Norðurslóð - 21.02.1984, Page 2
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og ábyrgðarmenn:
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal
Jóhann Antonsson, Dalvik
Afgreiðsla og innheimta: Sigriður Hafstað, Tjörn
Sími 96-61555
Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson
Prentun: Prentsmiöja Björns Jónssonar
í gegnum þrengingar
til hagsældar
Per angústa ad ágústa sögöu Rómverjar og greiptu þannig í
sígilt spakinæli þau almennu sannindi og reynslu að fornu og
nýju, að aðsteðjandi erfjðleikar geta orðið mönnum efling til
dáða og snúist þeim aö lokum upp í happ og ávinning.
I>etta kemur upp í hugann, þegar við upplifum þaðað höfuð-
atvinnuvegir þjóðarinnar lenda hveraf öðrurn í þrengingum,
sem menn til skamms tíma gerðu sér ekki grein fyrir að gætu
skapast.
Fyrir skemmstu var það landbúnaðurinn, sem komst í
mikinn vanda vegna offramleiðslu búfjárafurða og versnandi
erlendra markaða. Við þeint þrengingum varað lokum snúist
með höröurn stéttarlegum sjálfsaga. Þær aðgerðir, m.a. í
formi framleiðslutakmarkana, hafa nú þegar leitt afsérstór-
aukna búskaparlcga ráðdeild og ennfremur nýtt framtak í
uppbyggingu annarra búgreina cn þeirra gamalgrónu, sem
áður voru nálega einráðar.
Enn er þó pottur brotinn í þessu efni ogskal hér minnst á þá
skammarlegu meðferð ullar, sem sumir sauðfjárbændur
stunda ennþá sjálfum sér til tjónsogstétt sinni til álitshnekkis.
Það er óneitanlega öfugsnúið búskaparlag að leggja alla
áherslu á að framleiða sem allra flest kíló kjöts ef'tir hverja á,
fyrir yfirfullan kjötmarkað, en kasta á glæ ullinni af þeirri
sömu kind, hráefninu, scnt íslenskur iðnaður þarf svo mjög á
aö halda í sínar heimsfrægu ullarvörur. Sem beturfererþetta
þó undantekning frá meginreglunni.
Og nú er röðin komin að sjávarútvegi að ganga veg þreng-
inganna. Rétt eins og bændurnir hafa sjómenn fengiö að
horfast í augu við þá staðreynd að bæði náttúran og markað-
irnir setja athafnafrelsinu takmörk. Rétt eins og landbænd-
urnir þurfa bændur hafsins nú að skipuleggja búskap sinn
með sjálfsaga, sent ekki hefur áður þurft að beita en á nú að
láta reyna á. Þess sjást ýntis ntcrki, aö sjómannastéttin sé að
temja sér meiri ráðdeild í því að nýta allan aflann, en ekki
bara þann hluta hans, sem beinlínis er mannamatur.
Að hiröa einungis bol fisksins, en henda í hafið (kasta á
glæ) öllum þeim verðmætum, sem innan í honum eru, en
nákvæmlega sama búskaparlagogsásauðbóndistundar, sem
áður var lýst. Slíkur búskapur, hvort heldur er á sjó eöa landi,
er svo notað sé fornt lagamál, óalandi og óferjandi og
óráðandi öllum bjargráðum.
Ef þeir erflðleikar, sem þjóð okkará nú viðaðstríða, kenna
henni aukinn sjálfsaga og meiri ráðdeild og að nýta betur
verðmæti, sem til falla á landi og sjó, þá eru þeir erfiðleikar
ekki einvörðungu af því illa.
Staðfestist þá enn einu sinni hin gamla rómverska speki
per angústa ad ágústa leiöin til hagsældar liggur í gegnum
þrengingar.
Aftnælisfundur
Sparisjóðs Svarfdæla
Nýr skattur gerir strik í reikninginn
Það er ekki mikiö um 100 ára
afmæli liér í honum Svarfaðar-
dal. I.angt er síðan nokkur
lifandi maður hér hefur átt 100
ára afmæli. Hinsvegar hafa
bæði Bókasafn (lestrarfélag) og
Búnaöarfélag átt aldarafmæli
fyrir skemmstu.
Og nú er röðin komin að
Sparisjóðnum. Hann verður
aldargamall á þessu ári.
Á kyndilmcssu 2. febrúar
1884 var haldinn almennur
sveitarfundur á Grund og þar
var ákveðið að stofna sparisjóö
og kosnir 8 „ábyrgöarmenn" í
því skyni. Aðalstofnfundurinn
var síðan haldinn á Böggvis-
stödum I. maí þá um vorið.
lil þess að minnast þessa
áf'anga ákvaö stjórn Sparisjóðs-
ins* að halda aðalf'und 1984 á
Grund, þ.c.a.s. í Þinghúsi Svarl'-
aðardalshrepps, að þessu sinni.
í upphali f'undar minntist
formaðurinn, Hilmar Danícls-
son, f'yrrverandi stjórnarnefnd-
armanns og sparisjóðsstjóra
Sveins Jóhannssonar, sem
andaðist 20. f'yrra mánaðar. Fór
Hilmar lofsamlegum orðum um
20 ára starf Sveins sem spari-
sjóðsstjóra og taldi að það hefði
verið sjóðnum gott og farsælt á
allan hátt.
Fundurinn var venjulegur
aðalfundur, en þó bar hann að
sumu leyti merki þess að vera
afmælisfundur. Formaður sjóðs-
stjórnar, Hilmar Daníelsson.
minntist frumherja sjóðsins í
setningarræðu sinni og gat þess
urn leið, að fyrirhugað væri að
minnast 100 ára afmælisins I.
maí í vor með einhvers lags
hátíðarhaldi á Dalvík. Enn-
fremur rnyndi þá konta út
al'mælisrit sjóösins. sem um
hef ur verið rætt áður á fundum.
Afkoman 1983
Fram kom í máli formanns og
s pa r i sj ó ðss tjó ra, G u n na rs
Hjartarsonar, að rekstur sjóðs-
ins hef'ði gengið vcl á árinu 1983.
Samanlagðar rekstrartekjur urðu
kr. 34.480.806 en rekstrargjöld
kr. 32.597.430. Hagnaður var
því kr. 1.883.376. Santa tala
l'yrir árið 1982 var kr. 605.156.
En þá koma til og gera strik í
rcikninginn hin nýju lög urn
Skattlagningu innlánsstofnana,
sem korna nú til framkvæmda.
Áætlaður tekju- ogeignaskattur
samkvæmt þeim er hvorki meira
né minna en kr. 1.061.487.
Verður nettóhagnaður sjóðsins
því kr. 821.889.“
Eigiö fé sjóðsins 31. 12 1983
er nú kr. 12.833.033. Sant-
svarandi tala í árslok 1982 var
' kr. 7.940.696. Mismunurinn kr.
4.892.337 er að langmestu leyti
uppfærsla á mati fasteigna
sjóðsins, sem eru hluti í Ráðhúsi
(26,66%) og íbúðarhúsið Karls-
braut 20. Við það hús var á
árinu byggður vandaður bíl-
skúr, sem kostaði um kr.
630.000.
Á f'undinum komu fram
tillögur um að sjóðurinn gæli
fjárupphæð til menningarmála í
tilefni afmælisins. Varaðlokum
samþykkt tillaga um að stjórn
sjóðsins hugleiddi rnálið og
legði l'ram tillögu í því fyrirf'und
ábyrgðarmanna fyrirafmælið I.
maí.
Kosnir voru 3 menn í stjórn
sjóðsins til ársins og urðu engar
breytingar. Stjórnina skipa nú:
Hilmar Daníelsson og er hann
förmaður, Óskar Jónsson vara-
formaður, Hjörtur E. Þórarins-
son ritari stjórnar, Baldvin
Magnússon og Halldór Jónsson.
Ameríkubréf
Svarfdælskættaður geimfari?
Ýmsir eldri Svarfdælingar muna
sjálfsagt eftir Svavari Tryggva-
syni Valdemarssonar, sem ólst
upp hér í sveit, en hvarf fljótt á
brott suður, giftist og átti börn
og buru, en flutti svo til
Kanada fyrir einum 30 árum
síðan. Albræður hans hér voru
Axel á Bakka og Sigurður,
síðast bóndi í Búlandi.
Einn af sonum Svavars er
Bjarni Tryggvason 38 ára.
2 NORÐURSLÓÐ
Bjarni, sem valinn hefur verið í 6
manna sveit kanadískra geim-
fara, sem eiga að fara í geim-
ferjuflug einhvern tímann fljót-
lega. Það verða þó aðeins 2
þeirra sem koma til með að fara
á loft, hinir eru svo sem vara-
menn. Því er ekki víst að Bjarni,
landi vor, fari nokkurn tímann í
geimflug, en það skulum við þó
vona. Það vonar hann sannar-
Stoltur faðir, 68 ára.
lega sjálfur, segir í kanadísku
blaði, sem faðir hans sendi
Norðurslóö.
Nú er Svavar nýlega búinn að
uppgötva blaðiö Norðurslóð,
og vill endilega fá það sent
reglulega. Eftir jólin skrifaði
hann okkur bréf, sem við
megum áreiðanlega birta úr
glefsur:
LJr bréfinu
,,Þökk fyrir blöðin og bréfið. Ég
fór burtu úr sveitinni 1934 og til
Kanada 1953 - - -
Kristján Eldjárn var kennari
við Stýrimannaskólann, þegar
ég var þar 1942-3 og við
hittumst oft á förnum vegi og
héldum góðum kunningsskap
sem sveitungar. Þegar ég kom
heim fyrir löngu síðan, gerði ég
mér ferð til hans í Þjóðminja-
safnið og við áttum saman gott
viðtal. Svo þegar hann kom til
Vancouver sem forseti 1974, þá
sá Gústaf sonur minn um hann
og föruneyti (altsvo f. hönd
íslendingafélagsins). Gústaf er
mikill framámaður íslendinga
hér. Svosambandið við Kristján
slitnaði aldrei að fullu eins og
við rnarga aðra.
Égsá þó ekki Kristján sjálfur,
ég lá tlía haldinn á spitala í
Victoríu. Það var verið að gera
við blóðrásina við hjartað og í
lærunum, og þó ég sé mesti
ræfill þá hefur það dugað mér
síðan, og pillur í uppbót.
Þegar ég blæs rykið af gamla
málinu, þá skilar það sér að
mestu leyti, nema það vantar
nýyrðin, sem þið hafið bætt við
síðustu 30 árin, og svo hefur
réttritun hrakaðstórum,svo þið
fyrirgef'ið villurnar. (Góður
hefur hann verið áður. Ritstj.)
Ég er fæddur 24. 4. 1916 og
hætti að vinna 1981, 65 ára.
Vinnan ertekin af manni m.a. út
af atvinnuleysinu, sem nú er
mest í. Kanada síðan 1936,
sögðu fréttir í kvöld (12%). Ég
fæ 720 dollara á mánuði. Gæti
ég lifað af því heima? (Marg-
faldist með ca. kr. 30. Ritstj.)
Hér er það ekki hægt svo í lagi
sé, svo að ég er að éta upp
fyrningar, sem ég átti. íbúð,
ljós, hiti, sími ogsjónvarper350
dalir á mánuði. Svo hef ég bíl,
bensínið er á 50cent (1 /2 dollar)
líterinn.
Mann langar heim. Þó finnst
mér hálfpartinn að ég eigi 2
f'ósturjarðir. Og einhver sagði
reyndar: „Ég á orðið einhvern
veginn ekkert f'öðurland." Og
einhverrstaðar stendur líka: ,,Ég
á 7 börn í sjó og 7 á landi." Það
er kannske þetta, sem þjóðsagan
rneinar, þegar sagt er að rnenn
gengju í álfheima svo ramntlega,
að þeir áttu ekki afturkvæmt í
mannheim.
Vonandi verð ég látinn vita,
áður en ég verð í óskilunt við
Norðurslóð. (Svavar sendi 20
dollara í umslaginu. Ritstj.) Ég
er ekkill og börnin uppkomin og
upptekin við sitt eigið líf, m.a.
við að komast út í geiminn.
Með bestu kveðjum
og heillaóskum.
Svavar Tryggvason
408 - 322 Birch Street
Campbell River,
B. C. Canada.
Við mynd sonar síns hefur
Svavar skrifað út á jaðar blaðs-
ins þetta: Beinn karlleggur,
Bjarni Svavarsson Tryggva-
sonar einfætta Valdemarssonar
í Vegamótum Jónssonar Jóns-
sonar á Jarðbrú fyrir meira en
100 árunt. Háls-Hamars og
Holárkotsætt.
Norðurslóð sendir þessunt
ágæta sveitunga í útlegðinni
bestu kveðjur frá skyldunt og
óskyldum sveitungum.