Norðurslóð - 25.01.1983, Side 5

Norðurslóð - 25.01.1983, Side 5
Framhald af bls. 2. Ég vil svo segja það að lokum að hér í Dalbæ líkar fóki yfirleitt mjög vel. Okkur hjónunum hefur líkað mjög vel hérna allan þennan tíma sem við höfum verið hér. Aldrei leiðst, og fundist þessi tími vera fljóturað líða miðað við það hvernig éger nú til heilsunnar. Það er regin- munur að þurfa ekki að fara úr sínu byggðarlagi. Ég hefði aldrei farið á elliheimili ef ég hefði þurft að flytja burt. bað er stórkostlega mikils virði fyrir þetta byggðarlag að hafa þetta heimili hér. Jóna Kristín Jónsdóttir afgreiðslu- stúlka, Dalvík Mér er minnisstæðust ferð sem ég fór til Grímseyjar um versl- unarmannahelgina. Þar var fjölskyldumót hjá Kiwanisfólki. Undanfarin ár hefur mót þetta verið haldið í Vaglaskógi. Én nú fannst Grímseyskum Kiwanis- mönnum að landsmenn gætu einu sinni heimsótt þá. Við fórum með Drang. Þetta var stórkostleg ferð. Við sváfum í tjöldum við félagsheimilið. Það var stjanað við okkur þarna, og veðrið var langt framar öllum vonum. Grímseyingar mundu ekki eftir öðru eins veðri í mörg, mörg ár. Sjórinn var spegil- sléttur, okkur var boðið í sigl- ingu í kringum eyna. Vegna veðurblíðunnar þá gat báturinn sem fór með okkur lagt upp í fjöruna, sem hann hafði aldrei getað fyrr. Við fórum þar í land og skoðuðum fuglalífið. Við gátum gengið alveg upp við hreiðrin. Einnig skoðuðum við helli. Hinum megin við eyna er annar álika hellir og eru getgát- ur um að kannski sé gat þarna í gegnum eyna. En enginn veit það með vissu. Mér fannst þetta skrýtið og lét í Ijós undrun á því að Grímseyingar skyldu ekki hafa „tékkað“ á þessu. En þá sagði okkur maður sem var með að einhverjir hefðu reynt og lagt af stað inn í hellinn en snúið við vegna myrkurs! Annar eftirminnilegur atburð ur en þó ekki eins ánægju- legur er einnig tengdur Kiwanis. Við vorum að koma af Kiwanis- móti sem var á Húsavík um miðjan okt. Það var mikil hálka og við lentum aftaná bíl sem var kyrrstæður, með þeim afleiðing- um að ég hryggbrotnaði í fyrsta og eina skiptið. Jólin í ár voru svolítið sérstök að því leiti að þetta voru fyrstu jólin i nýrri íbúð. Nú er miklu rýmra um okkur. Að öðru Ieiti voru jólin svipuð og önnur jól. Ósköp róleg. Á aðfangadags- kvöld borðuðum við eins og alltaf, kalt hangikjöt og tilheyr- andi. Þessu er ég vön frá því ég var barn. En svo hef ég steik á jóladag. Öfugt við flesta aðra. Nokkrar bækur las ég víst en ég man ekki nöfnin á þeim og eiginlega ekki heldurefni þeirra. Þetta voru svona ástaveliur, af- þreyingarskáldsögur sem mér finnst ágætt að eyða tímanum í og borða með laufabrauð og konfekt. Þá vakti ég eina eða tvær nætur við lestur, en tek ekki endilega eftir því hvað ég er að lesa! Snjólaug Bragadóttir Persónulega er mér minnis- stæðast, að togarinn Baldur kom hingað til Dalvíkur, því það þýddi, að maðurinn minn, sem er togarasjómaður, þurfti nú ekki lenguraðsækja vinnu til Reykjavíkur, eins og hann hafði gert í tíu mánuði, eftir að við fluttum hingað. Af almennum viðburðum er ótal margs að minnast, svo sem sómafarar Vigdísar til Vestur- heims, dauða Brésnefs, sem víða kveikti von um að eitthvað færi loks að gerast í afvopnunarmál- um, og sitthvað var fleira, sem eflaust er þegar búið að rekja í fréttaannálum fjölmiðlanna. Þetta var gott ár að mestu, að vísu lét veðurfarið ekki að stjórn, fremur en endranær. en við því var ekkert að gera, annað en fækka eða fjölga fötum eftir duttlungum þess og vera ekkert að ergja sig vegna þess, sem maður ræðurekki við. Ég hafði nóga vinnu á árinu og veitti ekki af að drýgja heimilistekjurnar, þvi þó stjórn- málamenn og hagfræðingarsegi verðbólgu ársins hafa verið undir 60% mun ársins verða minnst, sem mikils verðbólgu- árs og það er staðreynd, að mat- vara hefur hækkað meira en opinberar tölur segja til um og sumar tegundir allt að 200%. Já, ég las mikið þetta ár eins og öll önnur, en man því miður ekki eftir neinni bók, sem mér fannst miklu betri en aðrar. Hins vegar olli ein mér sárum vonbrygðum fyrir að standa fyrri bókum höfundar langt að baki, en það er nýjasta bók Auðar Haralds. Jólin voru notaleg og streitu- laus, því ég er ekki ein þeirra, sem bakar20tegundiraf kökum og gerir húsið hreint í hólf og gólf. í heild var árið mér ósköp venjulegt og átakalítið. Steinun í Vegamótum Það sem mér dettur fyrst í hug og er án efa eftirminnilegast, er 14. september, dagurinn þegar Kristján Eldjárn dó. Mér varð svo mikið um það. Það var hringt til okkar um kvöldið og okkur sagt að hann hefði látist þennan sama dag. Af jákvæðum atburðum er mér sennilega minnisstæðast þegar ég var gerð heiðursfélagi Slysavarnarfélags íslands I. maí s.l. vor. Það var hringt í mig og ég boðuð suður á þing Slysa- varnafélagsins. Forseti Slysa- varnafélags íslands aílienti mér skjal uppá það og talaði nokkur orð til mín um leið. Ég lokaði geymi það þar, en mér fannst þetta afskaplega ánægjulegt. Á aðfangadagskvöld borðuð- um við steiktar rjúpur og ýmis- konar meðlæti og svo hangikjöt og laufabrauð á jóladaginn það hefi ég alla tíð. Ágætis jól. Við vorum frísk og þá erallt gott. Af bókum sem ég las umjólin má nefna: „Norður í svalann" eftir Sigurð Pálsson, „Aldnir hafa orðið" eftir Erling Davíðs- son, „Endurminningar Krist- jáns Sveinssonar" og „Sýnir og sálfarir“ eftir Guðmund Jör- undsson. Þetta er sem sé al.lt þjóðlegur fróðleikur. skjalið niður í skúffu hjá mér og Skrifstofustarf Laust er til umsóknar starf á skrifstofu Dalvíkur- bæjar. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar n.k. Umsóknum skal skila til undirritaðs sem ásamt bæjarritara veitir allar nánari upplýsingar. Bæjarstjórinn Dalvík. Veistu hvaða vinninq er hæqt að fá á eitt einasta númer ? HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS HEFUR VIIMIMINGINN NORÐURSLÓÐ - 5

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.