Norðurslóð - 21.03.1985, Síða 8

Norðurslóð - 21.03.1985, Síða 8
Brautryðjandi á Dalvík Fj ölritunarþj ónusta Tímamót Skírnir Þann 10. mars var skírð Svandís. Foreldrar hennar eru Frið- leifur Ingi Brynjarsson (Friðleifssonar) Ásvegi 9, Dalvík og Þórunn Óttarsdóttir Hrísalundi 2e, Akureyri. Afmæli Þann 24. mars verður 75 ára Björgvin Jónsson útgerðar- maður og skipstjóri í Mörk, Karlsbraut 22 á Dalvík. Norðurslóð sendir honum afmæliskveðjur til Spánar. H.E.Þ. Andlát Þann 26. febrúar andaðist á Akureyri Björn Júlíusson fyrrverandi bóndi í Laugahlíð. Hann var fæddur 14. apríl 1903 í Syðra- Garðshorni. Hann var búfræðingur frá Hólum í Hjaltadal, en hóf síðan iðnnám og varð meistari í pípulagningum og vann við það fag hart nær 3 áratugi og bjó þá á Akur- eyri. Hann kvæntist 1933 Snjólaugu Hjörleifs- dóttur og eignuðust Jrau 9 börn, synina Hjör- leif, Júlíus, Daníel, Arna og Ölaf og dæturnar Jóhönnu Maríu, Rósu, Sigrúnu og Jófríði. Árið 1958 fluttu hjónin með yngstu synina 3 hingað úteftir og hófu búskap í Laugahlíð, eignarjörð Jakobs Frímans- sonar. Þar bjuggu þau í lOár, er þau fluttu aftur til Akureyrar. Mörg síðustu árin hafa þau búið á Dvalarheimilinu Hlíð þar í bæ. Björn og þau hjón bæði voru með afbrigðum vinsæl og vel látin hvar sem þau fóru og söknuðu þeirra margir, er þau flutu á brott héðan í annað sinn. Þau voru sannir Svarfdælingar og héldu stöðugt tryggð og góðum samböndum við fólk hér út frá. Björn var jarðsettur á Akureyri 8. mars að viðstöddu miklu fjölmenni. Börn hans voru þar öll viðstödd svo og mörg barnabörn og mikill fjöldi Svarfdælinga. H E Þ Þann 1. mars andaðist Gestur Vilhjálmsson bóndi Bakkagerði. Hann fæddist 27. desember 1897 í Jarðbrúargerði. Árið 1915 kvæntist hann Sigrúnu Júlíusdóttur frá Syðra-Garðs- horni og eignuðust þau 5 börn. Mest allan sinn búskap bjuggu þau hjón í Bakkagerði, en Sigrún lést 1976. Gestur var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 9. mars en jarðsettur í Tjarnarkirkjugarði. Þann 5. mars andaðist Vilhelm Anton Antonsson, sjómaður. Hann fæddist 11. spetember 1897 á Hamri. 1921 kvæntist hann Sólveigu Hallgrímsdóttur frá Ytra-Garðs- horni og eignuðust þau 5 börn. Sólveig lést 1934. Anton var jarðsunginn í Dalvíkurkirkju 12. mars. Þann 7. mars lést af slysförum Snorri Guðlaugur Árnason. Hann fæddist í Reyk- holti, Dalvík, 17. janúar 1943. Var hann fráskilinn og átti 4 börn. Snorri var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 14. mars. J.H.Þ. Sigmar. Cuðmundur. Um síðustu áramót stofnuðu Sigmar Sævaldsson og Guðmundur Ingi Jónatansson ijölritunarstofu. Fyrirtækið heitir Fjölriti s/f og er starfsemin til húsa á neðri hæð húss Sigmars að Mímisvegi 16. Til að fræðast um starfsemina hittum við þá félaga að máli. - Þeir sögðust hafa kynnt sér rekstur svona fyrirtækja víða um land. í ljós hefði komið, að á sambærilegum stöðum og hér væru fjölritunarstofur sem hefðu næg verkefni og rekstrargrund- völl. I upphafi gerðu þeir ráð fyrir að aðeins yrði um kvöld- og helgarvinnu að ræða hjá þeim, en verkefnin hafa verið það mikil, að Sigmar vinnur hluta úr degi líka. Þegar við komum til þeirra voru í vinnslu nótubækur fyrir hafnarvogina. Hver nóta var. i Ijórriti og sjálfkalkerandi pappír notaður. Síðan voru 50 sett heft saman í bækur. Þrjú ritin úr hverju setti var hægt að rífa úr, en eitt fast í bókinni. Ýmislegt sýndu þeir okkur af því sem þéir hafa verið að gera. Þar má netna söngtexta fyrir árshátíðir hér í vetur. Þetta var mjög skemmti- legt handbragð og gilti sem aðgöngumiðar um leið. - Flest stærstu fyrirtæki og stofnanir hér á Dalvík sögðu þeir að skiptu við þá. Nefndu þeir sem dæmi Sparisjóðinn, Kaupfélagið, Dalvíkurbæ og Bókhaldsskrifstofuna. Smá verkefni hafa þeir unnið fyrir aðila utan Dalvíkur. - Aðspurðir töldu þeir að stofan væri vel tækjum búin og þeir myndu leggja metnað í að veita góða þjónustu. Hinsvegar bentu þeir á, að ýmsa sjálvirkni við vinnslu væri hægt að auka. Það myndu þeir gera eins fljótt og aðstæður leyfðu. Þeir sögðust vera bjartsýnir á að þessi rekstur mundi ganga. Það væri varla hægt annað miðað við hvernig þetta færi af stað. Eftir að hafa skoðað aðstöð- una og hvað þeir hafa gert, er ekki hægt annað en vera bjart- sýn fyrir þeirra hönd. Það berað fagna svona framtaki og setja fram þá von, að fyrirtækið dafni. Áuðvitað ræður mestu að fólk og fyrirtæki hér í byggða- laginu notfæri sér þessa þjón- ustu. í raun er það eina trygg- ingin fyrir framtíð hennar. Við hjá Norðurslóð skiptum eðlilega mikið við prentsmiðju en því miður ráða þeir ekki yfir tækjum til prentunar í dagblaðs- broti. Meðan við höldum því broti og stórvirkari tæki koma ekki hér, verðum við að njóta ágætrar þjónustu núverandi prentsmiðju þótt í öðru byggð- arlagi sé. Sjörnuspeki II Það eru eiginlega síðustu forvöð á þessum vetri að glöggva sig á stjörnuhimninum. Það er ekki fulldimmt fyrr en um níuleytið á kvöldin og um fótaferðatíma á morgnana er orðið allt of bjart Stjörnumerkið Óríon ásamt Síríus neðs til vinstri. Kvenfélagið Tilraun 70 ára Kvenfélagið Tilraun í Svarfaðardal verður 70 ára 1. apríl næstkomandi. Það var stofnað i Þinghúsinu á Grund I. apríl 1915. Fyrsti formaður þess var frú Sólveig Pétursdóttir Eggerz á Völlum, meðstjómendur ólöf Eldjárn og Sigrún Sigurhjartar- dóttir báðar á Tjörn. Þessi tilraun tókst vel og lifir lelagið enn góðu gengi og mun haida upp á afmælið á fæðingarstað sínum föstudaginn 28. mars með kaffisamsæti og dansi. Allir félagar, nýir og gamlir, eru velkomnir á samkomuna með mökum sínum. Sólveig. Olöf. Sigrún af degi til þess að stúdera himin- hvelið. En þó, frá klukkan níu er góð stund eftir til háttatíma. Menn sjá nú eflaust að frá þvi fyrir mánuði síðan hefurgangur stjarnanna breyst að því leyti að þær hafa færst mikið til vesturs miðað við sama tíma sólar- hringsins heldur en þá var. Tökum Síríus. Nú er hún yiir miðjum Skíðadalnum milli níu og hálf tíu og sest vestan við Stólinn líklega svona um kl. 10 frá Dalvík séð. Lítum svo á hið ægifagra stjörnumerki Orion, veiðimann- inn mikla. Belti hans mynda þrjár áberandi stjörnur, talsvert hátt á suðurhimninum. Á íslensku alþýðumáli eru þær kallaðar Fjósakonurnar. En allt stjörnu- merkið er miklu stærra og í því eru t.d. tvær með albjörtustu stjörnum himinsins, Betelgás uppi á vinstri öxl veiðimannsins og Rigel niður á hægra hnéi hans. Menn taki eftir sverðinu, sem hangir niður úr belti Orions (Fjósakonunum). Og svo er aðeins að minnast á reikistjörnuna Venus. Enn er hún sýnileg hér sem kvöld- stjarna. En hún hefur breytt ferli sínum mikið þennan síðasta mánuð. Frá Dalvík séð sest hún á Böggvisstaðafjallið á tíunda tímanum. Fólki er ráðlagt að horfa nú vel á þessa undurfögru ástastjörnu, því senn hverfur hún alveg sjónum okkar í bili og sést ekki aftur að gagni fyrr en í september og þá sem morgun- stjarna. Það verða ekki fleiri lexíur í stjörnuskoðun á þessum vetri. Vorið kemur bráðum og þá hverfa allar stjömur í birtu sólar. Kannske við hefjum aftur kennsluna með nýjum vetri.

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.