Norðurslóð - 04.10.1982, Side 2
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og ábyrgðarmenn:
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfaöardal
JÓhann Antonsson, Dalvik
Afgreiðsla og innheimta: Sigriður Hafstað, Tjörn
Ljósmyndari: fíögnvaldur Sk. Friðbjörnsson
Prenlun: PrentsmiOja Björns Jónssonar
Loðdýrarækt
Samfara samdrætti í aðalbúgreinum íslenskra bænda þ.e.
mjólkur- og kindakjötsframleiðslu er nú markvisst unnið
að því að koma á fót öðrum búgreinum, svo að heildar-
tekjur landbúnaðarins haldist sem mest.
Loðdýrarækt er þar efst á blaði. Talið er að til að vega upp
á móti tekjutapi af 50 þús. ærgildum þurfi tekjur af ca. 10
þús. blárefalæðum. Með þeim hraða vexti, sem á þessu ári
virðist ætla að verða einmitt í þessari búgrein, eru horfur á að
ekki líði á löngu áður en því marki er náð, en það svarar til
þess að 250 bændur rækju að meðaltali 40 læðu bú hver.
Þetta verður að teljast góð þróun, en þó er vert að fara að
þessu eins og öðru með nokkurri gát, því skinnamarkaður er
sveiflukenndur og getur undir vissum kringumstæðum brugð-
ist illa.
Kall má að hér í Eyjafirði sé þungamiðja loðdýraræktar-
innar eins og stendur og er hún í vexti báðumegin fjarðar.
Eitt meginskilyrði þess að vel takist til með þessa nýju bú-
grein, er að fóðuröflun sé trygg og fóðrið jafnan fyrir hendi,
hollt dýrunum og á hóflegu verði.
Það er því fyllilega tímabært að farið sé að kanna mögu-
leika á að stofnsetja hér fóðurstöð eða eldhús til framleiðslu
loðdýrafóðurs, sem geti þjónað jafnvel öllum loðdýrabúum
við fjörðinn.
Á vegum samvinnuhreyfmgarinnar er farið að ræða um
uppbyggingu slíkra stöðva á hentugum stöðum í landinu. Hér
í Eyjafirði hefur KEA látið fara fram byrjunarathuganir á
þeim möguleikum, sem hér kunna að vera fyrir hendi í þessu
efni.
í því sambandi hefur athyglin ekki hvað síst beinst að Dal-
vík vegna greiðs aðgangs þar að hráefnum til fóðurgerðar,
bæði á staðnum sjálfum og í nálægum verstöðvum.
Það er full ástæða fyrir okkur, sem hér búum, að fylgjast
vel með þessu áhugaverða máli.
H.E.Þ.
Ljósmynd: H.H.
Hátíðarmessa í Tjarnarkirkju
Tjarnarkirkja átti 90 ára afmæli á þessu sumri. Þessa afmælis
var minnst með hátíðarmessu í Tjamarkirkju 18. júlí s.l.
Sr. Sigurður Guðmundsson vígslubiskup predikaði, sr.
Stefán Snævarr prófastur þjónaði fyrir altari og Samkór
sóknanna í Svarfaðardal söng undir stjóm Jakobs Tryggva-
sonar Akureyri. Stjómandi kórsins Ólafur Tryggvason frá
Ytra Hvarfi forfallaðist, og hljóp Jakob í skarðið fyrirhann.
Eftir predikun flutti dr. Kristján Eldjám ræðu og talaði um
kirkjurnar í Svarfaðardal og þá einkum forvera þeirra kirkna
sem nú standa. Vonir standa til að sú ræða birtist í jólablaði
Norðurslóðar. Prófasturinn sr. Stefán Snævarr flutti síðan
ágrip af sögu Tjamarkirkju þeirrar sem nú á 90 ára afmæli.
Hátíðarmessunni lauk með því að þjóðsöngurinn var
sunginn. Veður var hið fegursta hlý sunnan gola og sólskin.
Fjöldi fólks sótti messuna og komust ekki nær því allir inn í
kirkjuna. Hátalara var komið fyrir úti, þannig að allir gátu
hlýtt á allt sem fram fór. Eftir messu 'var gestum boðið til
kaffidrykkju á Þinghúsi dalsins að Grund.
Kirkjunni bámst gjafir í tilefni afmælisins, bæði frá brott-
fluttum Svarfdælingum og heimamönnum.
Sóknarnefnd Tjarnarkirkju vill koma á framfæri þökkum
til allra þeirra sem sýndu kirkjunni sóma á einhvem hátt, með
gjöfum, með sjálfboðavinnu að viðgerð kirkjunnar, og
snyrtingu kirkjugarðsins, og fleira.
Kærar þakkir.
Sóknarnefnd Tjamarkirkju.
Ættarmót í Svarfaðardal
Klemenz Vilhjálmsson, bóndi
í Brekku, setti mótið við skólann
á Húsabakka síðdegis á laugar-
dag, bauð menn velkomna og
sagði tilhögun, en hann stjómaði
mótinu. Allmargir gestanna gistu
í heimavistinni á Húsabakka,en
aðrir hjá vinum og vanda-
mönnum.
Var nú snæddur kvöldverður
á Húsabakka og tekið tal
saman. Þurfti fólk að heilsast og
kynnast því margir höfðu aldrei
sést áður.
Um kvöldið var farið suður á
Þinghús til samkvæmis, og
skemmtu menn sér þar við
ávörp, upplestra, kvikmynda-
sýningu, almennan söng og
dans.
Helga Vilhjálmsdóttir minnt-
ist með ræðu foreldra sinna og
rakti æviágrip þeirra, bræðurnir
Gestur og Klemenz fluttu ávörp,
einnig Tómas Ragnar Jónsson
frá Blönduósi, tengdasonur
Kristínar og Vilhjálms. Ásdís
Björnsdóttir og Kristín Gests-
dóttir lásu upp þætti úr bókum
þar sem sagt er frá Kristínu og
Vilhjálmi. Jóhann Daníelsson
sýndi m.a. kvikmynd er hann
tók fyrir tæpum aldarfjórðungi
af Kristínu á Bakka. Einnig var
sungið og spilað og að lokum
var stiginn dans við dihandi
harmonikuleik Hafliða Ólafs-
sonar. Sérstök dagskrá var fyrir
Helgina í 18. viku nýliðins
sumars voru óvenju miklar
mannaferðir um Tjamarsókn,
en þá daga, 21. og 22. ágústfjöl-
menntu afkomendu hjónanna á
Bakka, Kristínar Jónsdóttur og
Vilhjálms Einarssonar og vensla-
menn þeirra til ættarmóts í
Svarfaðardal. Munu hátt í tvö
hundruð manns víða af landinu
hafa sótt mannfagnað þennan,
sem fór aðallega fram á Þing-
húsinu og á Húsabakka. Alls
eru afkomendur um 300 talsins.
Veður var ákjósanlegt, sólskin
og logn.
Ættfeður og afkomendur
Hjónin Vilhjálmur Einarsson
(1863-1933) og Kristín Jóns-
dóttir (1869-1964) bjuggu á
Bakkafrá 1904-1933. Vilhjálm-
ur var þingeyingur, en Kristín
svarfdælskrar ættar.
Vilhjálmur var maður fram-
farasinnaður og gat sér orð fyrir
dugnað og myndarskap í búskap.
Hann stórjók landsnytjar á
Bakka með ræktun og áveitum
og bætti mjög húsakost. Hann
var skjótur að tileinka sér
nýjungar í búskap og mddi þar
oft brautina. Hann varstórbrot-
inn maður, áhugasamur um
félagsmál og raungóður, þeim
sem minna máttu sín.
Kristín húsfreyja var dugnaðar-
kona mikil, styrk og hjartahlý
og hjálpsöm við alla þá sem bágt
áttu. Má þar um gerst lesa í
bókinni „Þrettán rifur ofan í
hvatt“ eftir Jón Helgason í
þættinum um Jóhann bera.
Kristín var tæpra 96 ára þegar
hún lést.
Þau hjón eignuðust 11 böm,
af þeim komust aðeins 8 á legg.
Dóttir Vilhjálms fyrir hjóna-
band var Vilhelmína, f. 1887
búsett í Reykjavík. Börn
Kristínar og Vilhjálms er upp
komust vpm: Sigríður f. 1891
búsett í Ólafsfirði, Þór f. 1893,
bóndi á Bakka, Gestur, f. 1894,
bóndi í Bakkagerði, Sólveig, f.
1899, búsett í Reykjavík, Helga,
f. 1902, búsett á Sauðárkróki,
Ingibjörg, f. 1903, búsett á
Blönduósi, Þorbjörg, f. 1908,
húsfreyja í Olduhrygg og
Klemenz, f. 1910, bóndi í
Brekku. Af þeim systkinum eru
þrjú enn á lífi; Gestur, Helga og
Klemenz.
Mótið sett
Simon og Siegfrid.
Tónleikar í Dalvíkurkirkju
Þriðjudaginn 12 okt. n.k. kl.
20:30 verða tónleikar í Dalvíkur-
kirkju. Gítarleikararnir Símon
Ivarsson og Siegfrid Kobilsa frá
Austurríki flytja þar flamengo
og klassislca gítartónlist.
Símon Ivarsson kennir nú við
tónlistarskóla Sigursveins í
Reykjavík. Hann hóf gítamám
af alvöru 19 ára gamall. Hann
lauk kennaraprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík 1975.
Sama haust hóf hann nám hjá
Karl Scheit, sem kallaður hefur
verið faðir austurrískrar gítar-
tónlistar, í Tónlistarskólanum i
Vín.
Hann lauk námi þar 1980, en
þá lá leiðin til Luzaren í Sviss en
þar kenndi Símon við tónlistar-
skóla.
Siegfried Kobilsa lærði einnig
hjá Karl Scheit í átta ár og er nú
konsert gítarleikari. Hann hefur
spilað í flestum löndum í
Evrópu m.a.s. Sovétríkjunum.
Héðan fer Siegfried Kobilsa til
Bandaríkjanna og þar mun
hann meðal annars halda tón-
leika í Carnegie Hall í New York
og á næsta ári fer hann í
tónleikaferð til Kína.
Því ber að fagna að þessir
ágætu listamenn leggi leið sína
til Dalvíkur og vonumst við til
þess að sem flestir komi á
tónleikana í Dalvíkurkirkju.
Tónlistarfélag Dalvíkur.
Veggskreyting á mótsstað.
yngstu kynslóðina niðri í litla
sal. Klemenz sagði börnunum
sögur en Jóhann sýndi kvik-
myndir.
Árdegis á sunnudag var helgi-
stund í Tjamarkirkju hjá Stefáni
prófasti Snævarr. Kirkjan var
fullsetin, en Olafur Tryggvason
organisti lék undir söng kirkju-
gesta.
Eftir helgistundina var farið
fram á Tungur og dalurinn
skoðaður í veðurblíðunni, en
síðan dmkkið síðdegiskaffi á
Húsabakka. Margar hendur
Ljósmynd: J.J.D.
voru á lofti við undirbúning og
framreiðslu hinna rausnajlegu
veitinga, undir forystu Óskar
Þórsdóttur á Bakka, matráðs-
konu á Húsabakka.
Aðalhvatamaðurinn að mótinu
var Helga Vilhjálmsdóttir. Það
er mál manna að þetta niðjamót
Kristínar og Vilhjálms á Bakka
hafi verið vel heppnað og
ánægjulegt í alla staði. Líklega
má telja að það hafi verið fyrsta
ættarmót, sem haldið hefur
verið í Svarfaðardal.
Júlíus J. Daníelsson.
Helga, Gestur og Klemenz Vilhjálmsböm ásamt Tómasi Ragnari Jónssym.
2 - NORÐURSLÓÐ