Norðurslóð - 21.02.1984, Page 4

Norðurslóð - 21.02.1984, Page 4
Vísubotnar Sá á kvölina, sem á völina Nýárs yerður gatan greið. Mikill vandi er oss nú á höndum að eiga að dæma á milli botnara og veita fyrir- heitin verðlaun. Ætli það sé ekki einna þénanlegast að taka hvern höfund fyrir sig heldur en hvern fyrripart fyrir sig. Þá skellu'm við okkur í það og tökum vísnasmiðina af handa- hófi. Daníel Björnsson Merkigili Eyjf. (frá Laugahlíð). Aukavísa með krossgátulausn: Steinku vil ég senda svar svona til að grína. Hirða stafi hér og þar hundrað og sex upp tína. (Þeir voru nú hara 86.) Fækka tekur fisk í sjó, fátt um stóra drætti. Á löstu landi finnst mér þó að fækka þorskum mætti. ICyjafjarðar byggðin breið byr sig undir jólin. Holt og Sakka, Hlíð og Skeið hvrning mynda um Stólinn. Norðurslóð er besta blað búin góðum kostum. Hr það kemur yljar það eins í þíðu og frostum. (Menn taki eftir innrýminu.) Eiríkur Sveinsson læknir Akureyri. Best er að eignast ær i mó að ævagömlum hætti. Enga lygi. Annars þó, áttu við ég hætti? Yljað hefur okkur það oft í miklum frostum. Þegar stutt en lítt úr leið Ijómar blessuð sólin. Snjólaug Bragadóttir Dalvík. Sá guli aftur gengur þó galvaskur að hætti. Flestir hugsa á fæðuleið og fægja matartólin. Gamlan fróðleik geimir það. og glæðir blóð í frostum. Birna Friðriksdóttir, Melum. Ánægð sjálfsagt unum þó að okkar feðra hætti. Vissan bezta, hrein og heið að hækki á lofti sólin. Hlýjar inn að hjartastað í hörðum vetrarfrostum. Erla Stefánsdóttir Akureyri (frá Skáldalæk). Ágjörn hugsun undir bjó að íslendinga hætti. Ennþá er hér engin neyð, og óðum hækkar sólin. Best er þó að bragða það með bita af KEA-ostum. I.E. í Ægisgötu á Dalvík. Verðmætt þarf að vinna slóg viturs manns að hætti. Sína úr landi selur skreið og senn fer að hækka sólin. Hald er í að hafa það í hörðum vetrarfrostum. Hjaiti Finnsson Ártúni Eyjafj. Hvernig væri að kanna þó Hverju þetta sætti? Hugurinn ber menn hálfa leið heim í bernskujólin. Fyrst er þjóðin frétti það flest við hróðug brostum. Þingeyingur (með stórum staf). Ríkisvaldið reynir þó rétta stjórnarhætti. geislum miðlar sólin. Skína megi mild og hrcin mannkærleikasólin. Ellimóðum yljar það eins og glóð í frostum. Páll Helgason Akureyri. Rekkar ennþá reyna þó að róa eftir mætti. Þegar eftir skuggaskeið skín á himni sólin. En í landi þorskar þó þrífast að fornum hætti. Ýti og fljóði yljar það eins og glóð i frostum. Júlíana Lárusdóttir Húsa- bakka. Eins við hegðum okkur þó að auðkýfinga hætti. Ofan gefur snjó á snjó. það snjóar Iram að slætti. Fái ég mér flatbrauðssneið fylli ég út í kjólinn. En maðkur er í margri skreið hvar mest sktn blessum sólin. Bóndin í Birkimel. Taklu slíkt með tign og ró og treystu á guðs almætti. Heilladís þar leggi leið þótt lækki á himni sólin. Athyglina örvar það og yljar manni í frostum. Og svo aukavísa: Þér ég sendi þennan óð. þú munt verjast fári. Njóttu gæfu, Norðurslóð. á nýbyrjuðu ári. Gunnlaugur V. Snævarr Reykjavík. Láturn ei af landans ró og lifum af öllum mætti. Hækkar brátt á himinleið hlý og fögur sólin. Höfundanna hrósi að hýrlega við brostum. Og svo þetta tilbrigði við nr. I: Þótt fækka taki fisk i sjó og fáir hljóti drætti. Látum aldrei linna þó lausavísnaþætti. ,,Þetta var aukaskot, (segir G. V. Sn.) en er jafnframt áskorun til ritstjóra að þeir reyni að hafa lausavísnaþátt í blaðinu, því nóg er til í Svarfaðardal og Dalvík. Mér er ekki grunlaust um að staða ferskeytlunnar sé á fáum stöð- um sterkari en heima. Vona ég. að næsta ár verði ykkur gott ár, bæði blaðaár og einnig og ekki síður gott til sjávar og sveita, munns og handar." (Já, vill einhver taka það að sér? Ritstj.) Og nú er að fúska sig út úr^ verðlaunaveitingunni. Vérúti- lokum alla þá, sem ekki tóku eftir innríminu í síðasta fyrri- parti. Síðan metum vér Pál Helgason og Þingeyinginn jafn- snjalla og drögum á milli. Upp kemur. Ja, nú er það spenn-' andi, upp kemur Þingeyingur- inn með stóra stafnum. Þessum óþekkta hagyrðing sendum vér hið fyrsta bókina Fólk sem ekki má gleymast, eftir Jón Bjarnason frá Garðs-i vík. Aðalgeir á Mánárbakka verðurað koma henni tilskila.i Að svo mæltu þökkum vér[ þátttakendum kærlega fyrir þeirra framlag til þessa gaman-i máls. Riðuveikin í Svarfaðardal Verður lagt til atlögu við vágestinn? Það er kunnara en frá þurfi að segja, að riðuveiki í sauðfé helur verið mikil og vaxandi plága að undanförnu. Nú er svo komið að veikin er nálega á hverjum bæ utan frá Upsaströnd og framundir botn í dalnum vestan- verðum. Þó eru nokkrir bæir enn taldir riðulausir þar fram- frá. Á Austurkjálká er hinsvegar ekki vitað um veikina nema á tveimur bæjum, öðru neðarlega, hinum mjög framar- lega. Þann 4. desember síðast lið- inn var haldinn fundur á Þing- húsinu um þetta vandamál að tilhlutan riðunefnda í Svarfað- ardal og á Dalvík og hrepps- nefndar Svarfaðardalshrepps. Mættur var þar einnig Sigurður Sigurðarson sérfræðingur Sauð- fjársjúkdómanefndar svo og settur héraðsdýralæknir Gunnar G. Gunnarsson og Ólafur Vagnsson ráðunautur BSE. Á fundinum var samþykkt að kynna bændum og öðrurn nokkrar hugsanlegar leiðir, sem rætt var unt, til að stemma stigu við frekari útbreiðslu riðuveiki með því íjárhagstjóni, sem af henni leiðir hér í byggðarlaginu. Þetta hefur nú verið gert með dreifibréfi, sem nýlega hefur verið sent á alla bæi og víðar. Hugsanlegar aðgerðir eru flokkaðar svor 1. Að fargað verði öllu sauð- fé í Svarfaðardal og Dalvík og keyptur nýr fjárstofn á fyrsta eða öðru ári eftir niðurskurð, eftir því sem samkomulag næst um við stjórnvöld. 2. Að fargað verði fé ein- göngu af sýktum bæjum á um- ræddu svæði og keyptur nýr stofn (lömb) sania haustið, en jafnframt verði aukið eftirlit á ósýktum bæjum. 3. Að fengið verði leyfi til að kaupa líflömb á sýkta bæi lengra að t.d. frá Vestfjörðum í nokkur ár í röð til reynslu. Er þá ællast íil að ekki verði keypt eða látið lifa annað fé til viðhalds stofninum. 4. Að framfylgja núverandi reglugerö eins og reynt hefur verið að gera til þessa. Að auka þá enn eftirlit og hafa meiri samvinnu og samstarf við sauð- fjáreigendur til að tryggja betur tilætlaðan árangur. Undir dreifibréfið rita frá riðunefnd Svarfd. Halldór Jónasson, Koti form. Ingvi Baldvinsson, Bakka. Árni Steingrímsson, Ingvörðum. Og frá riðunefnd Dalvíkinga: Hafsteinn Pálsson, Miðkoti, form. Baldvin Magnússon, Hrafnsstaðakoti. Vilhelm Sveinbjörnsson, Vegamótum. Þess skal getið að margar fleiri tillögur komu fram á fundinum, sem var hinn gagn- Iegasti. T.d. ræddu margir um að hvað svo sem annað menn kynnu að treysta sér til aðgera á þessu stigi, þá væri æskileg lágmarksaðgerð á næsta hausti að reyna að hreinsa Austur- kjálkann af riðu og koma svo með öllum ráðum í vcg fyrir óþarlan samgang íjár millj sýkta og ósýkta svæðisins. Hvað framhald málsins verð- ur, getur sjálfsagt enginn sagt um nú. En trúlega er að aðgerðir mótist nokkuð af því, hvort eða hvaða stuðning íiið opinbera fæst til að veita til að létta þann fjárhagsskaða, sem óhjákvæmi- lega verður samfara alvarlegum tilraunum til að útrýma þessum vágesti. Loðdýraeldhús Fóðurstöð fyrir allan Eyjafjörð stofnsett á Dalvík? Undanfarið hafa verið í gangi viðræður milli Loðdýraræktar- félags Eyjafjarðar, ÚKE á Dal- vík og fleiri aðila um hugsanlega fóðurstöð fyrir alla loðdýra- ræktina við Eyjafjörð allar götur héðan og austur í Höfða- hverfi og Fnjóskadal. Hugmyndin, sem nú erathug- uð, er sú að KEA lagfæri mjöl- skemmu beinaverksmiðjunnar (nyrðri hlutann) og leigi það húsrými væntanlegu hlutafélagi loðdýrabænda, sem byggðu upp og rækju stöðina fyrir eigin reikning. Ef af verður mundi þá fóður- stöð Böggvisstaðabúsins verða lögð niður en tækjakostur henn- ar ganga inn í nýju stöðina með einhverjum hætti. Málið er sem sagt enn á umræðustigi, en ef af veröur er hér um að ræða fyrirtæki, sem skiptir máli fyrir Dalvík bæði atvinnulega séð og á annan hátt. Innilega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig á níræðisafmæli mínu þann 11. febrúar. Ég þakka skeytin, gjafirnar, blómin og heimsóknirnar. Ég þakka ykkur öllum, vinir og vandamenn nær og fjær þ.á.m. og ekki síst starfsfólkinu hér á Dalbæ, sem ber mig og alla aðra vistmenn á höndum sér. Guð blessi ykkur öll. Zóphónías Jónsson Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð í veikindum og við andlát Sverris Stefánssonar Brimnesi Sverrir Sverrisson Ragnar Stefánsson Eyvör Stefánsdóttir Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför Guðmundar Einarssonar frá Ögðum, Dalvík sem lést 28. janúar. Baldvina Þorsteinsdóttir Soffía og Rannveig Guðmundsdætur Tilboð frá 22. febr. Tilboðsverð áður Bragakaffi 1/4 kg 25.70 28.50 fínmalað 1 kg 97.75 108.30 grófmalað 1 kg 97.75 108.30 Kolumbía 1/4 kg 29.55 32.80 Ameríka 1 kg 87.45 96.90 Matvörudeild og Kjörbúð KEA Dalvík Jörð til sölu Tilboðóskast íjörðina Göngustaði í Svarfaðardals- hreppi í Eyjafjarðarsýslu sem er laus til ábúðar á fardögum í vor. Upplýsingar um jörðina eru veittar í síma 96-61550. Tilboðum skal skila til eiganda jarðarinnar Þórarins Valdimarssonar, Jarðbrú 620 Davlík fyrir 1. mars nk. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. 4 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.