Norðurslóð - 21.11.1979, Side 2
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og ábyrgöarmenn:
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfáöardal
Jóhann Antonsson, Dalvik
Óttar Proppó, Dalvik
Afgreiðsla og innheimta: Sigriður Hafstað, Tjörn
Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson
Prentun: PrentsmlOia Björns Jónssonar
Heyskapur
fyrsta vetrardag
Hugleiðing um þjóðþrifamál
Þegar ég las frásögnina í Norð-
urslóð (8. tölublað) um hin síð-
búnu heyskaparlok í Svarfað-
ardal nú í haust, rifjaðist upp
fyrir mér nokkuð, sem Halldór
Sigfússon, smiður á Dalvík,
maður Guðrúnar Júlíusdóttur
föðursystur minnar, sagði mér
einu sinni.
Það hefur líklega verið fyrir
þremur aldarfjórðungum, að
Halldór var kaupamaður í
Ytra-Holti hjá Jóhannesi Þor-
kelssyni bónda þar. (Meðal
barna hans eru Arngrímur
smiður og Kristján fyrrum
hreppstjóri á Dalvík.) Jóhannes
var búmaður góður, hjálpsam-
ur og velviljaður.
Þetta sumar var vond hey-
skapartíð, hey hirtust seint og
illa, og um veturnætur var ekki
til strá í heygarði handa sauð-
unum í Ytra-Holti, 20 talsins.
Á fyrsta vetrardegi birti upp
með heiðríkju, stillu og frost-
stinningi. Ytra-Holtsbóndi var
snemma á fótum. Kom hann að
máli við Halldór kaupamann og
vinnukonu sína, Guðrúnu að
nafni. (Það var önnur Guðrún
en sú, er síðar varð eiginkona
Halldórs.) Biður hann þau að
fara nú fram á Ytra-Holtsdal og
freista þess að afla sauðunum
nokkurra heyja. Sjálfur hafði
bóndi brýnum störfum að
gegna heima-fyrir með öðru
vinnufólki og gat því ekki farið
á dalinn.
Halldór var þá á léttasta
skeiði, liðlega tvítugur, maður
kappsfullur og harðduglegur
eins og hann var alla ævi, en eigi
veit ég um aldur Guðrúnar.
Lögðu þau tímanlega af stað
fram á dalinn gangandi og báru
amboð, reipi, torfljá og dags-
nesti.
Þau gengu þar sem leið liggur
frameftir og alla leið fram fyrir
Ása, sem eru langt frammi á dal.
Þar er sléttlendi nokkurt, loðið
og grasgefið. Munu Holtsmenn
stundum hafa sótt heyskap
þangað fyrr á tíð, en síðar Dal-
víkingar nokkrum sinnum á
fyrri hluta þessarar aldar.
Nú var þar þykkur sinuflóki,
en líka sölnandi gras frá sumr-
inu nýliðna. Var nú ekki beðið
boðanna. Halldór tók til að slá,
en Guðrún að raka á eftir hon-
um. Grasið var frosið á rót og
beit vel á það. Er ekki að orð-
lengja það, nema bæði kepptust
þau við lengi dags. Halldór
losaði þarna 15 hesta af heyi, en
Guðrún saxaði jafnharðan
múgana í föng og bar á reipi.
Bundu þau heyið í bagga, en
Halldór bar baggana á sjálfum
sér í heystæði, sem þar var.
Linntu þau ekki fyrr en heyið
var uppborið og kollað. En þá
var eftir að þekja það. Og það
gerðu þau Halldór og Guðrún
þennan sama dag. Hann risti
torf, en Guðrún færði jafnskjótt
torfurnar úr flaginu. Loks
hjálpuðust þau að við að tyrfa
heyið og búa um það.
Nærri má geta að þreytt hafa
þau verið orðin, þegar öllu
þessu var lokið. Þau settust nú
niður, borðuðu leifar nestis síns
og hvíldu sig, áður en þau héldu
heim.
Ekki er að efa, að Jóhannes
bóndi hafi orðið feginn þetta
kvöld, þegar hann frétti, að nú
væri borgið sauðaeign hans.
Þennan fyrsta dag vetrarins
höfðu þau Halldór og Guðrún
aflað sauðunum 20 i Ytra-Holti
vetrarfóðurs, sem dugði þeim
með beit fram á græn grös
næsta vor.
Júlíus J. Daníelsson.
V undanförnum árum hafa
'erið miklar framkvæmdir á
ægum bæjarins og stundum
aefur sumum víst þótt meira en
nóg um. Þrátt fyrir skptar
nóg um. Þrátt fyrir skiptar
skoðanir á meðan framkvæmd-
ir standa yfir minnast fáir á þá
erfiðleika sem fram komu,
fjárhagslega eða aðra þegar
verkinu er lokið. Hér hefur
verið gert umtalsvert átak við
lagningu bundins slitlags á
götum, byggingu ráðhúss,
heimilis aldraðra og læknamið-
stöðvar. Þessar þrjár stóru
byggingar eru nú langt á veg
komnar þannig að herslumun
vantar að koma þeim í notkun
eins og til hefur staðið. Þá má
geta um byggingu dagvistunar-
stofnunar fyrir börn en nú
stendur yfir bygging fyrsta
áfanga og verður því verki
væntanlega lokið snemma á
næsta ári. Ljóst er að á næsta ári
verður byrjað á fyrsta áfanga
nýs skólahúss o g má gera ráð
fyrir að sú bygging verði stærsta
verkefni bæjarins næstu 2, 3
árin og síðan á dagskrá af og til
næstu ár. Þess vegna gæti
einhverjum fundist það vera að
bera í bakkafullann lækinn að
minnast á bráðnauðsynlega
framkvæmd sem að mínu mati
þarf að fara að undirbúa nú
þegar. Hér á ég við byggingu
sundlaugar. Reynsla undanfar-
inna ára sýnir að talsvert langan
tíma tekur að fá framkvæmdir
sem eru sameiginlegar með ríki
og bæ samþykktar af hinu
opinbera, því er nauðsynlegt að
hrinda af stað undirbúningi
með góðum fyrirvara, sem
þýðir að leggja verður fram
bæði fé og vinnu af hálfu
bæjarfélagsins svo málið fari í
gang.
Á siðastliðnu ári samþykkti
bæjarstjórn að hætta við bygg-
ingu íþróttamannvirkja, sem
átti að nota til landsmótshalds
og nýtast síðan fyrir knatt-
spyrnu og frjálsar íþróttir. Þó
vafalaust hafi í afstöðu bæjar-
stjórnar ráðið miklu hve fjár-
frekar framkvæmdir hefðu orð-
ið, heyrðust líka þau rök að
bygging t.d. sundlaugar myndi
koma fleirum til góða en
Norður-
landaferð
Samkórsins
fyrir bí
Eins og sagt var frá í Norður-
slóð stefndi Samkór Dalvíkur
að söngferðalagi til norður-
landa næsta sumar. í haust
þegar kórinn hóf æfingar kom í
ljós að nokkrir af þeim sem
starfað hafa í kórnum síðast-
liðna tvo vetur ætluðu ekki að
vera með í vetur, og þó talsvert
bættist við af nýju fólki, nægði
það ekki til þess að æfingargætu
hafist af fullum krafti í haust.
Eftir að neikvætt svar hafði
borist um styrk til fararinnar,
frá samnorræna menningar-
sjóðum var endanlega ljóst að
hugmyndin um söngferðalag
verður lögð á hiíluna a.m.k. í
bili. Þó ekki hafi fengist styrkur
til fararinnar úr umræddum
sjóði, en næsta líklegt að hann
fáist síðar ef eftir því verður
leitað, en það sem olli
vonbryggðum voru undirtektir
fólks að starfaa í kjórnum að
þessu verkefni. Þessi dræma
þátttaka gerir það að verVnm
að ólíklegt er að fytjað verði
upp á slíkri ferð á næstunni.
Samkór Dalvíkur hefur á
Framhald d bls. 4.
fyrirgreind mannvirki. Ekki
ætla ég mér að vekja upp deilur
um löngu afgreitt mál heldur
rifja ég þetta upp til rökstuðn-
ings þess að nú verði af alvöru
hafist handa við sundlaugar-
byggingu.
Strax með tilkomu hitaveit-
unnar var útbúin bráðabirgða-
sundlaug, sem því miður hefur
ekki verið nýtt eins vel og til
hafði verið vonast. Ekki er gott
að gera sér grein fyrir af hverju
laugin hefur verið illa nýtt en þó
má benda á að umhverfi hennar
er ekki aðlaðandi. Einnig setja
ýmsir fyrir sig hve lítil og grunn
hún er. Sundskáli Svarfdæla
virðist hins vegar hafa mikið
aðdráttarafl fyrir fólk frá Dal-
vík.
Að virkja áhuga almennings
Á þessu ári hefur verið riQað
upp hér í Norðurslóð og annars-
staðar af hve mikilli atorku og
framsýni Sundskáli Svarfdæla
var byggður fyrir hálfri öld.
Aðstæður hafa mikið breyst
síðan og mökuleikar okkar til
myndarlegs átaks hér á Dalvík
eru margfaldir þó mér sé til efs
að samhyggðin, sem var drif-
fjöður, verði það núna. Þó er
mikill og almennur áhugi fyrir
sundlaugarbyggingu en mér er
ekki ljóst hvernig hægt er að ná
til áhugafólks og virkja það til
átaka. Ágætt dæmi um hvernig
vel hefur tekist til þegar fólk
leggur sig fram um að koma
áhugamálum sínum fram er
uppbygging skíðaaðstöðunnar í
fjallinu. Þar hefur verið gert
myndarlegt átak með stuðningi
bæjarfélagsins. Umsundlaugar-
bygginguna gildir hinsvegar að
bæjarfélagið verður að hafa
framkvæmdir á höndum en
áhugi fólks gæti veitt mikils-
verðan stuðning. Þegar bráða-
birgða sundlaugin var byggð
tókst að safna umtalsverðum
Qármunum til verksins og hafði
það mikil áhrif á að verkið var
unnið. Nú, þegar reynslan sýnir
að það sem þá var gert nægir
ekki til þess að sómasamlega sé
að þessari almenningsíþrótt bú-
ið þarf að fara af stað að nýju.
Því vil ég vekja athygli fólks á
málinu og skora á bæjaryfirvöld
að verja umtalsverðum fjár-
munum á næsta ári til undir-
búnings þessa verkefnis.
Jóhann Antonsson
Auglýsing
um utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingis-
kosninga sem fram fara 2. og 3. desember n.k. hófst
10. þ.m.
Kosið er á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti
107, Akureyri, virka daga á venjulegum skrifstofu-
tíma frá kl. 9.30 til kl. 15.30 svo og frá kl. 17.00 tiHtl.
19.00 og kl. 20.00 til kl. 22.00.
Á laugardögum og sunnudögum er kosið frá kl. 14,00
til kl. 17.00.
Á skrifstofu embættisins á Dalvík að Hafnarbraut 10,
er kosið á virkum dögum frá kl. 16.00 til kl. 18.00 og
um helgar eftir samkomulagi við fulltrúa á staðnum.
Kosið er hjá hreppstjórum eftir samkomulagi.
Athygli er vakin á ákvæði bráðabirgðalaga nr. 89,
1979, þar sem kjósanda er heimilt að greiða atkvæði
utan kjörfundar, enda hafi hann ástæðu til að ætla að
veður eða færð muni hamla honum að sækja kjör-
fund á kjördegi.
Akureyri, 12. nóvember 1979.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Viðskiptavinir
athugið!
Þeir, sem fá lánaðar vörur í verslunum okkar, eru vin-
samlega beðnir að greiða þær fyrir 7. hvers mánaðar
(eftir úttektarmánuð). Ella reiknast 4.5% vextir á
mánuði á skuldina.
Verslunin SOGN, Dalvík
Verslunin ÝLIR, Dalvík
Þímr peninpar
erumenra vmðií
KJðRMARHVÐE^
Verslið hagstætt
og sparið
peninga.
HRÍSALUNDI 5
2 - NORÐURSLÓÐ