Norðurslóð - 26.01.1979, Blaðsíða 2

Norðurslóð - 26.01.1979, Blaðsíða 2
Útgefendur og ábyrgðarmenn: Hjortur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal Jóhann Antonsson, Dalvlk óttarr Proppé. Dalvlk Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson Prentun Prentsmiðja Björns Jónssonar Auglýsing um bæjargjöld á Dalvík 1979 ÚTSVÖR: Fyrirframgreiðsla útsvara 1979 verður 75% af álögðu útsvari síðasta árs með gjalddögum 1. febrúar, 1.,mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní. Eftir- stöðvar skulu greiðast með jöfnum greiðslum 1. ágúst, 1. sept., 1. okt., 1. nóv. og 1. des. FASTEIGNAGJÖLD: Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Dalvíkur munu fasteignagjöld hækka um 57%eða þarum bil miðað við fasteignagjöld 1978. Gjalddagar eru tveir. Fyrri helmingur greiðist 15. janúar og seinni helmingur 15. júlí.Tilkynningarumálögð gjöld verða ekki send gjaldendum fyrr en við seinni gjalddaga. AÐSTÖÐUGJÖLD: Aðstöðugjöld hafatvogjalddaga. 15. janúarskal greiða 50% af aðstöðugjaldi síðastliðins árs og eftirstöðvar þess 1. júlí. DRÁTTARVEXTIR: Séu framangreind gjöld ekki greidd innan mán- aðar frá gjalddaga, er skylt samkvæmt lögum að innheimta dráttarvexti af því sem ógreitt er frá og með gjalddaga. Dráttarvextir falla þó ekki á ógreidd fasteignagjöld og aðstöðugjöld 1979, fyrr en mánuður er liðinn frá birtingu auglýs- ingar þessarar. Dráttarvextir eru nú 3% á mánuði. ÁBYRGÐ KAUPGREIÐENDA: Kaupgreiðendur skulu senda til skrifstofu bæjarins skýrslu um nöfn starfsmanna, sem taka laun hjá þeim, svo og tilkynna ef gjald- endur sem ógreiddan eiga hluta útsvars, hætta að taka laun hjá þeim. Nánari reglur um ábyrgð kaupgreiðenda er að finna í 30. og 31. gr. I. nr. 8/1972. Bæjarstjórinn á Dalvík. Aðalfundur Sparisjóðs Svarfdæla (92. aðalfundur) verður hald- inn laugardaginn 3. febrúar í Bergþórshvoli á Dal- vík. Fundurinn hefst kl. 2 e.h. Stjómin. Við þökkum af alhug öllum þeim, sem vottað hafa okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför eigin- manns míns, föður, tengdaföður og afa MAGNÚSARJÓNSSONAR, Hrafnsstaðakoti, Dalvik. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks B-deildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Laufey Þorleifsdóttir. Baldvin Magnússon. Jónina Magnúsdóttir, Árni Magnússon. Guðm. Tómas Magnússon, Alfa Ragnarsdóttir og barnabörn. Viðhorf í ársbyriun Framhald af forsíðu. heild orðið meiri nokkurt annað ár. Ber þar fyrst að nefna 3 stórar opinberar byggingar, þ.e. ráð- húsið, sem einnig mun hýsa sparisjóð o.fl. og svo dvalar- heimili aldraðra. Verða báðar þessar byggingar væntanlega teknar í notkun á þessu ári. Heilsugæslustöð hefur á hinn bóginn lítt eða ekki miðað áfram á árinu. Lokið var við smíði 11 íbúða á árinu og um áramótin voru í smíðum 19 til viðbótar. Þá eru horfur á, að enn verði byrjað á a.m.k. 10 nýjum íbúðum á þessu ári. Öll hefur þessi athafnasemi haft í för með sér að atvinna á Dalvík hefur verið yfírfljótan- leg og tekjur manna orðið mikl- ar, e.t.v. meiri að verðgildi en nokkru sinni fyrr. Af þessu lauslega yfirliti er ljóst, að árið 1978hefurbættsér í röð góðæra, sem yfir þetta byggðarlag hafa gengið óslitið um langan tíma. Byggðin í daln- um heldur velli og hefur ekki grisjast og margar bújarðir hafa verið bættar að ræktun og húsa- kosti. Kaupstaðurinn Dalvík hefur haldið áfram að vaxa og fólkinu að fjölga, bæði af eigin tilvexti og af aðflutningi úr sveitinni og annarstaðar frá. Tölur eru ekki handbærar enn um þróun fólksfjölda, en öruggt má telja, að héraðið hafi haldið fyllilega sínum hluta í þjóð- arvextinum þetta árið eins og undanfarin ár. „Menningin“ En mannlifið er ekki, eða á a.m.k. ekki að vera eingöngu brauðstrit og byggingarstarf- semi. Eitthvert pláss þarf menn- ingarlífið líka að hafa. Hvernig standa sakir í því efni hérna hjá oss? Það má telja til minnisverðra tíðinda á því sviði, að á árinu komu út tvö stór ritverk, sem fjalla um Svarfdælinga í fortíð og nútíð og um svarfdælska at- vinnuþróun, sem leiddi til þess, að til varð kaupstaður í Svarf- aðardalshreppi. Þetta eru seinna bindi mannfræðiritsins Svarf- dælingar og fyrra bindi af Sögu Dalvíkur. Þessi ritverk, sem nú eru komin inn á flest heimili hér, verða mikið lesin nú og í fram- tíðinni og eru líkleg til að auka áhuga manna og skilning á þeirri merkilegu þróun, sem á einni öld hefur gjörbreytt skipan byggð- ar í héraðinu og skapað snotran kaupstað, þar sem áður var sandur og óhrjáleg holtabörð. Að öðru leyti er tæplega hægt að segja, að „menningin“ sé í sókn í héraðinu. Félagslíf al- mennt séð er hvergi eins og best yrði á kosið, hvorki á Dalvík né í sveitinni. Leikfélagið hélt þó uppi sínu merki með fullum sóma á árinu hvernig sem til tekst á því nýbyrjaða. Á hinn bóginn lagðist Karlakór Dalvík- ur til hvíldar, kór sem unnið hefur sér álit í landinu fyrir góðan og fágaðan söng. Og bland aður kór, sem fór mjög laglega af stað í fyrra, á nú í vök að verjast fyrir skort á áhugasömum söng- mönnum. Mest líf er að finna í karlaklúbbum staðarins. Þeir leggja mörgum góðum málum lið, en hafa lítið gildi í sambandi við skapandi menningarviðleitni í bænum. Framtíðarhorfur. Hvað ber svo framtíðn í skauti sér, hver vill spá í hana? Að sjálfsögðu kemur gengi þessa byggðarlags til með að ráðast að nokkru af þeirri stjórn eða stjómleysi, sem ríkir í landi voru í heild. Á því sviði getur bmgðið til beggja vona og eru víst allir jafngildir spámenn um þá hluti. Hinsvegar skyldu menn ekki mikla fyrir sér þýðingu eins eða annars stjómarmunsturs það og það skiptið. Það eru aðrir hlutir, sem vega miklu þyngra, þegar um er að ræða velferð þjóðar- innar, hvort heldur er á hinu efnalega eða andlega sviði. Einn er sá hlutur, sem gerst hefur nýverið, og líklegur er til að hafa afgerandi áhrif á Islands- söguna og m.a. treysta til mikilla muna afkomuöryggi og fram- tíðargengi staðar eins og Dalvík. Hér er að sjálfsögðu átt við sigur okkar í deilunni um yfirráð fiski- miðanna umhverfis landið. Sú ótrúlega hagstæða þróun, sem orðið hefur á þessu sviði, hefur bægt burtu, á síðustu stundu, þeirri geigvænlegu hættu að uppurin yrði sú auðsuppspretta, sem á öllum öldum mannabyggð ar í Svarfaðardal og á Upsa- strönd hefur dregið feður vora niður að sjónum og út á sjóinn og átt hálfan hlut að því að halda líftórunni í fólkinu. Það er fjarri því, að almenn- ingur geri sér nægilega glögga grein fyrir því, hverjum sköpum þessir atburðir skipta t.d. fyrir norðlenskt útgerðarpláss á borð við Dalvík. En í fáum orðum má segja það, að þeir tryggi það, sém alls ekki var tryggt fyrir nokkr- um árum síðan, að fiskur mun halda áfram að berast á land hér og það í vaxandi mæli, þegar að því kemur að friðunaraðgerðir og aukið skipulag veiða og lönd- unar aflans fer að bera árangur. Þetta gerist ekki í einni svipan, en það hlýtur að gerast samt, og útgerðarbærinn Dalvík mun fá sinn réttláta hluta af arðinum. Samt er þess ekki að vænta að síaukið aflamagn muni til lang- frama standa undir þeirri at- vinnu, sem vaxandi fjöldi fólks á Dalvík þarfnast. Þó hlýtur að vera tímabært, að menn fari að huga að því í alvöru, hvort grund völlur er fyrir þvi að staður- inn geti krækt í einhvern smá- skammt af því feykna loðnu- magni, sem sýnist vera að verða árviss veiðiskapur og búknykkur í mörgum verstöðvum hér norð- anlands. Að fiskveiðum og fiskvinnslu slepptri er ekki um annað að ræða fyrir Dalvíkinga en að finna einhverjar iðngreinar, sem geta tekið við auknu vinnuafli um leið og það kemur á markaðinn. Á þessu sviði er þróunin næsta hægfara hér. Þó er vert að nefna saumastofuna Ýli, sem á liðnu ári byggði myndarlega yfir sig með aukna starfsemi í huga. / sveitinni Sé aftur litið til sveitarinnar þá er þess ekki að dyljast að nokkrir erfiðleikar eru fram- undan. Svarfdælskir bændur eru þar á sama báti og aðrir stéttar- bræður þeirra í landinu. Þessir erfiðleikar, sem eru á sviði markaðs- og sölumála, eru að vísu lítt eða ekki farnir að birtast í efnahagsreikningum bænda enn sem komið er. Hinsvegar hljóta þeir að gera það með einu eða öðru móti á þessu nýbyrjaða ári, en í svipinn er ógerlegt að segja fyrir, á hvern hátt eða í hvað miklum mæli það verður. Ekki er samt ástæða til að ætla, að þetta vandamál verði ekki kveðið niður á tiltölulega skömm um tíma, þegar menn seint og um síðir, snúa sér að því með tæki í höndunum, sem eitthvert gagn er í. I Svarfaðardal hefur byggð tekið miklum breytingum á þess ari öld. Byggðum býlum hefur fækkað um helming eða svo. Nú virðist hinsvegar sem viss stöð- ugleiki sé á kominn, heimilum fækkar ekki svo heitið geti þessi árin. Veruleg endurnýjun í röð- um bænda í dalnum á sér stað um þessar mundir, ung hjón sitja margar jarðirnar og menn hafa talið það saman sér til hug- hreystingar, að 12 börn hafa fæðst þar á liðnu ári í stað 4-6, sem algengt var um skeið. Þó er þess alls ekki að vænta, að fleira fólk geti haft lífsfram- færi af hefðbundnum landbún- aði í Svarfaðardal í náinni fram- tíð. Á hinn bóginn á ekkert að vera því til fyrirstöðu að fólk búsett þar sæki atvinnu sína til Dalvíkur eins og reyndar gerist nú þegar í talsverðum mæli. í því sambandi er vert að minna á hugmynd um byggðakjarna á eignarlandi Svarfaðardals- hrepps í Laugahlið, sem á dag- skrá var fyrir nokkrum árum. Sú hugmynd var allrar athygli verð og ætti að takast til at- hugunar á ný. H. E. Þ. Fréttir úr VaUaprestakalIi (Sent af sóknarpresti Stefáni V. Snævarr) Um h hátíðarnar jól og nýár voru sungnar 5 messur í prestakallinu og annaðist sóknarpresturinn þær allar, við messuna á 3. degi jóla í Urðakirkju predikaði síra Þórhallur Höskuldsson á Möðru völlum. Kirkjusókn var mjög góð um jólin, enda veður og færi gott. Lakari sókn var á nýársdag, enda var veður þá verra og trúlega margir syfjaðir eftir vökur um áramótin. Gestur Hjörleifsson og Kirkju kór Dalvíkurkirkju sáu um söng við messu þar, en á sveitakirkj- unum söng sameiginlegur kór allra sóknanna undir stjórn organistans Olafs Tryggvasonar á Ytra-Hvarfi. Nokkuð var um aukaverk um hátíðirnar (eins og sjá má í þættinum Tímamót hér í blað- inu.l Á aðventu stóð yQr fjársöfnun á vegum hjálparstofnunar kirkj- unnar um allt land undir kjör- orðinu: Brauð handa hungr- uðum heimi. Þeirri söfnun er nú lokið. Mest af þessu samskota fé kom um hátíðirnar. Sóknarpresti bárust alls kr. 487.610,00. Er það álíka upphæð og hann tók á móti um jólin 1977. Auk þessa var eitthvað sent beint á gíróreikning, en um það eru ekki tölur handbærar. „Mig langar til að færa öllum gefendum, eldri sem yngri heitar þakkir fyrir framlög þeirra. Ég hef ekki talið, hve gefendur eru margir, en þeir eru æði margir. Bestu þakkir til allra. Ég vil gjarnan mega færa gefendum, skímarbömum, brúðhjónum og öllum sóknarbörnum mínum bestu nýársóskir og kveðjur með kærri þökk fyrir allt liðið.“ 2 -NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.