Norðurslóð - 22.01.1985, Blaðsíða 4

Norðurslóð - 22.01.1985, Blaðsíða 4
Svarfdælsk byggð & bær Að heiman ég fór Ferðin Jóns frá Klaufabrekknakoti til Hátúns Tímamót Afmæli Þann 2. janúar varð sjötug Friðrikka Haraldsdóttir fyrr- verandi húsfreyja á Ytra-Hvarfi, nú í Lambhaga á Dalvík. Þann 6. janúar varð 60 ára Júlíus Jón Daníelsson frá Syðra- Garðshorni, nú í Reykjavík, ritstjóri Freys og sérstakur árn- aðarmaður Norðurslóðar í höfuðborginni. Brúðkaup 31. desember 1984 voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkur- kirkju, Bergur Höskuldsson vélvirki og Sesselja Gunnlaug Antonsdóttir starfsstúlka. Heimili þeirra er Karlsrauðatorg 20, Dalvík. Gullbrúðkaup Þann 26. desember áttu 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Jóna Kristjánsdóttir frá Uppsölum og Anton Gunnlaugsson í Árbakka á Dalvík. Þau voru gefin saman á Völlum af sr. Stefáni Kristinssyni á annan dag jóla jarðskjálftaárið 1934. Það ár byggðu þau húsið Árbakka, nú Karlsbraut 29, og þar hafa þau búið síðan. Húsið hefur verið stækkað tvisvar sinnum, enda stækkaði fjölskyldan ört. Börnin urðu 8. Þau eru í aldursröð: Kristinn búsettur í Keflavík, Þröstur á Akureyri, Jónas á Dalvík, Ingvi á Dalvík, Felix í Lýtings- staðahreppi í Skagafirði, Flóra (tvíburi á móti Felix) í Keflavík, Ragnhildur í Keflavík og Sesselja á Dalvík. Barna- börnin eru 23 og barnabarnabörn 9. Anton starfaði á sjó og við fiskvinnslu langa starfsævi bæði hér heima og fyrir sunnan og á Austfjörðum, T.d. var hann 35 vertíðir við störf á Suðurnesjum, vann í mörg sumur við síld á Raufarhöfn og á Seyðisfirði og að lokum 7 ár sem verkstjóri í saltfiskverkun hjá Frystihúsinu hér á Dalvík. Þar hætti hann að mestu störfum fyrir 3 árum síðan. Jóna hefur að sínu leyti unnið mikið í fiski þ.á.m. nokkrar vertíðir fyrir sunnan auk heimilisstarfa með barnauppeldi, sem ætla mætti að væri nokkurn veginn fullt ævistarf. Norðurslóð sendir gullbrúðhjónunum og fjölskyldu þeirra heillakveðjur. Svanfríður. Þorsteinn. Andlát Þann 27. desember 1984 andaðist Svanfríður Bjarnadóttir, Dalbæ, Dalvík. Hún var fædd 14. júlí 1905 á Steindyrum á Látraströnd, en fluttist ung til Grímseyjar. Þar giftist hún Jakobi Helgasyni árið 1941. Til Dalvíkur fluttu þau árið 1947 þar sem þau bjuggu æ síðan. Svanfríður var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 5. janúar. Þann 4. janúar 1985 andaðist Þorsteinn Þorsteinsson. Hann var fæddur 6. janúar 1905 að Þrastastöðum í Skagafirði. Árið 1937 kvæntist hann Áslaugu Jónsdóttur og sama ár fluttust þau til Dalvíkur og hafa búið þar allan sinn búskap. Þorsteinn var jarðsunginn 12. janúar frá Dalvíkurkirkju. JHÞ - Ég vœri ennþá á sjónum, hefði ég ekkifengið asma. Gigt finn ég ekki fyrir og þekki kvef tœpast nema af afspurn! Jón Gunnlaugsson frá Klaufa- brekknakoti kom að landi með- vitundarlaus úr síðustu sjóferð- inni árið 1970. Þá var hann kyndari á togaranum Hafliða frá Siglufirði. Það árið var hart deild um kaup og kjör hér á landi; sú kjaradeila var síðar kölluð „langa togaraverkfallið". Togaranum Hafliða var haldið úti við veiðar allt verkfallið. Aflinn seldur í útlöndum og þar keyptar vistir, vatn og olía. Asmalyfin hans Jóns gengu til þurrðarum borð ogsjúkdómur- inn var á góðri leið með að leggja hann í gröfina þegar loksins var komið til íslands að kjaradeilunni lokinni, þá úr fimmtu veiðiferðinni í þessari lotu. Jón fékk hjálp læknis og var harðlega bannað að fara aftur á sjóinn. Fyrir honum lá að flytja suður að leita sér lækninga á Vífilstöðum. Þaðan lá leiðin til Reykjavíkur, þar sem hann býr í háhýsi Öryrkja- bandalagsins við Hátún og unir vel sínum hag. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Jón bölvarasman- um fyrir að hafa bundið enda á sjómennskuna, en lofar sjúk- dóminn fyrir að hafa leitt saman hann og konuna sem hann síðar gekk að eiga. Hún er úr Dölun- um og heitir Guðbjörg Magnús- dóttir. Þau kynntust á Vífilstöð- um árið 1971, bæði þangað komin til að leita aðstoðar í glímunni við andþrengslin (asma). Lífsglöð og ánægð bæði tvö og góð heim að sækja. Gæfan hefur samt ekki alltaf í Klaufabrekknakoti árið 1908, þriðji í röðinni í stórum hópi systkina. Á Dalvík búa bræður hans tveir: Björn vélgæslu- maður og Halldór lögregluþjónn Guðlaug býr á Ólafsfirði, Helga og Pálína á Akureyri. Þrjú systkinanna eru látin. Þau Gunnlaugur og Hólmfríður fluttu með barnahópinn (Pálína ófædd þá) til Ólafsfjarðar árið 1921 og bjuggu þar til 1935, þegar þau fluttu til Dalvíkur árið eftir að jarðskjálftinn mikliskók byggð- ina. - Ég held að pabba hafi alltaf leiðst á Ólafsfirði og langað til Dalvíkur, en að mamma hafi gjarnan viljað vera áfram Ólafs- fjarðarmegin Múlans. Sérstak- lega eftir að Lauga systir giftist og settist þar að, segir Jón. Á Ólafsl'irði fór Jón í fyrsta sinn í róður, þá barnungur. Fyrstu róðrarnir voru með Jóhanni móðurbróður hans. Fermingarárið var hann í fullum hlut 1 fyrsta sinni á Barðanum, fyrsta skipi Magnúsar Gamalíels- sonar, síðar útgerðarkóngs Ólafsfirðinga. Magnús lést íárs- byrjun 1985. Sjórinn varð starfsvettvangur Jóns Gunnlaugssonar næstu 49 árin. Hann reri frá Ólafsfirði, Sandgerði, Siglufirði og Dalvík. Og Jón er enn á sjó, að vísu bara í huganum á daginn og í draumum á nóttunni. Hugsun- unum lýsir hann líklega best í ljóðlínum í bréfi til sonar síns, Hafliða Helga: Út á sundin sœrður horfil með söknuði áþessu hausti. / Nú hef ég seinast bát minn bundið/ bráðum fúnar hann í nausti. Bátarnir sem Jón hefur róið á um dagana eru fleiri en hann getur talið upp í fljótu bragði. Þegar hann rifjar upp atburði frá liðinni tíð, þá er ekkert víst að hann miði við ákveðið ártal. Hann á jafnoft til að miða við tímabilið þegar hann var háseti, kyndari, stýrimaður eða skip- stjóri á þessari eða hinni fleyt- unni: Þetta gerðist ábyggilega áður en ég var stýrimaður á Jóni Stefánssyni og Björn bróðir var vélstjóri á sama báti, sagði hann einu sinni og hugsaði stíft. Eða: - Stríðsárin? Já, ég man að eitt árið gerði ég út Val frá Dalvík og var með Stjána í Miðkoti og Haraldi á Jaðri, en Kristján í Höfn var í landi. Þá vildu allir helst vera í Bretavinnu og erfitt að fá fólk á bátana. Þetta var plága! Jón frá Klaufabrekknakoti er kominn á áttræðisaldur. Trúi því hver sem vill. Starfsþrekið er í góðu lagi þrátt fyrir aldur og erfiðan sjúkdóm. Áður aflaði hann þjóðarbúinu tekna ásjón- um. Nú gætir hann veraldslegs auðs í sjálfu peningamusteri verslunarmanna: Verslunar- banka íslands. Þar er hann hús- vörður í aðalbankanum í Reykja- vík. Þó svo Jón Gunnlaugsson gangi daglega um fína kontóra peningamanna, þar sem innrétt- ingar eru smíðaðar úr góðum viði og þykk teppi hylja gólfin, þá er hann og verður sjómaður. Svarfdælingur og sjómaður. í huganum rær hann daglega frá Dalvík eða Siglufirði. Og ennþá heyrir hann hafið ólga og vindinn þjóta í reiða. Atli Rúnar Ort úti á Halamiðum, þegar J. G. frétti lát móður sinnar. Ó, mamma mín, hve sárt ég sakna þín sál mín fyllist angurværum trega. Öll þú bættir bernskusárin mín blessuð sé þín minning æfinlega. Oft ég lá við mjúka móðurkinn þá mildar hendur struku tár af hvarmi. Oft sofnaði ég sætt við vanga þinn þá svaf ég vært á hlýjum móður armi. Ó, móðir kær, ég man þig enn svo vel mikill var þinn hlýi trúarkraftur. Þig blessun Guðs í bæninni ég fel á bak við lífið kem ég til þín aftur. glott við Jóni á leiðinni frá Klaufabrekknakoti til Hátúns í Reykjavík. Krabbameinið tók frá honum fyrri konuna í blóma lifsins árið 1958. Ólafía Pálína Helgadóttir var aðeins 36 ára gömul þegar kallið kom, þá orðin móðir tveggja barna: Þóru sem býr á Seltjarnarnesi og Hafliða Helga veðurfræð- ings, nú námsmanns í Banda- ríkjunum. Áður hafði Jón eign- ast dóttur, Guðbjörgu Ástu, sem býr í Keflavík. Móðir hennar er Ragna Björnsdóttir frá Hrísey. - Þegar ég missti konuna var ég einsog fugl, vængbrotinn á báðum, segir Jón. Hann seldi íbúðina á Siglufirði og flutti til Akureyar með börnin tvö. Dvölin þaf varð þó styttri en til stóð. Hafliði Helgi undi sér ekki í norðlenska höfuðstaðnum og tók ekki gleðina til fulls á ný fyrr en í fanginu á ömmu á Sigló. Jón Gunnlaugsson er fæddur Eins og undanfarin ár hefur Kiwanisklúbburinn Hrólfur á Dalvík verið með ílugeldasölu milli jóla og nýjárs. Að þessu sinni var ákveðið að allur ágóði af sölunni rynni til landssöfnunar Hjálparstofnunar kirkjunnar „Brauð handa hungr- uðum heimi“. Á myndinni er tekin var laugardaginn 12. janúar s.l. sést er formaður flugeldanefndar Sigurður Jónsson, afhendir sóknarprestinum á Dalvík sr. Jóni Helga Þórarinssyni ávísun að upphæð kr. 75.000,- er var ágóðinn af flugeldasölunni í ár. Á myndinni eru einnig stjómar- menn í Kiwanisklúbbnum Hrólfi, þeir Jón Geir Jónatansson, Geir Guðsteinsson og Gunnar Áðal- björnsson. Jón og Guðbjörg.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.