Norðurslóð - 21.03.1985, Blaðsíða 5
ur%*
1~lyr
I
S 1 f 1 GARN [ ! IMálun
Fryttir
Mjolkurtcælir
r r ' - i
[t£p
1—Vagnar U
Snyrtivönjr J K»mí
L ^ Ritfðnc
1 Í! 9
D 0
CVisHiíZI
4 S
Anddyrl
rr
i-?-
i ífi Síí
4
!
i I
■3‘ §
~|—I—Vefnt &a rv»n | | i~
j—L—ölaivan -J— J “*'“*;* ~|—1
nofitoii jj r r i i ~; 'LugiwB^I.
_D_______Q_
_a.
_Q
Uppdráttur af nýju búðinni.
Opnuð Svarfdælabúð
í>áttaskil í verslunarsögu Dalvíkur
Það er mikið um að vera í nýbyggingunni við Kaupfélagshúsið, sem
byrjað var á haustið 1983 og er nú að nálgast lokastigið þ.e.a.s. sá
áfangi sem nú er unnið að. Þegar fréttamaður Norðurslóðar leit þar
inn þriðjudaginn 19. mars var allt á ferð og flugi, nánast eins og í
mauraþúfu nema hvað maurarnir voru menn bæði innlendir og
útlendir allir í óða önn að koma fyrir hinum aðskiljanlegustu
tækjum og búnaði.
Það tókst að ná tali af útibús-
stjóranum Rögnvaldi Skíða og
eftir honum höfðum við eftir-
farandi:
Það sem verið er að gera núna
er fyrri eða fyrsti áfangi nýrrar
skipunar verslunarinnar hjá
KEA á Dalvík. lnngangur og
anddyri og tenging gömlu og
nýju verslunar kemur í næsta
áfanga vonandi innan skamms
tíma. Það þótti nauðsynlegt að
haga þessu svona til þess að geta
haldið áfram verslun í gömlu
matvörubúðinni óhindrað nán-
ast alveg fram að þeim degi, að
sú nýja væri tilbúin með vörum
og öllu saman. Þetta kann að
valda viðskiptavinum einhverj-
um óþægindum svo og starfs-
fólkinu, og kvaðst Rögnvaldur
vonast til að fólk skildi aðstæð-
urnar og biði þolinmótt eftirað
allar þessar framkvæmdir
kæmust endanlega í höfn, von-
andi þó á þessu ári.
Vígsla 26. mars
Þriðjudagurinn 26. mars verður
merkur dagur í verslunarsögu
Svarfdæla, því þá verður nýja
búðin, Svarfdælabúð, opnuð á
venjulegum tíma um morgun-
inn. Þá verður þangað komin sú
verslun, sem nú fer fram í görnlu
matvörudeild, vefnaðarvöru-
deild, sport- og búsáhaldadeild
svo og í kjörbúðinni við Skíða-
braut.
Til þess að koma þessu öllu í
kring verður helgin notuð að
viðbættum mánudeginum 25.
mars. Þann dag verða verslanir
KEA lokaðar nema bygginga-
vörudeildin og Kjörbúðin við
Skíðabraut, sem þann dag
verður að þjóna öllum við-
skiptavinum kaupfélagsins sem
matvöruverslun eftir bestugetu.
Það skal tekið fram að áfram
verður verslað um sölulúu þ.e. á
norðaustur horni nýju búðar-
innar.
Rögnvaldur Skíði kvaðst
vænta þess að sem flestir
Dalvíkingar og aðrir Svarfdælir
Iitu inn í nýju herlegheitin
þennan dag. Þar mun verða
margskonar vörukynning og
sértilboð í gangi. Ennfremur
verðurgestum boðnar einhvers-
konar góðgerðir.
Þá er ætlunin að um kvöldið
verði nokkrum hópi manna
boðið í sérstaka opnunarathöfn
þarna í húsinu. Verða þar
einkum starfsfólk verslunarinn-
ar, byggingarmenn, sem unnið
hafa að smíðinni stjórn Kaup-
félagsins og einhverjir fleiri.
Fjölbreytt verslun
í nýju hefti Keafregna er stutt
viðtal við R.Sk.F. um nýskipan
verslunarinnar á Dalvík. Okkur
þykir réttast að taka það upp
hér orðrétt:
„Aðspurður um breytingar á
vöruflokkum og vöruúrvali,
sagði Rögnvaldur að reynt yrði
að auka á úrval matvöru, enda
gæfi aukið rými tilefni til þess. í
sérvörunni verður eins og áður
boðið upp á ákveðna vöru-
flokka og allt kapp lagt á, að
ekki skorti vörur innan þeirra.
Elskaðu
saltfisk
og suðræna vinda
Það hefur komið í ljós, að
gamankvæði Halls Jóhannes-
sonar frá Holárkoti, sem við
birtum í jólablaðinu, hafði
brenglast töluvert mikið og
fallið niður að hluta. Borist
hafa leiðréttingar úr nokkrum
áttum þar á meðal frá Frey-
laugu frá Ingvörum ásamt
beiðni um að þetta sé lagfært.
Það gerum við hér með og
biðjum aðstandendur, lífs og
liðna velvirðingar á mistök-
unum.
Elskaðu saltjisk og suðrœna vinda
sykraðar lummur og píanó spil,
horaðar merar og hájjaíla tinda
holdugar meyjar og smálækjar gil.
Elskaðu steinbit og ættjarðar kvœði
ávaxta sajá og stjórnmála þjark,
síldveiði, búskap og samvinnujræði
svarjdœlska biltúra og vornœturslark.
Elskaðu rökkrið á kvrlátum kvöldum
kjarnyrta sálma og rúsínu graut,
elskaðu J'leyin sem jijóta á öldum
Jórnaldarsögur og kvnbótanaut.
Elskaóu millipils, kápur og kjóla
■ kandís og blóðmör og skötur og hlír,
elskaðu lyngmóa, lautir og hóla,
tiljur og Jjólur og hjálmótlar kýr.
Elskaðu Helgakver heimspeki og rjóma
hákarl og spegil og alþýðublað,
Hollenska karla með heljrosna góma'
hundaskamt, rajljós og gamalærtað.
Elskaðu nærskjól og náttúrujræði.
Nilhesta, Kínverja og háskólajólk,
elskaðu grásleppu kossa og kvœði
karja og lýsi og skójir og mjólk.
Elskaðu lijið i öllum þess myndum
eins og það birtist á jörðinni hér
í hörmum og gleði og sœlu og svndum
syngdu uns máttur í lungunum þver.
Elskaðu varir á ungmeyjum Jríðum
augun sem glampa aj jáðmlagaþrá,
elskaðu smáblóm i íslenskutn hlíðum
Alajbssverksmiðju og hajdjúpin blá.
E.t.v. mun okkur reynast erfitt
að standa við þessi fyrirheit
meðan framkvæmdum er ekki
lokið, en tíminn verður að leiða
það í ljós.“
Ástæðulaust er að fara fleiri
orðum um þetta í bili, en ekki er
að efa að Svarfdælir hafa
mikinn áhuga á að þessi verslun,
svo glæsilega búin sem hún
sýnist ætla að verða, komi til
með að hafa verulega breidd í
vöruúrvali og að verðlag verði í
líkingu við það sem hagstæðast
býðst á Akureyri.
Við höfum notað hér nafnið
Svarfdælabúð um nýju verslun-
ina.
í tillögusöfnun sem auglýst
var í síðasta blaði Norðurslóðar
komu fram mýmargar tillögur
um sérnafn á búðina. Mjög
margar tillögurnar höfðu sem
forlið eða eftirlið nöfn eins
og kjör, kaup, val, bær, vík, dal,
bakki o.s.frv. Það varð ofan á
að velja nafnið Svarfdælabúð.
Við höfum það fyrir satt, að
aldrei fyrr hafi bygging verið
kennd við byggðina Svarfaðar-
dal eða íbúð hans.
Við endum þessa stuttu
samantekt með þeirri ósk að
íbúar þessa byggðarlags verði
ánægðir með nýju verslunar-
búðina sína og að viðskipta-
menn og starfsfólk finni það
jafnan að þeir eru heima hjá sér í
Svarfdælabúð á Dalvík.
a?7iniJecpzr~ JbaéÆcr'y?c///cc4n, edaz/
o/?cs/~ samc/e/
á/ ááarA.'/<? cs/fá
r p*
WJ-
Þökkum innilega ö/lum þeim, sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útjör föður
okkar, tengdaföður, afa, og langafa
Vilhelms Antons Antonssonar
Dalvík
Pálrún Antonsdóttir
Hallgrímur Antonsson
Freyja Antonsdóttir
Petra S. Antonsdóttir
íngvi B. Antonsson
Eyvör Stefánsdóttir
Hafsteinn Sigurjónsson
Herbert Jónsson
Valgerður Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar innilegustu þakkir fyrir sýnda samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
Björns Júlíussonar
Snjólaug Hjörleifsdóttir
Hjörleifur Björnsson
Rósa Björnsdóttir
Sigrún Björnsdóttir
Júlíus Björnsson
Jófríður Björnsdóttir
Daníel Björnsson
Árni Björnsson
Ólafur Björnsson
barnabörn og
Jóhanna M. Björnsdóttir
Björk Guðmundsdóttir
Ámann Sigurjónsson
Valgeir Stefánsson
Lísbeth Björnsson
Kristinn Helgason
Guðný Guðlaugsdóttir
Þórey Agnarsdóttir
Lilja Gunnarsdóttir
barnabarnabörn.
Þökkum augsýnda samúð og hlýhug við andlát
og jarðarför föður okkar og tengdaföður,
Gests Vilhjálmssonar
Bakkagerði
Sérstakarþakkir til starfsfólks og íbúa Dalbœjar,
Dalvík.
Sigurgeir Sigfússon
Sigríður Magnúsdóttir
Hlíf Gestsdóttir
Björn Gestsson
Ríkharður Gestsson
Jóhanna María Gestsdóttir Grétar Guðjónsson
Kristín Gestsdóttir Friðþjófur Þórarinsson
og aðrir aðstandendur.
NORÐURSLÓÐ - 5