Norðurslóð - 04.10.1982, Side 1
6. árgangur___Mánudaginn 4. október 1982_7. tölublað
Kristján Eldjárn forseti
Fæddur 6. desember 1916 - Dáinn 14. september 1982
Kristján Eldjárn fyrrverandi
forseti Islands andaðist þann 14.
september. Utför hans var gerð
frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 23. september,
en jarðsettur var hann í
Fossvogskirkjugarði.
Mjög margir hafa orðið til
þess að minnast Kristjáns í
blöðum syðra og einnig hér fyrir
norðan. Mjög eru þau skrif öll á
eina lund og sýna að hinn látni
forseti var fram úr skarandi
vinsæll meðan hann sat sem
þjóðhöfðingi á Bessastöðum og
átti sér tryggan stað í hug og
hjarta þjóðarinnar, einnig eftir
að hann hafði látið af forseta-
starfi.
Það væri tilhlýðilegt að þetta
blað, svarfdælskt byggðarblað,
minntist nú á veglegan hátt
þessa merka sonar byggðar-
lagsins. Það verður þó ekki gert
nema með örfáum og fátækleg-
um orðum.
Örugglega er það satt, sem
fram hefur komið í minningar-
greinum, að Kristján væri
vinsæll forseti. Til forna var oft
svo að orði komist um höfðingja,
að hann væri ástsæll af alþýðu
manna. Slíkur höfðingi var
Kristján í orðsins fyllsta skiln-
ingi. Menn hafa velt því fyrir
sér, hvað það hafi verið í
persónu Kristjáns Eldjárns, sem
gerði hann svo hjartfólginn allri
þjóðinni, bæði háum og lágum,
eins og stundum er að orði
komist. Ein skýring gæti verið
sú, að menn fundu í fari hans, og
fundu greinilega, ýmsa þá eigin-
leika, sem allur þorri manna
telur að eigi góðan mann að
prýða, og vill þrátt fyrir allt
gjarnan tileinka sér. Þeir eigin-
leikar eru m.a. heiðarleiki,
hógværð, hjartahlýja, glaðvær
alvara, hófsöm bjartsýni, raunsæ
trú á land og lýð.
Þjóðin sá í þessum manni,
sem hún hafði hafið til æðsta
embættis, persónugerving þess,
sem hún gjarnan vildi vera, enda
þótt hún viti það fullvel, eða
Kristján Eldjárn
Prýddi ættaróðal
ungur sveinn.
Hærra hæstu tindum
hóf sig einn.
Fljótt að fjallabaki
frami beið.
Hyllti þjóð sinn þekka
þjóðarmeið.
Var hann vel þess búinn,
viskuknár,
þekkti þjóðarsögu
þraut og fár.
Mitt í menntasölum
mundi þó
faðmlög fjalladalsins,
fugl í mó.
Andans mikilmenni
minna á börn.
Traust var handtak hinsta
heima á Tjörn.
Jóhann Sigurðsson
kannske einmitt af því að hún
veit það vel, að hún er oft svo
sorglega langt frá að líkjast
fyrirmyndinni.
í þessu blaði væri sjálfsagt
eðlilegast að minnast helst
Svarfdælingsins Kristjáns Eld-
járns. Það er ekki ofsagt þótt
sagt sé, að honum þætti vænt um
æskubyggð sína, enda sýndj
hann það við mörg tækifæri. I
kveðjugrein frá samtökum Svarf-
dæla fyrir sunnan er getið um
þátt hans í að stofna þau samtök
og halda þeim vel vakandi.
Ennfremur er sérstaklega þakk-
aður þáttur hans í að mann-
fræðiritið Svarfdælingar að
lokum leit dagsins ljós þótt
höfundur verksins væri fallinn
frá.
Gjarnan mundi hann hafa
viljað koma oftar og dvelja
lengur innan hins svarfdælska
fjallahrings. Margar orsakir lágu
til þess að þær stundir urðu færri
og styttri en hann hefði kosið,
eftir að hann tók við embætti
forseta lýðveldisins. Nú hafði
hann hinsvegar hug á að bæta úr
í þessu efni, en það átti ekki fyrir
honum að liggja.
Þó er gott þess að minnast að
á þessu nýliðna sumri hafði
hann tvívegis tækifæri til að
heimsækja æskustöðvarnar hér
norðanlands. Þegar minnst var
90 ára afmælis Tjarnarkirkju
komu þau hjónin og tóku þátt í
athöfninni, hann með ræðu í
Þann 14. sept s.l. var Dalvíkur-
skóli settur. í vetur munu verða
298 nemendur í skólanum að
meðtöldum forskóladeild og
framhaldsdeild. Eins og í fyrra
verður starfrækt skipstjórnar-
braut og munu 6 nemendur
stunda nám í henni nú í vetur.
Þær breytingar hafa orðið á
starfsliði frá síðasta skólaári að
eftirtaldir kennarar létu af störf-
um: Ásmundur Sverrir Pálsson,
Anna Baldvina Jóhannesdóttir,
Sæmundur Andersen og Þórdís
Hjálmarsdóttir. í stað þeirra
voru ráðnar í fullt starf Dagný
Elfa Birnisdóttir sem er Dalvík-
ingur og Arnheiður Tryggva-
dóttir frá Akureyri, auk stunda-
kennara.
í sumar hefur verið unnið af
kappi í nýja skólanum. Gengið
var frá loftum í skólastofum og
syðsti hluti hússins frágenginn.
Húsnæðið hefur verið tekið í
notkun smám saman í bygging-
arstiginu og í vetur verður hvert
herbergi þar nýtt til kennslu. I
húsnæðinu verður kennsla 1. -
6. bekkjar auk forskóladeildar
sem nú fær allmiklu betri
aðstöðu en hún áður hefur haft.
Þá hefur teikni- og söngkennslu
verið komið fyrir í nýja húsinu.
Vonir standa til að taka megi
upp samkennslu yngstu bekkja í
húsinu en þar er mjög vel
hannað með tilliti til þess. Stefnt
er að því að á næsta ári fari fram
kirkjunni, sem ýmsum þótti
sérlega áhrifamikil. Þetta var
einstaklega vel lukkuð athöfn
og sveitin heilsaði gestum sínum
í hátíðarbúningi.
I fyrstu viku ágústmánaðar
fóru þau Kristján og Halldóra í
boði Grænlendinga til að taka
þátt í 1000 ára landnámshátíð
Grænlands. Kristján naut þess-
arar ferðar í ríkum mæli ekki síst
fyrir þá sök að á Grænlandi
hafði hann sem ungur stúdent
dvalið eitt ógleymanlegt sumar
við fornleifarannsóknir og
reyndar aftur nokkurt skeið
löngu seinna. Að þessu sinni
komst hann einnig á nýjar slóðir
þar sem áður stóð þétt byggð
Islendinga. Varð honu þetta allt
til uppriíjunar góðra gamalla
dag í þessu stórbrotna landi.
Síðast var það 22. ágúst að
Kristján kom í skyndiferð hingað
í dalinn ásamt blaðamanni og
ljósmyndara á vegum tímarits
STORÐ, sem þó hefur ekki enn
hafið göngu sína.
Einnig í þetta sinn var veður
hið ágætasta og skartaði dalur-
inn sínu fegursta, þegar líða tók
á dag. Stóðu gestirnir tímunum
saman fram á varpa á Tjörn og
bentu til allra átta og töluðust
við í sífellu. Einnig var farið
fram í dal, að Urðum og víðar.
Sú varð hinsta för Kristjáns á
æskuslóðirnar.
Ymsir hafa látið þau orð falla
að það væri sorglegt, hve ungur
lokafrágangur á nýja skóla-
húsinu.
Foreldrafundur
Mánudaginn 23. sept. var
haldinn^ foreldrafundur í skól-
anum. Á þeim fundi var ákveðið
að foreldrar tækju sig saman og
byggðu leiktæki á skólalóð.
Skiptu foreldrar sér í hópa og
vann hver hópur upp hug-
myndir aðjeiktækjum sem þeir
útfærðu. Ákvaðið var að nota
n.k. laugardag og sunnudag til
framkvæmda. Því miður hefur
skólalóð ekki verið veitt nægjan-
leg athygli hingað til þrátt fyrir
ábendingar kennara. Samþykktu
þeir því á fundi að leita til
foreldra um samvinnu í þessum
efnum. Verður spennandi að
að árum Kristján féll í valinn.
Satt er það, að hann hafði sjálfur
fullan hug á að lifa lengur og
vinna að hjartfólgnum efnum
íslenskrar sögu og fornleifa-
fræða. Hann hafði beinlínis
losað sig frá tímafrekum skyldum
forsetaembættisins m.a. til að
geta helgað sig þvílíkum hugðar-
efnum. Og hann hafði ýms verk í
takinu á mismunandi vinnslu-
stigum svo sem t.d. bókina um
Arngrím málara, sem reyndar
má heita að væri lokið.
Vissulega er það sorglegt þegar
menn falla frá óvænt og í fullu
fjöri frá ástfólginni og samhentri
fjölskyldu og vinnuborði hlöðnu
ófullgerðum verkum.
Á því máli eru þó fleiri hliðar
eins og flestum öðrum málum. í
fylgjast með hveijar framkvæmdir
verða og hvemig nemendur
bregðast við.
Ný skólanefnd
Nú í sumar var kjörin ný
skólanefnd. Vemleg breyting
varð á nefndinni og er aðeins
einn nefndarmanna úr fyrri
skólanefnd en það er Hilmar
Daníelsson formaður sóknar-
nefndar. Aðrir nefndarmenn
eru: Guðmunda Óskarsdóttir,
Gunnar L. Hjartarson, Inga
Benidiktsdóttir, Lína Gunnars-
dóttir og Vigdís Sævaldsdóttir.
Fulltrúar Árskógs - og Svarf-
aðardalshrepps í skólanefnd
Dalvíkurskóla em Sigurlaug
Gunnarsdóttir Krossum og
Guðrún Lámsdóttir Þverá.
Grykklandi var sagt að þeir
dæju ungir, sem guðirnir elsk-
uðu. Þó ekki sé tekið undir þá
kenningu, er óhætt að segja að
það sé hamingja hverjum manni
að lifa ekki of lengi, því ellin
bíður hvers manns og suma
leikur hún nokkuð grátt.
Og því má vel spyrja þeirrar
spurningar, sem prófessor Jón
Helgason spyr í ljóðlínum, sem
Kristján hafði mætur á og hafði
oft yfir:
Nóttin breiðir á djúpin sín dimmu
tjöld,
og dauðinn ríður.
Hvort hefur sá betur, sem hreppir
þann gest í kvöld,
eða hinn, sem bíður?
Frá Húsabakkaskóla
Húsabakkaskóli var settur þriðju-
daginn 28. sept. Nemendur
verða 48 í 7 bekkjardeildum í
vetur og auk þess verða 5
nemendur í forskóladeild. Litlar
breytingar hafa orðið á starfs-
liði skólans frá fyrra ári. Einn
fastur kennari hefur verið ráðinn
til viðbótar við þá sem fyrir
vom. Heitir sá Helga Hauks-
dóttir og utskrifaðist úr Kennara-
háskóla íslands sl. vor. Fyrir þá
sem gaman hafa af ættfræði má
geta þess, að hún er dóttir
Hauks Valtýssonar, Aðalsteins-
sonar klæðskera frá Hreiðar-
staðakoti. Einn stundakennari,
Þórólfur Jónsson, sem kenndi
smíðar, hefur látið af störfum
og í hans stað kemur Sigurður
Marinósson. Aðrar breytingar
hafa ekki orðið.
Fjöldi nemenda er óvenju
mikill þetta ár eins og í fyrra og
veldur það nokkrum þrengslum
á heimavistum, en ekki hefur
komið til að úthýsa neinum fyrir
það.
Við skólsetningu var tilkynnt,
að Kiwanisklúbburinn Hrólfur
á Dalvík hefði ákveðið að gefa
skólanum litsjónvarpstæki.
Verður það sett upp í annarri
heimavistinni til afnota fyrir
alla nemendur skólans.
B.Þ.
Kennslustund í nýja skólahúsinu.
Skólarnir á Dalvík og Húsabakka taka
til starfa - Nemendur um 350 samtals