Norðurslóð - 25.01.1980, Page 1
Vígsla Dalbæjar
heimilis aldraðra á Daívtk
ingum og Svarfdœlum bestu
kveðjur og óskum góðri stofnun
allrar blessunar í göfugu hlut-
verki sinu.
Halldóra og Krist ján Eldjárn.
Byggingarsagan.
Samkvæmt reglugerð skipa 5
menn stjórn stofnunarinnar, 4
frá Dalvík og 1 frá Svarfaðar-
dalshreppi. I núverandi nefnd
eru aðalmenn Ásdís Óskars-
dóttir frá Svarfaðardalshreppi
og Bragi Jónsson, Ingibjörg
Ásgeirsdóttir, Óskar Jónsson
og Valgerður Guðmundsdóttir
frá Dalvík.
Rœða nefndarformanns.
Formaður nefndarinnar,
Óskar Jónsson, sagði sögu
byggingarinnar, aðdraganda og
framkvæmdir. Ljóst er að
nokkrir áratugir eru síðan menn
fóru í alvöru að ræða um
stofnun elliheimilis á Dalvík, en
svo var heimili aldraðs fólks
jafnan nefnt manna á meðal.
Óskar taldi að ekki væru nú
aðstæður né heldur ástæða til
að grafast fyrir það hvenæreða
hverjir hefðu fyrst sett fram
hugmyndir um stofnun elli-
heimilis fyrir Svarfdælinga, en
augljóst væri að áhugi á málinu
hefði fljótt orðið mikill og
almennur og vitnaði best um
það sá mikli fjöldi gjafa, stórra
og smárra, sem stofnuninni
hefði borist, bæði fyrir og eftir
að hún var ákveðin og komin á
pappíra.
Sannleiksgildi þessara orða
gátu menn sannfært sig um með
því að glugga í gjafabók, sem
frammi lá, en þar er skráður
mikill fjöldi gjafa og hefur verið
lauslega reiknað út, að samtals
næmu þær meira en kr. 70
milljónum ef þær væru allar
færðar til nútíma verðgildis
krónunnar.
Framkvæmdir við húsið hóf-
ust 5. júní 1976, en þá varbyrjað
að taka fyrir grunninum. Nú er
austurálma hússins fullfrágeng-
in hið innra og eru þar vistar-
verur fyrir 30 manns. Er þar allt
fullskipað. Þá er og fokheld
vesturálma, þar sem fást mun
húspláss fyrir 13 vistmenn til
Síðastliðinn desember flutti bæjarskrifstofan loks í nýja ráðhúsið.
Starfslið skrifstofunnar talið frá vinstri: Valdimar Bragason, Petra
Ingvadóttir, Sigrún Jónsdóttir, Kristín Þorgilsdóttir og Birgir Sigurðs-
son. - Nýráðinn bæjarritari, Karl Guðmundsson, mun hefja störf í
næsta mánuði en hann er að Ijúka námi í viðskiptafræði í Háskóla
fslands.
Þó að heimili aldraðra á
Dalvík hafi starfað með fullum
krafti í nokkra mánuði hefur
alltaf verið gert ráð fyrir form-
legri vígsluathöfn þess við gott
tækifæri. Góða tækifærið gafst
laugardaginn 12. janúar. Á
vegum byggingarnefndar húss-
ins, sem áfram starfar sem
húsnefnd, var efnt til vígsluat-
hafnarinnar og boðið fjölda
manns, sem komið hafa við
sögu þess á einn eða annan hátt.
Ritstjórn Norðurslóðar var
boðið að fylgjast með athöfn-
inni, sem þegið var með þökk-
um, og skal hér gerð stuttlega
grein fyrir því helsta, sem fram
fór, en það var allt með hinum
mesta menningarbrag öllum
viðkomandi til sóma.
Samkoman hófst með stuttri
helgiathöfn, sem sr. Stefán
Snævarr framdi. Kirkjukór
Dalvíkur söng en honum stjórn-
aði Gestur Hjörleifsson.
Bæjarstjóri Dalvíkur, Valdi-
mar Bragason, stjórnaði sam-
komunni og gat þess að gestir úr
Reykjavík, sem boðnir voru til
vígslunnar, hefðu ekki geta
komið til leiks, m.a. af því að
flug lá niðri þennan dag vegna
slæmra flugskilyrða. Menn
þesir voru forseti íslands, félags
málaráðherra og forstjóri Hús-
næðismálastofnunar rikisins.
Bæjarstjóri las svofellt skeyti:
A vigsludegi Dvalarheimilis-
ins sendum við öllum Dalvík-
Úrkomum ælingar
TAFLA 1 TAFLA2
í Svarf-
aðardal
Árið 1979 var
tiltölulega
þurrviðrasamt
í janúarblaði Norðurslóðar
1978 var gerð grein fyrir þeim
úrkomumælingum sem gerðar
hafa verið á Tjörn frá því árið
1970. Ýmsum kann nú að leika
hugur á að vita hver úrkoman
var árið 1979 og hvernig þetta ár
kemur út í samanburði við önn-
ur ár áratugarins.
Það er skemmst frá því að
segja, að árið var með þeim
alþurrustu á áratugnum. Úr-
koman mældist 417 mm. Að-
eins árið 1978 komst neðar, en
þá reyndist úrkoman 364 mm.
Það má vera, að þetta komi
mörgum á óvart eftir þá annál-
uðu óþurrkatíð sem ríkti síð-
asta sumar. Þetta sannar þó að-
eins þá staðreynd að þaðerekki
úrkoman ein sem ræður því
hvort viðrar vel til heyskapar
eða annarra útiverka eður ei.
Lofthitinn er sennilega mun
mikilvægari þáttur hvað varðar
heyskapartíðina en úrkomu-
magnið.
Á töflu 1 er ársúrkoma und-
angenginna ára sýnd. Eins og
sjá má hefur meðalúrkoma á
Tjörn síðasta ánrtuginn mælst
491 mm. Úrkoman 1979 er því
15% undir meðallagi.
LANÐi’BÖRASAFH
Ársúrkoma og fjöldi úrkomu- Mánaðarúrkoma og úrkomu-
daga árin 1970-1979. dagar árið 1979.
Ár Arsúrkoma Úrkomud Mán. Mán.úrkoma Úrk.dagar
1970 508 mm 150 dagar jan. 39.5 mm 15 dagar
1971 576 mm 175 dagar feb. 13.1 mm 12 dagar
1972 538 mm 193 dagar mars 27.3 mm 10 dagar
1973 480 mm 174 dagar apríl 39.7 mm 18 dagar
1974 561 mm 176 dagar maí 19.7 mm 12 dagar
1975 580 mm 178 dagar júní 40.7 mm 17 dagar
1976 451 mm 168 dagar júlí 29.9 mm 10 dagar
1977 432 mm 142 dagar ágúst 11.8 mm 11 dagar
1978 364 mm 143 dagar sept. 58.3 mm 20 dagar
1979 417 mm 160 dagar okt. 22.7 mm 11 dagar
nóv. 95.6 mm 15 dagar
Meðaltal 4,91 mm 166 dagar des. 22.4 mm 9 dagar
Eins og sjá má af töflu 2 var Alls 417.1 mm 160 dagar
mesta manaðarurkoman í
nóvember 95.6 mm en minnst
var hún í ágúst aðeins 11.8 mm.
Þó var ágúst einstakur djöfuls
óþurrkatími svo varla þornaði á
allan liðlangan mánuðinn, enda
hraktist hey illa. Þessu olli
mikill loftraki, sólarleysi og
kuldar. Mesta sólarhringsúr-
koman á árinu var þann 4. nóv.
33.4 \ mm. Enn stendur því
óhaggað úrkomumetið frá 26.
ágúst 1974 en þá rigndi 38.0
mm.
Úrkomudagar teljast þeir
dagar þegar mælanlegt úr-
komumagn fellur. Oft verður
smávægilegrar úrkomu vart án
þess að um mælanlegt magn sé
að ræða. Á síðasta ári urðu
úrkomudagarnir 160. Þetta er
ögn minna en í meðalári. Með-
alárið telst hafa 166 úrkomu-
daga. Sannast hér enn, að tíðar-
farið verður ekki metið út frá
einum veðurfarsþætti.
~to MM
bo -
A. Hj.
laDt* A. A&A*.
Vítfí/J, APtflV-JwjjÍ EJLW /LðEKk'Oti *£*T
ak.r. ijÍjv. <*<*. öfe. dStoAtu. mmju4>{R M-ikAifí mjo
50
Vo -
3o -
Zo -
■to
-4»
50
• Vo
• 3o
%o
■10
viðbótar. Á biðlista er nú fólk til
að fylla það pláss.
Þeir sem verkin unnu.
Arkitekt byggingarinnar er
Karl-Erik Rocksén, sá hinn
sami sem teiknaði heimavist
gagnfræðaskólans. Bygginga-
meistari við verkið hefur verið
Þórir Pálsson.
Múrverk annaðist Sverrir
Sigurðsson, pípulagnir vann
Plast- og stálgluggar, raflagnir
vann Elektró Co., innréttingar
vann Tréverk og málun vann
Híbýlamálun. Allt eru þetta
menn og fyrirtæki á Dalvík.
Eftirlit og yfirumsjón annaðist
Sveinbjörn Steingrímsson bæj-
artæknifræðingur.
Þakkaði Óskar Jónsson öll-
um þeim, sem hér hafa lagt
hönd á plóginn ágætlega unnin
störf við bygginguna.
Að lokum gat hann þess, að
þótt ekki lægi fyrir endanlegt
uppgjör mundi láta nærri að
byggingarkostnaður án vaxta á
byggingartímanum sé um kr.
220 milljónir.
Ávarp forseta bœjarstjórnar.
Óttar Proppé, forseti bæjar-
stjórnar Dalvíkur, llutti því
næst ávarp. Hann fór nokkrum
orðum um þá skoðun, sem hann
taldi að færi vaxaandi, að allt
skuli meta til fjár. Hvað kostar
það, hvað gefur það í aðra
hönd? Þessar spurningar heyr-
ast æ oftar. „f samræmi við
þetta sjónarmið er því stundum
haldið fram, að í samfélagi
nútímans megi skipta öllum
einstaklingum í tvo hópa: Ann-
arsvegar séu þeir, sem vinna
framleiðslustörfin og önnur
störf þeim tengd. Hinsvegar séu
þeir, sem ekki taka þátt í
framleiðslunni, t.d. börn, siúkl-
Sr. Stefán Snævarr.
NORÐURSLÓÐ
4. árgangur
Fimmtudagur 25. janúar 1980
1. tölublað