Norðurslóð - 22.03.1983, Side 6
Tímamót
Skírnir í Vallarprestakalli
Þann 27. febr. var skírður Kristján Hólm. Foreldrar:
Sigtryggur Jóhannsson, bóndi Helgafelli og kona hans
Sólveig Jóna Kristjánsd.
Þann 13. mars var skírður Örvar 4ngi. Foreldrar: Björn
Sigurðsson, sjómaður og Arnfríður Anna Agnarsdóttir,
Bjarkarbraut 5, Dalvík.
Messur í Vallaprestakalli um páskana:
A föstudaginn langa kl. 2. eh. í Dalvíkurkirkju. Flutt verður
Litanía sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Á páskadagsmorgun kl. 8 f.h. hátíðarmessa í Dalvtkurkirkju.
A páskadag kl. 2. e.h. messa í Vallakirkju.
Annan páskadag kl. 2.e.h. messa í Urðakirkju. Sú messa verður
„tekin upp“ og útvarpað 1. s. e. páska.
Andlát
Þann 21 febrúar andaðist Steingrímur Sigurðsson fyrrum
bóndi á Hjaltastöðum í Skíðadal. Hann var fæddur á Ystabæ í
Hrísey 12. nóvember 1892. Hann bjó í Sælu fyrstu búskaparár
sín 1918-1925, en það ár kvæntist hann Sigurlaugu Sigurjóns-
dóttur frá Gröf. Þau tóku þá við búi á Hjaltastöðum og
bjuggu þar í 20 ár eða til 1945, er sonurog þeirra ogeinkabarn
Sigtryggur Guðjón tók við búskapnum. Sigurlaug andaðist
árið 1955.
Eftir að Hjaltastaðir fóru í eyði var Steingrímur um
nokkurt skeið heimilismaður á Uppsölum, en flutti síðar til
Dalvíkúr í skjól sonardóttur sinnar, en allra síðustu árin var
hann vistmaður í Dalbæ.
Ævistarf Steingríms var allt tengt búskap og umhirðu
búfjár. hann stundaði sauðfjárgegningar, þótt í smáum stíl
væri, jafnvel eftir að hann var sestur að á heimili aldraðra.
Hann var jarðsettur í Vallakirkjugarði þann 26. febr.
Kveðja frá systkynum í Sandgerði
F.d. 12. 11. 1892, d. 21. 2. 1983.
Nú ertu frændi minn, fallinn
og fjöreggið brotið.
Leystur frá ellinnar oki
og áranna þunga.
Ljúft er að liðinni gtíngu
lúnum að hvílast,
og sofna svefninum hinsta
sáttur og glaður.
Varstu mér, valmennið prúða,
sem vinur og bróðir,
vafðir mig ástúðarörmum
og umhvggjusemi.
Káðhollur jafnan mér reyndist
og raunsær í dómunt.
Ohætt að trúa og treysta
var trygglyndi þínu.
Vamm þitt ei vita þú máttir
í verki né orði,
glöggur og réttsýnn i ráðum
úr reynslunnar skóla.
Um heiðvirða, mannkostamanninn
minningin lifir.
Kveð ég þig frændi, með klökkva
og kærustu þökkum.
Veit ég þér fararheill fvlgir
til friðarins hafnar.
Létt mun þér landtakan verða
í Ijósanna heimi.
Munu á ströndinni standa
og stoltir þér fagna
áður á undan þér farnir
ástvinir kærir.
MÉR ER
SPURN?
Norðurslóð leitar svara
Heil og sæl
Okkur langar að vekja athygli á
þeim stað hér á Dalvík sem
venjulega er kallaður Sandurinn
þ.e.a.s. strandlengjunni frá
áburðarskemmunni og austur í
árkjaft.
Við átta húsmæðureigum það
til að bregða undir okkur betri
fótunum og fara með börnin
okkar út af malbikinu og er þá
Sandurinn vinsæll. í einni slíkri
ferð gengum við fram á heljar
beinahrúgu. Taldist okkur til að
þetta væru bein úr a.m.k. 8 stór-
gripum. Hversu lengi á svona
lagað að ganga? Hvar er
heilbrigðiseftirlitið? Það er ekki
svo að skilja að þetta hafi verið
eina ruslið. Nei, síður en svo.
Þarna úir og grúir af allskyns
óþverra. Við skorum á almenn-
ing að bæta hér úr og sýna
Sandinum fulla virðingu. Við
bendum fólki á sorphaugana við
Sauðanes.
Ekki megum við gleyma því
sem vel er gert, og viljum við í
fyrsta lagi nefna þá bót sem
orðin er á æskulýðsstarfseminni
í bænum. Nú hafa börn og
unglingar fengið aðstöðu í Berg-
þórshvoli og virðast una sér þar
vel með sínum ágæta umsjónar-
manni. Já og húrra fyrir Skíða-
félaginu, Við óskum því til
hamingju með skíðamótið sem
haldið var helgina 12-13 mars
s.l., það var aðstandendum þess
í alla staði til mikils sóma.
Eitt er hér enn sem vert er að
minnast á. Það er bókasafnið.
Þar hefur verið málað og snyrt
og rými fyrir viðskiptavini
Framhald á bls. 4
Má ég kynna?
Nýr tannlæknir er kominn til
Dalvíkur og tekinn til starfa í
Heilsugæslustöðinni.
Maðurinn heitir fullu nafni
Sigurður Gísli Lúðvígsson, 41
árs að aldri, Sunnlendingur að
ætt og uppruna, fæddur í
Reykjavík en að mestu alinn
upp á Selfossi. Sigurður varð
stúdent frá Menntaskólanum á
Laugarvatni 1961. Upphaflega
hugðist hann leggja fyrir sig
jarðfræði og var við nám í þeirri
grein við háskólana í Köln og
Heidelberg í Þýskalandi í 2-3 ár,
en venti þá sínu kvæði í kross.
Hann kom heim, innritaðist í
tannlæknadeild H.í. og lauk
þaðan prófi 1972. Stundaði fyrst
tannlækningar í Reykjavík í 2
ár, en fluttist þá austur á Selfoss
þar sem hann hafði tann-
Íækningastofu 1974-81. Gerðist
þá skólatannlæknir í Rvík um
tveggja ára skeið uns hann kom
hingað.
Sigurður var giftur Ásdísi
Skúladóttur, en þau skildu fyrir
nokkru. Þau eiga eina dóttur
barna, Móeiði Önnu, og er hún
12 ára gömul og dvelur hjá
móður sinni.
Aðspurður hví hann hafi
ákveðið að koma hingað til
starfa segir Sigurður, að sér hafi
dottið til hugar að það gæti verið
gott og heilsusamlegt að kynnast
nýju umhverfi og annarri hlið
þjóðlífsins. Auk þess hafi hann
gert sér ljóst að hér var þörf fyrir
mann í hans fagi. Til Dalvíkur
hafði hann aldrei komið og
þekkti Norðurlandið harla lítið
yfirleitt.
Einhver áhugamál önnur en
starfið? Sigurður lætur lítið af
því, helst væru það þá hlutir,
sem tengjast útilífi, fjallgöngur
og útreiðar. Hann á reyndar
hest fyrir sunnan. Og svo er það
spurningin, sem alls ekki er
heiðarlegt að bera fram, en við
gerum samt: Hvernig líst þér á
þig hérna? Og svarið er auðvitað:
Agætlega, mér líst ljómandi vel
á mig í þessu plássi, aðstaðan er
góð hérna á stöðinni og nóg er
að gera. Eg bý að vísu í
óhentugu húsnæði, Baldurs-
haga, enn sem komið er, en úr
því rætist sjálfsagt í fyllingu
tímans.
Norðurslóð býður nýja tann-
lækninn velkominn og óskar
honum heilla í starfi.
Hjálparsveit skáta Dalvík
Tannlæknirinn og aðstoðarstúlka hans
Sleðarall á Dalvík.
m
Þann 8. maí 1982 var hjálparsveit
skáta formlega stofnuð á Dalvík,
stofnfélagar voru 23. Hjálpar-
sveit skáta Dalvík (sk£t. HSSD)
er aðili að Landssambandi hjálpar-
sveita skáta. (skst. LHS.)
LHS var stofnað 27. nóv.
1971 og er fulltrúi 16 hjálpar-
sveita um land allt. Hlutverk
þess er: ,,Að efla samheldni
hjálparsveita, stuðla að bættri
aðstöðu til æfinga og starfa sveit-
anna og vinna að auknum
skilningi landsmanna á gildi
þeirra.
Að koma fram gagnvart ríki
og landssamtökum björgunar-
aðila fyrir hönd aðildasveitanna.
Að gæta hagsmuna hjálpar-
sveitanna í hvívetna. Einnig
segir í lögum sambandsins,
„Allar aðildasveitir sambands-
ins eru sjálfstæðar gagnvart
LHS, bæði varðandi störf sín og
fjármál. Allar sveitirnar eiga
jafnan rétt á þeirri þjónustu sem
LHS getur látið í té“.
LHS og Almannavarnir rík-
isins hafa gert með sér starfs-
samkomulag. Þarsegir: Aðildar-
sveitir LHS taka að sér eftir-
farandi verkefni innan almanna-
varna á neyðar- og hættutímum.
1. Fyrstu hjálp á slysavettvangi.
2. Sjúkraflutninga. 3. Starf-
ræksla og uppsetning fyrstu-
hjálparstöðva. 4. Aðstoð við
uppsetningu og rekstur vara-
sjúkrahúsa.
Auk framantalinna verkefna
skulu aðildarsveitir LHS reiðu-
búnar að aðstoða við þau verk-
efni sem falla að björgunar- og
ruðningsþjónustu, svo og lög-
gæslu og verndunarþátt
almannavarna, að svo miklu
leiti sem aðrir koma ekki til
þeirra starfa.
Að ofangreindu má sjá að
verkefni HSSD eru næg á næstu
árum, ef framfylgja á framan-
greindu samkomulagi svo og
öðrum leitar og björgunarstörf-
um. en margar hendur vinna létt
verk, svo við horfum bjartsýnir
til framtíðarinnar.
HSSD er ekki tengt Skáta-
félagi Dalvíkur (SKFD) að öðru
leiti en því að hvorutveggja
félögin eru aðili að Bandalagi
íslenskra skáta. Engu að síður
mun HSSD reyna að efla og
styrkja SKFD eftir því sem
kostur er hverju sinni. Inntöku-
skilyrði í HSSD eru þessi.Vera
fullra 18 ára og sýna áhuga á
starfi sveitarinnar í orði og verki.
Allir eru velkomnir, ekki bara
skátar, heldur allir sem áhuga
hafa.
Útbúnaður sveitarinnar er
ekki mikill, sem varla er von, þó
hefur sveitin fest kaup á tveim
handtalstöðvum ásamt nauðsyn-
legum fylgihlutum.
Sveitinni hafa einnig borist
góðar og nytsamar gjafir, svo
sem, stórslysasjúkrataska og
ýmiss annar nauðsynlegur
björgunarútbúnaður frá LHS,
og lögreglan á Dalvík færði
sveitinni súrefnistæki að gjöf.
Viljum við hér með koma á
framfæri þökkum til ofan-
greindra aðila svo og annarra
sem hafastuttokkurviðstofnun
þessarar sveitar.
Næstu mál sveitarinnar og
þau brýnustu, eru þjálfun
björgunarmannanna. Sendir
verða menn frá sveitinni eða
leiðbeinendur fengnir með
námskeið. En LHS hefur rekið
eina björgunarskóla landsins
frá árinu 1977.
Að lokum: Það er von okkar
að almenningur svo og bæjar-
félagið sýni málum okkar skilning
og styrki okkur í starfi beint og
óbeint.
Hjálparsveit skáta Dalvik
Kristinn Hauksson.