Norðurslóð - 25.01.1983, Page 6

Norðurslóð - 25.01.1983, Page 6
MÉR ER SPURN? Norðurslóð leitar svara Tónleikar til styrktar flygilkaupimi Lifnar yíir tónlistinni á Dalvík Halla syngur - Colin leikur undir á nýja flygilinn. Nokkrar spurningar og ábend- ingar. Er ekki mögulegt að staðsetja póstkassa í Ráðhúsi Dalvíkur? Finnst ráðamönnum Dalvík- ur ekki tími til kominn að ráða umsjónarmann við Ráðhúsið? Hvað líður tannlæknamálum okkar Dalvíkinga? Er það framtíðin að matvöru- deild K.E.A.D. loki versluninni vegna smávægilegra rafmagns- bilunar (sbr. 10 jan. 1983.) ? , Er engin von til að önnur matvöruverslun K.E.A.D. verði höfð opin milli 12 og 13? Nokkrar ábendingar: Við bendum ráðamönnum Bæjarskrifstofunnar á að taka Sparisjóðinn til fyrirmyndar og auglýsa opnunartíma á hurð skrifstofunnar. Og svo þetta með snjómoksturinn, að keyra eina sköfu um göturnar, áðuren fullnaðar mokstur hefst. Við bendum Norðurslóð á að kynna fleiri nýja bæjarbúa, en opinbera starfsmenn. Við bendum Skíðafélagi Dal- víkur á að láta troða göngubraut áður en troðarinn fer í það að troða í brekkunum, og að reyna að nýta troðarann betur þ.e. troða fleiri brekkur. ÁTTA HÚSMÆÐUR Svör bæjarstjóra Bæjarstjórinn gaf í miklum flýti eftirfarandi munnleg svör: 1. Já, póstkassi verður settur þarna upp bráðlega. 2. Það hefur ekkert borið á góma, svo ég viti til, að ráða húsvörð, en hver veit nema það verði nú athugað. 3. Því miður hafa vonirnar um tannlækni enn á ný brugðist, svo það er engar fréttir af því að segja að sinni. Svör við spurningum frá átta húsmæðrum. 1. Þar sem spurt um lokun á matvörudeild ÚKED þann 10 jan. síðastliðinn vegna raf- magnsbilunar, er rétt að upplýsa eftirfarandi. Bæði peningakassar og vigtar eru þannig gerð að ekki er hægt að nota það þegar rafmagn fer af. Þar að leiðir að ekki er hægt að afgreiða frá versluninni, á þetta einnig við aðrar deildir Útibúsins. Þar sem búið er að staðsetja vara rafstöð hér á Dalvík er það von okkar að þetta komi ekki fyrir fram- vegis. 2. Þá er spurst fyrir um opnunartíma á milli 12 og 13 í matvöruverslununum, en sá háttur var tekinn upp fyrir þremur árum síðan að loka verslununum í matartímanum. Var það gert fyrst og fremst í sparnaðarskyni. Er þetta að vissu leyti skerðing á þjónustu en við viljum benda á að kvöld- og helgarsala í matvöruverslun er í Kjörbúðinni að Skíðabraut 4. Kristján Ólafsson Svar frá Norðurslóð Við ábendingu um að kynna fleiri bæjarbúa en opinbera starfsmenn. I fyrsta lagi vil ég þakka stúlkunum fyrir að senda inn þessar fyrirspurnir og ábending- ar. Það er vottur um líf og áhuga, sem er þakkarverður. Gagnvart ábendingunni hef ég tvennt fram að færa mér til afsökunar á því að enn hafa aðeins verið kynntir í blaðinu opinberir starfsmenn: 1. Eg fæ aldrei neina vitneskju um aðra innflytjendur. Hver vill hafa augun opin og láta vita, þegar nýtt fólk flytur inn? Eða öllu heldur, hver býðst til að leggja það á sig að tala við nýkomið fólk fyrir blaðið, út- vega myndir osfrv. Þessir hlutir gerast nefnilega ekki af sjálfum sér. Tvívegis hef ég auglýst eftir einhverjum, sem vildi sjá um afmælisfréttir fyrir þáttinn Tímamót í blaðinu. Enginn hefur gefið sig fram. 2. Óneitanlega varðar lesend- ur Norðurslóðar meira um suma en aðra, t.d. meira um nýjan lækni eða kennara heldur um nýjan bónda eða bílstjóra með allri virðingu fyrir þeim. Þeir fyrrnefndu eru þjónar almenn- ings. Sem sagt ég neita því að um höfðingjasleikjuskap sé að ræða, sem líklega ersvonaaðeins verið að gefa í skyn með spurning- unni. Og svo rétt til að senda skeyti til baka þá spyr ég konurnar 8: Hvers vegna segið þið nýja bæjarbúa. Það er líka fólk í sveitinni. H.E.Þ. í jólablaði Norðurslíðar var greint frá fyrirhuguðum kaupunt á flygli á vegum Tónlistarfélags Dalvíkur. Nú er flygillinn kominn og trónar í allri sinni dýrð á sviðinu í Víkurröst. Auðvitað vargripurinn keypt- ur upp á krít að mestu leyti, eins og nú er alsiða í viðskipta- lífinu. Hafa þeir ágætu bjart- sýnismenn, sem að fyrirtækinu stóðu, haft í frammi ýmsar aðferðir til að fjármagna kaupin. Skemmtilegasta aðferð þeirra félaga var sú að efna til tónlistar- kvölds í Víkurröst þann 29. des. þar sem allir flytjendur voru heimafólk. Verður nú greint frá helstu viðburðum kvöldsins: Dagskrá hófst með einsöng okkar góðkunna baríton- söngvara, Helga Indriðasonar, við undirleik Gests Hjörleifsson- ar. Fór vel á því, að Gestur, sem hefur verið driffjöður í tónlistar- lífi byggðarlagsins um áratuga skeið, skyldi slá fyrstu tónana á þetta nýja hljóðfæri og þar með vígja það. Síðan kom Hafliði Ólafsson með harmoníkkuna sína og flutti 4 lög, þar af 2 frumsamin, og eigum við þar þó a.m.k. einn kompónista. Þá kvaddi sér hljóðs trúbadúrinn Kristján Hjartarson með gítarinn sinn, söng þar nokkrar listilegar vísur og þ.á.m. frumsaminn brag um afrek sín á rjúpnaveið- um, við mikla kæti áheyrenda. Aftur kom H.I. og söng nokkur lög og nú við undirleik Colin P. Virr tónlistarkennara. Síðan settist Colin aftur við flygilinn og lék 5 verk eftir þekkta meist- ara. Komu nú gleggst í ljós hin fallegu blæbrigði í tónum hljóð- færisins, er Colin fór um það sínum næmu listamannsfingr- um. Eftir hlé debúteraði ungur píanóleikari, SindriMárHeimis- son, en hann stundar píanónám við Tónlistarskóla Akureyrar. Næst kom fram sópransöng- konan Halla Árnadóttir og söng við undirleik Colins nokkurlög. Halla er stöðugt vaxandi söng- kona og komin vel á landsmæli- kvarða sem slík. Enn var Colin í sviðsljósinu og lék nú á þver- flautu við undirleik Sindra Más á flygilinn gullfallega útsett lög eftir Bítlana. Síðasta atriðið á dagskrá var söngur Kirkjukórs Svarfdæla undir stjórn Ólafs Tryggvason- ar. Söng kórinn 8 lög, og verð ég undirritaður að lýsa sérstakri aðdáun minni á þeim smekklega og hljómfagra söng. Ekki skal gleymt að minnast á kynni kvöldsins, Björn Þórleifs- son skólastjóra, sem skilaði sínu hlutverki með léttum húmor. Að lokum minntust tónleika- gestir hins ástsæla söngvara, Jóhanns Konráðssonar, og risu úr sætum og sungu saman sálminn Heims um ból. Um 150 manns sóttu þessa tónleika og rann ágóði allur, sem fyrr sagði, til flygilkaup- anna. Framlag tónlistarflytj- enda var endurgjaldslaust og þeim til sóma. Karlakór Dalvík- Togararnir hófu veiðar strax upp úr áramótum og hafa lokið hver þeirra einni veiðiferð. Netabátar lögðu 15. janúar en óstöðugt tíðarfar hefur hamlað umvitj- unum. I vetur munu 7 heimabátar stunda netaveiðar frá Dalvík og einn verður á línu að minnsta kosti fyrst um sinn. A síðustu vertíð voru tveimur fleiri. Annar þeirra Merkúrhefurveriðseldur burtu, en hinn mun stunda veiðar frá Suðurnesjum. Veiðar hafa verið ámóta og í fyrra heldur daufar en ekki alveg dautt. Togararnir eru nú í annari veiðiferð sinni, en eins og venjulega á þessum árstíma hefur óstöðugt veður hamlað veiðum. Þeir hafa eingöngu veitt þorsk það sem af er og hefur hann verið góður að stærðinni til. ur og Samkór Dalvíkur hafa lagt fram aleigu sína til kaupanna og ýmis samtök hafa heitið stuðn- ingi sínum við málefnið. Enn vantar þó verulega á að flygill- inn góði sé allur greiddur, og heita þeir Tónlistarfélagsmenn á alla unnendur tónlistar að leggja í púkkið. Ekki er að efa að tilkoma þessa nýja hljóðfæris er lyfti- stöng fyrir allt sönglíf og tónleikahald á staðnum. Raunar er það undrunarefni og til vansa jafnfjölmennu byggðarlagi og hér er, að ekki skuli hafa verið til fullboðlegt hljóðfæri í sam- komuhúsum þess um langt skeið. Úr þessu hefur nú verið bætt, og hafi þeir þökk fyrir, sem að því stóðu. Samkvæmt upplýsingum frá hafnarvoginni komu á land hér á Dalvík 12.940 tn. á s.l. ári móti 13.013 tn. árið 1981. Neta og línubátar lönduðu 2.590 tn. en 3.812 tn. 1981. Togarar og togbátar lönduðu 10.350 tn. en 9.201 tn. 1981. Heildarafli er þannig ámóta í fyrra og árið 1981 þó svo afli landsmanna hafi dregist saman milli þessara ára. Afli togara og togbáta var á síðasta ári 80% af lönduðum afla hér en 70% árið 1981. Um síðustu helgi voru hér 33 á atvinnuleysisskrá en upp úr áramótum voru flestir 110 á skrá. Samkvæmt upplýsingum frá atvinnuleysisskráningu fækkar fólki dag frá degi á skrá þó segja megi að of hægt miði í þeim efnum. Tímamót Skírnir Þann 24. desember var skírður Gylfi, foreldrar Bryndís Björnsdóttir (Elíassonar) og Jón Emil Gylfason (Björnsson- ar) Bárugötu 1, Dalvík. Þann 3. janúar var skírð Anna Sigurbjörg, foreldrar Emilía Sverrisdóttir og Sigurbjörn Benediktsson, Móafelli, Dalvík. Hjónavígsla. Þann 24. desember voru gefin saman í hjónaband Bryndís Björnsdóttir og Jón Emil Gylfason, Bárugötu 1, Dalvík. í veikindaforföllum sr. Sfefáns Snævars þjónaði prestakall- inu sr. Hannes Blandon í Ólafsfírði. Einstakt afrek Sigurðar Matthíassonar Sigurður Matthíasson setti fyrir skömmu íslandsmet í hástökki án atrennu. Stökk hann 1,80 m og vantaði aðeins herslumuninn á að hann færi yfir næstu hæð sem var 1,86 . Til marks um afrekið má nefna að þessi hæð dugar til verðlauna á Eyjafjarðarmótinu í hástökki með atrennu. Af Sigga er annars það að frétta að hann stundar nú nám við Iþróttakennaraskól- ann og býr sig nú undir Islandsmót í atrennulausum stökkum og bíða menn spenntir eftir tíðindum það- an. Hver veit svo nema við fáum að sjá undir iljarnar á honum hér nyrðra um pásk- ana. ó.S. Ármann Gunnarsson Vetrarvertíð hafin Færri bátar stunda netaveiðar en í fyrra

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.