Norðurslóð - 17.12.1979, Síða 1

Norðurslóð - 17.12.1979, Síða 1
Kór Tryggva Kristinssonar 1919-20 Aftasta röð f.v.: Björn Pálsson, Þórarinn Eldjárn, Sigurður P. Jónsson, Daníel Júlíusson. Næst aftast: Jóhannes Arngrímsson, Jón Jónsson frá Kofa, Hallgrímur Halldórsson frá Melum, Kristján Jóhannesson. Þriðja röð: Tryggvi Kristinsson, Guðrún Kristinsdóttir, Jórunn Antonsdóttir, Sól- veig Hallgrímsdóttir, Freyja Antonsdóttir, Dag- björt og Halldóra Gísladætur frá Hofi. Sitjandi: Solveig Jónsdóttir, María Jóhannsdóttir Sigluf., Kristín Tryggvadóttir og Sigurlaug Jónsdóttir. Óskum lesendum gleðilegra jóla, þökkum liðin ár. í þriðja sinn óskar Norðurslóð lesendum sínutn gleðilegra jóla. Eins og í fyrra viljum við útgefendur blaðsins gjarnan gera þau tímamót, sem jólin eru, hátiðleg, og þá með því að gefa út stærra og vandaðra blað en venjulega. Jólin eru sannarlega tímamót og þá einkum hér á „norðurslóðum". Frá alda öðli hafa menn gert sér dagamun á þessum árstíma. Hrollkalda haustmánuðina höfum við séð hvernig sólin lœkkar stöðugt á lofti og þegar kemur fram í desembermánuð sjáum við ekki lengur til sólar hér norður í Svarfaðardal. A mörgum bœjum þar hefur sólin horfið miklufyrr. En við vetrarsólhvörfm bregður til betri tíðar, íþeim skilningi að sólin lœkkar nú ekki lengur á lofti. Nú snýr hún við á þessari sinni árlegu hringferð og tekur til að hœkka á himni á nýjaleik. Svo lengi sem mannskepnan hefur haft rœnu á aðfvlgjast með gangi sólar, svo lengihafa menn gert sér dagamun um jólaleytið. Aðurfyrr hefur ugglaust verið litið svo á, að hátíðahöldin vœru nauðsvnleg tilþess að hjálpa sólinni; helgisöngvar og hátíðleiki voru sólinni ómissandi hjálparhella, án þeirra hefði hún endanlega sokkið ísœ og aldrei komið upp aftur. Þvíhefur enginn viljað skerast úr leik, þegar reynt var að mana sólina til að snúa til baka. Margt hefur breyst í timanna rás. Við mannabörn á 20. öldþekkjum svo mikið til stjörnufræði, að við teljum ekki lengur að jörðin þurfi á aðstoð að halda til að Ijúka hverri hringferð sinni um sólu. Engu að síður gleðjumst við yfir þeim tímamótum i náttúrunni, þegar Ijósið hefur framsókn sína gegn myrkrinu. Ekki dregurþað úr hátíðleikanum hjá okkur íslendingum að áhangendur ríkjandi trúarstefnu á Vesturlöndum, kristinnar trúar, hafafyrir mörgum öldum tekið þá ákvörðun að minnast fœðingar Jesú í Nazaret einmitt áþeim tíma þegar ríki myrkursins hœttir að auka völd sín í náttúrunni og Ijósið fer að sœkja á. Að vísu er sóknin mjög hœgfara ifyrstu, þar munar ekki nema svo sem einu hœnufeti dag hvern. En upphaif framsóknar er fyrirheit um sigur. Messur um jólin Á komandi jólum verður l'ærra um guðsþjónustur í kirkjum prcstakallsins.cn venja er. Veldur því að sóknarpresturinn, sr. Stefán Snævarr er af heilsu- farsástæðum ekkienn tekinn við störfum sínum. Því ntun nágrannapresturinn. sr. Úlfar Guðmundsson þjóna í lians stað eins og hér segir: Messað verður í Vallakirkju á jóladag kl. 2 e.h. Er það eina guðsþjónustan í sveitinni um jólin. I Daivíkurkirkju verður einnig messað á jóladag kl. 5 e.h. Afgreiðslutími verslanaKEA um jól og nýár I.augardaginn 22. des. verða verslanir kaupfélagsins opnar kl. 10.00 - 23.00. Á aðfangadag 24. des. verðuropiðkl. 9.00- 12.00. Á gamlársdag sömuleiðis opið milli kl. 9.00 og 12.00. Lokað er á nýársdag lögum samkvæmt. Miðvikudaginn 2. jan. verður matvörudeildin lokuð er kjörbúðin í Skíðabraut verður opin þann dag. Þess skal sérstaklega getið að söluopið í kjörbúð verður lokað á aðfangadag, jóiadag, 2. í jóium. gamlársdag og nýársdag. Sparisjóðurinn um jól og nýár Á aðfangadag, 24. des. verður Sparisjóðurinn opinnkl. 9.15 12.00. Á Gantlársdag 31. des. sömuleiðis kl. 9.15-12.00. Miðvikudaginn 2. janúar verður sjóðurinn lokaður allan daginn vegna áramótauppgjörs. Fimmtudaginn 3. jan. og framvegis verður afgreiðslutími aftur eins og verið hefur.

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.