Norðurslóð - 23.11.1989, Blaðsíða 2
2 - NORÐURSLÓÐ
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og abyrgðarmenn:
Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal
Jóhann Antonsson, Dalvík
Afgreiðsla og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn
Sími 96-61555
Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson
Prentun: Dagsprent
Að aðlagast
raunvöxtum
Margt bendir til að nú rofi til í rekstri fyrirtækja í
sjávarútvegi. Rekstrarskilyrði greinarinnar eru nú
betri en þau hafa verið um nokkurt skeið. Auk
þess gera skuldbreytingar sem framkvæmdar hafa
verið hjá mörgum fyrirtækjum þeim léttara fyrir
að standa við skuldbindingar sínar. Hitt er svo
annað mál að mörg fyrirtækjanna í þessari grein
skulda orðið mjög mikið og þola ekki nokkurt
áfall meðan svo er. Sumum kann að þykja að slíkt
sé nú gömul saga og það er út af fyrir sig
rétt. En nú ber fjármagn háa raunvexti, það er
breyting frá því sem áður var.
Hér áður fyrr linaði verðbólgan þjáningar
skuldugustu fyrirtækjanna en nú eykur fjármagns-
kostnaður erfiðleikana. Hækkun fjármagnskostn-
aðar hefur kallað á hagkvæmari rekstur og meiri
varfærni í fjárfestingum. Fyrirtækin voru svifasein
að bregðast við þessum breyttu aðstæðum, auk
þess villti uppsveifla í efnahagslífinu á árunum
1986 og 7 mönnum sýn, og því dróst að gerðar
væru í atvinnulífinu ráðstafanir á réttum tíma. Nú
eru samdráttartímar og magnast því upp vandinn
sem fylgir háum vöxtum.
Raunvextir voru allt of háir til skamms tíma og
eru reyndar enn. Þó þeir verði að lækka munum
við áfram búa við raunvexti og tímar neikvæðra
vaxta munu varla koma að nýju. Þess vegna er
Ijóst að skuldug fyrirtæki munu eiga erfiða tíma
fyrir höndum og krafa til hagkvæms reksturs mun
því verða gerð til þeirra. Yið þessu verða fyrirtæk-
in að bregðast fljótt og vel. Enda eru margir að
gera það.
Ymsar breytingar sem hafa verið að gerast á
sviði sjávarútvegsmála, til dæmis í sölu á
fiskafurðum okkar erlendis og vinnsluaðferðum,
gera það að verkum, að við þurfum að endurmeta
flesta hluti á þessu sviði. Fyrirtækjum í sjávarút-
vegi er því mikill vandi á höndum að bregðast við
hinum breyttu aðstæðum. Það er hins vegar fyrst
og fremst á valdi fyrirtækjanna sjálfra að verjast
áföilum sem af breytingum leiða.
Að vísu er það svo að stjórnvöld verða sem fyrst
að breyta mörgum leikreglum sem gilt hafa fyrir
sjávarútveginn. Þó aðkallandi sé er slíkt ekki í
sjónmáli. Hagsmunapot og hagsmunagæsla gera
allar kerfisbreytingar erfiðar. Dirfsku þarf til að
gera það sem gera þarf. Meðan lenska er að gera
ekki hluti sem gera þarf, fyrr en svokallaðir hags-
munaaðilar skrifa upp á það, er hætt við að seint
gangi. J.A.
Frti
sófumifresti
Aðventusamkomur verða á Dalvík og í
Svarfaðardal í desember sem hér segir:
Vallakirkju föstudaginn 8. des. kl. 21.00.
í Dalvíkurldrkju sunnudaginn 10. des.
kl. 20,30.
Dagbók Jóhanns
á Hvarfi
- Anno 1898
18. júní. Rekið geldfé, var
Holá rekandi svo vel gekk,
Flekkur slapp við Sandá, voru 4
gemlingar komnir fram á Tungu
af kyni Flekks. Fóru 4 bátar í
hvalferð til Siglufjarðar, fengu
það sem flutt gátu.
20. júní. Fékk Gunnlaugur á
Karlsá 20 kr. af Sparisjóði til að
geta farið til hvalkaupa á Siglu-
fjörð.
24. júní. Gott veður. Kom Jói
litli heim, höfðu menn héðan af 4
bátum skorið hval á Siglufirði er
Færeyskur Cútter kom með og
seldi Siglfirðingum. Var hlutur úr
6-rónum bát 2 krónur fyrir utan
vinnulaun sem gengu í hlutinn,
var spik, rengi, sporð og bægsla-
hvalur á 3ja hundrað pund.
25. júní. Gerðum við til góða
hval þeim sem kom í gærkvöldi.
Brætt og saltað. Sendur matur til
pilta. Kom Nonni heim, hefur
verið á Mínervu frá 30. f.m.
26. júní. Fór Jói ofan á Möl
með bréf til sýslumanns fyrir mig,
bað Jón M. Magnússon fyrir það.
Fóru piltar ofan: Jói Hjaltastöð-
um, og Jón en Jói vinnumaður
var niðurfrá.
26. júní. Fært frá. Komið með
Hofsárkotslömbin, setin saman
við.
27. júní. Hiti 13 stig. Fór ég
með lambið sem Guðjón á
Hreiðarsstöðum lánaði mér.
Böðuð lömbin að kvöldi.
1. júlí. í vetur og vor hefur hér
í sveit gengið dipteritis barna-
veiki hafa dáið 20 börn til þessa
tíma, líka hefur taugaveiki geng-
ið talsvert á Vesturkjálka — nú
hefur Klemenz sýslumaður látið
prenta skjal sem bannar allar
samgöngur við hin sýktu heimili.
3. júlí. í nótt logn og frost 4
stig, féllu plöntur uppkomnar hér
í garði sem voru í góðum horfum
(kartöflur). Fóru piltar ofan, róið
með nýja síld.
4. júlí. Fórum við Jói ofan með
3 reiðingshesta. Skift pöntun. Lá
Rósa við Sandinn. Tók skip
Gránufélagsins fiskinn. Kom
með prjónavél til mín frá Chr.
Havstein. Tekin maskínan, fisk-
ur og fleira. Kom Consúlsskip
hér að Sandi.
6. júlí. Fór Jói ofan í Consúl-
skip, verður þar til helgar. Byrj-
aði að slá ofurlitla stund (hann
byrjar sjálfur eitthvað að slá, sýn-
ist mér vera venja).
17. júlí. Fundur á þinghúsi.
Kosið til fundar á Akureyri, þar á
að kjósa til Þingvallareiðar. Til
að mæta á Akureyri nokkrir:
Halldór á Melum, Jón á Hreið-
arsstöðum, Þorleifur Hóli, Þor-
gils Sökku.
1. ágúst. Fylgdi ég Baldvin
gamla á Oddeyri með kú út í
Háls (keypt á Hnjúki).
3. ágúst. Norðaustan hrak-
viðri, snjóar í fjöll, slítur hvítt úr
honum í byggð. Entum að slá
mýrar. Ær fóru heim til húsa eins
og á vetrardag.
7. ágúst. Kom Nonni, og
Sveinn með honum. Fóru Syðra-
Hvarfshjón með Gunnlaug litla
til kirkju, sem áður var heima-
skírður skemmri skírn. Fórum
við hjónin suður í Hvarf í skírn-
arveislu.
11. ágúst. Fór Gísli á Hvarfi í
kaupstað að taka út viðinn í Hol-
árbrú.
12. ágúst. Tók Gísli brúarvið-
inn hjá Snorra, ráðgert að flytja
með Skálholti.
2. september. Frost, heiðríkt
og ekki bakki til hafs. Fór ég,
Gísli, Jói á Hjaltastöðum og
Sigurður Jónsson í Sælu, byrjuð-
um þessir 4 á undirstöðustólpum
við Holárbrú, fengum 60 pund
sement hjá Þórði á Hnjúki. Snúið
öllu. Hirt hvert strá hér. Bárum
heim orf að kvöldi.
9. sept. Fékk Nonni fisk á
handfæri, töluvert, kom heim
með á tveim hestum.
10. sept. Göngur. Gangnaveð-
ur hið versta, sótþoka.
21. sept. Var Jón á Hjaltastöð-
um hér, risti í bása og þakti, gert
að gáttum og fleira þess háttar.
22. sept. Komu allir sem ráku
markaðsfé.
25. sept. Komu rekstrarmenn
úr Fljótum, ráku þeir pöntunar-
sauði á Oddeyri, Hjaltadalsheiði,
voru þeir 5 daga að reka þangað
eftir byggð, fyrst í Hjaltadalinn,
svo ofan Hörgárdal. Þótti þeim
gott að reka fram í skip á Odd-
eyri, eftir því sem þeir hafa vanist
á Króknum. Fylgdi ég þeim að
Urðum.
28. sept. Sótti ég með stúlkum
hrís á 2 hesta.
30. sept. Rakaðar gærur,
höggnir kroppar. Komu 2 menn
vestan frá Hofsós sóttu síld á 2
hesta, hefir það eigi verið gert í
minni tíð.
20. október. Jörðuð 3 börn á
Urðum: 1 frá Klaufabrekkum, 1
frá Ytri-Másstöðum, 1 frá Þverá,
öll látin í sömu gröf.
29. okt. Komu piltar heim frá
sjó, sögðu beituskort því ekkert
er utan pækluð síld til þeitu. Hef-
ur þessi mánuður verið góðviðra-
samur. Fóru bræður með 150
rjúpur til að koma þeim í kaup-
stað.
1. nóv. Fór Jói með Sokku
fram í Gljúfurárkot, Bergur fær
folald hennar, brúna hryssu með
hvítan blett á herðakambi. Ætlar
Jói að koma aftur með Sokka
minn þriggja vetra og Rauð sinn
veturgamlan, er gengið hafa á
Kongstaðadal í sumar. Kom Jói
með báða folana og Sokku aftur,
en Bergur tók folaldið, læt ég það
borga upprekstrartoll.
4. nóv. Kom Gísli úr kaupstað
í gær og hingað í dag, sagði að
nokkrir bátar hefðu róið í gær
tveim þeirra hvolft við Böggvis-
staðasand, drukknuðu 3 menn af
Syðra-Holts bát og 3 af Grundar-
bát, 3 var bjargað af hvorum
þeirra. Þeir sem drukknuðu:
Júlíus formaður Guðmundsson í
Halldórsgerði (maður Helgu
Magnúsdóttur), Björn Sigfússon
Tjarnargarðshorni (húsmaður
þar frá Grund. Bróðir Snorra og
Ingigerðar), Eggert Jónsson
Hreiðastaðakoti (faðir Soffíu,
Holtinu síðast). Þessir af
Holtsbát, en af honum komust:
Baldvin Blakksgerði (Steindyr-
um), Þorleifur Syðra-Holti (faðir
Sigfúsar útgerðarmanns), Jóhann
Sigurðsson hér af heimili (Jói
vinnumaður síðar Skriðu) var
hann mjög hætt staddur og liggur
niður á Sandi. Af Grundarbát
fórust: Haraldur Jónsson Tjarn-
argarðshorni (bróðir Soffíu móð-
ur Petrínu), Guðmundur Krist-
jánsson Ingvörum (sonur Krist-
jáns áður bónda á Hrafnsstöðum,
unglingur), Guðmundur frá
Laugarhúsum í Fljótum. En af
komust: Gunnlaugur á Grund
(Daníelsson frá Tjarnargarðs-
horni), Sigurður á Hofsá (frá
Atlastöðum Björnsson og
bóndi í Sælu), Sigurður Grund
(frá Hálsi, albróðir Ingibjargar
Svæði. Saga Dl. Fórst með Krist-
jáni 1904).
4. nóvember. Kom Nonni
heim í kvöld, sagði allt hið sama
og Gísli. Talaði Jón við Jóhann
og sagði að hann hefði gengið
milli rúma meðan búið var um
hann.
5. nóv. Fór ofan með 2 hesta,
sótti Jóa og flutti heim, var hann
eftir vonum.
14. nóv. Frétti í bréfi að Jór-
unn í Kálfskinni dóttir okkar
liggur þungt haldin. Vestan
fjaska veður í nótt með stórhríð.
Lækir illir vegna klakastíflu, fór
bæjarlækurinn hér heim á hlað og
inn í Grindahjall og út um tún úr
farvegi sínum. 4 bátar fuku á
Árskógsströnd.
19. nóv. Fór Solla í Kálfskinn
ytra. Jórunn liggur og á að ljá
stúlku þangað nokkra daga.
23. nóvember. Dó Jórunn
dóttir okkar kona Ólafs í
Kálfsskinni 32 ára.
26. nóv. Kom Baldvin litli á
Brattavöllum með bréf um
dauðsfall Jórunnar. Dó hún í bát
á flutningaleið á spítala, eftir
þunga og stranga legu.
3. dcsember. Fjaska stórfenni,
skaflar og djúpt á milli.
7. des. Fór Sólveig inn í Litla-
Skóg, fylgdi Einar í Brautarhóli
henni, illt að ganga og skíðafærð
vond.
8. des. Fór fram jarðarför í
Stærri-Árskógi, við vorum
héðan: Sólveig, Jóhann, Tryggvi,
Þóra og Sólveig vinnukona. (Síð-
ar Skeggstöðum, systir Sveins.)
Ég var heima, treysti mér ekki
sökum ófærðar og lasleika, sendi
ég með þeim vers sem Þorsteinn
orti (Þorsteinn Þorkelsson Syðra-
Hvarfi).
9. des. Kom Jói, Tryggvi og
Solla heim í kvöld, Sólveig gisti á
Hálsi, Þóra í Litla-Árskógi.
10. des. Síld veiðist inni á firði,
margir á Árskógsströnd við þá
veiði.
28. des. íshúsfundur í húsi
Jóns Stefánssonar. Gisti í Ár-
gerði, leit í blöð sem Jón Stefáns-
son kom með.
31. des. Fór Jói og Tryggvi
ofan á Sand á Bindindisfélags-
fund, hafði þar verið fjöldi fólks.
Sunnan stormur. Hefur verið illt
bæði tíð og jörð síðan með nóv-
ember. Öll jólafasta snjór og
hríðarveður.
Árið 1898. Heilsufar hér yfir-
leitt misfellasamt. Taugaveiki
gekk í byrjun árs samhliða hinni
illkynjuðu difteritis barnaveiki
sem stakk sér niður hingað og
þangað til haustnótta, þá kvað
mest að því í Tjarnarsókn. Úr
taugaveiki dó enginn af 78 er í
henni lágu. Úr áðurnefndri
barnaveiki dóu 25 börn og að
auki 8 börn úr öðrum kvillum,
alls 33 börn. Fullorðnir dóu 11 á
sóttarsæng flest aldrað fólk, og 3.
nóvember drukknuðu 5 menn
hér úr sveit og 1 úr Fljótum af
tveim bátum er hvolfdi í brim-
garði við Böggvisstaðasand;
sama dag drukknuðu 4 menn frá
Krossum og 2 menn inni í
Krossanesál. Hafa því látist af
yngra og eldra fólki hér í sveit 49
manns.
LEIÐRÉTTINGAR -
í síðasta kafla Dagbókarinnar
stendur við færslu 30. janúar
Steini í Gröf. Þarna átti að
standa Stjáni í Gröf (Kristján í
Brautarhóli). Undir færslu 16.
maí stendur Gunnar á Klængs-
hóli. Þarna á að standa Gunna á
Klængshóli (Guðrún vinnukona á
Hvarfi Arngrímsdóttir bónda á
Klaufrakoti).