Norðurslóð - 22.03.1983, Síða 1
Svarfdælsk byggð & bær
7. árgangur_______________________Þriðjudagur 22. mars 1983_________________________3. tölublað
Börnin búa til sveitabæ.
Vettvangsvika í Dalvíkurskóla
Bömin kynna sér störfín í sveitinni
Vikuna 21/2-25/2 var haldin
svonefnd vettvangsvika í
Dalvíkurskóla. Lögð var niður
hefðbundin kennsla samkvæmt
stundaskrá, en þess í stað var
unnið að ákveðnu verkefni þar
sem höfuðáhersla var lögð á að
nemendur kynntu sér ýmislegt
er snerti sveit og sveitastörf. Var
Svarfaðardalur tekinn sem
útgangspunktur fyrir sveitir.
Kynntu nemendur sér ýmislegt
er snerti búskaparhætti í sveit-
um, samgöngumál, sögu,
menningarmál o.m.fl. Leituðu
nemendur víða fanga s.s. í við-
tölum við fólk og ýmsum
rituðum heimildum. M.a. má
geta þess að Héraðsskjalasafn
Svarfdæla kom að góðum
notum við öflun ýmiss konar
fróðleiks. Nemendur skráðu
niður merkar upplýsingar, gerðu
línurit, myndskreyttu og út-
bjuggu líkön, mótuðu dýr
o.m.fl. 8 ára börn fóru í fjós í
sveitinni og inn í mjólkursamlag
á Akureyri og fengu að kynnast
starfsseminni þar, 7 og 9 ára
nemendur fengu að skoða loð7
dýrabúið á Böggvisstöðum. í
vinnuviku þessari varsvo unnið
að skólablaði sem fyrirhugað er
að komi út nú á næstunni.
Meðal efnis skólablaðs eru
ýmsar greinar er nemendur tóku
saman og snertir vettvangs-
verkefnið.
Vettvangsvikur sem þessar
hafa tíðkast undanfarin ár í
Dalvíkurskóla. Hafa verið tekin
fyrir ýmis ,,þemu“ eins og það er
nefnt en í fyrra var ,,hafið“ tekið
fyrir í þess víðustu merkingu. Þá
hafa áður verið tekin fyrir
verkefni eins og síldarárin,
Dalvíkin o.fl.
Mikil vinnugleði ríkti meðal
nemenda og sýndu þeir verk-
efninu mikinn áhuga. Með
verkefni sem þessu læra
nemendur nokkuð um öflun
heimilda og á hvern hátt vinna
má úr þeim.
Árshátíð
Hugmyndin var að í tengslum
við þessa vinnuviku yrði svo
haldin árshátíð skólans og
skyldi hún haldin 4, mars. Því
V etrarvertí ðin
1/1-20/3 1983
Neta- og línubátar alli sjóf.
Stefán R . .. . . 91.300 32
Vinur 75.940 27
Otur 114.640 38
Haraldur 125.770 35
Sæljón 76.670 31
Bliki 150.980 31
Brimnes 109.013 18
Njörður 19.320 11
Búi 10.310 9
Kristján 7.180 7
Gammur 3.530 784.653 16
Togarar
Björgvin 356.272 5
Björgúlfur 555.591 6
Dalborg 339.077 6
Baldur 274.707 1.525.647 6
miður gat ekki af því orðið þá,
þar sem samkomuhúsið var
upptekið. Grunntónn skemmti-
atriða á árshátíð á að vera
,,sveitin“. Hafa nemendur æft
leikþætti, söng og ýmis gaman-
mál sem tengjast Sveit á einhvern
hátt. Er nú ákveðið að halda
árshátíð föstudag 25. og laugar-
dag 26. mars. Verða skóla-
sýningar fyrir almenning kl. 14.
og 16. Vonumst við til að sem
flestir sjái sér fært að koma og
sjá hvað nemendur hafa upp á
að bjóða. Allur ágóði af árshátíð
rennur í ferðasjóð nemenda.
Laugardaginn verður einnig
opin sýning í nýja skóla á vinnu
nemenda í vettvangsviku ásamt
ýmsu öðru er nemendur hafa
unnið að nú í vetur. Þar verður
einnig hægt að kaupa kaffisopa
ásamt meðlæti hjá nemendum 9.
bekkjar.
Skólaferð til Hollands
Nú í vetur hafa nemendur 9.
bekkjar unnið ötullega að fjár-
öflun fyrir ferðasjóð. Hafa
nemendur sýnt af sér mikinn
dugnað og staðið fyrir ýmsum
skemmtunum og jafnvel
nýbreytni í bæjarlífinuá Dalvík.
T.d. slógu nemendur upp tjaldi
á lóð ráðhússins beint á móti
kaupfélaginu í miðri jólaösinni
og buðu vegfarendum heitt
kókó til kaups. Þá þreyttu
nemendur nú um helgina sund
eitt mikið og skiptust á um að
synda í heilan sólarhring. Höfu
þeir sundið á föstudag kl. 17:00
og luku sundinu sólarhring
síðar. Söfnuðu nemendur áheit-
um sem að sjálfsögðu renna í
ferðasjóð en stefnt er að því að
fara í skólaferðalag til Hollands
nú í vor. Ekki er séð fyrir
endann á því ævintýri og ljóst er
að nemendur verða enn að
leggja á sig mikla vinnu til að
ferðin geti orðið að veruleika.
Hafa nemendur m.a. falast eftir
vinnu við móttöku áburðar
þegar honum verður skipað
upp. Ferðin kostar verulegt
fjármagn og eftir vetrarsetu á
skólabekk eru nemendur ekki
mjög fjáðir og verða því að
treysta á að ferðasjóður geti
greitt að verulegu leyti ferðina.
Hvetjum við því fólk til að styðja
nemendur í fjáröflun sinni.
T.Þ.
JVorðurslóö óskar
lesendum sínum
gleÖilegra páska
,,Án vinnu, engin menning“
segir einhversstaðar og má til
sanns vegar færa.
Undanfarin ár höfum við
Dalvíkingar búið við mikla
þenslu í atvinnumálum. Flot-
inn hefur stækkað, ný fisk-
vinnslufyrirtæki hafa veriðsett á
laggirnar, þjónusta aukist og
allar framkv. borið vitni um
stórhug og bjartsýni.
I dag eru hins vegar ýmsar
blikur á lofti í atvinnumálum
okkar og hefur stöðvun á
skreiðarsölu undanfarið líklega
mest áhrif, þar sem margir
aðilar liggja með mikla fjármuni
bundna í þeirri vöru.
Staða atvinnumála setti sem
eðlilegt er nokkurn svip á
endanlega gerð fjárhagsáætlun-
ar, þar sem lesa má þann viija
bæjarstjórnar út úr plagginu að
fjármunum verði sem kostur er
varið til atvinnuskapandi fram-
kvæmda á staðnum. Það þýðir
m.a. að ekkert verður malbikað í
sumar, utan gangstétta, þar sem
malbik er dýrt og veitir heima-
aðilum tiltölulega litla atvinnu.
Þá má og rekja framkvæmdir til
þeirra fjárframlaga sem fjár-
veitinganefnd úthlutaði okkur í
ár. Reyndar var ekki úr miklum
fjármunum að moða til fram-
kvæmda, þar sem ekki voru eftir
nema kr. 2.756.000,- þegar
rekstrargjöld höfðu verið ákveð-
in, á móti 3.711.000,- árið 1982.
Einnig er ráðgert að verja kr.
1.693.000,- eða 8% af heildar-
tekjum bæjarsjóðs til að lækka
skuldir bæjarins umfram ráð-
gerð ný lán. ekki var alger
einhugur um þessa ráðstöfun og
þótti sumum sem nú væru ekki
þeir tímar uppi í atvinnumálum
að peningum yrði best varið í
þágu bæjarbúa með minnkun
skulda bæjarfélagsins, ekki síst
þar sem Dalvíkurbær hefur, að
bestu manna yfirsýn, verið með
vel viðráðanlega skuldastöðu.
En þessi ráðstöfun mun væntan-
lega gera bæjarstjórn kleift að
spretta betur úr spori á síðari
hluta kjörtímabils síns.
Framkvæmdir
Eg ætla þá að snúa mér að
hinum „jákvæðari" þáttum fjár-
hagsáætlunar. Þar vil ég nefna
til:
Svanfríður Jónasdóttir
Byggingu verkamannabúst-
aða, en samþ. var að gera 4 nýjar
íbúðir fokheldar á árinu.
Frekari uppbyggingu Kríla-
kots, þar sem hafnar verða
framkvæmdir við miðálmu, frá-
gangi lokið á eldra húsnæði og
unnið í lóð.
Hafnar verða framkvæmdir í
kjallara Ráðhúss, sem miða að
því að bókasafn bæjarins geti
flutt sína starfsemi þangað, þótt
ekki verði það i ár. Bókasafnið
er sem kunnugt er í alls
ófullnægjandi húsnæði.
Ljúka á þeim áfanga „nýja
skóla“ sem nú þegar er í notkun
og vinna eitthvað í lóð.
Hafin verður bygging áhalda-
húss fyrir bæinn, en þess hefur
lengi verið brýn þörf, og á sú
bygging einnig að hýsa slökkvi-
lið og sjúkrabíl.
Kaup á Gimli og ráðning
æskulýðsfulltrúa frá 1. sept.,
sem ég leyfi mér að flétta saman,
því þótt ekki hafi verið tekin
formleg ákvörðun um nýtingu
hússins, hefur verið rætt um
Gimli sem nokkurs konar
félagsmiðstöð og íþr.'og æsku-
lýðsráð óskað eftiraðstöðu fyrir
æskulýðsstarfsemi þar. Einnig
hefur L.D. óskað eftir að fá þar
inni með hluta af starfsemi sinni
og vitað er að fleiri aðilar renna
til hússins hýru auga. Fylgir þó
sá böggull skammrifi að ekki er
gert ráð fyrir fé til endurbóta á
húsinu, en þeirra mun mikil
þörf.
Gert er ráð fyrir fleiri kennur-
um og þar með auknu starfi
Tónlistarskólans á næsta skóla-
ári.
Til atvinnumálanefndar fer
smá upphæð svo nefndin geti
gert þær kannanir sem eru
forsenda þess að hún geti sinnt
því ráðgjafar og upplýsinga
hlutverki sem af henni er vænst.
Þótt það lesist ekki út úr
fjárhagsáætlun get ég ekki stillt
mig um að nefna þá ánægjulegu
þróun í starfi Námsflokka
Dalvíkur, að þar skuli nú vera
boðið upp á áfanganám.
Hér hef ég ekki nefnt þau
fyrirtæki eða stofnanir bæjarins
sem reknar eru sem sjálfseignar-
stofnanir eða sér fyrirtæki, þ.e.
Dalbæ, Hafnarsjóð og veitur.
En á vegum þessara aðila verður
um nokkrar framkvæmdir að
ræða.
I lokin vil ég hvetja bæjarbúa
til að verða sér úti um eintak af
fjárhagsáætlun Dalvíkur og
veita, í ljósi þekkingar sinnar,
okkur í bæjarstjórn svo og
öðrum bæjaryfirvöldum traust
aðhald. Þá vænti ég þess að við
getum áfram notið hér grósku-
mikils félags og menningarlífs,
byggðu á traustum atvinnuveg-
um, þó að okkur kunni á
stundum að greina á um leiðir.
Svanfríður Jónasdóttir