Norðurslóð - 28.01.1988, Blaðsíða 6

Norðurslóð - 28.01.1988, Blaðsíða 6
Tímamót Afmæli Þann 20. janúar varð níræð Anna Arngrímsdóttir á Dalvík. Hún er nú vistmaður á Dalbæ, heimili aldraðra. Það 20. janúar varð sjötug Lilja Röngvaldsdóttir frá Dæli, áður húsfreyja á Hóli fram, nú búsett á Dalvík. Þann 26. janúar varð 75 ára Kristinn Rögnvaldsson á Hnjúki, sbr. afmælisgrein í blaðinu. Andlát 10. desember 1987 lést á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra, Dalvík, Sigurlaug Sölvadóttir. Sigurlaug var fædd í Kjartacnstaðakoti í Skagafirði 7. mars 1906. Foreldrar hennar voru Sigurjón Sölvi Jóhannsson og Sigurlaug Björnsdóttir. 11 börn þeirra hjóna komust til fullorð- insára og af þeim eru fjögur enn á lífi, Haraldur, Sigríður sem býr á Dalbæ. Þórhildur og Jóhann. 1929 gekk hún í hjónaband með Jóni Sveinbirni Vigfússyni frá Dalvík og bjuggu þau í Sæ- landi meðan bæði lifðu. Sveinbjörn lést 1959. Þau hjón eiguðust fimm börn: Sverri er lést 1983, Vigfús er lést 1981, Jónínu Hólmfríði er lést fárra mánaða gömul og tvær dætur, Ástu Jón- ínu og Birnu sem báðar búa á Dalvík. Sigurlaug flutti inn á Dalbæ sumarið 1979, þegar dvalarhei- milið var tekið í notkun. Sigurlaug var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 19. desember og hlaut legstað við hlið manns síns í Upsakrikjugarði. JHÞ. Sundskálinn lifiiar við Að eignast þak yfir höfuðið Blokkhús við Lokastíg Einhvern næstu daga ætlar oddviti Svarfaðardalshrepps að hóa saman fólki til athafnar í gamla, góða Sundskálanum okkar. Blaðið getur ekki beðið eftir því, en vill skýra Iítillega frá tilefninu. Það á nefnilega að „opna" skálann eftir gagngera lagfæringu, sem staðið hefur í heilt ár eða meir. Það má víst segja að hann sé genginn í endur- nýjun lífdagann svo notað sé gamalt orðalag eða að hann sé að rísa úr öskunni eins og fuglinn Fönix svo vitnað sé til grískrar goðsögu. Málið er það að nú er lokið miklum áfanga við heildarum- bætur á sundskálahúsinu, sem kominn var í mikla niðurníðslu, svo að tvísýnt þótti um að gerlegt væri að hressa hann við aftur. Á sínum tíma var þó tekin ákvörðun um að það skyldi gert og árangurinn er nú kominn í ljós. Að þessu sinni skal þess aðeins getið að búið er að byggja nýja og mjög fullkomna búningsklefa við Skálann og koma upp vold- ugu „súgþurrkunarkerfi" í sjálfu laugarhúsinu til þess að losna endanlega við rakann sem frá öndverðu hefur verið til ama og tjóns byggingunni og gestum hennar. Þetta er mikið verk og dýrt, kostar þegar upp verður staðið, búið að setja klæðingu og einangrun utan á veggi og sitt- hvað fleira, eitthvað á bilinu 5-10 milljónir íslenskar verðbólgu- krónur. Hver kostar svo þetta? munu einhverjir spyrja. Svarið er, að stóri bróðir, íslenska ríkið, á að kosta helminginn og svo eiga heimaaðilar, Svarfaðardals- hreppur og Dalvíkurbær að skipta hinum helmingnum bróðurlega á milli sín. Nú á sem sagt að opna Skálann tii notkunar að nýju og er þess að vænta að menn notfæri sér þessa nýju og fullkomnu aðstöðu vel og rækilega. Strax nú um mánaða- mótin mun Húsabakkaskóli hefja þar skyldukennsluna og síðan á Skálinn að vera opinn almenningi einhverjar stundir strax nú í vet- ur og einkum þó þegar vorar og veðrin gerast blíð. Má trúlegt þykja að ungdómurinn í sveit- inni, og reyndar ekki síður á Dalvík, muni sjá sér leik á borði og baða sig í laugavatni og sól- skini á þessum fagra stað úti í grænni náttúrunni á sumri komanda og um mörg ókomin ár. Því Sundskáli Svarfdæla, þessi 60 ára merkisbygging á að standa um langa framtíð öldum og óbornum kynslóðum Svarf- dæla til gagns og gleði og and- legrar og líkamlegrar heilsubót- ar. Við vonumst svo til að geta greint betur frá málinu í næsta blaði. Laugardaginn 16. janúar voru kaupendum afhentar 10 íbúðir í blokkhúsi, sem risið er við nýja götu, Lokastíg, sem liggur norður/suður ofanvið gamla húsið á Brimnesi. Fyrirtækið, sem hefur byggt og nú selt þessar íbúðir er Viðar hf. en þar eru í forsvari bræðurnir Daníelssynir frá Saurbæ í Eyjafirði, Hilmar á Dalvík, Viðar í Reykjavík og Víkingur á Akureyri, sem var byggingar- kaupendunum íbúðirnar, en sem Hilmar Daníelsson afhenti íbúirnar kaupendunum, en þeir eru 7 einstaklingar og Dal- víkurbær, sem er kaupandi að 3 íbúðunum. Hér er slitur af upplýsingum, sem fram komu í máli Hilmars: Byrjað var á byggingunni í júlí sl. en í henni eru 6 þriggja- og 4 ■ tveggja herbergja íbúðir. íbúð- irnar eru seldar á föstu verði, til- búnar undir tréverk með fullfrá- genginni sameign og frágangi að utan. Verð stærri íbúðanna er kr. 2.350.000 en þeirra minni kr. 1.850.000. Kaupverð að frádreg- inni 300 þús útborgun er greitt með væntanlegu láni Húsnæðis- stofnunar ríkisins. Þó hefur eng- inn kaupendanna, að einum undanskildum, enn fengið svar frá Húsnæðisstofnun við lán- beiðni sinni. íbúðir Dalvíkurbæj- ar, sem eru tveggja herbergja, verða afhentar fullbúnar 1. apríl n.k. Það kom fram, að enginn þeirra einstaklinga, sem þarna eignaðist eigið húsnæði, átti íbúð fyrir. Flestallir kaupendurnir voru mættir til að taka á móti lykli að íbúð sinni og var sjáanlegur ánægjusvipur á andlitum þessa fólks, sem flest er kornungt. Staðurinn þarna ofan við Brim- nesbæinn er ljómandi fallegur, stutt til fjallsins og stórfenglegt útsýni til allra átta: fram í dal, upp til fjalls, út til hafs, yfir til Hríseyjar og inn með firði. Þarna verður áreiðanlega gott að eiga heima. Að lokum skal þess getið, að Viðar hf. hefur ákveðið að ráðast í byggingu annarar blokk- ar af sömu stærð vestan við göt- una. Verður hafist handa við framkvæmdina í apríl á vori komanda. Eru þegar teknar að berast pantanir í íbúðir í því húsi. Fiskiskipafloti Dalvíkinga fer enn stækkandi. Haraldur hf. hefur fest kaup á 136 brl. bát frá Húsavík. Björg Jónsdóttir ÞH 321 heitir báturinn, sem er eikar- bátur smíðaður í Svíþjóð 1964. Þeir Haraldarmenn fá bátinn afhentan um miðjan febrúar en Húsvíkingarnir eru að kaupa annan og stærri. Ekkert hefur kvisast um hvaða nafn verður á bátnurn þegar hann kemur í hendur Haraldar hf. en þeir eiga Harald EA 62 fyrir og munu halda honum. Eins og fram kom í fréttahorn- inu í haust jókst umferð vöruflutningaskipa og vöru magn í gegnum Dalvíkurhöfn verulega á síðasta ári. Samtals voru flutt 13.141 tonnafvörum út um höfn- ina á móti 9.969 árið áður. Aukn- ingin er 3.172 tonn. Innfluttar vörur voru 11.202 tonn á móti Kaupendur íbúða þeirra sem afhentar voru í þetta skipti eru: Bergur Lundberg og Regína Halldórsdóttir, Björn Björnsson og Sigríður Guðmundsdóttir, Ellen Sigurðardóttir, Friðrik Eins og fram kemur í grein um úrkomu og veðurfar annarsstaðar í blaðinu ríkti árgæska hér á landi lengst af 1987. Ekki hvað síst voru síðustu mánuðir ársins óvenjulega mildir. Samt fór það svo, að um miðjan desember gerði dálítinn snjó, svo Norð- lendingar fengu hvít jól eins og best hæfir hér norður undir heim- skautabaugnum. Snjórinn hefur haldist síðan án þess þó að nokkurn tímann hafi gert eiginlega stórhríð eða stór- fenni eins og við þekkjum þau hér um slóðir. Aftur á móti gerði geysimikið frost nú seint í þess- um mánuði. Einkum var það dagana 22.-24. jan. sem frostið hélt sig í kringum 20 stig og frétt- ir bárust um allt að 30 stiga frosti austar og innar í landinu. Þessa daga var heiður himinn og kyrrt veður. í slíku veðri sjást himintunglin sérstaklega vel. Svo þá gátu 10.813 aukningin milli ára nemur 389 tonnum. Hins vegar var landaður afli mjög svipaður bæði árin. 1987 nam landaður afli 12.653 en 1986 var hann 12.753 þannig að mismunurinn er um 100 tonn. Bolfiskafli jókst en rækjuafli minnkaði. Þessa dag- ana eru kvótamál einstakra skipa að komast á hreint og getum við kanski kafað ofaní þau mál í næsta blaði. Miklar byggingarframkvæmd- ir voru hér á Dalvík á síð- asta ári. Það bendir allt til þess að sama verði upp á teningnum næsta sumar ef heldur fram sem horfir. Viðar hf. ráðgerir að byggja annað fjölbýlishús og Tréverk hf. raðhús. Tréverk hef- ur sótt um óbyggða lóð austan Bjarkarbrautar suður undir Björk, þar vilja þeir byggja fjöl- býlishús. Þá hefur flogið fyrir að Helgason og Sigríður Jósepsdótt- ir, Guðmundur Júlíusson og Áslaug Þórhallsdóttir, Hilmar Friðþjófsson, Kristinn Hauksson og Herdís Valsdóttir. menn, og geta enn, virt fyrir sér a.m.k. tvær skærustu pláneturn- ar. Það eru Venus og Júpíter. Venus er kvöldstjarna og fer að sjást á suðurhimninum strax og skyggja tekur. Hún er jafnvel óvenjulega skínandi björt vegna nálægðar við jörðu og gengur undir Svarfaðardalsfjöllin upp úr kl. 6 á kvöldin. Júpíter gengur á eftir ástastjörnunni og miklu hærra á lofti og sest trúlega undir Böggvisstaðafjallið frá Dalvík séð seint á kvöldi. Nú er vaxandi tungl og á dögunum munaði minnstu að tunglið gengi fyrir Júpíter, sem stundum gerist og þykir alltaf dálítill viðburður. En að þessu sinni „varð árekstri forðað" og ekkert skeði. Nú skyldu menn taka vel eftir þessum „himnakroppum" og aldrei framar rugla þeim saman, því önnur er inna við en hin utan við okkur á hringferð okkar allra í kringum móður SÓL. Viðar hf. sé með fleira í athugun en fjölbýlishúsið. Sem sagt ýmis- legt í farvatninu í þessum efnum og á þessi gróska í íbúðabygging- um ekki hliðstæðu annars staðar á landsbyggðinni um þessar mundir. Meistaramót íslands í atr- ennulausum stökkum var haldið 23.-24./1. ’88 í Rvík. Þrenn gullverðlaun og tvenn silf- urverðlaun féllu í hlut Dalvík- inga. Þóra Einarsdóttir hlaut öll þrenn gullverðlaunin: Langstökk án/atr. 2,63 m Hástökk án/atr. 1,34 m Þrístökk án/atr. 7,73 m Snjólaug Vilhelmsdóttir hlaut tvenn silfurverðlaun: Langstökk án/atr. 2,57 m Þrístökk án/atr. 7,61 m Vel af sér vikið og „geri aðrar vinnukonur betur". Fréttahomið F.v. Viðar og Hilmar Daníelssynir og fyrstu kaupendurnir, Sigríður Guð- mundsdóttir og Björn Björnsson. Tíðarfarið

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.