Norðurslóð - 22.05.1980, Qupperneq 4
Vegabætur á
Akureyrarleið
Bundið slitlag út á Hagaás
Árgerðisbrú bíður ncesta árs
Firma-
keppni
Hrings
1980
Hin árlega firmakeppni hesta-
mannafél. Hrings var haldin á
skeiðvelli félagsins á Flötu-
tungum laugardaginn 17. maí
s.l. í blíðskaparveðri. 32 fyrir-
tæki og jafnmargir hestar voru
skráð til leiks. Dómnefnd skip-
uðu Magnús Jóhannsson fyrr-
um ráðsmaður á Hólum, Frið-
þjófur Þórarinsson Dalvík og
Klemens Vilhjálmsson Brekku.
Nokkrum vandkvæðum olli, að
sumir knaparnir voru með fleiri
en eitt hross og þurftu því oft að
skipta um og urðu af þessu
nokkrar tafir.
Úrslit urðu annars þau, að nr.
1 varð Samvinnutryggingar á
Dalvík, keppandi Blesa Sigur-
bjargar Karlsdóttur Hóli. Nr. 2
varð Matvörudeild K.E.A.,
keppandi Stefnir Stefáns Frið-
geirssonar Dalvík, og nr. 3 var
Auðbjörg h.f. keppandi Þrymur
Friðriks Bergmann Dalvík. Það
kemur því í hlut Samvinnu-
trygginga að varðveita fallega
styttu af hesti, sem er farand-
verðlaun í firmakeppnum
Hrings. Þesszi þrjú efstu hross
eru öll ágæt reiðhross, einkum
eru þau snjall-vökur. Blesa er 6
vetra rauðblesótt ættuð frá
Möðrufelli í Eyjafirði og hefur
hún hlotið 1. verðl. sem kynbóta
hryssa á fjórðungsmóti. Stefnir
er 8 vetra rauðblesóttur frá
Kirkjubæ á Rangárvöllum.
Hann var keyptur hingað frá
Keflavík í fyrra sumar og hefur
staðið sig vel á sýningum og á
kappreiðum á skeiði. Þrymur er
9 yetra brúnn frá Garðsauka í
Rangárvallasýslu. Þrymur er
viljugur og grimmvakur hestur.
Einkum hefur hann skeiðað vel
á ísnum í vetur.
Athygli vakti, að sami mað-
urinn, Stefán Friðgeirsson,
sýndi öll þessi þrjú efstu hross
auk þess sem hann sýndi hest
sinn Tinna, sem var nálægt því
að komast í úrslit. Er það fátítt
að menn séu svona vel ríðandi á
hestamótum.
Á.G.
Leiðrétting
Alveg er það með ólíkindum,
hvaða vitleysur geta dottið úr
penna jafnvel skynsömustu
manna. Um þetta höfum við
gott dæmi í síðast tölublaði
Norðurslóðar. Þar er birt á for-
síðu mynd af Hreini bónda á
Klaufabrekkum með dömu við
hvora hlið. Á hægri hlið hefur
hann Sigríði Valgeirsdóttur, en
á vinstri hlið er sagt í mynda-
texta að sé Áróra Jónsdóttir.
Þetta er auðvitað rangt, því
konan heitir Mínerva og er
Jónsdóttir, kennari við íþrótta-
skólann á Laugarvatni. Biðjum
við hana velvirðingar á mistök-
unum og birtum mynd hennar í
annað sinn.
Málverkasýning
Sólveigar Eggerz
frá Hánefsstöðum
Eins og á undanförnum árum
mun Lionsklúbbur Dalvíkur
gangast fyrir menningardögum
um hvítasunnuna. Laugardag-
inn 24. maí verður dagskrá
þannig:
I samkomuhúsinu verða kvik
myndasýningar fyrir börn kl. 14
og 16.
Kl. 15 verður opnuð í barna-
skólanum sýning á málverkum
eftir Sólveigu Eggerz. Flest
verkin á sýningunni verða til
sölu. Að ósk listakonunnar
rennur allt andvirði myndanna
til starfsemi Lionsklúbbsins.
í skólanum verða einnig eftir-
taldar sýningar:
Gamlar ljósmyndir úr safni
Jónasar Hallgrímssonar.
Gamlir munir sem Kristján
Ólafsson hefur safnað.
Frímerkjasöfn frá Sveini
Jónssyni í Kálfsskinni og Björg-
vini Jónssyni, Dalvík.
Safn gamalla korta í eigu
Guðbergs Magnússonar á
Þverá.
Sýningar þessar verða opnar
sem hér segir:
Laugardag kl. 15-22, hvíta-
sunnudagkl. 13-22, áannandag
hvítasunnu kl. 10-20.
Á annan dag hvítasunnu
syngur geysiskvartettinn kl. 17 í
Víkurröst.
Aðgangur að öllum dagskrár-
liðum er ókeypis og er það von
Lionsmanna að sem flestir komi
og njóti þess sem fram er fært.
Nú að nýrri vegaáætlun af-
greiddri frá hinu háa Alþingi,
sneri blaðið sér til umdæmis-
verkfræðings, Guðmundar
Svafarssonar og spurðist fyrir
um vegaframkvæmdir í ná-
grenninu á þessu sumri.
Útkoman er svofelld og gleð-
ur vonandi margan mann:
Lagt verður malbik frá end-
anum við Hliðarbæ (áður Kuð-
ung, sem sumir eru nú farnir að
nefna Hrútshornið) og alla leið
yfir Moldhaugaháls að vega-
mótum við Ólafsfjarðarveg og
þaðan niður að Hörgárbrú.
Olíuþekja (Ottadekk) verður
Það er bæði eitt og annað sem
lífgar upp á tilveruna um þessar
mundir. Eitt af því eru forseta-
kosningar, sem fram eiga að
fara 29. júní n.k. Út á þær hafa
Svarfdælir nú þegar fengið tvær
ágætar heimsóknir forsetaefna
og fleiri kváðu vera í vændum.
Snemma í mánuðinum hélt
Pétur Thorsteinson fund í Vík-
urröst. Var hann allvel sóttur
lagt á tvo kafla á Ólafsfj. vegi,
báðumegin við kaflann, sem
lagður var í fyrra, þannig að frá
Hofshæðinni verður lagður 1.5
km. kafli Vi leið niður undir
Spónsgerði. Síðan verður lagð-
ur 4.2 km. kafli frá endanum
neðan við Kambhól og út á
Hagaás.
Þá er það Hálsáin. Hún
verður brúuð eða lögð í stokk
(G. Sv. vissi ekki hvort heldur)
nokkru neðar en núverandi brú
og vegarstubbar að henni ca. 1
km. til samans báðu megin.
Þetta eru sem sagt góðu frétt-
irnar. Að þessu loknu verða sem
næst 25 km. af 45 km vegalengd-
inni milli Dalvíkur og Akureyr-
ar komnir með bundið slitlag.
Til vondra tíðinda telst það
hinsvegar, að byrjunarfram-
kvæmdir við nýja Árgerðisbrú
á þessu ári voru skornar niður.
Hinsvegar er talið líklegt að
brúin verði þess í stað byggð í
einu lagi sumarið 1981 og kem-
ur þá allt í sama stað niður.
eða af ca. 50 manns. Skömmu
síðar kom Vigdís Finnboga-
dóttir og hélt einnig fund í Röst-
inni. Var sá fundur sýnu betur
sóttur eða af a.m.k. 200 manns.
Ekki hefur Norðurslóð tök á
að greina frekar frá fundunum,
en verður að láta sér nægja, að
birta eina mynd frá hvorum
þeirra.
Tímamót
Þann 13. maí varð 70 ára SigurjónHólmHjörleifsson, Karls-
braut 19 á Dalvík.
Þann 25. maí verður 75 ára Jón Jónsson frv. skólastjóri og
bóndi í Gröf og á Böggvisstöðum. Jón er nú vistmaður í
Dalbæ á Dalvík.
Þann 26. maí verður 70 áraHólmfríðurMagnúsdóttir, Goða-
braut 11 á Dalvík.
Þann 6. júní verður 80 ára Þorleifur Bergsson á Hofsá. Þor-
leifur fæddist í Gljúfurárkoti þann dag aldamótaárið.
Þann 6. júní verður 75 ára Kristín Arngrímsdóttir, Smáraveg
11 á Dalvík.
Norðurslóð færir afmælisbörnunum heillaóskir.
Þann 4. maí var skírður í Vallakirkju Steingrímur, foreldrar
Guðrún Charlotta Þorgilsdóttir, Sökku, og Magnús Jó-
hannsson. Þau eru nú búsett á Akureyri.
Þann 6. apríl var skírður Skafti Rúnar, foreldrar Elísabet
Jóhannsdóttir og Þorsteinn Skaftason, Ásvegi 14 á Dalvík.
Sr. Kári Valsson skírði.
Þann 4. maí andaðist Sveinn
Friðbjörnsson í Efstakoti,
Dalvík. Hann var fæddur í
Efstakoti 20. september 1902
og átti þar heima alla tíð.
Sveinn vann mikið bæði við
búskap og sjómennsku fram-
an af æfinni, en á síðari árum
helgaði hann sig einkum húsa-
smíðum og hafði hann meist-
araréttindi í þeirri grein. -
Sveinn var með kunnustu
borgurum á Dalvik, vinsæll og
virtur af öllum, sem kynntust
honum. Hann var jarðsettur í
Upsakirkjugarði laugardaginn
9. maí.
Þann 8. maí andaðist Anna Kristín Hjörleifsdóttir frá Gull-
bringu. Hún var fædd 12. maí 1904. Hún giftist Karli Vil-
helm Guðbrandssyni og bjuggu þau í Hafnarfirði, þar sem
Karl fékkst við útgerð. Hún var jarðsett þar 14. maí.
Oddný Thorsteinsson ræðir víð bændur, Þórarin á Bakka og Hjört
á Tjörn.
Menningardagar
um hvítasunnu
Vigdís Finnbogadóttir, Sigurvin o.fl.
Kynningarfundir
forsetaefna