillögur og ábendingar um héraðsins gagn og nauðsynjar eða setja fram jákvæða gagnrýni á athafnir manna og stofnana. Fréttir í víðri merkingu og viðtöl við fólk hljóta og að verða gildur þáttur í efni bíaðs”- ins. Það segir sig þó sjálft að mjög langt lesmál getur blað af þessari stærð ekki birt. Fjöl- breytnin hlýtur að sitja í fyrir- rúmi. Þetta fyrsta tölublað verður sent ókeypis og óumbeðið inn á sem allra flest heimili á Dalvík og í Svarfaðardal og til Svarf- dæla í öðrum héruðum eftir því sem mögulegt reynist. Sami háttur verður væntanlega hafð- ur á um næsta blað. Eftir það hlýtur að koma að því að leitað verður áskrifenda og ákveða verð blaðsins. Það væri þakksamlega þegið ef lesendur létu til sín heyra, skrifuðu blaðinu nokkrar línur og létu í ljós skoðun sína, trú eða trúleysi á þá nýbreytni, sem hér er á ferð í svarfdælskri byggð. Heimilisfangið er fyrst um sinn hjá Jóhanni Antons- syni, Sognstúni 4, Dalvík, sími 6-14-60. Hjörtur E. Þórarinsson. Jóhann Antonsson. Óttarr Proppé. Dalvíkursaga kemur út næsta haust Eins og flestum mun kunnugt er nú unnið að því að skrá sögu Dalvíkur. Það er Kristmundur Bjarnason á Sjávarborg í Skaga firði sem vinnur þetta verk. Hann hefur safnað allmiklum heimildum og er fyrirhugað að fyrra bindi Dalvíkursögu komi út næsta haust. Það er Dalvík- urbær sem stendur fyrir útgáfu þessa verks og verður þar skráð saga byggðarinnar fram til þess tíma að Dalvík varð sérstakt sveitarfélag. Á sínum tíma gekkst Lions- klúbbur Dalvíkur fyrir því að safnað var á segulband röddum ýmissa gamalla Dalvíkinga. Það verk gekk vel og eru varð- veittar raddir margra þeirra sem nú eru látnir. Brátt kom upp sú hugmynd að nauðsynlegt væri að geyma komandi kynslóðum ýnsar aðr- ar upplýsingar um gengna tíma og bæjarstjórn Dalvíkur skip- aði þrjá menn í heimildasöfnun- arnefnd, þá Júlíus Kristjánsson, sem er formaður nefndarinnar, Steingrím Þorsteinsson og Þor- gils Sigurðsson. Nefndin hefur nú starfað í no-kkur ár. Hún fékk Krist- mund Bjarnason á Sjávarborg til að taka að sér að rita sögu Dalvíkur. Kristmundur mun að flestra dómi vera talinn ákaf- lega traustur og vandvirkur fræðimaður. Dalvíkursagan, sem verður tveggja binda verk, mun ekki verða ábúendatal ein- göngu, þótt ugglaust verði þar getið ýmissa bænda. Hugmynd- in er að skrásetja m.a. atvinnu-, félagsmála- og þróunarsögu byggðarinnar. U 0 1) 'V s. ilSlAUDS Svarfdæla hin nýja Forsvarsmenn Svarfdælinga- samtakanna í Reykjavík skýra svo frá að seinna bindið af ritinu Svarfdælingar komi ekki út á þessu ári eins og þó hafi verið ætlunin. Ástæðan fyrir þessum drætti er sú að ekki reyndist unnt í tæka tíð að ljúka því mikla verki sem síðara bindið krefst, einkum þó að staka saman registur yfir bæði bindin. Málin standa nú þannig að bindið er fullsett, prófarkir hafa verið lesnar og fyllt upp í eyður. Kapp er lagt á að endurskoða sem flest í því skyni að forðast missagnir eftir megni, svo og að leiðrétta það sem rangt er í fyrra bindi og vitneskja hefur borist um. Einhvern tíma á árinu 1978 mun bókin koma út, en að svo stöddu er ekki hægt að fullyrða hve snemma árs það verður. Hvað vilja foreldrar vita um skólann? f haust fór skólarannsóknadeild menntamálaráðuneytisins fram á það við Dalvíkurskóla að fá að gera athugun á sambandi foreldra og skóla. Dalvíkurskóli þáði þetta boð ráðuneytisins og skömmu síðar hóf Ólafur Proppé, sem er starfs maður skólarannsóknadeildar, þessa könnun. Ólafurhefurhaft viðtöl við alla kennara skólans og fjölmarga foreldra. Hann hefur reynt að fá upþlýsingar um hvort foreldrar felji sig vita nóg um skólastarfið eða hvern- ig börnum þeirra vegnar. Næsti þáttur verksins verður að setja upplýsingarnar fram í einhvers konar skýrslu. í ljósi upplýsinga, sem þar birtast verður svo væntanlega- reynt að auka upplýsinga- streymið milli foreldra og skóla. Nýr kór Nú í haust var stofnaður bland- aður kór á Dalvík. f kórnum eru 30-40 manns og hefur hann æft tvisvar í viku, oftast í kennslu- stofunni í anddyri íþróttahúss- ins. Söngstjóri er Kári Gestsson en í stjórn kórsins eru Friðrik Friðriksson (formaður), Elísa- bet Eyjólfsdóttir og Þórdís Hjálmarsdóttir. Kórinn hefur æft ýmiss konar lög, bæði inrilend og erlend. Hugmyndin er að starfið fram að áramótum verði nokkurs konar undirbúningur undir stærri átök síðari hluta vetrar, þ.e. flutning einhvers meiri háttar kórverks. Ekki er þó enn ákveðið hvaða verk verður fyrir valinu. Líklega mun kórinn syngja opinberlega um jólin eða ára- mótin og ákveðið hefur verið að hann flytji nokkur lög á hjóna- balli í Víkurröst laugardaginn 26. nóvember. Karlakór Dalvíkurhefurekki komið saman í vetur og hefur ekki heyrst um fyrirhugað starf hjá honum. Eftir að karlakór- inn sendi frá sér hljómplötu hefuj söngur hans heldur dapr- ast. í fyrravetur hafði hann fast- ar æfingar en margir kórfélagar stunduðu þær heldur slælega. Kórinn hélt enga söngskemmt- un í fyrra en tók þátt í Heklu- móti ásamt öðrum norðlensk- um karlakórum. Fjölskyldan L.D. frumsýnir í janúar Hafnar eru æfingar hjá Leik- félagi Dalvíkur á leikritinu Fjölskyldan eftir finnska höf- undinn Cleas Anderson. Leik- rit þetta var sýnt hjá Leik- félagi Reykjavíkur fyrir tveim- ur árum og hlaut þar góðar undirtektir og aðsókn. Leik- stjóri hér er Saga Jónsdótt- ir frá Akureyri. Ráðgert er að æfa fram í desember, en gera hlé yfir hátíðarnar og taka upp þráðinn að nýju í janúar. Stefnt er að frumsýningu um 20. janúar. Með hlutverk í leiknum fara Theodór Júlíusson, Dagný Kjartansdóttir, Inga Matthias- dóttir, Kristján Hjartarson, Lovísa Sigurgeirsdottir, Rúnar Lund og Sólveig Hjálmarsdótt- ir. í október. stóð leikfélagið fyrir leiklistarnámskeiði. Leið- "beinandi var Edda Þórarins- dóttir en þátttakendur voru 18. Námskeiðið stóð í 10 daga ög þótti takast vel. Nýlega keypti leikfélagið mjög vandað ljósaborð, sem Saga Jónsdóttir leikstjóri. kostaði 600-700 þúsund krónur og mun aðstaða félagsins breyt- ast mjög til batnaðar hvað varðar sviðsbúnað, enda er hér um að ræða eitt fullkomnasta ljósaborð í eigu áhugamanna- félags hér á landi. í athugun er að setja upp annað verk síðar á þessum vetri. Stjórn Leikfélags Dalvíkur skipa nú: Rúnar Lund, for- maður, Theodór Júlíusson, Guðlaug Björnsdóttir, Guðný Ásólfsdóttir og Sólveig Hjálm- arsdóttir.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.