Norðurslóð - 19.02.1980, Blaðsíða 4

Norðurslóð - 19.02.1980, Blaðsíða 4
NORÐURSLÓÐ S V ARFDÆLSK BYGGÐOGBÆR J --------------- ---------------------------------------------- Askriftarreitur HVAÐ VERÐUR - ef ekhi heimsendir áriö 1982? Þegar leitast er við að svará þeirri spurningu hvaða fram- kvæmdir muni verða hér á Dalvík á árunum 1980-1990 eða níunda áratugnum eins og sumir nefna n.k. 10 ár, hljóta svörin að verulegu leyti að markast af þeim verkefnum, sem unnið er að, svo og með hliðsjón af þeim framkvæmd- um, sem unnar hafa verið á liðnum áratug. Einnig verður að hafa í huga, að þessir spádómar eða getgát- ur eru miðaðar við núverandi aðstæður, sem geta tekið mikl- um breytingum á skömmum tíma. íbúafjölgun og þróun byggðar. Ekki er gert ráð fyrir neinum stökkbreytingum í íbúafjölda á Dalvík. Á liðnum áratug urðu miklar breytingar í atvinnu- og uppbyggingarmálum á lands- byggðinni, svo notað sé það leiðinlega orð. Ýmsir telja nú að nóg sé að gert og telja höfuð- borgarsvæðið hafa orðið út- undan í þessum efnum. Þótt ekki sé tekið undir þá skoðun hér, er þvi samt spáð að viðlíka breytingar eigi sér ekki stað á komandi árum og verði þvíekki til að ýta undir mikla fólksfjölg- un. Þá er það einnig trú okkar eða óskhyggja, að ekki komi til áhrif frá staðsetningu stóriðju eða viðlíka fyrirbæri, sem hafa mundi áhrif á íbúafjölgun. Að þessu athuguðu má ætla að íbúafjöldi í árslok 1989 verði um 1500. íbúðafjölgun hefur á undan- förnum árum verið nokkru meiri en samsvarar íbúafjölgun. Reikna má með að senn fari jafnvægis að gæta milli þessara þátta og fremur dragi úr bygg- ingum íbúðarhúsa ef eitthvað er. Umhverfismál og náttúruvernd. Á undanförnum árum hafa augu manna víðsvegar í heim- inum opnast fyrir því að gáleys- isleg umgengni hins siðmennt- aða manns hefur valdið slíkum spjöllum á náttúru að til stór- vandræða horfir. Þess þarf mjög að gæta að íbúar þétt- býlisstaða hafi greiðan aðgang að óspilltri náttúru til að eyða frístundum sínum á. Við spáum því að svæðið sem í daglegu tali er kallað „upp í hólum“ verði valið sem útivistarsvæði fyrir íbúa Dalvíkur og á þessum áratug verði farið að huga að skipulagi þessa svæðis til úti- vistar almennings. Opin svæði í bænum munu losna við hina brúnu áferð sem svo mjög hefur einkennt þau á liðnum áratug, en þess í stað munu þau grædd upp og komið í viðunandi horf. Á svæðinu norðan við bóka- búðina Sogn verðurkomiðfyrir sætum þar sem fólk getur á blíðviðrisdögum sest niður, talað saman og virt fyrir sér æðaslátt athafnalífsins þar sem vel sést niður á hafnarsvæðið og margt fólk rekur erindi sín í verslanir og aðrar þjónustu- stofnanir. Gerð verður 100 ára áætlun um lokafrágang í Lág- inni þar sem lögð verður áhersla á kjarri vaxnar aflíðandi brekkur niður að lítilli tjörn sem jafnt sumar sem vetur verður griðastaður ýmissa fuglateg- unda. Samgöngumál. Þó mörgum þyki sjálfsagt hægt hafa miðað í uppbyggingu vega hér í næsta nágrenni undanfarið má næstum fullyrða að vegasamband við Akureyri verði orðið gott og það vonandi á fyrrihluta áratugsins. Ný brú verður komin á Svarfaðardalsá og tekið til við uppbyggingu vegarins til Akureyrar auk þess verður sá vegur lagður bundnu slitlagi, sem í óeiginlegri merk- ingu mun stytta leiðina veru- lega. Þótt bjartsýni ríki um þennan þátt samgöngumála er sennilegt að vegurinn um Ólafs- Qarðarmúla verði stundum þröskuldur fyrir aukinni sam- tengingu Ólafsfjarðar og Dalvíkur, sem annars væri mjög æskileg og verður þó örugglega nokkur. Ekki er líklegt að beinar flugsamgöngur við Dal- vík verði teknar upp á næst- unni. Hvað varðar innanbæjar- samgöngur eða ástand gatna- kerfisins, er afar sennilegt, að flest allar götur verði með bundnu slitlagi eftir 10 ár. Samtengingin við Svarfaðar- dal um vegakerfi verður veru- lega bætt frá núverandi ástandi. Skólamál. Ekki þarf mikla spádómsgáfu til að gera því skóna að ný skólabygging muni rísa innan tíðar. Það veldur hins vegar meiri heilabrotum að ætlan skipan framhaldsskólamennt- unar sess, jafnvel í nútíð hvað þá framtíð og er þá ekki átt við neitt sérfyrirbæri hér á Dalvík, heldur landinu öllu. Flest bendir til þess að samvinna Dalvíkur við ná- grannabyggðir muni endast á sviði skólamála og annað tveggja muni gerast að almenn undirbúningsmenntun muni færast ofar, ef miðað er við aldur nemenda, eða að komið verði upp sérskólasviðum innan stærra svæðis, sem hluta af samræmdu skólakerfi. Auk þessa mun væntanlega þróast ákveðin sundurgreining verk- menntunnar, sem Dalvík mun taka sinn þátt í. fþróttamál. Þar sem sundlaug Dalvíkinga er erðin 8 ára gömul og ráð var fyrir gert við byggingu hennar að um skammtímalausn væri að ræða, má vona að á þessum áratug verði ráðist í að byggja nýja sundlaug sem verði ætluð sem almenningslaug og eins fyrir skólasund. Gera má ráð fyrir að á næstu árum verði hugað að framkvæmdum við íþróttasvæði fyrir almennar íþróttir. Jafnframt er spáð að aðstaða til að stunda hesta- íþróttir líti dagsins ljós á áratugnum. Uppbygging aðstöðu fyrir skíðafólk hefur fyrir atbeina Skíðafélagsins verið með þeim ágætum á liðnum áratug að varla er búist við að sú uppbygging haldi áfram með þeim krafti sem verið hefur. Þó er spáð að sú aðstaða muni aukast og batna. Hafnarmál Á sviði hafnarmála er full ástæða til að ætla að verulegar framkvæmdir eigi sérstað, enda mun líf okkar og tilvera áfram byggjast á sjósókn að verulegu leyti. Lokið verður við smá- bátahöfn, sem nú er byrjað á og endurbyggingu norðurgarðs ásamt lengingu og dýpkun verður væntanlega lokið á þessu spátímabili.Þar með verði feng- in löndunaraðstaða fyrir fiski- skip. Ekki þarf nema hæfílegt hugmyndaflug til að ímynda sér, að síld verði farin að veiðast í auknum mæli hér fyrir Norður landi og mannvirki tengd síld- arvinnslu muni aftur rísa við Dalvíkurhöfn, þótt dýrðarljómi síldaráranna verði varla fram kallaður því vinnsla síldar verð- ur trauðla með sama sniði og var. Framhald á bls. 3. Tímamót Eitthvað mun hafa fallið niður úr skírnarannál Norðurslóðar á síðastliðnu ári. Þannig féll niður nafn Kolbrúnar, sem skírð var 9. ágúst í sumar. Foreldrar hennar eru Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir og Einar Emilsson Grundarstíg 9 á Dalvíic. Þann 30. des. var skírður Sigurður Þór, foreldrar Kristín Þorgilsdóttir bókari á Dalvík og Viðar Símonarson kennari í Garðabæ. Þann 22. júní 1979 fæddist hjónunum Svanfríði Jónasdóttur og Jóhanni Antonssyni á Dalvík sonur sem gefið hefur verið nafnið Jónas Tryggvi. Þann 6. janúar varð 75 ára Þorsteinn Þorsteinsson Stórhólsvegi 4, Dalvík. Þann 9. janúar varð 75 ára Ingimar Guttormsson fyrrv. bóndi í Skeggstöðum. Þann 29. febrúar, áhlaupársdag, heldurÁrniA rngrimsson á Dalvík upp á 15. afmælisdaginn sinn. Þann dag verður Árni sextugur. Blaðið sendir öllum ofanskráðum hamingjuóskir. I síðasta blaði misritaðist annað nafnið á dóttur Stefáns Jónmundssonar og Helenar Ármannsdóttur. Stúlkan heitir Berglind Björk. Leiðrétting - og svolítið meira í síðasta jólablaði Norðurslóð- ar var prýðileg grein eftir Tryggva Jónsson um höfnina á Dalvík. Þar hafði höfundi samt orðið á ein skyssa, sem hann gjarnan vill að verði leiðrétt. Þar segir að uppdrátt og áætlun að höfn- inni hafi gert Finnbogi Rútur Valdemarsson árið 1930. Þarna átti að standa Finnbogi Rútur Þorvaldsson Finnbogi var verk- fræðingur hjá Vita- og hafnar- málaskrifstofunni þá en síðar prófessor í verkfræði við Háskóla íslands. Til að bæta fyrir mistökin birtum við hér mynd af dóttur hans Vigdísi sem hér situr með 7 ára kjördóttur sína, Ásdísi. LAND OG SYNIR • Örtröð í Dalvíhurbíói • Svarfdœlingar bíða eftir að fá að sjá meira Föstudaginn 25. janúar var kvikmyndasýning í Dalvíkur- bíói. Sú sýning ásamt nær stanslausum sýningum næstu tvo daga verður án efa lengi í minnum höfð í Svarfaðardal. Hér var á ferðinni kvikmyndin Land og synir. Aðalleikendur voru að sunnan en í flestum aukahlutverkum voru Svarf- dælir og leiksviðið var sjálfur Svarfaðardalurinn. Það var því engin furða þótt aðsóknin væri mikil. Satt að segja bíða menn nú með öndina í hálsinum eftir þvi að myndin komi aftur til Dalvíkur og án efa verður hún sýnd þar mörgum sinnum. Ekki er meiningin að fella hér dóm um myndina eða frammi- stöðu einstakra leikara. Undir- ritaður átti ekki því láni að fagna að sjá myndina oftar en einu sinni, reyndar var komið langt fram á nótt þegar þeirri sýningu lauk. Enda má það teljast víst að maður sem þekkir flesta aukaleikara og bíður spenntur eftir að sjá þá í ákveðnum atriðum, sá maðurer ákaflega illa í stakk búinn til að fella dóm um listrænt gildi myndarinnar eða gera spekings- legar athugasemdir um tækni- brögð kvikmyndagerðarmann- anna. Ljóst er þó að Svarfdælir þurfa ekki að skammast sín fyrir sitt framlag, hvorki fyrir dalinn né íbúa hans. Án þess að gert sé lítið úr meðfæddum leikhæfileikum Svarfdæla má fullyrða að Ágústi Guðmunds- syni hafi tekist einstaklega vel að stjórna stórum hópi áhuga- leikara. Þegar fram líða stundir mun þessi kvikmynd hafa mjög mikið heimildarsögulegt gildi fyrir Svarfaðardal. Hvar er Jóhann Dan. betur geymdur komandi kynslóðum en þarsem hann stendur á vatnsbakkanum og syngur „Við fjallavötnin fagurblá“? Eða munu ekki Svarfdælir á 21. öld hafagaman af að sjá lík borið til grafar frá gömlu kirkjunni á Tjörn? Tvennt er það sem undir- ritaður vill finna að. Oft var mjög erfitt að greina hvað leikendur sögðu og stundum virtist talið ekki fylgja hreyfing- um varanna. Líklegast má kenna sýningartækjum í Dal- víkurbíói um þennan galla, a.m.k. hafa Reykjavíkurblöðin verið uppfull af hástemmtu hrósi um það að kvikmynda- gerðarmönnunum hafi tekist að sigrast á mestu meinsemd ís- lenskrar kvikmynda til þessa, nefnilega hljóðsetningunni. Annað er það, að myndin var, eins og áður getur, ekki sýnd nógu oft á Dalvík og færri komust að en vildu. En úr því verður bætt, vonandi fljótt, og þá geta Svarfdælir séð hana aftur og kannski dæmt um hvort myndin segir athyglis- verða sögu og hvernig sú saga er

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.