Norðurslóð - 26.06.1980, Síða 1
Svarfdælsk byggð & bær
4. árgangur
Fimmtudaginn 26. júní 1980
tölublað
Viðtal við bæjarstjórann
á Dalvík
Bæjarstjórn Dalvíkur sam-
þykkti í maí fjárhagsáætlun
fyrir yiirstandandi ár.
Norðurslóð hitti Valdimar
Bragason bæjarstjóra að
máli og ræddi við hann um
áætlunina og þær fram-
kvæmdir sem verða hér á
þessu ári.
Hverjar eru tekjur bœjarfélagsins
á þessu ári?
Heildartekjur eru áætlaðar 505,8
milljónir króna, þar af nema útsvör
292,7 m. en aðrir helstu tekju-
stofnar eru, aðstöðugjöld 64,4 m.
fasteignaskattar 58,2 m. framlag úr
jöfnunarsjóði (þ.e. hlutdeild í sölu-
skatti) 54,8 m. Aðrartekjursvosem
þéttbýlisvegafé, lóðarleigur og drátt
arvextir nema 35,7 m.
Auk þess eru gatnagerðargjöld
reiknuð til lækkunar á gatnagerðar-
framkvæmdum, að upphæð 13,7 m.
Því má bæta við að útsvarsprósenta
er 11,88%, þannig að álag var
ákveðið 8% en heimilt var að nota
10% álag.
Hvernig verður þessum tekjum
varið?
Stærstu útgjaldaliðir eru um leið
markandi fyrir fjárhagsáætlunina.
Til fræðslumála er varið tæpum
143,7 milljónum en til endur-
greiðslu kemur síðan frá ríki og
samstarfsaðilum um skólarekstur
47,1 m. Einnig er innifalið eigna-
færður og gjaldfærður stofnkostn-
aður samtals 46,5 m. þar ber hæst
framlag til skólabyggingar 40 m., en
sú bygging er eitt af okkar aðal
verkefnum á þessu ári.
Álíka liður í þessari sundurlið-
un málaflokka eru almennatrygg-
ingar og félagshjálp eða 141 m.
króna, þar af eru fjárfestingar 60 m.
og endurgreiðsla vegna þjónustu er
15,6 m. Fjárfestingar eru einungis
tvær, barnaheimili 30 milljónir og
vegna stofnkostnaðar Dalbæjar 30
milljónir.
Til yfirstjórnar bæjarins er ætlað
86,9 m. þar af fjárfesting 5,8 m. og
síðan kemur endurgreiðsla frá
stofnunum og fyrirtækjum bæjarins
31,4 m.
Gatnagerð og umferðamál eru
áætluð brúttó 41,5 m. íþrótta- og
æskulýðsmál 40,7 m. fjármagns-
kostnaður 32,4 m. Ýmsir aðrir liðir
eru frá 1,5 til 17 milljónir króna.
Rétt er að fram komi, að í áætlun
um fjármagnshreyfingu er gert ráð
fyrir að afborganir lána umfram
töku nýrra lána nem 13 milljónum
króna, það er að segja, að skulda-
birgði bæjarsjóðs verði minnkuð
um þá upphæð. Enda er það svo, að
sveitarfélögum stendur ekki til
boða fjármagn nema verðtryggt eða
á hæstu vöxtum, því er atriði að
halda fjármagnskostnaði eins niðri
og frekast er unnt.
Hverjar eru almennar forsendur
við gerð fjárhagsácetlunarinnar?
Varðandi tekjuliði eru forsendur
skatttekna ákvarðaðar með að
Finna út breytingu á launum hjá
stærstu launagreiðendum hér milli
ára, auk þess sem hliðsjón var höfð
af spá þjóðhagsstofnunarinnar í
þeim efnum.
Gjaldliðir eru erFtðari og meiri
spádómur, en sem dæmi var gert
ráð fyrir að launagreiðslur verði að
meðaltali 25% hærri en desember-
laun það er að laun hækki 50% milli
ára. Aðra útgjaldaliði er reynt að
áætla samkvæmt spám um verð-
breytingar.
Hverjar verða þá helstu fram-
kvœmdir á vegum bœjarins á þessu
ári?
Rétt er að taka fram, að allar
tölur sem áður eru nefndar eiga við
framlög úr bæjarsjóði, en svo
haldið sé áfram að ræða um þær, þá
er bygging skólahús stærsta ein-
staka framkvæmdin. Auk 40 millj-
óna sem ætlaðar eru úr bæjar-
sjóði er á fjárlögum ríkisins rúm-
lega 55 milljónafjárveiting. Veriðer
Grunnur nýja skólahússins.
Samsöngur
í Dalvíkurkirkju
Sunnudaginn 8.'júní var haldið
kirkjukóramót EyjaQarðarpró-
fastsdæmis, en eins og flestum
er eflaust kunnugt nær það allt
til Siglufjarðar.
Söngmótið var haldið á tveim
ur stöðum sama daginn, eins og
oft áður, að þessu sinni í
Dalvíkurkirkju um daginn og í
Siglufjarðarkirkju um kvöldið.
Alls tóku 7 kórar þátt í þessu
móti og voru söngmenn 170-180
til samans. Kórarnir voru úr
Eyjafirði (Grundarþingum) af
Akureyri, úr Glerárhverfí og
Kræklingahlíð (Lögmannshlíð-
arsókn), af Árskógsströnd, af
Dalvík, úr Svarfaðardal (Sam-
kór sóknanna) og af Siglufirði.
Söngstjórar voru: Áskell
Jónsson (Lögmannshl.), Gestur
Hjörleifsson, Guðjón Pálsson
(Sigluf.), Jakob Tryggvason,
Olafur Tryggvason, og Guð-
mundur Þorsteinsson (frá
Hálsi), sem stjórnar bæði ey-
ftrska kórnum og Árskógs-
strandarkórnum.
Undirleikari var Kári Gests-
son á Dalvík.
Söngskráin var þannig skipu-
lögð, að hver kór söng 3 séræfð
lög, en allir til samans sungu 7
lög. Kirkjan var fullskipuð
áheyrendum, sól skein í heiði og
allir voru i sólskinsskapi.
Að söng loknum töluðu sr.
Stefán Snævarr, prófastur og
Óttar Proppe, forseti bæjar-
stjórnar til söngfólksins. Luku
þeir lofsorði á þetta framlag til
menningarlífs, sem hér hefur
verið innt af hendi, og þökkuðu
það sem þeir töldu verið hafa
prýðilega frammistöðu eins og
allra.
Á eftir drakk allur hópurinn
kaffi í Víkurröst í boði bæjar-
stjórnar Dalvíkur. Síðan var
stigið upp í bíla og rútur ogekið
út í sólskinið áleiðis norður til
Siglufjarðar.
Við þessa frásögn má því
bæta, sem áreiðanlega er mælt
fyrir munn alls þess fólks, sem
tók þátt í söngmótinu, að það er
sönn ánægja og andleg heilsu-
bót að vera með í svona starfi og
eiga allir heiður skilið, sem
stuðlað hafa að því að það gat
orðið að veruleika.
Til lesenda
Með útkomu þessa blaðsfer
Norðurslóð í sumarfríið sitt.
Blaðið þakkar lesendum gott
samstarf á vetri og vori.
Nokkrir hafa enn ekki komið
því í verk að borga árgjaldið,
en það er aldrei of seint að
bregða við. Að svo mœltu
óskar blaðið lesendum öllum
góðs og gœfuríks sumars
með von um farsœla endur-
fundi á haustnóttum.
Útgefendur.
Sveinn og Jóhann Svarfdælingur í garði Gísla Kristjáns-
sonar í júní 1976.
þessa dagana, að undangengnu
útboði, að semja um meginhluta
þess áfanga sem nú verður tekinn
fyrir. Ljóst er að hluti af þeirri
framkvæmd verður að dreifast á
næsta ár, en áformað er, að í haust
verði mögulegt að taka í notkun
tvær kennslustofur. Mjög brýnt er
að þessi áfangi náist, þó óneitan-
lega sé tíminn orðinn naumur og
vandkvæði að halda kostnaði innan
markaðra fjárveitinga.
Gert er ráð fyrir að nýtt barna-
heimili verði tekið í notkun í ágúst-
mánuði. Nokkrar framkvæmdir
verða við Dalbæ, en þó mun sú
fjárveiting, sem áður er getið, að
mestu leyti renna til greiðslu á
skuldum sem stofnað var til, þegar
fullgerður var tyrsti átangi þess á
síðasta ári.
Framkvæmdir við gatnagerð eru
einkunn við nýbyggingu gatna, svo
hægt sé að úthluta byggingarlóð-
um. Ennfremur verða lagðar gang-
stéttar svo sem við Karlsbraut. Þess
ber að geta, að við ráðstöfun
fjármagns var ekki talið svigrúm til
framkvæmda við varanlegt slitlag,
en engan veginn ber að líta svo á, að
frá slíkum framkvæmdum hafi
verið horfið, heldur gert ráð fyrir að
Framald á bls. 2.
Sveinn
Gamalíelsson
sjötugur
I síðasta tölublaði var sú villa í
texta undir mynd af nokkrum
gestum á Bessastöðum, að
nefndur var Valdemar Jóhanns
son þar sem átti að standa
Sveinn Gamalíelsson.
Þetta leiðréttist hér með og
skal því bætt við, að hann er
formaður samtaka Svarfdæl-
inga í Reykjavík.
Til viðbótar skal það upplýst
að Sveinn varð 70 ára þann 4.
maí síðastliðinn. Af því tilefni
orti hann vísu þessa, sem birtist í
blaði í höfuðborginni:
Áfram líða ár og aldir,
alltaf þrengist mittisólin.
Sjö eru mínir tugir taldir,
tylli ég mér nú í stólinn.
Og hér með óskar Norður-
slóð Sveini í Skeggstöðum til
hamingju með langan starfsdag,
sem enn er alls ekki allur, eftir
því sem fregnir herma.
Samkór sóknanna í Svarfaðardal.
W Ý %. ý L , i- t/ WjL , > * 4*. w |
~ \ % 1
[ M í í -- éPÉL .4 ■ • jrt [ i
Kirkjukór Dalvíkur.