Norðurslóð - 26.10.1988, Síða 5

Norðurslóð - 26.10.1988, Síða 5
NORÐURSLÓÐ - 5 Starfsfólk við vígsluhátíð 11. 9. 1955: F.v. Sigurveig í Brekku, Rannveig á Jarðbrú, Helga á Bakka, Halldór á Jarðbrú, Halldóra á Sökku, Klemenz í Brckku, Ósk á Bakka, Kristín á Skeiði, Sigtryggur í Brekkukoti, Margrét i Hofsárkoti, Halldóra á Þverá. Gunnar Markússon í Þorlákshöfn Mmniiigabrot með yiðaukum og ívafí II Verslunin Sogn Vegna breytinga í versluninni hefst rýmingarsala 27. október og stendur í eina viku. Mikil verðlækkun á fatnaði og hljómplötum. Komið og gerið góð kaup. Verslunin Sogn. Hús til sölu Til sölu er húseignin Hafnarbraut 23 Dalvík (Sólgarðar). Upplýsingar veitir sparisjóðsstjóri. AP Sparisjóður Svarfdæla Dalvík Frá Bæjarbókasafni Nú varð heldur betur „hama- gangur á Hóli“ - eða réttara sagt á Flúðum. September genginn í garð og ekki nema um vika þangað til vígja átti skólann fyrir norðan. En við hjónin vorum þá á góðum starfsaldri og kl. urn 9 kvöldið fyrir vígsluna renndi ég í hlaðið á Húsabakka á vörubílnum, sern flutti dót okkar norður. Fjölskyldan komst hins vegar ekki nema til Akureyrar og var þar um helgina. Þegar heim að skóla kom var þar erill og amstur því verið var að leggja síðustu hönd á undir- búning vígslunnar. Þarna voru og margar hendur, sem voru fúsar til að hjálpa mér að bera búslóð mína af bílnum svo það gekk bæði fljótt og vel að koma henni fyrir í svefnherbergi íbúðarinnar. Sjálfur fór eg svo fram að Grund og það verður að viður- kennast, að það var þreyttur maður, sem búið var um í stof- unni þar upp úr miðnættinu þetta kvöld. Og svo rann vígsludagurinn upp. Um þann dag get ég verið fáorður því ég held að mér takist ekki að lýsa honum betur en Géstur í Bakkagerði gerir í dag- bók sinni, en þar segir svo: „11.9. 1955, Sunnudagur, logn og sólskin. í dag fór fram vígsla heimavist- arbarnaskólans á Húsabakka. Oddviti Svarfaðardalshrepps, Hjörtur Eldjárn á Tjörn, stjórn- aði samkomunni og flutti ávarp. Vígsluna framkvæmdi séra Stef- án Snævarr. Auk þeirra fluttu ræður: Stefán Jónsson, náms- stjóri og Magnús Jónsson, alþing- ismaður, sem mætti fyrir hönd menntamálaráðherra. Formaður byggingarnefndarinnar, Gunn- laugur Gíslason Sökku. Rakti hann sögu byggingarinnar og lýsti henni. Taldi að eins og húsið stæði nú mundi það kosta um 1.000.000 króna. Afhenti hann að lokum hreppsnefnd og hrepps- búum húsið. Þórarinn á Tjörn dregur vígslufána að hún. Oddviti veitti því viðtöku og afhenti það síðan skólanefnd. Að vígslu lokinni var fólki boðið til kaffidrykkju og var það hóf fyrir Þórarinn Eldjárn á Tjörn, sem nú lætur af skóla- stjórn. Samsætinu stjórnaði vara- oddviti hreppsins, Björn Jónsson á Ölduhrygg. Auk hans tóku til máls, séra Stefán Snævarr, sem flutti aðalræðuna, ennfremur Valdimar Snævarr og Jóhannes Haraldsson, sem flutti ávarp frá nemendum og afhenti Þórarni sparisjóðsbók með um 15.000 krónum, Kristinn Jónsson, oddviti Dalvíkurhrepps Gestur Vilhjálms- son, Hjalti JÍaraldsson, Magnús Jónsson, alþingismaður, Snorri Sigfússon, Bernharð Stefánsson, Gunnar Markússon, hinn nýi skólastjóri og að lokum Þórarinn Eldjárn. Þetta þótti allt takast með ágætum." Við þessa frásögn Gests vil ég bæta því einu, að vígslan fór fram á pallinum á suðurenda hússins og setið var að kaffidrykkjunni hvar sem hægt var að koma íyrir borði og stól innanhúss, en ræður í hófinu voru fluttar í einu skóla- stofunni, sem þá var tilbúin og komið um húsið með hátalara- kerfi. Vegna plássleysis er þessi þáttur í stysta lagi. Meira verður næst. Dalvíkur Sögustundir fyrir börn 3-6 ára hefjast miðviku- daginn 26. okt. kl. 11.00 og kl. 13.30. Verða þær á þessum tíma í nóvember og desember annan hvorn miðvikudag þ.e. dagana 9. og 23. nóv. og 7. og 21. des. Almennur afgreiðslutími safnsins er: Mánudaga- föstudaga kl. 14.00-17.00 og fimmtudaga kl. 19.00-21.00. Bókavörður. f DALVIK | Húseign til sölu Dalvíkurbær auglýsir til sölu húseignina að Sunnubraut 4 Dalvík. Húseignin selst í núverandi ástandi og er áskilinn réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðum skal skila á skrifstofu Dalvíkur- bæjar fyrir 7. nóvember. Bæjarstjórinn á Dalvík. /-----------------------------N Frá Sparisjóðnum Höfum til sölu spariskírteini tíkiss/óðs. Sparisjóður Svarfdæla Dalvík j

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.