Norðurslóð - 29.03.1988, Síða 2

Norðurslóð - 29.03.1988, Síða 2
2 - NORÐURSLÓÐ NORÐURSLÓÐ Útgefendur og ábyrgðarmenn: Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal Jóhann Antonsson, Dalv.k Afgreiðsla og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn Sími 96-61555 Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson Prentun: Dagsprent Minnkum imðstýringuna Bæjarstjórnir víðast hvar um land hafa nú gengið frá fjárhagsáætlunum fyrir yfirstandandi ár. Fjöl- miðlar hafa greint frá því að sums staðar hafi geng- ið illa í því verki að láta enda ná saman. Ríkisvald- ið hefur skert tekjustofna sveitarfélaganna. Bæði var útsvarsprósentan í nýja staðgreiðslukerfinu skert, svo skattkerfisbreytingin þýðir tekjuskerð- ingu fyrir sveitarfélögin, og síðan var jöfnunar- sjóður skertur. Það er nú svo að sveitarfélög eru misvel í stakk búin að mæta skerðingu sem þessari. Þau sem nýlega hafa verið að byggja upp og auka þjónustu við íbúana mega eðlilega síður við slíku áfalli en gamalgróin sveitarfélög. Eins kreppir verr að hjá þeim sem þurft hafa að binda fjármagn sveitarfé- laganna í atvinnulífinu en hinum sem aldrei þurfa að sinna slíku. Ljóst er að sveitarfélög á landsbyggðinni falla undir þann flokk sem eru í veikri stöðu til að taka á sig skerðingu. Mörgum finnst að hallað hafi á landsbyggðina á það mörgum sviðum að ekki hafi verið fært að bæta þessu við. Eins og málum er nú háttað verðum við að taka svona uppákomum sem eins konar náttúruhamförum. Akvarðanirnar eru teknar í miðstýrðu stjórnkerfi og því verður þeim ekki breytt að sinni. Hins vegar getum við dregið lærdóm af þessu og mörgu öðru sem birtist okkur með svipuðum hætti. Það er einkum tvennt sem rétt er að benda á. í fyrsta lagi er höfuðnauðsyn að draga úr mið- stýringunni í þjóðfélaginu t.d. með því að færa meira vald og verkefni til sveitastjórnanna. Það gildir ekki síður um hvernig afla á tekna en að ráð- stafa fjármagni. í öðru lagi á Jöfnunarsjóður sveitarfélaga að miðla tekjum til sveitarfélaganna í samræmi við stöðu þeirra og styrk en ekki höfðatölu. Sjóðurinn á að standa undir nafni sem jöfnunarsjóður. En fyrst og síðast á að draga úr forsjárhyggju stjórn- valda sem meðal annars birtist í ákvörðun um útsvarsprósentu og láta sveitarstjórnirnar um allt sem frekast er hægt að færa undir þeirra umsjón. J.A. Messur í Dalvíkurprestakalli um bænadaga og páska Skírdagur Messa í Urðarkirkju kl. 21. Altarisganga. Litanía sr. Bjarna Þorsteinssonar sungin. Föstudagurinn langi Helgistund í Dalvíkurkirkju kl. 17. Hljóðfæraleikur, lesið úr píslarsögunni, Litanía sr. Bjarna Þorsteins- sonar sungin. Páskadagur Hátíðarmessa í Dalvíkurkirkju kl. 8. Altarisganga. Hátíðarmessa í Tjarnakirkju kl. 13.30. Hátíðarmessa í Valiakirkju kl. 16. 2. páskadagur Hátíðarmessa á Dalbæ kl. 14. Sóknarprestur. Dagbók Jóhanns á HvarB - Anno 1890 - 1. janúar. Frost að morgni 8 gráður. Sauðir stóðu inni því jarðlítið er af storku. Þó fá þeir í góðu !ó gjafar uppi á Efstu-brún. 7. febrúar. Fór í Tjörn að líta á kú með meinsemd. Fékk meðul hjá Árna handa kúnni. Kom Árni með fosformeðul handa kúnni og vorum við yfir henni til kvölds. 8. febrúar. Messað á Tjörn. Kýrin farin að éta. 25. febrúar. Jón (Hallsson) á Þverá fótbrotnaði, liggur í Klaufa- brekknakoti. (Hjá Jóni Halldórs- syni ,,lækni“.) 2. mars. Kom Þorsteinn (Jóns- son) Upsum, kýr að drepast. Treysti ég mér ekki ofan eftir, sendi býldinn og sagði að biðja Jón Stefánsson að taka blóð, og svo skyldi setja sýru ofan í hana. 4. mars. Bjó mig til ferðar á sýslufund. Kom að Völlum, Sökku og Hámundarstöðum. Tók bréf á öllum stöðum. 5. mars. Fór ég kl. 10 f. m. frá Fagraskógi. Bjart, frost 5 gráður. Krap í mýri en hörsl á brautum og holtum, ís á Hörgá, en auð og ill yfirferðar Lónin og Glerá. Mætti Ólafi á Hallgilsstöðum og Kristínu (Þorvaldsdóttur bónda- konu) á Ystabæ fyrir innan Hvamm. 7. mars. Annar fundardagur. Lögð fram 17 mál. Þrír leikir leiknir til skemmtunar af Akur- eyringum. 13. mars. Kom þéttur jarð- skjálfti í nótt kl. 5. 16. mars. Kom Stefán í Hofs- árkoti, stansaði lengi og las í blöðum. 26. mars. Fórum eftir heyi upp á brún. Drógum 8 bagga ofan Syðsta-Gil. Stefán í Hofsárkoti hjálpaði okkur. Ég hjálpaði hon- um um steinolíu á 1 lampa. 28. mars. Tvö gufuskip fóru inn fjörð. 29. mars. Kom Halldór (hrepp- stjóri) utan frá Hofi, virti hús- muni til uppboðs (Jón Þorvalds- son að bregða búi). Gekk með honum yfir á hóla. 8. apríl. Fór Nonni fram í Hæringsstaði með 40 álnir vað- máls til Jóns þar er hann ætlar með í pressu vestur (í Viðvík). Bréf með til maddömu Önnu í Viðvík með meðgjöf 3 kr. í pen. Komu þeir bræður Aðalsteinn og Júlíus (Hallssynir) neðan af Sandi. Sögðu hrognkelsis vart. 14. apríl. Mánudagur. Kom Lukkan með salt frá Oddeyrar- höndlun-Gránu. Kom Ferdinant úr kaupstað (bóndi á Þorleifs- stöðum). Síld aflast á pollinum í lagnet til muna. 24. apríl. Fyrsti sumardagur. Fórum við Sólveig í hús og skoðuðum fé. Fór ég á tombólu að Tjörn, skyldi ganga til Helga- magra hátíðar. Kom seint heim. Dró ekkert. 26. apríl. Fórum ofan á Sand að sækja kornmat í Lukkuna. 29. apríl. Klofið tað. Slegin saman taðvélin. Sett niður millan (í læknum). 17. maí. Guðrún flutt yfir ána eftir að hafa verið hér í heimild- arleysi. Kom Sigríður systir mín. Kom Jórunn . . . 18. maí. Messað á Völlum og fermt. Drengir báðir héðan: 1. Jóhann Ytra-Hvarfi (J. Jóhannsson Sogni. K: Guðlaug Baldvinsdóttir). 2. Sveinn Ytra- Hvarfi (S. Hallgrímsson bónda á Skeiði, verslunarmaður á Akur- eyri K. Matthea Matthíasdóttir skálds Akureyri. Sveinn fór til Ameríku og spurðist aldrei til hans, þau áttu 2 börn). 3. Soffo- „Drengirnir" á Hvarfi sem fermdust árið 1890, Jóhann Jóhannsson síðar í Sogni og Sveinn Hallgrímsson sem týndist í Ameriku. nías Hofsá. (S. Þorkellsson iðju- höldur Ameríku.) 4. Sofía Hnjúki (S. Þórðardóttir. M. Sig- fús Sigfússon bóndi Krosshóli og Steinstöðum). 5. Kristín Hálsi. (K. Pétursdóttir bónda á Skálda- læk. M. Sigurður Njarðvík sjó- maður Hafnarfirði. Afkomandi þeirra er Njörður Njarðvík.) 6. Filipía Gröf. (F. Sigurjóns- dóttir. M. Stefán Arngrímsson bóndi Gröf.) Kom Nonni að kvöldi með vaðmálið. (Sótti til Viðvíkur.) Verða Sigríður systir mín og Jórunn hér í nótt. 19. maí. Kom Baldvin á Bakka, bað hann fyrir 25 aura fyrir gulrófnafræ. Fór Jórunn, fylgdi Sólveig henni út að Hálsi. 26. maí. Fréttist að Halldór á Sandinum Guðmundsson drukknaði einn af byttu á leið handan úr Hrísey. (Hann byggði í fyrstunni Nýjabæ). 3. maí. Lét tína steina úr göt- um suður að Græntóarlæk. 13. maí. Fór Nonni ofan, 30 í hlut á bát Jóhanns á Böggvisstöð- um. Silungur í beitu. Páll rak geldfé. 14. júní. Braut saman bréf til M. Magnússonar hjá Jensen Akureyri, þar í 18 kr. til Magnús- ar á Grund fyrir sjal mér sent næst liðinn vetur. 15. júní. Dregið fyrir í nótt. Fékkst silungur. Við Jón Niður- frá að yndirbúa til róðra á okkar bát. (J. á Hreiðarsstöðum.) 19. Kjördagur Eyfirðinga. Þingmaður kosinn í staðinn fyrir Jón sál frá Gautlöndum. Helgi magri leikinn á Akureyri. Ég þar. 20. júní. Héraðshátíð Eyfirð- inga á Oddeyri, minning 1000 ára byggingar héraðsins frá því Helgi magri kom fyrst hér á land. Leik- inn Helgi magri (eftir M. Jochums- son) um kvöldið. Ég fór áður heimleiðis og fleiri sem ríðandi voru urðu mér samferða. 24. júní. Datt í mig landfar- sótt. Illkynja Influensusóttin sem gengið hefur yfir Norðurálfu og Ameríku næst liðinn vetur. Frétt- ist lát Árna læknis (á Hamri), dó í gær á Oddeyri úr lungnabólgu. Veiktist 21. þ.m. Var á Helga- magra hátíð. 27. júní. Var siglt á nótabát eftir líki Árna sál. á Hamri. Með í för helstu bændur hér í sveit. Mátti vera kyr sökum veikinda þrátt fyrir ætlan í þá ferð og var til þess ráðinn. 28. júní. Sendir hestar ofan til Nonna, kom heim veikur. 1. júlí. Sveinn liggur, allir vesælir. 2. júlí. Drengir báðir veikir. 3. júlí. Rekin lömbin 61 sem ég á og 12 önnur. 4. júlí. Jarðarför Árna sál. Árnasonar frá Hamri, ein hin fjölmennasta sem hér hefir verið að því mér er kunnugt. Lögðust hér 2 skip við Sandinn, Lukkan, verslunarmaður Einar Pálsson og önnur skonnorta tvímöstruð, verslunarstjóri J.V. Havsteen og Jakob Björnsson, versluðu í sama skipi hver fyrir sig. 6. júlí. Sóttur læknir til Sigríð- ar (Baldvinsdóttur) á Böggvis- stöðum. (F. kona Jóhanns þar.) 7. júlí. Fórum við hjónin, Jói, Sveinki og Nonni 5 ofan með ull- ina. Lagði ég í Lukkuna 159 pund, J.V.H. lét ég hafa 9,2 pund hvíta ull og 7 pör sokka. Tók þar skotfæri og bankabygg. 9. júlí. Byrjaði að slá. 10. júlí. Lét Nonni bakka á ljá fyrir Stefán í Hofsárkoti, Stefán sló á meðan. Misjafn afli á báta. Fór Jón (faðir Jóhanns Páls) á Hjaltastöðum í kaupstað ég léði honum hest, hann tók ofanaf. 15. júlí. Kom Jón úr kaup- stað. Tók fyrir mig VÁ pott brennivín, 1 flösku portvín, 1 smásaumspakka. 27. júlí. Fór í Sökku að skoða kvígu, þar kom Stefán Stefáns- son kennari frá Möðruvöllum úr grasaferð sinni, fór í Ólafsfjörð, Héðinsfjörð og Hvanndali yfir í Fljót og svo hér að Kotalundi (netlan hjá Koti), nú á heimleið með jurtir í tveim koffortum. 31. júlí. Jarðarför Sigríðar Baldvinsdóttur sem dó 21. þ.m. Ekkillinn Jóhann Gunnlaugsson sparaði ekki neitt til. Kista eikar- máluð og gerð af snilld. Fjórir blómsveigar á leiði og kistu. Við hjónin vorum þar og fórum að kvöldi. 1. ágúst. Fór ég með hesta ofan að sjó. Tók 6 fjórðunga harðfisk hjá Sigurði á Sauðanesi, 10 bönd ýsu hjá Ágúst Jónssyni Sauðaneskoti (kona Sigfríður), borgaði í peningum allt. Svo var mér gefið á Karlsá af hjónum þar. Svo tók ég hákarl hjá Hansi (Hans Baldvinssyni) færði hon- um 2 pund smjörs og skyrkollu. 10 ýsur hjá Jóni Stefánssyni (Nýjabæ) borgaði 1 krónu, 10 ýsur hjá Jóni Sigfússyni (Sandbúð) borgaði 1 krónu, allt kvitt. Tók svo Vi tunnu af salti í Gránuhúsi. Samferða Eggert (Jónssyni) í Hreiðarsstaðakoti heim. 2. ágúst. Fór Jón á Hvarfi (syðra) ofan með 2 hesta að sækja fiskmeti sem ég kom með boð um. Farið ofan í Sauðanes- kot úr Hofsárkoti eftir fiski. Afli ágætur ef sinnt yrði. Síld líka til. Fór Baldvin á Bakka með uxa til Akureyrar.

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.