Norðurslóð - 25.01.1980, Qupperneq 6
| NORÐURSLÓÐ
S V ARFDÆLSK
BYGGÐ OG BÆR
Áskriftarreitur
Hitaveita Dalvíkur
Á s.l. ári voru liðin 10 ár frá því
að fyrstu húsin á Dalvík voru
tengd Hitaveitu Dalvíkur. Af
þessu tilefni og ennfremur því
að s.l. ár var með meiriháttar
framkvæmdaárum Hitaveitunn
ar er ekki úr vegi að rifja í stuttu
máli upp sögu og þróun þessa
fyrirtækis. Vera kann að hug-
myndir um hitaveitu á Dalvík
hafi komið fram áður en hafist
var handa við leit og borun eftir
heitu vatni að Hamri, en ekki er
mér kunnugt um þær. Upphaf
núverandi hitaveitu má rekja til
þess, að árið 1966 lét Svarfaðar-
dalshreppur bora könnunar-
holu að Hamri. Þessi borun gaf
jákvæðan árangur og vonir um
að þar mætti finna nýtanlegt
vatn til hitaveitu. í fundargerð
hreppsnefndar Dalvíkur frá 1.
febrúar 1968 er eftirfarandi
bókun:
„Jóhannes Haraldsson hóf
máls á því hvort ekki væri tíma-
bært að hafa samband við
hreppsnefnd Svarfaðardals-
hr. og Jarðhitadeild ríkisins um
borun eftir heitu vatni í Ham-
arslandi eða á þeim stað sem
kynni að vera heppilegastur.
Edgar Guðmundsson gerði
grein fyrir þeim athugunum sem
gerðar hefðu verið í sambandi
við hitaveitu og taldi mjög
ákjósanlegt að borað yrði hér í
nágrenni kauptúnsins hið
fyrsta. Samþykkt var að vinna
að framgangi þessa máls og
reyna ef mögulegt væri að hefj-
ast handa að vori.“
Báðir þeir, sem tilgreindireru
í franjangreindri bókun voru
miklir áhugamenn um þessa
framkvæmd.
í framhaldi af þessari sam-
þykkt voru hafnar viðræður við
Svarfaðardalshrepp varðandi
réttindi til borunar að Hamri,
sem enduðu með samþykkt
samnings um jarðhitaréttindi
að Hamri 10. okt. 1968 og þá
var jafnframt samþykkt að hefj-
ast handa um tilraunaboranir
þar. Þessar boranir hófust síðla
ársins og stóðu fram í ársbyrjun
1969. Fyrsta holan sem kölluð
er hola 2 gaf 17 ltr/sek af 57
gráðu heitu vatni, sem ergóður
árangur miðað við dýpt hol-
unnar sem var um 300 metrar.
Sem ráðgjafa í hitaveitumál-
um hafði hreppsnefndin í upp-
hafi Svein Einarsson verkfræð-
ing, en hann réðst til annarra
starfa áður en hönnun verksins
var nokkuð hafin og tók þá
Edgar Guðmundsson sem þá
var verkfræðingur hér við verk-
inu og fékk sér til aðstoðar
Verkfræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen á Akureyri. Áætlaður
Framhald á síðu 5.
Brú hitaveitunnar hin fyrri. ísinn varð henni skeinuhættur og nú er
þarna stálbogabrú.
Tímamót
Þann 9. des. var skírð Halla Björg, foreldrar Valborg Björg-
vinsdóttir og Davíð Stefánsson sjómaður, Mímisvegi 26,
Dalvík.
Annan jóladag var skírð Guðrún Anna, foreldrar Kristrún
Hjaltadóttir frá Dalvík og Óskar S. Einarsson, kennari,
Kópavogi.
MÉR ER
SPURN?
Norðurslóð leitar svara
Engum getur dulist, hve Dal-
víkurbær hefur vaxið og dafn-
að myndarlega á nýliðnum
áratug. Götukerfi hefur tekið
stakkaskiptum, höfnin hefur
batnað og fríkkað, úthverfi
hafa sprottið upp og síðast en
ekki síst hefur myndast mið-
bæjarkjarni, að vísu ekki
fullþroskaður ennþá, en samt
á hraðri þroskabraut.
Ráðhúsið, sem áður var
stundum kallað því stórhrika-
lega nafni Stjórnsýslumið-
stöð, setur nú þegar, þótt
ófullgert sé, mikinn svip á
miðbæinn.
Sem sagt, þarna er að
myndast umhverfi, sem
ánægjulegt er að koma í til að
gegna hinum ýmsu nauðsynja-
erindum þar sem menn geta
gjarnan hugsað sér að doka
við og líta vel í kringum sig,
áður en heim er haldið. En
hvar á þá að doka við, úti á
stræti, inni í búð eða skrifstofu
eða hvar??
Og þá kemur umhvörtunin,
sem líka getur verið í fyrir-
spurnarformi. Má maður ekki
bráðlega vænta þess, að opn-
aður verði veitingastaður fyrir
gest og gangandi í miðbæ
Dalvíkur? Er ekki möguleiki
til að koma á fót einhvers
konar kaffiteríu, þar sem
menn geta sest niður í róleg-
heitum yfir bolla og brauð-
snúð? Á efstu hæð Ráðhússins
er mikið húsrými óráðstafað.
Þaðan er útsýni glæsilegt til
allra átta svo leitun er á öðru
eins. Þarna væri gott að eiga
griðastað og athvarf.
Hafa bæjaryfirvöld nokkuð
hugsað sér að gera í málinu?
Valdimar Bragason, bcejar-
stjóri Dalvíkur svarar:
Eiigin samþykkt hefur verið
gerð í bæjarstjórn Dalvíkur
um opnun veitingastaðar í
miðbæ Dalvíkur.
Hvað varðar húsnæði á
efstu hæð Ráðhússins, er það
að segja, að verulegur hluti
þess er sameign þeirra, sem
eiga húsnæði í byggingunni. í
því húsrými er gert ráð fyrir
sameiginlegri kaffistofu, þá
kemur tvennt í hugann, sem
ekki er jafnaðlaðandi og út-
sýnið. Annað atriðið er, að
þegar er rekinn veitingastaður
hér á Dalvík.
Ekki virðist rekstrargrund-
völlur of góður fyrir þennan
eina stað, hvað þá ef um tvo
staði yrði að ræða?
Hitt er, að húsnæðið er á 3.
hæð, engin lyfta í húsinu,
þannig að gott útsýni kæmi
einkum fótfráum til góða.
Á gamlársdag var skírð Harpa, foreldrar Ingigerður L. Jóns-
dóttir og Þorvaldur Þ. Baldvinsson, Mímisvegi 5, Dalvík.
_ 4
Á nýársdag var skírð Hrund, foreldrar Halldóra og Eggert
Briem, Svarfaðarbraut 20, Dalvík.
Sama dag var skírð Bergljót Björk, foreldrar Helen Heiðrós
Ármannsdóttir frá Haga og Stefán Jónmundsson frá
Hrafnsstöðum. Búa við Sunnubraut, Dalvík.
Þann 18. janúar var skírður Þorleifur Kristinn, foreldrar
Dagný Magnea Harðardóttir, Björk, Garði, og Árni Snorra-
son, Völlum.
Á aðfangadag voru gefin saman brúðhjónin Sigurgeir Jóns-
son málarameistari og Steinunn Kristín Hauksdóttir,
Dalbraut 3, Dalvík.
Á jóladag voru gefin saman Vilmundur Þórir Kristinsson og
Lísbet Ringsted Sigurðardóttir, Goðabraut 24, Dalvík.
Sparisjóðsfundur ’80
Fundurinn var haldinn í Víkur-
röst laugardaginn 19. janúar. Á
dagskrá hans voru venjuleg
aðalfundarstörf. Þó var þessi
fundur að því leyti sögulegur að
á starfsárinu 1979 urðu merk
þáttaskil í ævi sjóðsins, er hann
flutti í eigið húsnæði í Ráðhúsi
Dalvíkur og tók jafnframt upp
nýtískulega vélvæðingu við bók
haldið með tölvuvinnslu í sam-
bandi við reiknistofnun bank-
anna í Kópavogi.
Tveir nýkjörnir fulltrúar í
ábyrgðarmannaráði sjóðsins
mættu á fundinum, en það voru
Guðrún Lárusdóttir á Þverá og
Margrét Gunnarsdóttir á
Göngustöðum báðar fulltrúar
úr Svarfaðardalshreppi. Þær
komu í stað Svönu Halldórs-
dóttur á Melum, sem flutti burt
á árinu og Helga Símonarson-
ar, sem gekk úr ráðinu sam-
kvæmt aldursákvæðum í lögum
sjóðsins.
Aðalfundurinn kýs árlega 3
menn í stjórn sjóðsins, en aðra 2
kjósa sýslunefnd Eyjafjar'ðar-
sýslu og bæjarstjórn Dalvíkur.
Eftirtaldir menn voru endur-
kjörnir í sjóðstjórnina:
Steingrímur Þorsteinsson,
Sveinn Jóhannsson og Þorgils
Sigurðsson allir á Dalvík. Fyrir
voru Hilmar Daníelsson fyrir
bæjarstjórn Dalvíkur og Hjört-
ur E. Þórarinsson fyrir Svarf-
aðardalshrepp kosinn af sýslu-
nefndinni.
Á árinu 1979 fór niðurstaða
efnahagsreiknings í fyrsta sinn
yfir einn milljarð og varasjóður
yfir 100 milljónir króna.
Samtímis var skírð dóttir þeirra Guðný Ósk.
Sigrún. Ólöf.
Þann 22. des. andaðist Sigrún Júlíusdóttir í Garði á Dalvík.
Sigrún fæddist 25. júlí 1911, dóttir Júlíusar Björnssonar og
Jónínu Jónsdóttur í Sunnuhvoli. Árið 1931 giftist hún Birni
S. Arngrímssyni og eignuðust þau 6 börn, en 5 þeirra eru nú á
lífi. Sigrún var jarðsett á Dalvík 29. desember.
Á jóladaginn andaðist Ólöf V. Gunnlaugsdóttir í Miðkoti.
Hún fæddist á Litla-Árskógssandi 2. ágúst 1912 og voru for-
eldrar hennar Gunnlaugur V. Skarphéðinsson og Sigríður
Þorsteinsdóttir. Árið 1934 giftist Ólöf Páli Guðlaugssyni frá
Miðkoti. Þar bjuggu þau allan sinn búskap og eignuðust tvo
syni Hafstein og Jón, sem báðir búa á Dalvík.
Hún var jarðsett á Dalvík þann 5. janúar.
Útdráttur úr reikningum sparisjóðsins.
REKSTRARREIKNINGUR
ÁRSINS 1979
GJÖLD:
1. Kostnaður við rekstur............ kr. 32.524.653
2. Vaxtagjöld ........................ — 172.233.632
3. Afskriftir af innbúi............... — 1.012.897
4. Annar kostnaður.................... — 3.233.052
5. Viðhald fasteigna.................. — 237.782
6. Ársarður færður i varasjóð....... — 14.787.095
Samtals kr. 224.029.111
EFNAHAGSREIKNINGUR
EIGNIR:
1. Skuldabréf fyrir lánum . . kr. 20.630.100
2. Vaxtaaukalán . . 291.931.061
3. Víxlar . . 180.771.576
4. Yfirdráttarlán . . 49.485.472
5. Afurða- og framleiðslulán . . . . . 17.089.000
6. Inneignir í bönkum . . 113.317.838
7. Bundið fé í Seðlabanka Isl. : . . . 263.677.158
8. Tryggingarsjóður . . — 4.414.997
9. Fasteignir . . 108.476.414
10. Skrifst.áhöld og húsb . . 9.116.074
11. Ógreiddir vextir . . — 18.846.014
12. Sjóður ■ • — 12.380.486
TEKJUR:
1. Vcxtir frá fyrra ári........... kr. 8.005.300
Vextir þessa árs kr. 198.257.452
Þar af til n. árs — 9.369.600
------------------------- 188.887.852
Ógreiddir vextir................. — 18.846.014
2. Ýmsar aðrar tekjur.............. — 8.289.945
Samtals kr. 224.029.111
PR. 31. DES. 1979 SKULDIR: 1. Sparisjóðsinnistæður: a. Án uppsagnar kr. 329.646.616 b. Bundnar í 6 m. — 1.310.014
c. Bundnaril2m. — 32.931.509 d. BundnarílOár — 740.927 c. Vaxtaaukar. 3 m. — 28.338.740 í. Vaxtaaukar. 12 m. — 388.766.034 kr. 781.733.840
2. Innistæður á hlaupareikningum — 169.154.656
3. Endurseld afurða- og framl.lán. — 17.089.000
4. Innheimt fé fyrir aðra — 179.515
5. Vextir yfirfærðir til næsta árs .. — 9.369.600
6. Ymsir lánadrottnar — •8.148.480
7. Stimpilmerki og þinglýsing. . .. — 186.000
8. Varasjóður — 104.275.099
Samtais kr. 1.090.136.190
Samtals kr. 1.090.136.190