Norðurslóð - 28.09.1989, Page 7
NORÐURSLÓÐ - 7
Golfklúbburinn Hamar
í júní sl. hittist hópur golf-
áhugamanna í Bergþórshvoli á
Dalvík og var þar ákveöið aö
stofna golfklúbb. Á sama fundi
var ákveðið að klúbburinn
skyldi hljóta heitið Hamar, lög
um starfsemi hans voru sam-
þykkt og kosin var stjórn.
Forsaga þess, að lagt var í
stofnun klúbbs af þessu tagi, er
sú, að Hjalti bóndi Haraldsson í
Ytra-Garðshorni fékk þá
hugmynd, að hluti af landi hans
væri nýtilegt fyrir golfvöll. Að
fengnu áliti sérfræðinga var séð.
að hugmyndin var allgóð. Félagið
var því stofnað og allir Dalvík-
ingar, Svarfdælingar og Árskógs-
strendingar boðnir velkomnir. A
stofnfundi voru rúmlega 40 félag-
ar mættir. Þar var ákveðið að
ganga til samninga um leigu á
landi í Ytra-Garðshorni og hefj-
ast handa um gerð golfvallar.
Sem starfsmaður var ráðinn Jón
R. Hjaltason í Ytra-Garðshorni.
I lluti golfvallarins er á svoköll-
uöu Arnarholti, þar sem fundist
liafa grafir fornmanna. Var vell-
inum því gefið nafnið Arnarholts-
völlur.
Við vinnslu á landinu kom í
ljós að um kjörlendi fyrir golf var
að ræða og gekk því vel að
byggja völlinn upp. I dag eru því
8 brautir nothæfar á vellinum.
Nokkur vinna er þö framundan
áður en tilbúinn verður góður 9
holu völlur.
Þegar í byrjun starfseminnar
var fenginn golfkénnari frá Akur-
eyri, ensk stúlka að nafni Pat
Smiley. Mikill fjöldi klúbbfélaga
sótti tíma hjá henni. Árangurinn
varð a.m.k. sá að vekja enn meiri
áhuga á íþróttinni. Hafa þeirsem
leið ciga framhjá Arnarholtinu
eflaust veitt því athygli. að þar
eru kylfingar gjarnan á ferð.
Fyrsta mót golfklúbbsins Ham-
ars var haldið 9. sept. sl. Par var
um að ræða bændaglímu og tóku
um 20 félgar þátt í mótinu.
Félagar klúbbsins eru nú milli
60 og 70. Stjórn hans skipa; For-
maður Björn Pórleifsson.
varaformaður Hjördís Jónsdótt-
ir. ritari Pórunn Bergsdóttir,
gjaldkeri Helgi Þorsteinsson og
meðstjórnendur Lárus Gunn-
laugsson, Gunnar Aðalbjörnsson
og Helgi Jónatansson.
Á næsta sumri verður lögð
áhersla á að fullgera völlinn. en
hönnun á honum hefur verið
unnin af Halldóri Jöhannssyni
landslagsarkitekt á Akureyri.
Unnið veröur að því að bæta flat-
ir og teiga og koma fyrir síðustu
brautinni.
Mikill áhugi hefur gert vart við
sig á félagssvæðinu og er þess að
vænta að enn fleiri hafi áhuga á
að vera með. Þeir verða bara að
gefa sig fram, því nægilegt pláss
er enn á vellinum. B.Þ.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem glöddu mig
á sjötugsafmæli mínu 2. sept. sl.
Guðrún Hallgrímsdóttir
Bjarnastöðum Dalvík.
Sundskáli
Svarfdæla
Almenningstímar á mánudögum og miövik-
udögum falla niður í vetur og verður hér einung-
is opið fyrir almenning á sunnudagsmorgnum
milli kl. 10-12.
Sundskálanefnd.
á dilkakjöti af nýslátruðu
fer fram í Svarfdœlabúð
effir pöntunum.
Munið að panta tímanlega!
Sími 61200
Þakkarávarp
Hjartanlegar þakkir færi ég öllum þeim,
sem sýndu mér og fjölskyldunni samúð og
vinarhug við fráfall og útför mannsins míns,
ARNGRÍMS JÓHANNESSONAR
frá Sandá,
sem lést 9. september.
Guð blessi ykkur öll.
F.h. fjölskyldunnar,
Halla Baldvinsdóttir.
DALVIK
w Frá Dalvíkurbæ
Opnunartími
sorphauga
Sorphaugarnir við Sauðanes eru opnir sem
hér segir:
Mánud. kl. 13-17.
Þriðjud. kl. 9-17.
Föstud. kl. 8-17.
Laugard. kl. 11-15.
Dalvíkurbær.
DA LVl KURSKDLI
Frá Dalvíkurskola
Laus er til umsóknar staða húsvarðar við
skólann.
Umsóknir berist skólastjóra fyrir 5. október n.k.
Skólastjóri.
DALVÍK
Dalvíkurbær
Sundlaug Dalvíkur verður opin á eftirtöldum
tímum í vetur:
Þriðjudaga frá kl. 17-21.
Fimmtudaga frá kl. 17-21.
Laugardaga frá kl. 13-16.
Árshátíð
Svarfdælingasamtökin í Reykjavík og nágrenni
halda árshátíð sína 1. vetrardag, 21. okt. nk., í nýj-
um og glæsilegum sal að Sigtúni 3. Húsið opnað kl.
19.30. Borðhald hefst kl. 20.00 stundvíslega.
Ræðumaður kvöldsins Gunnlaugur Snævarr.
Skemmtiatriði. Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi.
Miðapantanir í síma 39833 og 656115 þann 14., 15.
og 16. okt. eftir kl. 16 alla daga.
Ath. breyttan stað og tíma.
Jóla- og tækifæriskort seld á staðnum.
Mætum öll hress og kát.
Stjórnin.