Norðurslóð - 26.01.1979, Qupperneq 3
Ljóðagetraun
Norðurslóðar
Nokkrar úrlausnir hafa borist á getrauninni. Það var boðað að ráðn-
ingar og úrslit yrðu birt í janúarblaði. Við það skal staðið, þótt lík-
lega séu einhverjar fleiri úrlausnir ókomnar.
Og héma kemur það. Réttu orðin eru feitletruð og getið er höf-
unda ljóðanna.
1. Af hrífuskafti og prjónunum var höndin kreppt og bogin.
(Guðm. Friðjónsson)
(Jón) Arason reið þar hjá. (Halldór Laxness.)
Pósturinn gistir Grímsstaði á Fjöllum. (Halldór Laxness.)
Mjóan hefur skó á kló. (eignað Bólu-Hjálmari.)
Gamalla blóma angan. (Jóhann Sigurjónsson.)
Þegar blessuð sólin skín. (Stefán frá Hvítadal.)
Hylurinn tók við bagga af kíakk. (Æri-Tobbi.)
Ei fékk ég hestinum otað úr stað. (Álfadans, Grímur Thomsen)
Lömbin sér una um blómgaða bala. (Jón Thoroddsen.)
Mér Himneskt ljós í hjarta skín. (Kristján Jónsson.)
Berst og þýtur yfír höfði skjár. (Matthías Jochumsson.)
Andinn mig hreif upp á háfjallatind. (matth. Jochumsson.)
Djúpt í hafi í höll af rafí Huldur slær. (Grímur Thomsen.)
Rís úr gráðinu gafl þegar gegnir sem verst. (Grímur Thomsen.)
En ég veit að látinn lifír. Það er huggun harmi gegn.
(Jónas Hallgrímsson.)
Nú grætur mikinn mjög, Minerva táragjörn.
Nú kætist Máría mjög, mörg sem á dáraböm.
Nú er skarð fyrir skildi, nú er svanurinn nár á Tjörn.
(Sr. Jón Þorláksson á Bægisá um sr. Magnús Einarsson á Tjöm)
Blað skilur bakka og egg. (Jónas Hallgrímsson.)
Þá munu upp líta Gilsbakkamenn. (Kolbeinn Þorsteinsson.
Það er svipurinn þinn, er í sál mér ég fínn. (Jón Trausti.)
Ég skrifa þér með blýant því blek er ekki til. (Davíð Stef.)
Togarasjómanni tamast það er að tala sem minnst um það allt.
(Kristján frá Djúpalæk.)
Því nóg er um hýreyg og heillandi sprund á Dalvík og Dag-
verðareyri. (Haraldur Zóphóníasson.)
Og honum á ég það að þakka að þú ert ekki konan mín.
(Káinn.)
Dalurinn minn (Svarfaðardalur). (Hugrún.)
Gott er að hætta hverjum leik þá hæst fram fer. (Hallgr. Pét.)
Alrétta lausn (25 rétt svör) sendu Sigrún Dagbjartsdóttir, Seldal í
Norðfírði, Friðjón Kristinsson, Dalvík, Gunnar Stefánsson í
Reykjavík og Heimir Kristinsson á Húsabakka. 24 rétt svör höfðu
prófastshjónin á Dalvík. Aðrir nokkru færri.
Blaðið þakkar þátttakendum, líka þeim, sem reyndu en gáfust upp.
Nokkrir bomar hafa borist við vísufyrriparta í jólablaði. Vonast er
eftir fleirum og verður útkoman birt í næsta tölublaði.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17
18
19
20
21
22,
23.
24.
25.
Daníel
Júlíusson
MINNING
Framhald af baksíðu.
Daníel sig ýmis málefni varða.
Hann var vel greindur, íhugaði
hlutina og myndaði sér ákveðn-
ar skoðanir. Frekar var hann
hlédrægur og ýtti sér ekki fram.
Yfirleitt var hann hress og glað-
ur og ljúfmennskan honum eigin
leg. En rynni honum í skap gat
hann orðið býsna höstugur. Öld-
urnar lægði þó undrafljótt og allt
var gleymt. Barngóður var
Daníel, enda naut hann hylli
smáa fólksins. Fjöldi bama og
unglinga hafa dvalið á heimili
Daníels lengri eða skemmri tíma
og undantekningarlaust hafa
allir orðið vinir hans. Þessi
hrekklausi maður var vandur að
virðingu sinni og sæmd og því
naut hann almennra vinsælda.
Þeim Önnu og Daníel fædd-
ust fimm börn. Þau eru:
Steinunn, gift Halldóri
Jóhannessyni skrifstofumanni á
Dalvík.
Jóhanna María, gift Málm-
freð J. Arnasyni, Eskifirði.
Júlíus Jón, ritstjóri í Reykja-
vík, kvæntur Þuríði Arnadóttur.
Jóhann Kristinn, kennari á
Dalvík og landskunnur söngv-
ari, kvæntur Gíslínu Gísla-
dóttur.
Björn Garðars, kennari við
Húsabakkaskóla, kvæntur Fjólu
Guðmundsdóttur.
Bamabörnin eru 14, barna-
barnabörnin 6.
Ég kveð Daníel með þakk-
látum huga og hlýjum minn-
ingum um samskipti okkar. Far
þú heill og sæll, góði nágranni.
Ástvinum hans. votta ég
samúð mína.
Helgi Símonarson.
J. F H. A. H. J J 'A S 0 N 0
1*
H*
**
Meðaltalsúrkoma hvers mánaðar áranna 1970-1978. Sjáið hvað vor-
in eru þurrviðrasöm en síðasti hluti ársins úrkomumikill.
r-
Urkomumælingar
Framhald af forsíðu.
komusamari en vor- og sumar-
mánuðumir. Þetta kemur þó
langbest fram á mynd 2 en þar er
meðaltalsúrkoma hvers mánað-
ar áranna 1970-1978 sýnd. Þar
kemur fram, að nóvember og
desember eru hæstir en október
og janúar fylgja þeim fast eftir.
Mai er hinsvegar áberandi lægst
ur en apríl og júní eru einnig
þurrviðrasamir. I heild virðist
úrkoman nærri þrisvar sinnum
minni á vorin en á haustin. Mesti
rigningardagur sem komið hefur
í Svarfaðardal skv. þessum mæl-
ingum var 26. ágúst 1974 en þá
rigndi 38.0 mm. Það þætti ekki
mikið í Suðursveit og Öræfum
þar sem yfir 200 mm sólar-
hringsúrkoma er vel þekkt.
Samanburður á Tjörn, Fljót-
um og Akureyri.
Meðalársúrkoman á Tjörn er
rétt tæpir 500 mm. Hún var mest
1975, 580 mm, en áberandi
langminnst síðastliðið ár, aðeins
364 mm.
Mynd 3 sýnir úrkomuna á
Tjörn miðað við það sem mælist
á Skeiðsfossi í Fljótum og á Ak-
ureyri. Þar kemur í ljós að úr-
koma á Akureyri er mjög svipuð
og í Svarfaðardal á þessu ára-
bili, rétt tæpir 500 mm. í Fljót-
um er úrkoman hins vegar miklu
meiri, nærri helmingi meiri.
Meðaltal áranna
834 mm.
1971-1978 er
Þetta er merkilega mikill
munur á sveitum, sem menn
gætu haldið, að byggju við svip-
aðar veðurfarsaðstæður. í sam-
bandi við þessar mælingar verð-
ur að geta þess, að úrkoma getur
verið mjög misjöfn frá einum
stað til annars, jafnvel á litlu
svæði. Þetta vita auðvitað allir og
þeir best, sem stundað hafa hey-
skap í djúpum dölum eins og
Svarfaðardal eða Skíðadal.
Hversu oft höfum við ekki hoss-
ast og hoppað í dráttarvélasæt-
unum með allar heyvinnuvélar á
fullu og horft milli vonar og ótta
á rigningarskúrina koma framan
úr dalabotnum, bleytandi upp
heyin á hverjum bænum á fætur
öðrum. Skyldi hún ná okkur
þessi, hugsar maður, og oft fer
það svo að dalamenn þola
búsifjar og bleytu meðan niður-
sveitungar þurrka af kappi. Það
er ekkert ólíklegt, að það rigni
þriðjungi meira fram í dölum en
niður hjá Tjörn. Hitt er svo ann-
að mál, að úrkomumagnið segir
ekki endilega til um, hversu vel
fallinn hver staður sé til búsetu.
Þar sem rignir mikið geta einnig
verið margar sólskinsstundir.
Ami Hjartarson.
MM
ISP+
IH«
IU>
tu
flo-
loo-
8o
7o
io
Co
tfo-
Zo
/o
Wo
Mynd 1
ní
m,rtr
mi
in,
ra..
m.
r
Mánaðarúrkoma áranna 1970-1978. Takið eftir metúrkomunni í desember 1975 og þurrkunum í maí 1977.
TAFLA
1VL
(%
m
::utJ
r ::
1?73
l
ur\
/■
7'?7Y
rJ\;
1976
ir
r
:nJ
w
vtny •
h T7\
f?r? .. me
ji
m
m
1
UlJ
•tuntt
11. jyVt tts m/i*1
i 3ls w rs ^iputL
Mánaðarúrkoma, ársúrkoma, fjöldi úrkomudaga og mánaðarmeðaltöl
jan. feb. mars apr. maí jún. júl. ág.
sept,
okt,
nóv. des.
co >
p ^
3 M
c+ d'
p> d
o
3
p>
M
a a.
p 4
oq
p> o
d 3
c
197o 45,5 39,6 1o8,2 6,3 27,8 9,6 29,o 0 •v 00 OJ 28,9 60,8 55,6 68,7 508 15o
1971 23,8 47,7 32,6 48,2 37,4 5,2 27,5 72,1 5o,o 59,4 lo5,5 63,4 576 175
1972 45,8 15,3 4o, 7 18,4 lo,3 59,9 57,2 30,1 4o, 2 7o,3 98,4 51,4 538 193
1973 76,2 65,0 46,7 49,4 16,6 17,3 23,1 29,9 16,9 46,8 55,3 58,1 48o 174
1974 5o,8 86,0 O •v OJ 1—1 23,1 6,6 22,4 58,4 52,8 69,7 67,9 57,8 53,5 561 176
1975 84,3 36,3 33,7 3o,3 12,9 22,4 52,6 12,2 53,9 33,8 37,8 169,9 £80 178
1976 3o,9 32,3 22,8 43,2 22,8 32,8 29,1 44,6 17,4 61,7 6l,2 53,9 451 168
1977 53,4 11,3 21,4 29,6 0,0 31,7 33,7 49,2 28,7 87,8 56,9 26,2 432 142
1978 84,8 28,9 34,4 4,8 3o,5 0 VQ 1 1 22,6 14,3 15,o 51,4 42,3 18,7 36^ 143
meðaltöl 55,1 4o,3 39,2 28,1 18,3 24,1 37,o 37,o 35,6 60,0 63,4 62,6 ' 499