Norðurslóð - 28.09.1989, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 28.09.1989, Blaðsíða 1
Svarfdælsk byggð & bær 13. árgangur Fininitudaj;ur 28. september 1989 7. tuluhluð • • Orðug vegagerð - Nauðsynlegar samgöngubætur Norðurslóð fór til í rigningu eftirniiðdag 19. sept. að kanna vegagerð sem nú stendur yfir í Urða- og Hólslandi. Þar eru Fnjóskdælir að verki og hafa unnið heilmikið rúmrusk allt samkvæmt áætlun og teikning- uni. Uppfylling er mikil sums staðar í lægðum í Urðaengi. Mest er þó áberandi tilfærsla vegarins upp í melinn framhjá bæjarhúsum og kirkju á Uröum. Þar seni áöur var vinaleg gróin blómabrekka er nú blár og nakinn melurinn nær því upp að kirkjugarði. Þarna verður mikið verk að vinna við snyrtingu og upp- græðslu vegkanta og jarðvegs- sára. í kirkjugarðsbrekkunni er hugsanlegt að nota lúpínu til að festa mölina og skapa jarö- veg fyrir annan gróður grasa og blóma. Talað var við verkstjórann, Vigni Valtýsson í Nesi sem stýrir harðsnúinni sveit Þingeyinga við verkið. Af venjulegu þingeysku æðruleysi sagði hann. að að vísu hefðu þeir verið óheppnir nieð tíðarfarið. Bleyturnar hafa skap- að alls konar erfiðleika, leir- drullu og leiðindi. Þar fyrir bjóst hann við, að þeir myndu standa sig nokkuð með að Ijúka um- sömdu verki á tilsettum tíma um mánaðamótin sept.-okt. Þeirra verk er að skila veginum með burðarlagi. Síðan taka aðrir við með ásetningu slitlags og mun áformað að það verði einnig gert á þessu hausti, enda er vegurinn satt að segja illnotandi eins og hann er. Vegagerðarmennirnir búa í gamla íbúðarhúsinu á Hóli og líður þar ágætlega í alla staði. Vegagerð framhjá Urðum. Heljardalsheiði í haksýn. Ljú.sm: Hallgr. K. Sumarið 1989 Enn eitt sumarið er iiöiö í ald- anna skaut og aldrei keniur það til baka, víst er það. Hins vegar er rétt og skylt að hugsa til baka og rifja upp fyrir sér hvernig þetta suniar var, hvað var gott og hvað var miöur gott. Fyrst er þess að minnast að sumarið 1989 var afskaplega seint á ferðinni. snjó tók ekki af lág- lendi að fullu fyrr en komið var langt fram í júnímánuð eða jafn- vel síöar í giljum og slökkum. Dæmi um þetta er sorgarsagan af kúnni í Miðkoti seaMéll niður í gegnum snjóloft á íSík þar hjá túninu 8. júlí! Þettii væri nú bara til að hlæja að ef ekki hefði viljað svo ólánlega til, að kusa kom nið- ur á hrvgginn og var dauð þcgar að var komið. Óvenjulegt atvik sem betur fer. Heyannir Heyskapur byrjaði að vonum óvenjulega seint eöa ekki fyrr en komið var nokkuð fram í júlí. sums staðar seint í júlí. Ástæðan var hið kalda, síðbúna vor og þar á eftir þrálátur þurrkur. sem reyndar er ekki óvenjulegur hér um slóðir í byrjun sumars. Hey- skapartíð var hins vegar góð í júlí og náðu ýmsir töluveröu af góð- um heyjum. Ágúst var hins vegar leiðinlegur til heyskapar og gekk hægt og seint að ljúka honum. Var reyndar komið fram í miðjan september þegar þeir síðustu losnuðu úr heyskaparbaslinu. Þrátt fyrir allt má fastlega gera ráð fyrir, að menn hafi almennt nóg hey fyrir komandi vetur. Athyglisvert er það, að þótt ekkert búfjárhald sé á mörgum jörðum hér í sveit nú, þá má heita að öll tún séu slegin. Þar eru fyrst og frernst að verki bændur sem hafa lítin eigin tún. en líka hestamenn af Dalvík, sem sífellt þurfa á meira heyi að halda. Hér í sveit cr hin klassíska heyskaparaðferð vallþurrkun, heimflutningur mcð hleðslu- vagni, innblástur og notkun dreifikerfis í hlöðu. Síðan súg- þurrkun. Nú hafa þó ýmsir tekið mikla trú á vothcysgerð með plast- innpökkun heys og voru 2 slík úthöld í gangi í sveitinni í sumar þ.e. á Hóli fram og á Grund. Fengu margir bændurna á þess- um bæjurn til að „binda" fyrir sig á þennan hátt svo að um skeið voru stór svæði alsett þessum hvítu risaeggjum. Ekki beint augnayndi en trúlega hcyskapar- aðferð. sem á framtíð. Göngur Það er kunnara en frá þurfi að segja að nú er að líða sauðlausa árið hér í Svarfdælabyggð. (Áöur var hér sauðlaust ár 1949-50 frá hausti til hausts.) Eigi að síður fóru menn í göngur hver á sínu svæði eítir ákvörðun hrcpps- nefndar. „Réttað" var á Tungu- rétt sunnudaginn 17. september. Veður var heldur óskemmtilegt en þó ekki afleitt. Þangað kom upp úr hádeginu hið harðsnúna lið afréttargangnamanna ríðandi og syngjandi með píska sína og pela og allt tilheyrandi rétt eins og á alvöru gangnadegi. í afréttinni var kveðin þessi vísa og lýsir hún nokkuð sálar- ástandi gangnamanna: Nístir kinnur norðanvindur og niðdimm þoka á gangnadag. Látum. bræður. bvergi kindur komast undan - nú er lag. Á Tungurétt mætti reyndar ótrú- Framhald á bls. 6 Hciðlóan. Skjaldarmcrki Svarl’aóardalslircpps. Skjaldarmerkí Á síðasta ári hauðst Erlingur Páll Ingvarsson auglysinga- teiknari til þess við hrepps- nefnd Svarlaöardalshrepps, að gera tillögur að skjaldarnierki fyrir sveitarfélagið. Slíkt merki hefur ekki veriö til svo sjálf- sagt þótti að athuga hvað út nr tillögugerðinni kæmi. Erlingur er vanur vinnu af þessu tagi, hefur gert mörg fyrirtækja- merki, t.d. merki Útvegsbanka Islands. Tillaga sú cr hér er kynnt barst hreppsnefnd til umsagnar í júlí- mánuöi sl. og var samþykkt að taka þetta merki upp seni skjald- armerki Svarlaöardalshrepps. I umsögn sinni um merkiö sagði höfundurinn, að sér þætti friöland fugla í utanverðri sveit- inni mjög stcrkt einkenni á dalnum. Þess vegna hefði sér dottiö í Inig aö liafa fugl í merk- inu. Þá mætti segja að lóan heföi alltal eitthvað jákvætt viö sig. Sveit sem hefði lóuna í nierki sínu gæti því virst staöur er byði bæði menn og dýr velkomin. Bakgrunnur myndarinnar. sem birtist grár í blaðinu. mun verða í grænum lit. Á liturinn að vera táknrænn fyrir landbúnaöarhér- að. Að lokum sagði höfundurinn, að sterk hefð væri fyrir notkun dýra af ýmsu tagi í skjaldar- merkjafræðinni. Sér þætti bara merkilegast að ekkert sveitarfé- lag hel'ði nýtt sér lóumyndina fyrr. Sauóbændur fagna nýja fjárstofniniini. Ljósm: llallj;r. E.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.