Norðurslóð - 21.02.1984, Side 5

Norðurslóð - 21.02.1984, Side 5
• • o Heiman ég fór „F ornbókaverslunin tilvalin æviendaatvinna“ - spjallað við Egil Bjarnason fornbókasala baö eru áreiðanlega ekki margir Svarl'dælingarnir scm hafa þaö aö aðalatvinnu að versla meö gamlar og notaðar bækur. Einn er þó sá maöur, búsettur að Lundahrekku 4 í Kópavogi, en liann er Egill nokkur Bjarnason. Egill lét þess getið þegar \ið tókum t;il saman l'yrirskemmstu að það væri raunar ekki alveg rétt að hann væri hreinræktaður Svarfdælingur því að hann hefði árið 1915 „skotist inn í ættir landsins vestur í Húna- vatnssýslu utanveltu hjóna- bandsins" eins og hann orðaði þaö. Foreldrar Egils voru Bjarni Guðmundsson og Soffía Eggertsdóttir. Meö henni flutt- ist Egill í Svarfaðardal þegar hann var á fyrsta ári. ,,í Svarfaðardal var ég lengst af á Kóngsstöðum þar sem móðir mín bjó ásamt fóstra mínum, Stelani Árnasyni. Ég var síðan eitt til tvö ár í Hánefs- stöðum en fluttist síðan til Dalvíkur nálægt fermingar- aldri." Mannlífið á Dalvík Ég spyr Egil um mannlílið á Dalvík á þcssum árum. „Bæjarlífið á Dalvík var skcmmtilcgt „slípað" á þessum árum. Fólk var réglusamt og lelagslíl gott. Felög eins og Skákfélagið, Kvenfélagið og svo auðvitað Eeikfélagið störf- uðu af miklum krafti. Ég minnist þess að hafa leikiö einu sinni hjá leiklclaginu í „Upp til selja" og lék ég ástfanginn ungan mann á móti Guðrúnu, núverandi konu Gests Hjörleifs- sonar. Leikurinn byrjará þvíað ég sit á stcini og syng. Senni- lcga hefégfengið hlutverkið út á það að ég gat raulað svolítið en hræddur er ég um að ekki hafi ég vcriö álitlegur elskhugi! Eil þess að eyða tímanum tefldi ég dálítið a vetrum með góðum skákmönnum eins og t.d. Sveini heitnum Jóhanns- syni, Jóni Stefánssyni og lleirum. Að kveðast á Eitt hefur fest vel í minni mér liá þessum árum en það er að \ iö Haraldur á Jaðri komumoft saman og kváðumst á. bað er skömm Irá því að segja að vísur þær sem þarna urðu til voru aldrei skrifaðar niður þannigað þær hafa gleymst með tímanum. Einni lokavísu eftir Harald man ég þó eftir en lnin er eitthvað á þcssa leið." Brjóttu af skafti bragarhjör bjargaðu æru þinni. Haltu kjalti og lýlúför larðu ei öðru sinni. l il Reykjavíkur lluttist Egill árið 1936 en áður hafði hann verið tvo vctur á Laugaskóla og hluta af vetri á Samvinnuskól- anum á Bifröst. Vera Egils á Samvinnuskólanum var skemmri en ætlaö hafði verið því að Jónas frá Hriflu þáverandi skólastjóri bauö honum ásamt Jóni Helgasyni (ritstj'óra og rithöfundi), vinnu á Eímanum um áramótin 1936-1937 sem þeir J)áðu. „Á Eímanum var ég næstu 4 árin, til 1941, en þar vann ég að innheimtu. En unt þetta leyti var elsta fornbókaverslun landsins, Fornbókaverslun Kristjáns Kristjánssonar á Hverfisgötu 26, til sölu. Ég sló til og festi kaup á versluninni ásamt Árna Bjarnarsyni, sem héfur rekið bókaverslunina Eddu á Akur- eyri. Fað má heita svo að ég hafi allar götur síðan stundað forn- bókasöluna að undanskildum 5 árum sem ég seldi verslunina og gerðist auglýsingastjóri á ’Eímanum." Egill lét þess getið að það hafi ekki gengið átakalaust að eign- ast fornbókaverslunina sökum Ijárskorts. En til þess að redda málum hafi sveitungi hans og góðvinur, Eiríkur Hjartarson (guðfaðir Háncfsstaðaskógsins) hlaupið undir bagga og skrifað upp á víxil fyrir sig og beitt bankastjóra Búnaðarbankans fortölum til þess að kaupa hann. Ég baö Egil í framhaldi al þessu að lýsa fyrir mér þeirri tilfinn- ingu að vera innan um bækur daglangt. „Það er ákaflega góð tilfinn- ing. Þarna er maður alltaf umvafinn fróðleik. En þrátt fyrir það er ég ekki víðlesinn. Ég las rnikið sem unglingur, senni- lega hef ég lesiö bókasafn Dalvíkur upp til agna, meira að segja las ég Ganglera og Morg- unn, hvað þá .meira. Það má eiginlega segja t^) hafi farið fyrir mér nteð bókalesturinn eins og stúlkunum sem byrja að vinna í sælgætisbúðunum að þær éta yfir sig fyrstu vikuna en svo minnkar lystin! Starf fornbókasala er ákaf- lega fjölbreytt og skcmmtilegt. Maður kynnist mörgu fólki, úr öllunt stéttum og á öllum aldri og ég segi þ\ í stundum að ég eigi kærustu frá 8 ára aldri upp í áttrætt! Kostir fornbókasöl- unnar felast ekki hvað síst í því að sá sem hana stundar er sjálfs síns hcrra. Þurfi ég að útrétta eitthvað á opnunartíma set ég miða á hurðina þar sem á stendur hvenær ég konti aftur. Ég man eftir því einu sinni að ég þurfti aö bregða ntér í banka en komst ekki á áætluðum tíma aftur í.búðina. En skömmu eftir að ég opnaði búðina aftur kom öskureiður maður inn og spurði með miklu offorsi hvenær í andskotanum ég væri eiginlega við. Þessu svaraði ég eitthvað á þessa leið: Ýmsu \eldur annríkið illu á mínum höguni. Ég er svona við og við við á flestum dögum." Bóksalar kvarta Það er kunnara en l'rá þurfi að segja að verslunarmenn kvarta margir um miklar sveill- ur í verslun. En gildir það einnig um lornbókaverslunina? „Jú, ekki neita ég þ\ í. Saian veltur auð\ itað töluvert mikið á því hversu góðar bækur maður hefur tök á að ná í og líka hvernig ástandið er í þjóðfélag- inu á hverjum tíma. Þegar til dæmis er óvissa í sambandi við vinnu, laun og 11. kemur lægð í þetta. Það hefur til dærnis verið greinileg lægð í sölunni undan- farið." Þegar hér er komið sögu fáum við okkur kaffisopa og talið berst að allt öðru en bókum. Egill kvcðst aðspurður eiga ágætis konu, Gyðu Siggeirs- dóttur að nafni, og börn eigi hann þrjú. Það kemur fljótlega í ljós að Egill hefur stundað margt skemmtilegt utan við fornbókasöluna og heimilið. „Ég hef fengist dálítið við þýðingar, einkanlega hafa það verið þýðingar á söngleikjum. Ég hygg að fjöldi þeirra sé orðinn ellelu. Þekktastir eru líklega „Fiðlarinn á þakinu" og „My fair lady" sem nú er sýndur á Ákureyri. Ég sá um ljóða- þýðingar í því verki en Ragnar Jóhannesson fyrrum skólastjóri, þýddi talþáttinn. Söngleikja- þýðingar mínar standa í beinu sambandi við áhuga minn á söng en í gegnum árin hefur hann veitt mér ómælda ánægju ekki síst með þátttöku í fjöl- mörgum skemmtilegum kórum." Egill er bráðhress maður og skemmtilegur viðræðu og síður en svo hægt að merkja að lífs- skeið hans spanni brátt sjötugi. Ég beini þeirri spurningu til Egils að lokurn hvort hann sé korninn að því að hætta forn- bókaversluninni. „Ég skal segja þér að þetta er alveg tilvalið starf fvrir rnann eins og mig sem tekinn er að reskjast en er þó enn við góða heilsu. Það má segja að þetta sé alveg tilvalin æviendaatvinna. Á nteðan að ég hef ánægju af þessu held ég auðvitað ótrauður áfram." óþh „Gæðabónus“ reyndur í Frystihúsi KEA, Dalvík Gæðadrottning 1982. Friðgerður Oddgeirsdóttir. Upphaf á gæðabónus var, að skipuö var nel'nd á aðalfundi sambandsfrystihúsa í maí 1982, verkefni nefndarinnar var að endurskipuleggja gæðaeftirlit frystihúsanna. í nefndinni.sátu aðilar lrá sjávarafurðardeild Santbandsins, Háskóla íslands og Frystihúsi K.E.A. Dalvík. Áður hafði Frystihús K.E.A. Dalvík verið valið til að fram- kvæma þessa tilraun, þar sem það var talið best í stakk búið til þessara framkvæmda. Gæðabónus er hugsaður sem hvóti til að skila betri vöru, og grundvallast á því að greiða aukalega fyrir gallalausa vöru. Þróun hans hefur tekið nokk- urn tíma og í upphaft virtist hann ekki ætla að skila því sem leitað var eftir. En með átaki og góðunt samstarfsvilja fólksins teljum við nú að þessi tilraun hafi skilað góðum árangri. Og í dag höfum við mikla trú á að þetta gæðakerfi eigi eftir að sanna gildi sitt í betri gæðum vörunnar og minna „stressi" á starfsfólkinu. Frétt frá frystihússtjóra Samkór Dalvíkur Þess var getið í jólablaði Norðurslóðar, að Samkór Dal- víkur og Barnakórinn á Dalvík mundu halda konsert um jólin og jafnvel syngja úti á götum ef veður leyfði. Þetta varð líka svo. Á Þorláks- messukvöld 23. des. marseraði þetta fólk út á götu í stillilogni og heljarfrosti og söng á nokkr- um stöðum. Það var verulega gaman að heyra þennan söng og sjá kappbúið fólk, börn og fullorðna, syngja í frostinu, svo gufustrokan stóð út úr hverjum munni. Góð nýbreytni. Á 3. dag jóla, 27. des. var samsöngur í Víkurröst. Þar sungu báðir kórarnir, aðallega þó Samkórinn, fyrir fullu húsi gesta og var það samdóma álit manna, að söngurinn hefði verið prýðisgóður. Mikið er ' þetta nú ánægjulegt í bæ, sem til skamms tíma var nánast söng- laus bær. Söngstjórinn er Colin Virr hinn enski, sem á íslensku mætti kallast Kólinn úr Vör. Góður innllutningur það. NORDURSLOD 5

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.