Norðurslóð - 21.05.1985, Qupperneq 1
Svarfdælsk byggð & bær
9. árgangur Þriðjudagur 21. maí 1985 5.tölublað
Ný túristaparadís
Út - Eyjafjörður
„Dal einn vænan ég veit . . .“
Líklegt er að góða veðrið að undanförnu hafi leitt huga fólks að
ferðalögum. Nýlega birtust niðurstöður athuganna á ferðavenjum
fólks. Þar kom í ljós að Islendingar ferðast um eigið land talsvert meira
en hingað til hefur verið talið. Þjónusta við ferðamenn er vaxandi
atvinnugrein víða um land. í umræðu um þessi mál hefur oftast verið
talað um erlenda ferðamenn en greinilegt er miðað við umrædda
könnun að þjónusta við innlenda ferðamenn er ekki síður mikilvæg.
Ferðamannaþjónusta hefur ekki verið stór þáttur í atvinnulífinu hér
á Dalvík. Með tilkomu Sæluhússins hefur aðstaða til að veita
ferðamönnum þjónustu batnað enda hefur greinileg aukning orðið á
ferðamönnum hér á síðustu árum.
Norurslóð hafði samband við nokkra þá sem að þessum málum
starfa og bað þá að segja álit sitt á horfum í þessum málum nú í sumar.
Júlíus Snorrason hjá Sælu-
húsinu sagði að þetta liti vel út
hjá þeim. Bókanir í gistingu eru
þrefalt fleiri nú en á síðasta ári.
Bókanirnar væru aðeins vís-
bending en ekki væri hægt að
segja fyrir um þetta fyrr en
ferðamennirnir væru komnir.
Júlíus sagði að þessi aukning
væri meðal annars vegna þessað
á vegum tveggja ferðaskrifstofa
væru nú skipulagðar ferðir með
viðkomu hér á Dalvík.
Ferðaskrifstofa Guðmundar
Jónassonar verður með ferð þar
sem gist verður hér á hóteli eina
nótt.
B.S.Í. verður líka með nýja
ferð á sínum vegum þar sem gist
verður hér í þrjár nætur. Boðið
er upp á svefnpokapláss í
rúmum. Tilgangurinn erað hafa
þetta eins ódýrt og frekast er
unnt. Skoðunarferðir verða
síðan farnar bæði vestur um til
Siglufjarðar og austur um til
Akureyrar og Mývatns.
Þessar ferðir eru árangur af
því átaki sem Júlíus hefur gert í
að fá ferðaskrifstofur í lið með
sér að auka komu ferðamanna
hingað. Undirtektir hafa verið
góðar. Meðan þetta átak
stendur yfir hefur verið boðið
hagstætt verð á ýmsri þjónustu
m.a. gistingu í góðri samvinnu
við Dalvíkurbæ.
Ferðamönnum verður boðið
upp á ýmislegt meðan þeir
stansa við. Til dæmis verður
hópum boðið að skoða fisk-
vinnslufyrirtæki, sem útlend-
ingum þykir forvitnilegt. Þá
getur fólk farið í skoðunar-
ferðir til Hríseyjar og í sjóferðir
hér á firðinum og rennt fyrir
fiski ef því er að skipta. Þá
verður boðið upp á hesta til leigu
ír samvinnu við fólk inn á
Arskógsströnd. Þrisvar í viku
mun Ævar sérleyfishafi verða
með ferðir hringinn í Svarfaðar-
dal og miðnætursólarferðir í
Múlann eftir þörfum.
í fyrra skipulagði Jóhann
Friðgeirsson tveggjadaga htsta-
ferð úr Skagafirði yfir Heljar-
dalsheiði og sá Sæluhúsið um
fólkið hér á Dalvík. Ferð þessi
tókst mjög vel og verður reynt
að halda þessu áfram og fjölga
ferðum.
Júlíus sagði að lokum að það
væri bæði tímafrekt og kost-
naðarsamt að vinna Dalvík sess
sem áningastað fyrir ferðamenn.
Þótt enganveginn hefði verið
gert nóg væri greinilegur
árangur kominn í ljós. Starfs-
fólk hjá Sæluhúsinu verður að
minnsta kosti 12 í sumar eða
tvöfalt fleiri en í fyrrasumar.
Rútuferðir.
Ævar Klemensson sérleyfis-
hafi taldi að starfsemin hjá sér
yrði með svipuðu sniði og siðast-
liðið sumar. Þeir leigja bifreiðar
sínar til hópaksturs og nú eru
svipaðar fyrirfram bókanir og í
fyrra. Föst viðskipti við ferða-
skrifstofur er ekki nú einsog var
fyrr á árum.
I sumar verða tvær ferðir á
dag milli Akureyrar og Dal-
víkur alla virka daga. Frá
Dalvík verður farið kl. 9 og kl.
15. Frá Akureyri afturá móti kl.
11 og kl. 17. Þrisvar í viku eru
ferðir til Siglufjarðar mánu-
daga, miðvikudaga og fimmtu-
daga. Frá Siglufirði er farið
morguninn eftir. Eins og áður er
komið fram verður boðið upp á
hringferð í Svarfaðardal þrjá
daga vikunnar, mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga. Lág-
marksþátttaka eru þrír.
Ævar sagði að í fyrra hefði
íjölgað mikið þeim ferða-
mönnum sem komu frá Akur-
eyri með áætluninni kl. 11 og
fóru síðan aftur kl. 15. Ferðin
um Svarfaðardal verður tengd
þessum tíma og taldi Ævar
góðan möguleika að draga að
ferðamenn með þessu móti.
Sérleyfishafar hafa samræmt
tíma ferða sinna að undanförnu
og aukið samvinnu sín á milli
meðal annars með útgáfu svo-
kallaðra tímamiða. Þannig
getur fólk farið á milli bíla og
náð meiri fjölbreytni í ferðum.
Þetta hefur mælst vel fyrir hjá
erlendum ferðamönnum en
einnig er vaxandi þátttaka inn-
lendra ferðamanna.
Samstarf sérleyfishafans og
Sæluhússins hefur verið gott og
var í fyrra boðið upp á ferða-
pakka til Dalvíkur sameigin-
lega og verður þeirri tilraun
haldið áfram í sumar.
Ævar sagði að tjaldstæðið sem
opnað var í fyrrasumar væri til
sérstakrar fyrirmyndar. Þar
væri aðstaða sem værieinhversú
besta á landinu. Strax í fyrra
heðfi mátt merkja aukningu
vegna þessarar góðu aðstöðu og
þar sem þetta hafi spurst vel út
mætti vænta aukningar í ár.
Alþjóðlegur snúrustaur.
Gunnar Jónsson eftirlits-
maður á tjaldstæðum sagði að
tjaldstæðið hefði verið tekið í
notkun í fyrra sumar. Aðstæðan
væri eins og best verður á kosið.
Heitt vatn á svæðinu. Snyrtingar
og heit sturta og síðan hefði
hann sett upp snúrustaur, sem
reyndist afar vinsæll. Þessa
snúrustaurs væri sérstaklega
getið í erlendum auglýsinga-
bæklingum. Annars er tjald-
stæðið komið á alþjóðalista yfír
bestu tjaldstæði hér á landi.
Frh. á bls. 6
Fagur fiskur í sjó, fiyðra 217 kg. veiddist á Björgúlfi. Anton Guðlaugssón
fiskmatsmaður metur skepnuna.
Vorið er komið
og grundirnar gróa
Við getum ekki verið svo van-
þakklátir þegar við gefum út maí-
blað 1985 að við minnumst ekki
einu orði á það ágætistíðarfar,
sem við höfum notið hér á
norðurhjaranum nú um langt
skeið.
Það er skemmst frá því að segja
að allt síðastliðið ár og það sem
af er þessu hefur tíðin verið
einmunablíð. Sumarið í fyrra
var í bestu sumra röð og
veturinn var enginn vetur.
Og nú er komið vor og túnin
orðin græn upp úr miðjum maí.
Það er afskaplega gaman að sjá,
hve fallegur og heilbrigður
gróðurinn kemur undan vetrin-
um. Nú talar enginn maður um
kal í túni og allur trjágróður er
sprelllifandi, hvert einasta brum
upp í efsta topp og út í hvern
greinarenda. Það má mikið vera
ef tré vaxa ekki drjúgt á þessu
sumri.
Þvílíkur munur ef borið er
saman við hörmungana fyrir
tveimur árum síðan, vorið 1983,
þegar snjórinn hvarf ekki úr
Holtsreitnum fyrr en í byrjun
júlí. í einu tilteknu lækjargili við
bæ í miðsveitinni hvarf snjórinn
núna 14. maí en þá 24. júní. 40
daga mismunur, það skiptir
töluverðu máli.
Ekki þarf að taka fram að hey
eru alstaðar yfirfljótanleg og nú
eru geldneyti að koma út á
ýmsum bæjum. Þá er það sauð-
burðurinn. Blaðið hefur haldið
uppi spurnum um hvernig
gangi, og yfirleitt er alstaðar
sama sagan: Ágætlega takk,
alveg prýðilega, lömbin mörg og
hraust og eru nú farin að una sér
um blómgaða bala (og börnin
að leika sér að bílum og jarð-
ýtum á hól).
En svo að ekkert sé nú undan-
dregið, þá hafa nokkrir kvartað
undan því að gemlingum hafi
gengið illa að bera og þó
sérstaklega þeim, sem í haust
voru keypt austan úr Þistilfirði.
Þannig hafa nokkur lömb mis-
farist.
„Snákurinn sér leynir í fríðleiks
paradís.“
Þannig kvað Steingrímur
Thorsteinsson um þá alkunnu
staðreynd, að aldrei getur neitt
verið fullkomið eða gallalaust.
Alltaf þarf einhversstaðar að
leynast angur og mein, þó að allt
virðist gott og fullkomið á
yfirborðinu.
Það er riðuveikin, sem nú er
snákurinn í Paradís vorsins.
Nýlega sá blaðamaður lista hjá
riðueftirlitsmanni um kindur
fallnar úr veikinni síðan í haust.
Þær voru 108 á 17 bæjum í
sveitinni. Sumstaðar ein, sum-
staðar 2-3 og allt upp í 12 á bæ.
Hún er sem sé enn við sama
heygarðshornið naðran sú.
Við göngum svo léttir í lundu. Skátar á leið fram í sveit.