Norðurslóð - 21.02.1984, Blaðsíða 6
Svarfdælsk byggð & bær
Tímamót
Skírnir:
Þann 2. febrúar var skírður Davíð Örn. Foreldrar hans eru hjónin
Eggert Einarsson Bollason, bústjóri og Bára Arthúrsdóttir, Böggvis-
braut 13, Dalvík.
Þann 4. febrúar var skírður Heiðar Theódór. Foreldrar hans eru hjónin
Heiðar Theódór Ólason smiður og Ragna Valborg Sveinsdóttir frá
þverá í Skíðadal, Ægisgötu I, Dalvík.
Afmæli:
Þann 11. febrúar varð 90 ára Zóphónías Jónsson
frá Hóli í Svarfaðardal, nú búandi á heimili
aldraðra, Dalbæ, þar sem hann er 4. elsti íbúi. •
Zóphónías er unglegur í besta lagi og hress og
kátur þrátt fyrir árin mörgu. Fæddur er hann og
uppalinn á Hóli. Ungur fór hann yfir fjöllin og
freistaði gæfunnar í síldinni á Siglufirði. Einnig
kom hann við í Hjaltadalnum og vann um skeið á
Hólum. Þar kynntist hann konuefninu, Súsönnu
Guðmundsdóttur fæddri á Óslandi en uppalinni að
mestu í Ártúni nærri Kolkós. Þau gengu í hjónaband 1916 og fóru að
búa á parti af Hóli. í fyllingu tímans tóku þau við allri jörðinni keyptu
hana af Kirkjusjóði fyrir kr. 7.000 og hófu miklar framkvæmdir í
ræktun og húsabótum.
1946 hóf Friðbjörn sonur þeirra búskap á móti gömlu hjónunum og
bjó til .1976, er hans sonur, Átli tók við. Hann er 5. ættliður í beinan
karllegg sem nú situr á Hóli.
Súsanna er nú dáin fyrir nokkrum árum, en eftir situr Zóphónías
sáttur við tilveruna og í góðu yfirlæti hjá þeim Dalbæingum og í skjóli
niðja sinna, sem hér búa margir. Börn átti hann 4, barnabörn 28 og
barnabarnabörn a.m.k. 40 í öllum landshlutum.
Zóphónías var ágætur bóndi, vinsæll og traustur félagsmaður í sveit
sinni og samfélagi. Blaðið sendir honum heillakveðjur.
Þann 12. febr. varð 70 ára Vigfús Vigfússon starfs-
maður í fóðurvöruverslun KEA á Dalvík. Hann er
ísfirðingur, fæddur í Tungu í Dalamynni ofan við
Arngerðareyri í Nauteyrarhreppi í N-ís. Þar ólst
hann upp og í Hrútafirði, en hélt síðan suður á land
og gerðist leigubílstjóri í Reykjavík í 40 ár þ.e.
1940-80. Flutti þá hingað til Dalvíkur, keypti hús í
Skíðabrautinni og fékk vinnu hjá KEA. Kona hans
er Jóhanna Halldórsdóttir og eiga þau saman 4
uppkomin börn.
Þau hjón hafa eignast hér góða kunningja og eru mikils metin af
vinnuveitendum sínum, samstarfsfólki og öllum, sem þeim hafa kynnst.
Á þorrablóti KEA-starfsmanna eftir miðnætti 12. febr. var afmælis-
barnið hyllt af samkomunni og afhentar gjafir frá samstarfsmönnum.
Hamingjuóskir.
Andlát:
Guðmundur Einarsson frá Ögðum, vistmaður á
dvalarheimilinu Dalbær, lést á heimili sínu þann
28. jan. s.l. Hann var fæddur á Rautarhóli í Valla-
sókn 18. júlí árið 1896. Foreldrar hans voru hjónin
Einar Bjarnason frá Brimnesi í Ólafsfirði og
Rannveig Guðmundsdóttir frá Sandá. Árið 1906
fluttist hann með foreldrum sínum til Dalvíkur og
átti þar heima þar til hann lést og þá lengst af á
Ögðum. Um 10 ára aldur fór hann fyrst af heimili
sínu, þá sem smali og var hann á ýmsum bæjum í
sveitinni. Á Dalvík stundaði Guðmundur almenna verkamannavinnu
og vann mikið hjá Kaupfélaginu í íhlaupavinnu, en fastur starfsmaður
var hann um 20 ára skeið, þá utanbúðarmaður. í starfi sínu varð hann
fyrir slysi og náði sér aldrei til fullnustu eftir það og má segja að hann
væri óvinnufær um 20 ár.
Þann 5. maí árið 1927 kvæntist hann Baldvinu Þóru Þorsteinsdóttur
frá Böggvisstöðum. Þau bjuggu allan sinn búskap á ögðum þar til fyrir
fjórum árum að þau fluttust í Dalbæ. Þau eignuðust tvær dætur Soffíu
og Rannveigu.
Guðmundur var mikill atorku- og dugnaðarmaður og vel látinn.
Útför hans fór fram frá Dalvíkurkirkju 4. febr. s.l.
St. Sn.
Sverrir Stefánsson frá Brimnesi lést á F.S.A. 29.
jan. s.l. Hann var sonur Stefáns Jónssonar síðar
bónda og sparisjóðshaldara á Brimnesi og konu
hans Eyvarar Jónínu Tímótheusdóttur frá Minni-
Vatnsleysu. Sverrir var fæddur í Nýjabæ eða
Jónshúsi hér á Dalvík 27. apríl árið 1916. Hann
fluttist með foreldrum sínum í Brimnes árið 1919.
Móðursínamisstihanníjúlíárið 1921. Stefánfaðir
hans kvæntist aftur árið 1923 önnu Ólafsdóttur og
ólst hann upp með þeim til fullorðins ára. Hann
gekk í barnaskóla hér á Dalvík og unglingaskóla. Síðan lá leið hans í
Stýrimannaskólann í Reykjavík og lauk hann prófi þaðan eftir tvö ár.
Síðan var hann á ýmsum bátum og skipum og sigldi m.a. öll stríðsárin á
England. Hann þoldi sjóinn heldur illa og fór því í land og stundaði
ýmiskonar vinnu í landi.
Árið 1941 kvæntist hann Aðalheiði Hólm Ólafsdóttur ættaðri austan
af landi. Þau bjuggu fyrst í Reykjavík, en fluttust þaðan austur á Djúpa-
vog og voru þar um fimm ára skeið. Þá fluttust þau suður aftur og síðan
til Akureyrar 1964-5 og áttu þar heima þangað til þau fluttust til
Dalvíkur og þá í Brimnes fyrir um þremur árum síðan. Sverrir heitinn
missti konu sína 5. maí 1982. Þeim varð ekki barna auðið.
Áður en Sverrir kvæntist hafði hann iegnast son, Sverri Má, sem ólst
upp á Brimnesi. Hann er nú kvæntur maður í Reykjavík ogá þrjú börn.
Sverri var margt til lista lagt. Hann var hagorður og skurðhagur og
fékkst nokkuð við það.
St. Sn.
Má ég kynna?
Nýr
frystihússstjóri
I haust sem leið kvöddum við
Aðalstein Gottskálksson frysti-
hússtjóra með söknuði, þegar
hann hélt í suðurátt.
En maður kemur manns í
stað. í sæti hans er nú sestur
ungur maður, ekki beinlínis
nýkominn á staðinn en aðkomu-
maður þó.
Sá heitir Gunnar Aðalbjörns-
son, Siglíirðingur af skagfirsku
bergi brotinn. Fæddurerhanná
Sigló 10. júlí 1959 og verður því
25 ára á næsta afmæli. Er hann
því yngstur þeirra, sem verið
hafa frystihússtjórar hér.
Gunnar lauk gagnfræðaprófi
á Siglufirði, en fór þá í Fisk-
vinnsluskóla ríkisins og útskrif-
aðist 1979 sem fiskiðnaðar-
maður. Frá barnæsku vann
Gunnar í fiski I heimabæ sínum,
en prófaði sig líka á togurum til
að auka á reynsluforðann.
Eftir prófið úr Fiskvinnslu-
skólanum vann hann eitt ár hjá
Siglósíld. Hingað kom hann 17.
júní 1980 og fór þá þegar að
vinna hér við frystihúsið, fyrst
sem verkstjóri í vinnslusal, þá
við saltfiskverkunina og síðan
sem yfirverkstjóri frystihússins,
þar til hann tók við frystihús-
stjórastöðunni af Aðalsteini.
Gunnar segir starfið vera
áhugavert, menn verða að fylgj-
ast vel með og hafa augun opin
fyrir öllu því sem er að gerast í
vöruþróun og framleiðslutækni
á þessu sviði. „Annars á maður
á hættu að vakna upp einn
góðan veðurdag og uppgötva að
maður hefur dregist langt aftur
úr. í svona starfi nær maður
aldrei fullkomnun. Þaðeralltaf
hægt að breyta og betrumbæta."
Gunnar er kvæntur maður.
Konan er Anna Sigríður Hjalta-
dóttir frá Ytra-Garðshorni, sem
sjálf er nú verkstjóri í vinnslusal
í frystihúsinu. Son eiga þau,
Hafjjór, tveggja ára.
Áhugamál? Helst er að nefna
íþróttir, sérstaklega knatt-
spyrnu og svo badminton. Það
eru skemmtilegir leikir.
Hinn ungi frystihússtjóri hef-
ur þegar unnið sér traust og
vinsældir jafnt yfir sem undir-
manna sinna, og Norðurslóð
óskar honum áframhaldandi
velfarnaðar í starfi.
Taflfélag Dalvíkur
Að beiðni „Norðurslóðar" vil
ég undirritaður gera hér í stuttu
máli grein fyrir skákstarfsemi á
Dalvík síðastliðið ár.
Enda þótt skákiðkun hafi
verið^fremur lítil á Dalvík um
árabil, eru þó enn nokkrir
áhugamenn hér, sem halda
tryggð við þessa hugans íþrótt,
en þátttaka mætti gjarnan vera
almennari. Skák er þroskandi
tómstundagaman og vel þess
virði að efla hana, sérstaklega
meðal unglinga.
Á árinu 1982 fluttu til Dalvík-
ur þeir Rúnar Búason og
Gunnar Bergmann, sem báðir
eru áhugamenn um skákiðkun.
Hafist var þá handa um að
koma á skákæfingum að
Hafnarbraut 10. Dalvík og var
teflt á þriðjudagskvöldum. Þátt-
taka var venjulega 6 til 10
manns.
Þann 24. febrúar 1983 komu
8. félagar úr Skákfélagi Ólafs-
fjarðar og tefldu við jafnmarga
skákmenn frá Dalvík. Tefldar
voru 2. umferðir og hafði hvor
keppandi 30mínúturti!aðljúka
skákinni. Úrslit urðu þau, að
Dalvík vann með 8'A gegn l/i
vinningi.
Aðalsteinn Grímsson, Gunnar
Bergmann og Arnfríður
Friðriksdóttir tóku þátt í skák-
móti Ungmennasambands Eyja-
fjarðar 1983 og einnig tóku
nokkrir skákmenn héðan þátt í
15 mínútna skákmótum og
hraðskákmótum U.M.S.E.
Til þess að koma föstu formi
á skákstarfið var stofnað tafl-
félag þann 2. október 1983.
Stofnendur voru 10 talsins.
Stjórnina skipa: Jón Stefánsson
formaður, Áðalsteinn Gríms-
son, gjaldkeri og Arnfríður
Friðriksdóttir, ritari.
Tilgangur félagsins er: Að
vinna að auknum áhuga á
Dalvík og nágrenni fyrir skák-
íþróttinni og efla kunnáttu
manna í skák. Félagið verður
ekki aðili að „Skáksambandi
íslands" og sendir ekki kepp-
endur á skákmót í sínu nafni.
Félagsmenn mega vera félagar í
„Skákfélagi Ungmennasambands
Eyjafjarðar'1 og eru sjálfráðir
„Æskulýðsfulltrúinn (iisli Pálsson metur stöðuna."
fyrir hvaða ungmennafélag þeir
keppa á skákmótum U.M.S.E.
Á stofnfundinum færði Jón
Stefánsson, félaginu að gjöf,
farandgrip og verðlaunapcninga,
sem keppt skyldi um á Skákmóti
Dalvíkur. Farandgripur þessi
vinnst til eignar, sé hann unninn
af sama manni 3. ár í röð eða 5
sinnum alls. Skákmót Dalvíkur
Greinarhöfundur.
hófst þann 16. október og lauk
30. nóvember. Þátttakendur
voru 8 og úrslit þau að efstur
varð Aðalsteinn Grímsson, með
6 vinninga, annar varð Rúnar
Búason með 5 vinningaogþriðji
Gunnar Bergmann með 5 vinn-
inga. Jón Stefánsson hlaut
einnig 5 vinninga en var lægri að
stigum eftir úrslitakeppni.
Unglingaskákmót Dalvíkur
fór fram á tímabilinu 4. nóvem-
ber til 18. des. 1983. Keppendur
voru 10. Sigurvegari varð Kristján
Þorsteinsson með 8/2 vinning.
Annar varð Sigurður Antons-
son með l/_ v. og þriðji Jón
Árnason með 5/ v.
Þann 28. desember tefldu 8.
Dalvíkingar við jafnmarga
skákmenn úr Árskógshreppi.
Dalvíkingar sigruðu með
nokkrum yfirburðum.
Nú er nýlokið Skákmóti Ung-
mennasambands Eyjafjarðar og
voru 5. keppendur frá Ung-
mennafélagi Svarfdæla í því
móti. Tefldar voru 7. umferðir
eftir Monradkerfi. Af keppend-
um frá U.M.F.S. er þaðaðsegja
að Rúnar Búason, hafnaði í 3.
sæti með 5 vinninga og Gunnar
Bergmann varð í 5. til 10. sæti
með 4 vinninga.
Ákveðið hefur verið að hafa
skákæfingar í vetur að Hafnar-
braut 10 á þriðjudögum kl. 8
s.d. og eru allir velkomnir
þangað.
Taflfélag Dalvíkur vill vinna
að meiri skákiðkun á Dalvík og
nágrenni, með því að koma á
skákfræðslu og skákmótum.
Kærkomið væri að einstakling-
ar og fyrirtæki sæju sér fært að
styrkja starfsemi okkrr með
fjárframlögum og verðlauna-
gjöfum.
Dalvík, 16. febrúar 1984.
f. h. Taflfélags Daivíkur
Jón Stefánsson