Norðurslóð - 22.01.1981, Blaðsíða 6

Norðurslóð - 22.01.1981, Blaðsíða 6
Heilsugæslustöðin Rætt við Eggert Briem, kekni Loksins hefur lanþráður draumur ræst; ný heilsugæslu- stöð var tekin í notkun á Dalvík í dag, 19. janúar. Vegna þessa hafði blaðið samband við Eggert Briem lækni, sem nú kemur til fullra starfa á ný eftir tæplega eins árs veikindafrí. Án efa getur Norðurslóð leyft sér að fagna því fyrir hönd læknis- héraðsins að endurheimta Eggert til starfa og bjóða hann velkominn, um leið og við óskum starfsfólki heilsugæslu- stöðvarinnar og okkur öllum til hamingju með þennan stóra áfanga. „Við hófum störf í nýja húsinu í dag, og fyrir utan smá- vægilega byrjunarörðugleika sem eðlilegir mega teljast líst okkur ljómandi . vel á þetta. Þarna er aðstaða fyrir þrjá heilsugæslulækna, en það er nýi titillinn okkar Steingríms Björnssonar sem kom til Dal- víkur 1. okt. sl. og verður hér við störf með mér í nokkra mánuði. Héraðslæknistitillinn hefur nú færst yfir á Ólaf Hergil Odds- son á Akureyri, en hann hefur eins konar yfirumsjón með læknishéraðinu öllu. LínaGunn arsdóttir er hjúkrunarforstjór- inn og sér um daglegan rekstur og skipulagningu, auk hennarer Þóra Akadóttir hjúkrunarfræð- ingur í hálfu starfi. Svo höfum við tvo læknaritara í hálfu starfi hvorn, þær Lísbet Sigurðar- Tímamót AFMÆLI. Þann 19. janúar varð 75 ára Kristján Þorsteinsson vistmaður í Dalbæ. Þann 30. jan. verður /0 ára kona hans Margre't Hall- dórsdóttir. Þau hjónin fluttust hingað frá Þórshöfn fyrir all- mörgum árum. Tvær dætur þeirra eru giftar hér þær Alda, kona Sigurðar Jónssonar Sigurðssonar á Sjónarhæð, og Hall- dóra, kona Eggerts Briem, héraðslæknis. HJÓNAVÍGSLUR. Þann 24. des. voru gefin saman Pálmi Guðmundsson og Guð- laug Eyólfína Erlendsdóttir, Goðabraut 10, Dalvík. Þann 26. des. voru gefin saman Hannes Sveinbergsson sjó- maður og Agga Hrönn Hauksdóttir, Múlavegi 4, Dalvík. Þann 27. des. voru gefin saman Agúst Bjarnason og Sigurást Aðalheiður Kristjánsdóttir, Karlsrauðatorgi 20, Dalvík. SKÍRNIR. Þann 1. nóv. var skírð Guðrún Jónína, foreldrar Erla Vigdís Óskarsdóttir og Sigurpáll Gestsson, trésmiður, Hjarðar- slóð 2A, Dalvík. Þann 26. des. var skírður í Vallakirkju Jón Gísli, foreldrar Dóróthea Gísladóttir (frá Hofsá) og Ósk/ar Sv. Jónsson, verk- stæðisform. Heimili þeirra er að Ægisgötu 4, Dalvík. Þann 26. des. var skírð í Tjarnarkirkju Ella Vala, foreldrar Steinunn P. Hafstað og Ármann Gunnarsson, dýralæknir, Laugasteini. Þann 26. des. var skírð Bylgja Hrönn, foreldrar Sigrún Þor- steinsdóltir og Ingvi Eiríksson, Þverá í Skíðadal. Þann 27. des. Var skíröAgústa Ólöf, foreldrar Sólborg E. Ingi- marsdóttir og Magnús Hólmsteinsson, sjómaður, Skiða- braut 5, Dalvík. Þann 31. des. var skírð Ingibjörg Elín, foreldrar Guðrún Snorradóttir og Halldór Reimarsson, sjómaður (frá Stein- dyrum), Skíðabraut 3, Dalvík. DAUÐSFÖLL. Þann 22. des. andaðist Jón Baldvin Sigurðsson, Smáravegi 11, áður lengi í Kambi og Bergþórshvoli, Dalvík. Jói^ var fæddur í Hreiðarsstaðakoti 4. des. 1902, sonur hjónanna Kristrúnar Hallgrimsdóttur og Sigurðar Sigurðs- sonar, er síðar bjuggu á Þorleifsstöðum. Jón fluttist til Dalvíkur 1927. Hann kvæptist Kristínu Arn- grímsdóttur og eignuðust þau 7 börn, sem öll eru á lífí. Jón stundaði verkamannavinnu, hafði stuðning af smábúskap fneð 1-2 kýr og nokkrar kindur, eins og altítt var á Dalvík á þeim árum. Hann var vinsæll og vel látinn maður af öllum, sem honum kynntust. Jón var jarðsunginn 30. desember. Þann 23. des. varð bráðkvaddur Jón Stefán Brimar Sigur- jónsson, málari í Jaðri á Dalvík. Hann fæddist 13. júní 1928, sonur Sigurjóns Baldvinssonar frá Böggvisstöðum og seinni konu hans Oddnýjar Baldvinsdóttur. Brimar bjó á Dalvík nálega alla ævi og fékkst við húsa- málun, en listmálun stóð þó hjarta hans nær sbr. viðtal við hann, sem birtist í þessu blaði fyrir jólin. Við fráfall hans hef- ur Dalvík misst helst til snemma sérstæðan hæfileikamann, sem margir munu sakna. Hann var jarðsungirtn 30. desember. dóttur og Huldu Kristjánsdótt- ur, sú síðarnefnda nýráðin. - Megum við vænta þriðja læknisins á næstunni? - „Nei, ætli það verði fyrr en við höfum bætt u.þ.b. þúsundi við höfðatöluna þótt aðstaðan sé fyrir hendi upp á framtíð- ina, þrjú móttökuherbergi, hvert með áfastri skoðunar- stofu. Hins vegar er nokkuð síðan stærð læknishéraðsins kallaði á tvo lækna í fullu starfi. Því hefur bara ekki verið hægt að framfylgja fyrr vegna hús- næðisskorts. - Verður ekki um neina legu- sjúklinga eða fæðingarkonur að ræða í nýja húsnæðinu? - „Nei, Teikningum var snemma breytt í þá vegu að starf rækja einungis dagþjónustu, þótt upphaflega væri ætlunin að hafa • nokkur sjúkrarúm. Það hefði orðið óheyrilega dýrt í rekstri, útheimt þjónustu allan sólarhringinn og mun fleira starfsfólk, s.s. sjúkraliða, ganga stúlkur o.fl. Við verðum að hafa í huga nálægðina við Akureyri þar sem fólk getur fengið miklu öruggari og betri þjónustu en nokkurn tíma væri hægt að veita hér. Ríkið greiðir aðeins föst laun lækna og hjúkrunar- fræðinga, en laun annars síarfs- fólks ogdaglegurrekstrarkostn- aður er á höndum sveitarfélag- anna, sem mörg hver eru alveg að kikna undir fjárútlátum við slíkar stofnanir." - Hvernig verí(ur að Heilsu- gæslustöðinni buið varðandi tækjakost? - „Nú, við eigum fyrir gegn- umlýsingatæki sem ég tel tanda fyllilega fyrir sínu á svéna stað, við höfum það góðan aðgang að hinni fullkomnu rannsókna- stofu á Akueyri að við vísum þangað þegar um meiri háttar nákvæmnistilfelli er að ræða. Sjónprófunartæki eigum við einnig og nýlega fengum við heyrnprófunartæki sem er mikil framför. Ég vil nota tækifærið og benda fólki á ac) notfæra sér það ef einhver minnsti grunur leikur á heyrnarskemmdum eða því um líku. Við stefnum að því að efla tækjakostinn á næstunni, höf- um opnað allar flóðgáttir í sambandi við það eins og mögu- lega er unnt. Við höfum reynt að spara dyggilega við í byggingar- kostnaði og hugsum okkur að njóta á móti góðs af í tækja- kaupum. T.d. slepptum við geysi dýrum loftræstibúnaði upp á tugi milljóna úr teikn- ingu og leysum þann vanda á mun ódýrari hátt. Við höfum mikinn áhuga á að koma upp aðstöðu fyrir meina- tækni en til þess vantar öll tæki. Þetta útheimtir mikla fjármuni allt saman og lítið er farið að sjást af því sem æskilegt telst að hafa í stofnun sem þessari. Við erum ekki einráð um kaup á tækjum og öðru sem til þarf, Innkaupastofnunin þarf að leggja blessun sína yfir. - Verður einhverri sérfræði- þjónustu haldið uppi? - „Ekki verður það sennilega umtalsvert fyrr en þá með tilkomu nyrðri álmunnar sem bíður frágangs. Þar verður lítil skurðstofa fyrir minni háttar aðgerðir og í henni verður að öllum líkindufn búnaður fyrir sérfræðiþjónustu af ýmsu tagi. Slíkt yrði þá framkvæmt með heimsóknum sérfræðinga um skamman tíma. - Hvaða breytingar verða helstar á daglegri læknisþjón- ustu með tilkomu nýja hússins? „Fyrst ber að nefna nýtt símanúmer sem við vonum að hafi komist til skila með auglýs- ingum undanfarið, 61500. Við Steingrímur verðum báðir við í almennum viðtalstíma milli kl. 9-12 fh. í stað eftir hádegi áður. Símatímanum skiptum við á milli okkar kl. 11-12 á morgn- ana og síðan er ætlunin að sinna tímafrekari viðtölum og stærri tilfellum eftir hádegi, einnig mæðraskoðun og ungbarnaeftir iti, Hríseyjarferðum, útköllum o.fl. Nú verður fólk beðið að panta viðtalstíma til að spara öllum tíma og fyrirhöfn. Svo vonum við bara að allir verði þolinmóðir og sjái í gegn um fingur við okicur þótt einhverjir annmarkar verði á svona fyrstu dagana. - Hvernig fór fyrsti dagur- inn af stokkunum? „Jú takk, það gekk bara alveg bærilega, en viðbrigðin eru alveg gífurleg hvað stærð hús- næðisins varðar. Við vorum orðin því vön að geta staðið kyrr í sömu sporum og snúið okkur á punktinum á gömlu Lína, hjúkrunarforstjóri. stofunni. Það lá við að maður yrði að stíga yfir næsta starfs- mann ef maður þurfti að hreyfa sig úr stað,“ segir Eggert hlæj- andi. „Okkur þótti því alveg nóg um öll hlaupin á nýja staðnum í dag, en það lagast nú þegar við fáum innanhúskall- tæki.“ - Nú ert þú búinn að halda í okkur lífinu í þessu héraði síðan 1. maí 1972, Eggert. Ekki væri úr vegi að forvitnast um hvernig líf læknisins hefur verið þessi ár. Hefur það ekki færst aðeins nær því marki að verða þolanlegt? „Jú, ekki verður annað sagt en munurinn sé mikill frá því ég var í fyrstunni aleinn á stof- unni. Þetta hefur svona smá þokast í rétta átt, fyrst með aðstoð á stofu þar sem ég hef gegnum árin haft ýmsa sjúkra- liða, ljósmóður eða hjúkrunar- konu. Það var erfitt að sinna þessu einn eftir að héraðið var orðið svona mannmargt. Þó er aðal kosturinn að hafa annan lækni og geta haft vaktaskipti utan stofutíma, það er mikið álag bæði andlega og líkam- lega að eiga aldrei frí frá starfinu. Annars er ég búinn að fá alveg nóg af rólegheitum í bili og hlakka því til að hefjast handa á ný, þótt ég hafi reyndar undanfarna 2-3 mán. ekki alveg setið' auðum höndum, heldur sinnt læknisþjónustu á Dalbæ. Læknisstarfið hefur líka breyst nokkuð á þessum árum, skýrsluvinna er orðin gífurleg og því, nauðsynlegt að hafa læknaritara eins og hér var tekið upp fyrir nokkru. Nú, síðast en ekki síst er stór- kostlegur munur að vera nú loks kominn í þetta fallega hús- næði sem arkitektinn Jón Haraldsson hefur verið óspar á að búa sem þægilegast út í alla staði, og ekki skyggir heldur á frágangur allur úr hendi verk- takans Tréverks sem er hinn vandaðasti í hvívetna. Ég er því auðvitað í sjöunda himni í dag og það erum við öll sem í Heilsugæslustöðinni nýju störfum!“ Brynja. Lísbet Sigurðardóttir ritari, Steingrimur Björnsson iæknir, Eggert Briem læknir, Hulda Kristjáns- Áka Starfsliðið: dóttir skrifstofustúlka og símavörður, Þóra Ákadóttir hjúkrunarfræðingur og Lina Gunnarsdóttir hjúkrunar- forstjóri. Vantar Ásu Marinósdóttur ljósmóður. Svarfdælsk byggð & bær

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.