Norðurslóð - 30.04.1981, Qupperneq 1

Norðurslóð - 30.04.1981, Qupperneq 1
Svarfdælsk byggð & bær 5. árgangur Fimmtudaginn 30. aprfl 1981 4. tölublað Vorið er komið Þegar síðasta tölublað kom út var vetur í algleymingi um allt landið norðanvert og hálfgert kuldahljóð í blaðinu. Fljótlega skipti þó um til hins betra og gerði indælt vorveður í nærri hálfan mánuð. Þá tók snjóinn af túnum að mestu og urðu menn harla fegnir ekki síst fyrir hönd túngrasanna, sem allir höfðu áhyggjur af áður. Nú er menn hinsvegar vongóðir um að tún séu a.m.k. ekki stór- lega kalin, þótt of snemmt sé raunar að fullyrða nokkuð um Tinda fjalla áður alla undir snjá, sín til kallar sólin há, leysir hjalla, skín á skalla, skýi, sem að brá og sér fleygði frá. Tekur buna breið að duna björgum á. Græn því una grundin má. Viður hruna vatna funa vakna lauf og strá. Seinna seggir slá. 17 ára Dalvíkingur, Daníel Hilmarsson, gerði garðinn frægan á Skíðalandsmótinu á Siglufirði um páskana er hann það, og enn getur frost og fjúk átt eftir að taka völdin og leggjast á langþreyttan gróður- inn. Frost var mikið aðfaranótt fyrsta sumardags og spáir það að vísu góðu, ef saman frjósa sumar og vetur, að gamalla manna máli. Hey eru nóg í sveit- inni, sögðu ásetningsmenn, enda þótt einn og einn mann vanti fóður og hafi keypt sér viðbót, sumir úr fjörrum stöð- um. Óþarft er það, því hér eru til föl hey, t.d. hjá þeim Ytra- Snjórinn eyðist, gatan greiðist. Gumar þá, ef þeim leiðist leggja á, hleypa skeið og herða reið og hrinda vetri frá. Hverfur dimmu dá. Prúðir sækja lón og læki laxar þá. Sumir krækja silungsá. Veiðitækir, sporðasprækir, spretti hörðum á fjalli fýsast ná. varð íslandsmeistari í stórsvigi. Fyrr í vetur sigraði Daníel einnig á Unglingalandsmóti í Bláfjöllum, bæði í svigi og stór- svigi. Einnig sigraði hann í Alpa tvíkeppni á sama móti. Daníel mun vera eini piltur- inn á Dalvík á þessum'aldri, sem stundar skíðin reglulega í vetur. Fyrir jólin var hann í skíða- þjálfun í Austurríki, þar sem hann dvaldi í tvo mánuði undir leiðsögn Hugo Nindl, sem rekur skíðáskóla skammt frá Inns- bruck. Skíðafélag Dalvíkur styrkti hann til fararinnar. Norðurslóð óskar Daníel til hamiflgju með árangurinn. Brynja. Holtsbændum, sem vilja selja hey við sanngjörnu verði. Nú, þegar þetta er ritað er snjóföl yfír öllu og hráslaga- legt um að litast, en sólblettir í fjöllum hér og þar, svo vorið er áreiðanlega á næsta leiti. Með þessari vorhugleiðingu þyk- ir hlýða að birta viðeigandi ljóð. Fyrir valinu varð Vorvísan hans Jónasar Hallgrímssonar. Það er vafasamt að nokkurntíma hafi verið kveðið snjallara vorljóð á íslenska tungu né heldur eigi eftir að verða kveðið. Fjaðraléttir flokkar þéttir fugla þá synda ettir sumará, eða mettir strönd og stéttir stika til og frá, kæta loft og lá. Ærin ber og bærinn fer að blómgast þá. Leika sér þar lömbin smá. Nú er í veri nóg að gera, nóttu bjartri á hlutir hækkað fá. Grænkar stekkur. Glóð í brekku ganga kná börnin þekku bóli frá. Kreppir ekki kuldaklekkur, kætist fögur brá, búa blómum hjá. Rennur sunna, Sveinn og nunna sér við brá, sízl þau kunna sofa þá. Sælt er að unnast. Mjúkum munni málið vaknar á, fegurst höldum hjá. Ekkert betra eg í leti inna má svo er vetri vikið frá. Uni fleti hver, sem getur heimskum gærum á. Önnur er mln þrá. Daníel Hilmarsson varð íslandsmeistari í stórsvigi Afli á vetrarvertíð 1981 Netabátar 1/1-15/4: Afli (n. Sjóferðir Meðalafli í sjóferð Stefán Rögnvaldss. 197 42 4,7 Vinur 186 41 4,5 Otur 238 51 4,7 Brimnes 300 40 7,5 Sæljón 239 44 5,4 Bliki 314 42 7,5 Haraldur 219 50 4,4 Tryggvi Jónsson 123 37 3,3 Njörður 43 26 1,6 Samtals: 1.859 373 5,0 Afli sama tíma 1980 1.477 467 3,2 Togarar 1/1-25/4: Björgvin 318 tn. í 4 veiðif. Björgúlfur 890 tn. í 8 veiðif. Dalborg 466 tn. í 6 veiðif. Sléttbakur 142 tn. í 1 veiðif. Samtals: 1.816 tn. í 19 veiðif. Afli sama tíma 1980 2.382 tn. í 19 veiðif. Heldur minni afli en 1 fyrra Björgvin tilbúinn á veiðar um20. maí Þrátt fyrir slæmar gæftir og slæm óhöpp hjá togurum Út- gerðarfélags Dalvíkur h.f. er heildarafli frá áramótum, kom- inn á land á Dalvík, ekki nema 180 tn. minni en á síðasta ári. Aflinn nemur nú 3.675 tn. á móti 3.859 tn. á sama tíma í fyrra. Yfirlit einstakra skipa fylgir hér með í blaðinu. Þegar þorskveiðibann neta- báta hófst var afli þeirra frá ára- mótum orðinn 1.859 tn. en á sama tíma í fyrra var hann 1.477 tn. Aflinn á netabátum nú er sá næst mesti sem hann hefur nokkru sinni orðið. Aðeins árið 1979 var hann meiri, 2.218 tn. Hins vegar eru mun færri sjó- ferðir eða aðeins 373 nú en 596 þá. Þannig að afli í sjóferð hefur aldrei verið meiri en nú. Afli í sjóferð 1978 var 2.6 tn. að meðaltali, 1979 3.7 tn., 1980 3.2 tn. og nú 5.0 tn. Aftur á móti er afli togara minni nú en áður. Munar þar miklu frátafir vegna bilana og viðgerða. Samkvæmt upplýs- ingum Björgvins Jónssonar, framkvæmdastjóra Útgerðarfé- lags Dalvíkur, er nýja vélin í Björgvin EA 311 væntanleg næstu daga, svo reikna má með að hann verði tilbúinn á veiðar um 20. maí n.k. Nýjustu aflafréttirnar. Ekki lítil staðaruppbót Hitaveita Dalvíkur hefur nú starfað í rúman áratug. Hún er nú svo sjálfsagt fyrirtæki í augum okkar að fæstir munu hugleiða hvaða þýðingu það hefur haft í raun að til hennar var stofnað. Valdimar Bragason bæjarstjóri hefur látið blaðinu í té upplýsingar sem okkur þótti það forvitnilegar að við birtum þær hér. Á svæði hitaveitunnar er upphitað húsnæði alls 242.490 rúmmetrar, þar af íbúðarhús- næði 144.643 rúhimetrar, mis- munurinn er atvinnuhúsnæði. Samkvæmt opinberum tölum þarf 13 1. af gasolíu á ári til að hita upp rúmmetra húsnæðis. Þetta þýðir, að það myndi kosta 8.196.162 krónur að hita upp húsnæðið hér á ári, miðað við verð á gasolíu í dag. Hins vegar selur hitaveitan samtals 38 sekúntulítra af vatni og miðað við gjaldskrá hennar í dag nemur kostnaður húseig- enda í raun alls 1.402.440 kr. á ári að hita upp húsnæði sitt. Mismunur á því að njóta hita- veitunnar og að þurfa að kynda upp með olíu eru því 6.793,722 krónur á ári fyrir húseigendur hér á Dalvík. Ef nefna á til sam- anburðar einhveijar tölur má geta þess að áætluð álögð útsvör, aðstöðugjöld og fasteignaskatt- ar hér á Dalvik nema samtals 6.724.200, það er spamaður af hitaveitunni er meiri en nemur öllum álögðum gjöldum í bæjar- félaginu. Ef athugað er hvemig þetta kemur út hjá fjölskyldu sem býr í meðalstóm húsnaéði eða 500 rúmmetmm, þá kostar upphitun með olíu 16.900 kr., en 3.114 krónur á ári með hitaveitu, mismunurinn er 13.786 kr., þannig nemur kyndingarkostn- aður íbúðarhúss á svæði hita- veitu Dalvíkur aðeins 18.4% af því sem hann væri, ef við þyrftum að nota olíu. Ekki lítil staðamppbót það.

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.