Norðurslóð - 22.09.1988, Side 5
NORÐURSLÓÐ - 5
f
Minning:
Rósa á
Þann 10. september andaðist inni
á Akureyrarsjúkrahúsi Rósa
Þorgilsdóttir á Sökku. Hún var
jarðsett í Vallakirkjugarði laug-
ardaginn 17. sama mánaðar.
Rósa var fædd á Sökku 23.
ágúst 1895, dóttir Elínar Árna-
dóttur og seinni manns hennar,
Þorgilsar Þorgilssonar, sem var
Sunnlendingur, fæddur á Minni-
borg í Grímsnesi, kominn af
merkum ættum í Árnesþingi.
Rósa giftist Gunnlaugi Gíslasyni
frá Hofi árið 1924 og eignuðust
þau 4 börn, Jónu, tvíburnana
Dagbjörtu og Halldóru og
Þorgils, bónda á Sökku.
Nú eru hundrað ár liðin síðan
þau gengu í hjónaband ekkjan
Elín á Sökku og sunnlenski bú-
fræðingurinn Þorgils Þorgilsson,
sjálfur ekkjumaður, en það var
21. september 1888.
Sá ráðahagur hefur borið góð-
an ávöxt því síðan hefur ættin, nú
í 4. lið, setið Sökku með fágætum
myndarbrag og myndað eina af
sterku stoðunum, sem svarf-
dælskt samfélag hvílir á. í litlu
samfélagi eins og venjulegum
íslenskum sveitahreppi kemur
skýrt fram hvar kostir búa í ein-
staklingunum. Oft eru það sömu
ættirnar og sömu heimilin, sem
eins og af sjálfu sér verða horn-
steinar sveitafélagsins á öllum
sviðum. Hér höfum við dæmi um
eitt slíkt heimili.
Sjálf var Rósa á Sökku sérstak-
lega aðlaðandi persónuleiki sem
starfaði frá anda hlýju og góð-
vildar. Prjónaflíkurnar óteljandi,
sem hún gerði nálega fram á þá
síðustu af hennar mörgu ævidög-
Sökku
um og gaf ættfólki sínu og afkom-
endum og fjölmörgum fleirum,
gætu ágætlega verið sem tákn
eðliseinkenna hennar: Fallegar,
vandaðar og hlýjar eru þau lýs-
ingarorð, sem koma upp í
hugann. Þannig var Rósa sjálf
eins og svo margir geta vitnað um
sem stóðu henni nærri hvort
heldur væru skyldir eða vanda-
lausir. Við það mætti bæta mörg-
um fleiri orðum. Skemmtileg er
eitt þeirra. Hún var ræðin og
glaðlynd og kunni þá list að segja
frá svo sagan varð lifandi fyrir
hugskotssjónum hlustandans. í
stuttu máli sagt, skemmtileg
kona.
Þá má ekki láta undir höfuð
leggjast að geta þess, hve félags-
lynd kona Rósa var. Það er sér-
stök ástæða til að minna á, að
hún var ein af stofnendum kven-
félagsins Tilraun sem 33 konur í
hreppnum stofnuðu 1915. Að
Rósu látinni er nú aðeins ein eftir
ofan moldar. Hún var lengi í
stjórn félagsins og studdi það
dyggilega alla ævi.
Þetta, sem hér hefur verið
skráð eru fá og fátækleg orð um
ágætiskonu, sem var rík af mörg-
um þeim kostum sem mann má
prýða. Betur lýsa henni stökur,
sem eiginmaður hennar, Gunn-
laugur, hefur sett saman við sér-
stök tækifæri á þeirra löngu sam-
lífsbraut. Ég leyfi mér að tilfæra
nokkrar þeirra, sem eru skráðar í
ljóðasafninu Rimar.
Það sem best ég á og ann
um ævidaga bjarta
er rósin sem ég forðum fann
og féll að mínu hjarta.
Rósa Þorgilsdóttir í Kvennaskólan-
um 1917.
Þú hefur margra þerrað tár,
þér er tamt að hugga.
Aldrei vakið öðrum sár,
engum þrýst í skugga.
Á vormorgni æskunnar vermdi
okkur sól,
mín vina, ég man þig á snjóhvítum
kjól.
Með söngfuglum vordagsins leið
okkar lá
og Ijósvakinn himinblár strauk
okkar brá.
Nú rökkvar að kvöldi og aðeins
það eitt
í einlægni þráum við bæði jafn-
heitt,
fyrst dagsbirtu þrýtur og dáðlaust
hvert spor:
að deyja inn f sólgullið, skínandi
vor.
Nú þegar Rósa hefur hlotið
þráða hvíld vil ég fyrir mfna hönd
og fjölskyldu minnar senda henni
og Sökkuheimilinu bestu kveðjur
og þakklæti fyrir löng og góð
kynni og vináttu. Ég er þess
fullviss, að ég mæli fyrir margra
hönd þegar ég sendi Gunnlaugi
sérstakar samúðar- og vináttu-
kveðjur og þakklæti til þcirra
hjóna fyrir þeirra mikla framlag
til betra og fegurra mannlífs hér í
Svarfaðardal.
Hjörtur E. Þórarinsson.
húsmæður,
góðar og gildar!
DALVIK I
n
Takið eftir
Starfsmann vantar við íþróttahús og sundlaug
Dalvíkur frá 1. október nk.
Umsóknir skulu sendar á bæjarskrifstofuna.
Nánari upplýsingar gefur Guðbjörg í síma
61382 eða 61135.
Athugið
Sundlaug Dalvíkur verður opin á eftir-
töldum tímum í vetur:
Þriðjudaga kl. 18.00-22.00.
Fimmtudaga kl. 18.00-22.00.
Laugardaga kl. 13.00-16.00.
Sundlaugarvörður.
Bókari
Kaupfélag Eyfirðinga Dalvík óskar að ráða bók-
ara frá næstu áramótum.
Umsækjendur þurfa að hafa góða bókhaldskunn-
áttu..
Nánari upplýsingar veitir Þórður Viðarsson skrif-
stofustjóri.
Ú.K.E. Dalvík.
Yoga
— Karlar — Konur!
Yogatímar mínir eru að byrja. Á Dalvík í Dalbæ, á
Akureyri í Zontahúsinu Aðalstræti 54.
Mýir þátttakendur verða saman og um er að ræða
eitt eða tvö skipti í viku.
Innritun og nánari upplýsingar í síma 61430.
Steinunn P. Hafstað
ilú er sláturtíðin hafin
Látum nú hendur standa fram úr ermum
og búum til slátur
í sláturhúsi og verslunum okkar
fæst allt til sláturgerðar
Allt áhugafólk um íslenska sláturgerð
er boðið hjartanlega velkomið
meðan birgðir endast
Kaupfélag Eyfirðinga
Dalvík
■t
Sendum alúðarþakkir öllum þeim
er auðsýndu okkur samúð og vináttu
við andlát og jarðarför
RÓSU ÞORGILSDÓTTUR
Sökku.
Gunnlaugur Gíslason,
börn og tengdabörn.
Kœru starfsfélagar og aðrir velunnarar.
Ég undirrituð þakka ykkur öllum
af heilum huga fyrir gjafirnar,
sem ég fékk frá ykkur á sjötugsafmœlinu.
Forráðamönnum frystihússins
þakka ég sérstaklega fyrir þá góðu gjöf
sem þeir létu fyrirtœkið veita mér l
á þessum tímamótum.
Farsœld ykkur fylgi öllum
og Frystihúsi KEA á Dalvík.
Aðalheiður Þorleifsdóttir.
ww ^ ^ ^ WW ^ ^ ^ ^ ^