Norðurslóð - 17.12.1979, Qupperneq 15
Óhreint
vatn
r
a
Dalvík
Hér á Dalvík voru all mikil
brögð að því nú í haust að kalt
kranavatn var mórautt af
drullu. Það er að vísu ekki ný
bóla að neysluvatn á Dalvík sé
ekki alls kostar hreint og hafa
menn mátt una því að þurfa að
hreinsa síur á krönum með vissu
millibili. En í haust tók sem sagt
út yfír allan þjófabálk. Norður-
slóð hefur fyrir satt að sumir
Dalvíkingar hafí aukið þekk-
ingu sína í dýrafræði með því að
skoða baðvatnið.
Skýringin á þessum ósköpum
er sára einföld, en að vísu tók
langan tíma að finna hana.
Starfsmenn Dalvíkurbæjar
tóku upp dælur sem þeir töldu
ónýtar og fóru með þær á
verkstæði. En allt kom fyrir
ekki. - Loks kom hið sanna í
ljós. Rafmagnsveitur ríkisins
höfðu umpólað straumnum á
dælurnar þegar unnið var við
tengingar vegna línulagnar til
Ólafsfjarðar í haust. Dælurnar
höfðu sem sé gengið öfugt um
tíma; í stað þess að dæla vatninu
upp úr borholunum út í dreifi-
kerfið, höfðu þær þrýst vatninu
enn þá lengra ofan í jörðina.
Dalvíkurbær hefur tilkynnt
Rafveitunum að farið verði
fram á bætur vegna þessara
mistaka. Þau kostuðu bæinn
mikla fyrirhöfn og auðvitað
gengu gjaldmælar Rafveitunnar
á fullu meðan á vitleysunni
stóð.
Framtíðarlausn.
Nú hafa fyrrgreind mistök
verið leiðrétt, en sú leiðrétting
dugar ekki til að leysa vatns-
vanda Dalvíkinga. Vatnsveitu-
nefnd og bæjarstjórn hafa sam-
þykkt að nú þegar verði virkjuð
lind uppi á Upsanum, þ.e.
upptök Upsalækjar, og að í
vetur verði fylgst náið með
vatnsmagni í Grímu-ánum, en
það er hald margra að Grímu-
árnar gætu hugsanlega orðið
framtíðarlausnin á árstíða-
bundnum vatnsskorti á Dalvík.
Hannes Pétursson
KVÆÐAFYLGSNI
Þórarinn Eldjám
ERINDI
Stefán Hörður Grímsson
LJÓÐ
Gunnar Gunnarsson
GÁTAN LEYST
í þessari bók fjallar Hannes Péturs-
son um líf og list Jónasar Hallgríms-
sonar. Bókin er reist á vandlegri
könnun heimilda og sniUdarvel
rituð. „Lestur bókarinnar er
skemmtun og hátíð sem heldur
áfram allt kvöldið og alla nóttina. ..“
(J.S./Iuninn). „Útkoma Kvæða-
fylgsna er mikill bókmenntalegur
viðburður.“ (J.Þ.Þ./Timinn). „Eins
og vænta mátti er öll bók Hannesar
hin laæilegasta enda skrifar þar
skáld af umhyggju og ástúð um
annað skáld.“ (H.P./Helgarpóstur-
inn).
MANASILFUR
Gils Guðmundsson valdi efnið
Hér er að finna úrvalskafla úr
íslenskum endurminningum og
sjálfsævisögum og er fyrirhugað
að safriið verði í nokkrum bindum.
I bókinni eru fjölbreytilegar frá-
sagnir eftir fólk úr ýmsum stéttum,
allt frá séra Jóni Steingrímssyni til
núlifandi manna. Bráðskemmtileg
bók og fróðlegt sýnishom íslenskrar
frásagnarlistar.
Jón Éspólin og Einar Bjamason
SAGAFRÁ
SKAGFTRÐINGUM IV. bindi
Með þessu bindi lýkur útgáfu hins
stórmerka heimildarrits um tíðindi,
menn og aldarhátt í Skagafirði
1685-1847. Aftast er nafnaskrá yfir
öll bindin sem einnig tekur til
skýringagreina.
„. . . ýmis erindi, bundin í erindi,
öll brýn. Eg geng þeirra hér í kverinu
og á þau við lesarann.“ - Þessi orð
lætur Þórarinn Eldjám fylgja
hinni nýju kvæðabók sinni.
Þórarinn á stærri lesendahóp en flest
önnur samtímaljóðskáld. Sá hópur
verður ekki fyrir vonbrigðum með
þennan beitta og skemmtilega kveð-
skap.
Thor Vilhjálmsson
TURNLEIKHÚSIÐ
Ný skáldsaga eftir Thor Vilhjálms-
son, einn leiknasta prósahöfund vor
á meðal. Lesandinn er leiddur að
tjaldabaki i leikhúsi áður en sýning
hefst. Við enun stödd í kynlegum
heimi þar sem mörk draums og vöku
eru numin burt. Þetta er sýnishom
af stílgaldri höfundar sem vafalaust
þolir samanburð við hina fremstu
meðal evrópskrar samtíðar sinnar.
Haraldur Jóhannsson
PÉTUR G. GUÐMUNDSSON
og upphaf samtaka alþýðu
Þessi bók fjallar um einn stofnenda
Dagsbrúnar og helsta forustu-
mann í verkalýðsbaráttu á upphafs-
skeiði hennar. Markvert framlag til
verkalýðssögu á Islandi.
Þetta er heildarútgáfa á ljóðum
Stefáns Harðar, eins sérkennilegasta
og listfengasta skálds samtíðarinnar.
Hér er hin torgæta fyrsta bók
skáldsins, GLUGGINN SNÝR í
NORÐUR, einnig SVARTÁLFA-
DANS og HLIÐIN Á SLÉTT-
UNNI. Bókin er prýdd myndum
eftir Hring Jóhannesson og til
útgáfunnar vandað eftir föngum.
„. . . ber vott um stolt og virðingu
fyrir ljóðinu."
(H.P. /Helgarpósturinn).
Egill Egilsson
SVEINDÓMUR
Saga úr Reykjavík, lýsir lífi drengs á
unglingsaldri, heima og í skóla.
Hver em þau uppeldis- og þroska-
skilyrði sem samfélagið býr honum?
Áleitin og ögrandi bók, rauntrú
lýsing á umhverfi okkar sem ekki
verður vísað á bug. Tímabært
innlegg til umræðna um kjör bama
í samfélaginu.
Þetta er fyrsta bókin í flokki sagna
um rannsóknarlögreglumanninn
Margeir. Nýjung á íslenskum bóka-
markaði. GATAN LEYST er
spennandi saga sem gerist í Reykja-
vik og á Akureyri og leikurinn berst
til Spánar. Umhverfið allt kunnug-
legt og greint frá átvikum sem standa
okkur nærri.
Auður Haralds
HVUNNDAGSHETJAN
Þrjár öruggar aðferðir til að
eignast óskilgetin börn
Óvenjuleg reynslusaga, opinská og
hispurslaus enda hefur hún þegar
sætt miklum tíðindum: „. . . allmikil
nýlunda í íslenskum bókmenntum. .
m.a. um rétt konunnar til að lifa
óþvinguðu kynlífi.. . Auður Haralds
er ágætlega ritfær höfundur." (H.P./
Helgarpósturinn). „Ég spái að bók
þessi veki verðskuldaða athygli.“
(E.J./Mbl.)
Ólafur Jónsson
LÍKA LIF
Úrval blaðagreina Ólafs Jónssonar
um samtímabókmenntir frá árunum
1963-79. Athyglisverð heimild um
viðbrögð við nýjurn bókmenntum:
í þeim er LÍKA LÍF. Bók fyrir
áhugasama lesendur.
Bræðraborgarstígló Sími 12923 ogl9156
Frá Norræna félaginu
Um hvítasunnuna var haldið
vinabæjamót í Viborg í Dan-
mörku en Dalvík er í vinatengsl-
um við þá borg, ásamt Hamar í
Noregi, Borgá í Finnlandi og
Lundi í Svíþjóð, eins og áður
hefur reyndar verið sagt frá hér í
blaðinu.
Frá Dalvíkurdeild Norræna
félagsins sótti Þórdís Hjálmars-
dóttir mótið, en hún tók við
formennsku af Sigríði Rögn-
valdsdóttur sl. vor. Þetta var í
fyrsta sinn, sem Dalvíkingum
gafst kostur á að taka þátt í
þingi sem þessu og óhætt að
fullyrða, að ferðir sem þessar
séu mjög lærdómsríkar.
Slík vinabæjamót eru haldin
annað hvert ár og verður næst
haldið í Borgá í Finnlandi í júní
1981. í því sambandi vill
Dalvíkurdeild Norræna félags-
ins efna til kynningar á landi og
þjóð snemma á næsta ári og
hvetur hún alla þá, sem áhuga
hafa á að kynnast Finnlandi
nánar, að láta þessa kynningu
ekki fara fram hjá sér - einkum
ef þeir hefðu nú áhuga á að taka
þátt í þinginu, en félagsmönn-
um mun gefast kostur á því,
þegar þar að kemur. Verður þá
reynt að haga því svo til, að eftir
að mótinu lýkur verði ferðast
um landið í nokkra daga.
í formi bóka og bæklinga
liggur nokkuð af upplýsingum
hjá Þórdísi Hjálmarsdóttur um
vinabæi okkar, sem Norræna
félaginu hafa áskotnast. Einnig
var félaginu send skrá yfir öll
félög og samtök í Lundi, og
viljum við benda félögum hér á
Dalvík á að notfæra sér skrá
þessa, með hugsanleg tengsl
fyrir augum.
f tilefni af barnaári kom sú
hugmynd fram frá Norræna
félaginu í Hamar, að koma upp
farandsýningu á barnateikning-
um, frá öllum vinabæjunum.
Vinna við þetta er í þann veginn
að hefjast, og ljóst er að við
eigum að senda okkar teikn-
ingar af stað um páskaleytið.
Um svipað leyti kemur fyrsta
sýningin til okkar og verður hún
frá Borgá.
TIL JOLAGJAFA:
Mokkajakkar, húíu' og múffur - gjöf sem vermir
Al/c jyrir skíðafólkið,
t.d. skíðagallar fyriv börn og fullorðna og m.m. fl.
I I'
Leikföng í úrvali - spennandi, þroskandi.
Fjarstýrðir bílar, rafmagnsjárnbrautarlestir o.fl.o.fl.
Aðventuljós og jólatrésseríur.
Óskum öllum viðskiptavinum gleðilegra jóla
og þökkum viðskiptin á árinu.
s.f.
NORÐURSLÓÐ - 15