Norðurslóð - 26.06.1980, Blaðsíða 2

Norðurslóð - 26.06.1980, Blaðsíða 2
NORÐURSLOÐ Útgefendur og ábyrgðarmenn: Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfáöardal Jóhann Antonsson, Dalvik Óttar Proppé, Dalvik Afgreiðsla og innheimta: Sigriöur Hafstað, Tjörn Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friöbjörnsson Prentun: Prentsmióia Björns Jónssonar Vantar meiri rækju Lítið hefur verið umleikis í rækjuvinnslu Söltunarfélags- ins í sumar. Aðeins einn bátur, Heiðrún frá Árskógs- strönd, leggur nú upp rækju á Dalvík, en afli hans er miklu minni en verksmiðjan getur annað Undanfarin sumur hefur uppistaðan í hráefni verksmiðjunnar verið rækjuafli Árnarborgar. En Arnarborgin hefur legið við bryggju frá því í fyrrahaust með bilaða vél. Ekki er enn ljóst hvernig mál rækju- vinnslunnar þróast á næstunni. Söltunarfélagið hefur erlenda kaupendur að Arnarborginni og vilja þeir taka hana upp í skipti fyrir annaðskip. Mál þettaernútil skoðunar hjá stjórnvöldum. Sá kostur að halda áfram útgerð Arnarborgarinnar og taka í gegn vélarnar í henni mun vera óhemju dýr. Dalborgin hefur verið að veiðum á Dohrnbakka og kom inn fyrr en búist var við 21. þ.m. með um 30 tonn af heilfrystri rækju sem flutt er út í skelinni, enda fæst meira fyrir þessa risarækju þannig. Is hafði lagst yfir veiði- svæðið. Dalborgin fer aftur vestur í dag, þann 25. júní. Þökkum öllum sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför Sigurlaugar Jónsdóttur Dalsmynni Dalvik Aðstandendur. Við þökkum af alhug. öllum þeim sem vottað hafa okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför eigin- konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu. Súsönnu Guðmundsdóttur frá Hóli í Svarfaðardal sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 15. júní og jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 21. júní. Sérstakar þakkir til lœkna og starfsfólks B-deildar Fjórðungssjúkrahússins d Akureyri. Zophonías Jónsson: Jónmundur Zophoníasson, Stefanía Kristinsdóttir, Friðbjörn Zophoníasson, Lilja Rögnvaldsdóttir, Þórarinn Valdemarsson, Ingibjörg Zophoníasdóttir, Torfi Steinþórsson, barnabörn og barna barna börn. Kjörfundur Forsetakosningar í Dalvíkurkjördeild fara fram í Dalvíkurskóla sunnudaginn 29. júní n.k. Kosning hefst kl. 10 f.h. og stendur til kl. 23.00 sama dag. Dalvík, 25. júní 1980. Kjörstjórnin. Auglýsing um kjörfund Kosning til Forseta íslands í Svarf- aðardalskjördeild fer fram í syðri byggingu Húsabakkaskóla sunnu- daginn 29. júní. Kosning hefst kl. 10 f.h. Kjörstjórnin. Viðtal við bæjarstjórann... Framhald af forsíðu. taka stærri áfanga en nú hefði verið mögulegt enda alltaf talsverður kostnaður að hefja slík verk og því æskilegt að unnið verði við stóra áfanga í senn. Margar framkvœmdir eru sam- eiginlegar með riki, hverja með- ferð fengu slíkar framkvæmdir við gerð fjdrlaga í dr? Það er rétt, að sumar fram- kvæmdir ráðast að veruleguleiti af áhvöroun ríkisvaldsins um fjárveit- ingu og umsjá þeirra eru að öllu leyti í höndum ríkisins, þar má nefna byggingu heilsugæslustöðv- arinnar, sem fjármögnuð er 85% af ríkinu. Varðandi þá byggingu, er nú í gangi verksamningur sem miðar að því að hluti stöðvarinnar þ.e. andyri og suðurálma verði tekin í notkun í desember á þessu ári. Þó ekki sé um fullnaðarfrágang að ræða, verður langþráðum áfanga náð, sem bæta mun verulega aðstöðu til heilsugæslu. f annan stað mætti nefna hafnar- framkvæmdir sem eru fjármagn- aðar 75%af ríkinu. Hafnarsjóðurer með sjálfstæðan fjárhag og á sem slíkur að fjármagna heimaframlag 25%. Hluti þess er tekinn að láni hjá hafnarbótasjóði, en á fjárhagsáætl- un bæjarsjóðs voru veittar 10 milljónir tií að standa undir fram- lagi heimaaðila. Þar hefur nú þegar verið gert nokkut átak í aðstöðu fyrir smábáta, sem jafnframt er liður í, að rýmka til fyrir stærri bátum við þá hafnarstöðu, sem fyrir hendi var. Þá hafa einnig verið undirbúnar næstu aðgerðir í hafnar málum, sem er stálþil efst á noður- garði, þar sem löndun úr togurum mun fara fram. Undirbúningur þessi var í því fólgin að fjarlægja ónýtar trébryggj- ur og dýpka höfnina á því svæði. Ekki er annað vitað en að þessum framkvæmdum verði mikið til lokið á næsta ári, þó svo endanleg ákvörðun liggi ekki fyrir, fyrr en fjárlög næsta árs verða samþykkt. Þegar fjdrlög eru frdgengin er oft skoðaða hvernig einstaka staðir koma út við skiptingu fjdrmagns. Stundum hefur þótt, sem Dalvik hafi verið afskipt. Telur þú að svo sé nú? Þegar meta á slíka hluti verður að hafa í huga að vissulega viljum við að framkvæmdir séu sem allra mestar. Þetta á einnig við um þær framkvæmdir sem bæjarfélagið stendur eitt í. Vonandi verður það svo um nokkra framtíð, að hugur- inn girnist meir en aðstæður eru til hverju sinni. Þannig verður mat á fjárveitingum ríkisins að verða í samhengi við heildarfjárveitingu til hvers málaflokks. Með þetta í huga er ekki annað hægt að segja, en við höfum fengið nú rífiegan skerf af íjárveitingum til sameiginlegra framkvæmda ríkis og sveitarfélaga. Þá er nýi tíminn í símamálum að hefja innreið sína í Svarf- aðardal. Þessa dagana hafa verið hér á ferð símamenn að leggja niður fyrir sér verkið og búa í haginn fyrir vinnuflokk, sem kemur að líkindum upp úr mánaðarmótum júní-júlí. Símavinnuflokkur þessi er frá Húsavík. Verkstjóri er Jón Kjartansson, Skaftfellingur að uppruna. Með honum voru hér við mælingar tveir Húsvíkingar, Hákon Óli Guðmundsson og Grétar Ragnarsson. Að sögn Jóns verkstjóra verður jarðstrengur tekinn út úr símstöðinni á Dalvík og plægð- ur niður meðfram veginum fram að Hreiðarsstöðum. Við hann verða tengdir beint allir símar í niðursveitinni. Hins- vegar mun ætlunin að nýta áfram gamla (og að sögn Jóns) góða kabalinn þannig að við hann verða tengdar greinarnar, sem liggja fram í dalina. Frá Hreiðarsstöðum mun strengur- inn liggja yfir ána í brúnni og greinast svo í Skíðadal ogfram í Svarfaðardal um Mela, Urðir Mér er spum... Framhald af baksíðu. tilmælum samstarfsnefndar um ár trésins, að myndaður yrði starfshópur í sveitarfélaginu sem samanstendur af fulltrúum frá ýmsum félagasamtökum á staðnum ásamt fulltrúa frá bæjarstjórn. Þessi hópur hefur þegar hafið og unnið nokkurt starf. T.d. má geta þess að þegar hefur verið plantað út 1.600 trjá- plöntum við Dalbæ - heimili aldraðra og í „Láginni". Gróð- ursetning þessi var eingöngu unnin í sjálfboðavinnu sem þakkað er kærlega fyrir. Enn- fremur er fyrirhugað að haldin verði fræðsluerindi um trjárækt, ásamt fleiru. Ef til vill verður gerð nánari grein fyrir þessu starfi í Norðurslóð síðar. (Svör bæjarstjóra) og síðan áfram og er þetta allt töluvert flókið og snúninga- samt. Frá Tjörn eða Húsabakka greinist síðan álma úr nýja strengnum yfir á Austurkjálka (líklega á Trjónubakkavaði) en þaðan teygjast svo álmur út í Sökku og fram í Ytra-Hvarf. Alls verða þarna einir 60 km. og verður strengurinn plægður niður hvar sem mögulegt er. Mikils er um vert að sleppa framhjá Urðaenginu, sagði verkstjórinn, og það verður gert með þeirri leið, sem hér hefur verið lýst. Með þessu hverfur að lokum að fullu gamla stauralínan, sem nú liggur frá Þverá fram Svarf- aðardalinn. í henni eru enn Qölmargir staurar frá fyrstu tíð símans hér. Einangrunarkúlur merktar ártalinu 1905 eru á þessum staurum, sem hafa staðið sig frábærlega vel í þrjá aldarfjórðunga. í hópi þeirra Húsvíkinga, sem komu í júlíbyrjun, verða 7-10 manns og munu þeir fá inni í heimavist Húsabakkaskóla. Sjálfvirki síminn að koma Það er notcflegt aö eiga cdlt sitt öt puriu! Þú hefur komíð þér uel fyrir. Átt íbúð, fallega húsmuni, pófagauk sem býður „góðan dag“ ogfjárfestir nýlega í dýrindis gólfteppi homa á milli. Allt þitt á þurru, ekki satt? En hefurðu tekið tryggingamálin inní mtjndina? Það hefur mörgum góðum manninum láðst, um það uitnar mörg sorgarsagan.Kpnntu þér tryggingavalkosti Samuinnutrygginga, þeir eru margir og koma til móts við þínarþarfir. Þannig sýnir þú skynsemi ogfirrir þig óþarfa áhyggjum. Skynsamt fólk velurtraust 5 . ; S tryggingaíélag SAMVIWl . TRVG(il\(íAlt (,T Ármúla 3, sími 38500 Umboðsmenn um land allt.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.