Norðurslóð - 28.01.1988, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 28.01.1988, Blaðsíða 1
Svarfdælsk byggð & bær 12. árgangur Finuntudagur 28. janúar 1988 Ráðherra flytur ávarp. Sitjandi f.v. Gunnar Aðalbjörnsson, Trausti Þorstcinsson, Sigurður Hallmarsson námsstjóri, Sólrún Jcnsdóttir skrifstofustj. í menntamálaráðuneytinu og Kristján Þór Júlíusson. Sér í hnakka f.v. Guðlaugar Björnsdóttur og Svanfríðar Jónasdóttur. Fiskiðmiám í haust - Menntamálaráðherra heitir stuðningi sínum Menntamálaráðherra Birgir Isleifur Gunnarsson var ásamt föruneyti í heimsókn hér á Dalvík á föstudaginn í síðustu viku. Ráðherrann skoðaði frystihúsið og húsnæðið sem fást mun á leigu fyrir fiskiðn- nám í Allahúsinu. Þá var skól- inn heimsóttur og gekk ráð- herrann þar um sali. Að lokum var boðið til kaffidrykkju í Sæluhúsinu og var bæjarráð, skólanefnd, nefnd um sjávrút- vegsfræðslu á Dalvík og ýmsir aðrir gestir mættir. Þar voru skólanum færðar stór gjaFir frá nokkrum fyrirtækjum hér í bæ og menntamálaráðherra hét mönnum fullum stuðningi sín- um og ráðuneytisins við frekari uppbyggingu sjávarútvegs- náms á Dalvík. Svo sem kunnugt er hefur, á undanförnum misserum, verið unnið að auknum námsmöguleik- um á sviði sjávarútvegsfræðslu hér á Dalvík. Nefnd á vegum bæjarstjórnar hefur að þessu unnið og einnig önnur á vegum menntamálaráðuneytisins. Raun- ar var fyrsta skrefið stigið með starfrækslu 1. stigs náms stýri- manna haustið 1981. í fyrra haust hófst 1. stigs nám og nú er í undir- búningi fiskiðnnám. Ráðuneytis- nefndin er um þessar mundir að skila af sér til ráðherra og munu þar koma fram tillögur hennar um hvernig náminu verður háttað. Eins og þetta er nú, er stýri- mannanámið framhaldsbraut við Dalvíkurskóla með samþykki menntamálaráðuneytisins og lík- legt er að svo verði einnig með fyrstu skrefin varðandi fiskiðn- námið. Hins vegar er gert ráð fyr- ir að svona nám fái fastan sess innan ramma laga um framhalds- skóla sem hugsanlega verða sett á Alþingi í vetur. Þar með væri kominn sérstakur framhaldsskóli með sjálfstæða yfirstjórn. í ávarpi sem Birgir ísleifur Gunnarsson flutti í kaffiboðinu hér lýsti hann yfir stuðningi sín- um við þær hugmyndir sem kynntar hafa verið fyrir honurn varðandi uppbygginguna hér. I fjárlögum þessa árs er ekki gert ráð fyrir fjármagni til fisk- iðnfræðslunnar en ráðherra hét heimamönnum liðveislu til að vinna því máli brautargengi, svo kennsla gæti hafist næsta haust. Annars hófst kaffisamsætið með því að Trausti Þorsteinsson skólastjóri bauð menn velkomna og lýsti þeirri vinnu sem fram hefur farið varðandi sjávarút- vegsfræðslu á 'Dalvík. Hann las einnig ályktun sem Skipstjórafé- lag Norðlendinga hefur sent frá sér varðandi skipstjórnarbrautina og getið er hér um á öðrum stað í blaðinu. Gunnar Aðalbjörnsson gerði því næst nánari grein fyrir stöðu mála og afhenti síðan ráðherra gjafabréf frá fyrirtækjum og stofnunum sem nefnd um sjávar- útvegsfræðslu á Dalvík hafði borist. Hér eru á ferðinni stór gjafir. Útgerðarfélag Dalvíkinga hf. gefur video plotter, Bliki hf., radar, Rán hf. og Stefán Rögn- valdsson hf., dýptarmæli, Har- aldur hf., loran og Otur hf., sömuleiðis loran. Sparisjóður Svarfdæla gefur síðan 3 tölvur með fylgihlutum. Samtals eru gjafirnar að verðmæti yfir eina milljón króna. í gjafabréfunum segir meðal annars. „Tilgangur gjafar þessarar er að treysta í sessi og efla sjávarútvegsfræðslu á Dalvík og henni fylgir sú ósk að frekari skref verði stigin í upp- byggingu sjávarútvegsfræðslu á Dalvík.“ Menntamálaráðherra flutti síð- an ávarp eins og fyrr segir og afhenti skólastjóra gjafabréfin og fól honum umsjón þessara tækja. Ráðherra þakkað þessar stórmann- legu gjafir og taldi þær bera vott um hug heimamanna til þessarar uppbyggingar og þess frumkvæð- is sem héðan hefði komið. Gjafir vedumuðanna 1. tölublaö Veðurguðirnir voru okkur misk- unnsamir anno 1987 eftir holdgan vors herra. Árið var að vísu ekk- ert metár en veturinn var mildur, vorið gott, sumarið ágætt og haustið gjöfult og meiri berja- sulta í búrhillunum en áður hefur sést. Matarskattur og óáran í efnahagslífi er manna verk, veðurguðir eiga þar enga sök. Úrkomumælingarnar voru gerðar á Tjörn 18. árið í röð og gáfu eftirfarandi niðurstöður: Mán. Úrkomumagn Úrkomudagar Jan. 4,3 mm 4 dagar Feb. 17,2 mm 13 dagar Mars 41,8 mm 22 dagar Ap. 25,7 mm 14 dagar Maí 2,9 mm 4 dagar Júní 10,1 mm 4 dagar Júlí 56,5 mm 17 dagar Ag. 21,2 mrn 12 dagar Sept. 80,5 mm 22 dagar Okt. 76,8 mm 17 dagar Nóv. 59,8 mm 21 dagar Des. 48,4 mm 14 dagar Alls 445,2 mm 164 dagar Hvað úrkomu varðar var hún í tæpu meðallagi, en ársmcðaltal undanfarinna áratuga hefur verið unt 490 mm. Úrkomudreifingin á árið var hins vegar fremur óvenjuleg. Janúar og febrúar voru óvenju þurrir en september alveg óvenju votviðrasamur. Janúar er úrkomusnauðasti jan- úarmánuður sem komið hefur síðan mælingar hófust á Tjörn 1969. Venjulegt úrkomumagn í þeim mánuði er 50-60 mm. Mesta sólarhringsúrkoman mældist 19. nóv. 23.7 mm. Úrfellið hófst nteð rigningu sem svo gekk yfir í slyddu og síðan sjókomu. Alautt var orðið á láglendi 5. maí en fyrsti haustsnjórinn féll 6. okt. Fram að því hafði haustið verið óvenju hlýtt t.d. komu aldr- ei næturfrost í september en það er mjög óvenjulegt í Svarfaðar- dal. Kartöflurnar komu því bæði bústnar og í miklu magni upp úr moldinni. Þeir sem stunda úrkomumæl- ingar fyrir Veðurstofuna senda henni skýrslur mánaðarlega. Auk mælitalnanna fylgir hverri skýrslu smá umsögn um veðurfar undan- farandi mánaðar. Hér á eftir eru birtar þessar mánaðarumsagnir síðasta árs frá Tjörn. Janúar: Þetta hefur verið mjög óvenjulegur janúarmánuður. Logn og stillur flesta daga. Mikil svellalög og hálka á vegum. Úrkomulaust og heiðskýrt mik- inn hluta mánaðarins. Bændur óttast kal á vori komanda vegna langvarandi svellalaga. Febrúar: Einmuna tíð allan Afrekskonur í fiskiðnaði. F.v. Jónína Ketilsdóttir „gæðadrottning“ Frystihússins á Dalvík 1987, Una Steingríms- dóttir, Hrefna Haraldsdóttir og Sigríðu^ Hermatin&dóttir sema allar fengu sérstaka viðurkenningu fyrir vel unnin störf. mánuðinn. Töluvert hafa svella- lög minnkað því hláka hefur ver- ið af og til. Stillur og mild veðr- átta og líkist mánuðurinn fremur apríl en febrúar. Snjór í giljum og lautum. Svellalög enn nokkur. Mars: Fram í miðjan mars var tíðin einmuna góð, hlýindi og sunnanátt, brum var farið að lifna á einstaka tré og svellin að mestu horfin. en þá brá hann til norðanáttar og kólnaði. 20. mars var norðan stórhríð og grenjandi stórhn'ð aftur þann 31. Mikill snjór yfir öllu um mánaðarmót. Apríl: Mikill snjór í byrjun og allt fram í miðjan mánuð. Þá hlýnaði heldurog blotaði. í mán- aðarlok var snjór á láglendi að mesu hofinn nema í lautum og giljum. Jörð virðist koma óskemmd undan sjó, en of snemmt er að spá nokkru um kal. Maí: Aðeins fyrstu daga mán- aðarins mældist einhver úrkoma. Síðan ekki dropi úr lofti. Hita- bylgja gekk yfir í kring um 20. maí. Sól og hlýindi hvern dag. Þá hljóp vöxtur í ár og læki og gerði tölverðan usla á nokkrum túnum og vegum. I lok mánaðar voru tún hins vegar orðin það þurr að það stóð grasvexti nokkuð fyrir þrifum. Kal er mikið í túnum hér um slóðir en mismikið þó, eftir því hvernig svellin lágu síðast lið- inn vetur. Júní: Mánuðurinn var hlýr nema fyrsta vikan. Þá var fremur kalt. Spretta tók við sér í byrjun mánaðar en í lokin var jörð orðin mjög þurr og háði það sprettu. Sláttur er aðeins að hefjast hér um slóðir nú um mánaðarmótin og spretta misgóð. Vel lítur út með garðávexti þar sem vökvað er. • Júlí: Sláttur byrjaði almennt 2. júlí en þurrkurinn kom þann 9. og var mikið heyað til 16. júlí. Síðan gekk heyskapur fremur hægt úr mánuðinn. Veður fremur hlýtt og góðar horfur með berja- sprettu. Ágúst: Tíðin var frentur leiðin- leg til heyskapar eftir miðjan mánuð. Vel hlýtt var þó allan mánuðinn. Margir hirtu unt og eftir ntiðjan ágúst. Berjaspretta er mjög góð og sömuleiðis spretta garðávaxta. I lok mánað- ar stóðu kartöflugrös óskemmd og engin næturfrost enn. September: Mjög votviðra- samur mánuður og rigningar flesta daga, þó engar stórrigning- ar. Næturfrost hafa engin komið ennþá og gróður lítið sölnaður fyrr en nú síðustu daga. Upp- skera garðávaxta mjög rnikil og ber í allra mesta lagi og óskemmd í mánaðarlok. Flestir luku hey- skap í ágúst, en þeir fáu sem ekki hirtu þá, hafa verið í mestu vand- ræðum að þurrka síðustu hána, vegna votviðris. Október: Veðrátta var köld meiri hluta mánaðarins, en síð- ustu dagana hlýnaði og snjó tók upp þannig að í mánaðarlok var aftur komin eðlileg haustveðr- átta. Nóvember: Það er skemmti- legt frá því að segja að tíðin í nóvember var alveg einstök mið- að við árstíma. Hún var eins og mild haustveðrátta, auð jörð og hiti frá 0 og upp í 10-12 stig. Um mánaðarmótin var snjór aðeins í háfjöllum. Desember: Áfram sama góða tíðin. Snjólaust að inestu fram undir jól og oftast frostlaust. í lok mánaðar var þó kominn snjór með norðanátt og ekta vetrar- veðri. Góð beit var fyrir hross fram undir mánaðarmót. Gleði- legt nýtt ár. Á. Hj. Q o 9 : v <j o u

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.