Norðurslóð - 28.03.1984, Page 5
Jóhann húsvörður fylgist tvíefldur
með skreytingu ganila skólans.
Vettvangsvika
í Dalvíkurskóla.
Framh. af forsíðu.
þær báðar. Hefur því verið
ákveðið að halda aukasýningu á
mánudagskvöld 26. mars kl.
20.30.
A laugardag var skólinn
einnig opinn fyrir almenning og
gafst þá kostur á að skoða það
sem nemendur höfðu unnið í
vettvangsvikunni. Þá seldu
nemendur 9. bekkjar kaffi og
meðlæti frá kl. 14-21.30 til
ágóða fyrir ferðasjóð og gerðu
kaffigestir góðan róm að.
Nemendurvorualmennt mjög
ánægðir með þessar breytingar
á skólanum og unnu allir af
miklu kappi. Ég tel að það sem
við höfum verið að gera innan
skólans efli góðan anda meðal
nemenda og kennara og er ólíkt
skemmtilegra að koma í skólann
núna. Einnig er minni hætta á
skemmdarstarfssemi á hlutum
sem nemendur gerðu sjálfir.
Helga B. Eiríksdóttir
9. bekk.
Brúðuleikhús
í starfsvikunni unnu yngstu nemendur skólans að gerð brúðu-
leikhúss. Brúður af ýmsum gerðum voru búnar til, leikrit og
söngvar æfðir og mikil starfsgleði ríkjandi.
Þetta unga listafólk hefur boðið krökkunum í Krílakoti í
brúðuleikhús á miðvikudag og síðan foreldrum sínum á
fimmtudagskvöld.
„Leikhúsið" sjálft varð að mála og má segja að þar hafi margar hendur
unnið létt verk.
Þegar mikið er um að vera er aðstoð vel þegin. Hér er áhugasöm „mamma"
að hjálpa ungu brúðugerðarfólki.
Loðdýraræktin - Fóðurstöð á Dalvík
Það er hugur í loðdýrabændum
um þessar mundir. Það er vor í
lofti þótt enn sé mars og fengi-
tími er hafinn.
Sölu loðskinnaframleiðslu
síðasta árs er nú lokið og verðið
hefur sveiflast upp úr lægðinni
og er nú orðið rétt þokkalegt.
Það eykur bjartsýninga og enn-
fremur það, að nú er að koma
nýtt skipulag á fóðurframleiðslu
fyrir loðdýrin hér í Eyjafirði.
Stofnað hefur verið sam-
vinnufélag loðdýrabúa á Eyja-
fjarðarsvæði, en þau eru 17
talsins í augnablikinu. 4 þeirra
eru hér í sveitinni og það lang-
stærsta, Böggvisstaðabúið, þar
með talið.
Blaðið átti tal við einn
stjórnarnefndarmanna Fóður-
stöðvarinnar, Hjalta Haralds-
son í Ytra-Garðshorni, og innti
frétta af stöðu mála. Eftir-
farandi upplýsingabrot eru
árangurinn:
í samvinnufélaginu Fóður-
stöðin á Dalvík hefur hvert loð-
dýrabú á svæðinu eitt atkvæði.
Stjórn hefur verið skipuð. í
henni eru þessir: Úlfar Arason
Klöpp Svalbarðsströnd, for-
maður, Þorsteinn Aðalsteins-
son, Dalvík, varaformaður,
Tryggvi Stefánsson, Hallgils-
stöðum Fnjóskadal, Jóhann
Ingólfsson, Lómatjörn Höfða-
hverfi og Hjalti Haraldsson,
Ytra-Garðshorni Svarfaðardal.
Stöðin verður til húsa í nyrðri
hluta beinaverksmiðju KEA á
Dalvík. Skemman verður lag-
færð (kostn. ca. I milljón) og
leigð i'élaginu. Til greina kemur
að taka síðar alla verksmiðjuna
Eggert Bollason.
á leigu með hugsanlega fjöl-
breyttari fóðurframleiðslu í
huga, meltu og fleira, en þetta er
framtíðarmúsíkk.
Vélakostur erað mestu keypt-
ur af Böggvisstaðabúinu þ.á.m.
hakkavél ein mikil, sem búið
átti í pöntun, og er að koma á
staðinn. Til viðbótar kaupir
stöðin m.a. 250 tonna frysti-
klefa til geymslu á fóðri o.fl. Að
lokum er svo að nefna fóður-
tankbíl, sem út af fyrir sig mun
kosta ca. 2 milljónir en allur
mun tækjakosturinn kosta um
eða yfir 10 milljónir.
Kostnaðurinn
Stjórnin hefur rætt við þá sem
fjármagninu ráða og fengið
mjög góðar undirtektir hjá
Stofnlánadeild landbúnaðarins
og hjá Byggðasjóði. Þá eru og
góðar vonir um framlag úr
Framleiðnisjóði landbúnaðar-
ins af fé því, sem sparast hefur
vegna tímabundinnar skerðing-
ar á framlögum til nokkurra
hefðbundinna framkvæmda í
landbúnaði. Að auki hafa lána-
stofnanir hér nær okkur lýst
miklum velvilja að Iána fé í
þennan nýja atvinnuveg.
Gerð hefur verið allítarleg
rekstraráætlun og kernur hún
upp á hátt í 10 milljón króna
kostnað á ári. Miðað við 3000
tonn áætlaða ársframleiðslu og
sölu verður fóðurverð sam-
kvæmt því ca. kr. 3,30/ kg. Þá er
flutningskostnaður heim til
neytandans eftir, en eftir sem
áður er vonast til að verðið eigi
ekki að fara yfir kr. 4,00/kg.
Starfslið
Reiknað er með að tveir starfs-
menn verði við fóðurstöðina
fyrst um sinn, stöðvarstjóri og
aðstoðarmaður. Auglýst var
el'tir manni í þá stöðu nýlega og
bárust margar umsóknir. Ráð-
inn var Eggert Bollason, sem
verið hefur aðalfóðurumsjónar-
maður Böggvisstaðabúsins
undanfarin ár.
Þá verður ográðinn maðurtil
að aka fóðurbílnum. Hafa
nokkrir menn þegar gefið sig
fram til þess starfs, en enn hefur
stjórn stöðvarinnar ekki ráðið í
stöðuna.
Það er greinilegt að menn
hafa nú vaxandi trú á framtíð
loðdýraræktarinnar. Má telja
iíklegt að nú þegar fóðurfram-
leiðsla og flutningur til búanna
er kominn í skipulegt horf, að
þá muni fleiri sjá sér leik á borði
og stofni loðdýrabú meðfram
þeirri leið, sem fóðurbóll kemur
til með að aka reglulega.
Sr. Stefán
Snævarr
sjötugur
Sr. Stefán Snœvarr sóknarprestur Vallarprestakalls og pró-
fastur Eyjafjarðarprófastdæmis varð sjötugur 22. þ.m.
Sr. Stefán fæddist á Húsavík 22. mars 1914, sonur
Valdemars Snævarrs þá skólastjóra þar og konu hans
Stefaníu Erlendsdóttur. Þeim heiðurshjónum kynntust
Svarfdælir vel eftir að.þau fluttu hingað í Velli þegar Stefán
sonur þeirra var orðinn sóknarprestur hér. Það gerðist árið
1941, er hann tók við kallinu af Sr. Stefáni Kristinssyni, sem
setið hafði Velli frá því 1901.
Árið 1968 var prestssetrið flutt frá Völlum til Dalvíkur þar
sem þau Sr. Stefán og frú Jóna hafa búið síðan á Hólavegi 17.
Á Völlum ráku þau hjón búskap eins og hann gerðist í Svarf-
aðardal á þeim árum og fórst það vel úr hendi. Minnast þau
þeirra daga með dálítilli eftirsjá, enda þótt illa fari oft saman
nú á dögum embættisskyldur sóknarprestsins og búrekstur
einkum kúabúskapur á svarfdælska vísu.
Sr. Stefán kvað vera elsti þjónandi presturinn innan þjóð-
kirkjunnar nú um þessar mundir. Hann hefur starfað í
víngarði drottins í 43 ár samfleytt og aldrei yfirgefið sóknar-
börnin sín hér, sem hann í upphafi starfsferils síns tókst á
hendur að þjóna. Slík staðfesta er ekki algeng og segir út af
fyrir sig töluverða sögu um manninn Stefán Snævarr. En þar
að auki erum við Svarfdælir líka að vona að þessi eirð
prestanna okkar, Stefán Kristinsson 1901-1941 og Stefán
Snævarr síðan, segi einhverja sögu um okkur sjálfa. Ætli megi
ekki segja að þessir séra Stefánar okkar hafi verið réttir menn
á réttum stað og það mega allir vel við una.
í afmæliskveðju í Morgunblaðinu segist sr. Bjartmar
Kristjánsson ekki vita, hvort einhver séra Stefán sé nú á
lausum kili til að taka við þessu embætti af nöfnum sínum,
þegar það losnar síðar á þessu ári. Ekki væri það lakara að fá
enn einn prest með því nafni, en í munni okkar Svarfdæla eru
þessi tvö orð, séra og Stefán orðin býsna samgróin eftir nærri
aldarlanga notkun. En líklega ræður nafnið samt ekki þegar
til kastanna kemur, enda er það að sjálfsögðu aukaatriði.
Hitt hljótum við allir að vona að hvað sem hann eða hún
heitir þá falli næsti prestur okkur jafn vel í geð og sá, sem við
nú höfum, og samlagist jafn vel svarfdælsku mannlífi bæði í
bæ og byggð.
En hér erengin kveðjustund upp runnin. Enn umsinn fáum
viðað hafa þau Stefán ogJónu okkará meðal og þaðergott.
Hinsvegar viljum við nú senda Stefáni okkar bestu afmælis-
kveðjur og heillaóskir í tilefni afmælisins. Það er áreiðanlegt
að það hafa margir hugsað hlýtt til þeirra hjóna þessa dagana
og látið það í ljós með einum eða öðrum hætti.
Það er auðvitað ósköp kjánalegt að tala fyrir munn blaðs
eins og það væri sjálfstæð persóna. Samt leyfum við okkur að
gera það í þessu tilviki. Sr. Stefán hefur reynst þessu blaðkrýli
sem heitir Norðurslóð sérstaklega góður og tryggur vinur eins
og lesendur þess hafa sjálfsagt séð. Það er gott að eiga slíkan
hauk í horni. Fyrir það færir blaðið honum nú bestu þakkir
og tekur sér það bessaleyfi að flytja honum afmæliskveðjur og
árnaðaróskir lesenda sinna. Flestir þeirra eru nefnilega
sóknarbörn eða fyrrverandi sóknarbörn sr. Stefáns Snævarss.
Marga þeirra hefur hann skírt, fermt eða vígt í hjónaband,
jafnvel gert allt þetta þrennt fyrir sama einstaklinginn.
Við sendum sr. Stefáni og fjölskyldu hans bestu kveðjurog
óskum þeim velfarnaðar í bráð og lengd.
H.E.Þ. S.H.
Séra Stefán við skýrnarathöfn sl. sunnudag. Sjá Tímamót.
Frétt frá AKKA
í tilefni af 10 ára afmæli Dalvíkurbæjar 10. apríl
n.k. verður efnt til fjölbreyttrarsýningará vegum
AKKA - Félags safnara á Dalvík, Árskógsströnd
og Svarfaðardal - í Dalvíkurskóla dagana 21-23.
apríl, þ.e. um páskahelgina. Sýningarefni verður
margskonar s.s. frímerki, söðlar, mynt, minnis-
peningar, póstkort, tímarit o.fl.
NORÐU RSLÓÐ - 5