Norðurslóð - 23.11.1989, Síða 1

Norðurslóð - 23.11.1989, Síða 1
Svarfdælsk byggð & bær 13. árgangur Fimmtudagur 23. nóvember 1989 9. tölublað Úr Svarfaðardal. Víðirinn leggur undir sig dalbotninn. Bjarni Einarsson Byggðaj afiivægi Vegna mikilla umræðna um samvinnu og samruna sveitarfélaga undanfarið bað Norðurslóð Bjarna Einarsson, fyrrum bæjar- stjóra á Akureyri, nú deildarstjóra í Byggðastofnun, um úttekt á stöðu byggðar við utanverðan Eyjafjörð sérstaklega. Eftirfarandi er framlag hans til umræðunnar. Eyjafjörður, mótvægi höfuðborgarsvæðisins I mínum huga er Eyjafjarðar- byggð það byggða iand sem vatn fellur af í Eyjafjörð að viðbættri Grímsey. Þetta er svæðið frá og með Ólafsfirði tii og með Háls- hreppi. Hvað sem fornri um- dæmaskiptingu líður er þetta landssvæði félagsleg og efnahags- leg heild, nú með rúmlega 20.000 íbúa, og það hefur alla burði tii þess að vera blómlegasta byggð- arlag landsbyggðarinnar og kjarni öflugs Norðurlands. Hlut- verk Eyjafjarðar er einnig að stuðla að því að byggð geti áfram verið öflug í „jaðarlandshlutun- um“ þremur, Vestfjörðum, Norðurlandi vestan og austan Eyjafjarðar og á Austurlandi. Þessir landshlutar verða miklu byggilegri ef öflug og dafnandi atvinnu- og félagsstarfsemi fer fram beggja vegna við þá. Lands- hlutarnir þrír, Suðurland, Suður- nes og Vesturland, sem liggja að höfuðborgarsvæðinu, tengjast því nú sífellt betur með góðum vegum og eru að vissu leyti að verða hluti af því. Hins vegar njóta þeir, sérstaklega Vestur- og Suðurland, einnig góðs af öflugu kjarnasvæði hinum megin við sig. A Vestfjörðum verður vonandi á næstu árum gert það átak, sem nauðsynlegt er til þess að treysta byggðina þar. Sams konar átak verður svo vonandi gert fyrir austan. Austurland hefur mun meiri möguleika en Vestfirðir til vaxtar og bregðist Eyjafjörður skyldu sinni verður miðbik Aust- urlands að taka að sér mótvægis- hlutverkið gegn höfuðborgar- svæðinu þótt enn vanti mikið á að þetta svæði hafi þann styrkleika sem Eyjafjörður hefur í dag. En þá hugsun, að Eyjafjörður nái ekki aftur vopnum sínum og staðni til langframa, er ekki hægt að hugsa til enda. En þess vegna er þetta sagt aö þróun byggðar í Eyjafirði hefur verið með öðrum hætti þann áratug sem nú er að líða en maður hefði óskað. Mynd 1 sýnir hlutfallslegar breytingar á íbúafjölda Eyja- fjarðar, landsbyggðarinnar og landsins alls. Myndin sýnir glöggt hina kröftugu þróun í Eyjafirði á áttunda áratugnum, mun kröft- ugri en hvort sem er á lands- Pólstjarnan hækkar á hhnni Pólstjarnan Dalvík er í þann veginn að kaupa húsnæði það sem hún hefur haft á leigu undanfarin 5 ár, að Sandskeiði 26. Framkvæmdastjórinn Jón Tryggvason sagði blaðinu að í ráði væri að stækka síðan hús- næðið um 400 fermetra eða rúml. um helming. I þessu nýja húsnæði verður bætt aðstaða fyrir starfsfólk, stækkun á lag- erhúsnæði með kælingu og frysti. Niðursoðna lifrin hefur aðal- lega verið send til Rússlands og Kanada, og hann á ekki von á, að á því verði mikil breyting. Á síð- astliðnu sumri var byrjað á nýrri framleiðsluvöru hjá Pólstjörn- unni, sem hlaut nafnið „Tarama“. Petta eru þroskhrogn í sojaolíu framleidd í 100 gramma glösum. Þau voru kynnt á matvælasýn- ingu í Köln í Þýskalandi fyrr á árinu. Síðan hafa borist margar fyrirspurnir sem verið er að vinna úr. T.d. eru Frakkar áhugasamir um kaup á þessari nýju vöru, og var strax í sumar byrjað að senda Tarama til Frakklands. Þetta gef- ur góða von. Þá hafa framleiðsluvörur Pól- stjörnunnar nýlega verið sendar til kynningar bæði til Japans og ísraels. Jón á von á því að Tengelmann hinn þýski byrji aftur að kaupa af þeim vörur eftir áramótin. Það er ekki hægt að heyra ann- að en framkvæmdastjórinn sé nokkuð bjartsýnn á framtíðina þrátt fyrir að hart sé í ári og dag- lega berist fréttir af gjaldþroti stórra og smárra atvinnufyrir- tækja. Eigendur Pólstjörnunnar eru, auk Jóns, allar minni útgerðirnar á Dalvík (smábátarnir) og G. Ben. á Árskógsströnd. Norðurslóð óskar Pólstjörn- unni góðs gengis. Ásetningsmenn. F.v. Júlíus F'riðrikssun og Þórarinn Jónsson. Asetningur haustíð 1989 Forðagæsla er lagaskylda hér á landi og ber sveitarstjórnum að sjá til að hún sé framkvæmd samviskusamlega hver í sínu umdæmi. í Svarfaðardals- hreppi eru forðagæslufulltrúar eða ásetningsmenn, eins og þeir eru gjarnan kallaðir, Júlíus Friðriksson í Gröf og Þórarinn Jónsson á Bakka. Þeir hafa nú lokið haustumferð sinni og hefur Norðurslóð fengið hjá þeim eftirfarandi upplýsingar um fóðurbirgðir og fjölda búfjár í hreppnum. I svigum eru samsvar- andi tölur frá 1988 Kýr 797 ( 826) Kelfdar kvígur 108 ( H2) Yngri geldneyti 395 ( 199) Kálfar 211 ( 277) Gemlingar 347 ( 0) Hross 387 ( 363) Hænur 4255 (4265) Hér er það helst athyglisvert, að geldneyti eru miklu fleiri en áður enda ásettir kálfar óvenju- lega margir í fyrra. Menn eru að reyna að bæta sér upp sauðleysið. Þá er sauðfé aftur komið á blað þótt í smáum stíl sé. Og loks er það Ijóst, að enn eru menn að fjölga hrossum. Heildarfóðurmagn í rúmmetr- um er nú 42.200, sem er fvið minna en í fyrra. í þessari tölu eru 1654 rúllubaggar, sem eru metnir á 1,4 rúmmetra hver eða um 2200 rúmmetrar alls. Þetta er lítið yfir 5% af heyfengnum þótt það sýndist mikið á túnunum í sumar. Fóðurþörf í hreppnum er hins vegar metin á 35.500 rúm- metra svo afgangur ætti að verða allmikill á vori komanda þ.e. 6.700 rúmmetrar, sem slagar upp í 300 kýrfóður. í Eyjafirði Mynd 1. Hlutfallslegar breytingar ibúafjölda frá 1971 byggðinni sem heild eða í landinu öílu. Hins vegar dró mátt úr Eyjafirði eins og öðrum hlutum landsbyggðarinnar upp úr 1980. Byggðin virðist þó vera að sækja í sig veðrið upp á það síðasta og vonandi er það merki þess að stöðnunartímabilinu sé að ljúka. Þetta er samt ekki enn nógu gott því til meira verður að ætlast af Eyjafirði en öðrum hlutum lands- byggðarinnar. Þessi byggð verður að vera brjóstvörn landsbyggðar- innar þegar hallar undan fæti og í fylkingarbrjósti þegar vel gengur. En hér er ekki við íbúa Eyja- fjarðar að sakast nema að litlum hluta. Til þess verður að ætlast af landsfeðrum og mæðrum að þau átti sig á mikilvægi Eyjafjarðar og geri ráðstafanir til þess að tryggja þar þá þróun sem nauð- synleg er jafnframt því sem heimamenn líti raunsæjum aug- um á atvinnuuppbygginguna í héraðinu og láti hvergi deigan síga. Þótt í Eyjafirði sé þétt og sam- felld byggð og einstök byggðalög séu vel tengd með góðum vegum skiptist byggðin í nokkuð vel skil- greinanleg svæði. Mest ber að sjálfsögðu á Akureyri enda búa þar tæp 70% íbúa héraðsins. Hér á árum áður voru settar fram kenningar um ákveðna „stórbæi“ sem áttu að vera grundvöllur hagkvæmari byggðaþróunar. svokölluð stjörnukenning. Þar var Akureyri sett á oddinn. Þegar ég gerðist framkvæmdastjóri þessa bæjarfélags vorið 1967 var „Akureyrarkenningin" í hámæli. í sjálfu sér var talsverður sann- leikur í þessari kenningu. En sá var galli við framsetningu flestra að Akureyri slitin úr samhengi við nágrannabyggðir sínar. Þegar ég kom norður hafði ég í um fjögur ár unnið við rannsóknir á byggðaþróun í landinu og gerð byggðaþróunaráætlana, m.a. um tveggja ára skeið við undirbúning „Norðurlandsáætlunar". Mér var orðið vel ljóst að byggðir, hvort sem talað var um héruð eða stærri svæði, líktust helst lifandi verum, þar sem liver hluti „lík- amans" hafði sínu hlutverki að gegna. I mínum huga var norð- lenska stórstjarnan ekki Akur- eyri ein út af fyrir sig heldur hér- aðið sem heild. Eftir að norður kom varð ég mikið var við að á Akureyri sem annars staðar þar sem ég hafði komið hugsuðu flestir suður. Ef Akureyringar ræddu um vegamál var einn veg- ur til umræðu, vegurinn til Reykjavíkur. Það sama sögðu Vestfirðingar og Norðlendingar aðrir en Akureyringar. Lands- byggðarfólk virtist ekki sjá nema einn möguleika til að bæta lífið, það að vera nógu fljótur að aka til Reykjavíkur. Ég einsetti mér að byrja á að reyna að vaska þessa vitleysu úr heilabúunr Akureyringa og á klúbbfundum og annars staðar þar sem mér var leyft að tala hélt ég því fram að menn ættu að líta sér nær. Akur- eyri mundi hvorki þrífast í ey- firskri né norðlenskri eyðimörk. Bæinn skyldum við byggja upp samtímis eflingu eyfirskrar og Framhald á bls. 3.

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.