Norðurslóð - 23.11.1989, Page 3

Norðurslóð - 23.11.1989, Page 3
NORÐURSLÓÐ - 3 Byggðajafhvægi - Framhald af forsídu norðlenskrar byggðar. Vegurinn suður mætti bíða og vegur númer eitt í Eyjafirði lægi til Dalvíkur og Ólafsfjarðar, næstur í röðinni væri svo vegurinn til Húsavíkur og því næst vegurinn til Sauðár- króks. Með slíkum samtenging- um yrði til sá byggðakjarni á Norðurlandi sem allt standast mundi samkeppni höfuðborgar- svæðisins og stuðla að jafnvægi byggðar um landið allt. Því mið- ur er tengingin við Sauðárkrók ekki að fullu komin enn. Jafnvægi í byggð Eyjafjarðar Ég minnist þess að fyrir u.þ.b. 20 árum leitaði þekktur embættis- maður ríkisins álits míns á veru- legri uppbyggingu sem þá átti sér stað á Grenivík. Honum fannst menn vera að dreifa kröftunum, betra væri að nota aurinn á Akur- eyri. Ég andmælti kenningunni og sagði að á Grenivík væri hægt að gera hluti á hagkvæman hátt sem ekki væru hagkvæmir á Akureyri og þótt gera mætti þetta á Dalvík eða Ólafsfirði væri mikils um vert að efla útvörð ey- firskrar byggðar út með firði að austan. Reynslan sannar að þessi kenning var rétt. Vegna Greni- víkur er hægri fylkingararmúrinn miklu traustari en ella væri en í Svalbarðsstrandarhreppi, Grýtu- bakkahreppi og í Hálshreppi búa nú um 935 manns. Handan fjarð- arins er þó eftir enn meiru að slægjast. Þar standa tveir kaup- staðir þétt saman sem til þessa hafa verið einangraðir hvor frá öðrum. Nú rofnar sú einangrun og samkvæmt lögmálinu munu Dalvík og Ólafsfjörður senn fara að renna saman í eina hagræna og félagslega heild. Vegna hörmulegrar skammsýni eru Múlagöng að vísu of mjó, því Vegagerðin virðist ekki skilja hvað gerist þegar einangrun ná- lægra siaða rofnar. Vart munu mörg ár liðin af nýrri öld þegar vegna miklillar umferðar verður talið nauðsynlegt að gera önnur jarðgöng við hlið þeirra sem nú er verið að Ijúka við. En þessi útvarðarbyggð Eyjafjarðar að vestan er stærri en þetta. I næsta nágrenni við kaupstaðina tvo eru Svarfaðardalur og Árskógs- hreppur og einnig er eðlilegt að hugsa sér að Hrísey tengist við þessa byggð. Á þessu svæði öllu bjuggu í árslok 1988 yfir 3500 manns sem er um 17,5% Eyfirð- inga. Próun þessarar byggðar sem heildar hefur verið sveiflu- kennd. Síðustu árin hefur hún þó tekið að eflast verulega og örugg tenging Ólafsfjarðar við hana kemur til með að efla hana enn meira. Þegar horft er yfir Eyjafjörð allan, þessa þrjá þéttbýlisstaði héraðsins auk tveggja landbún- aðarsvæða sem hér eru enn ótal- in, utan Akureyrar með um 670 íbúa og framan Akureyrar með tæplega 1000 íbúa og svo Gríms- eyjar með 114 íbúa, þarf ekki nema meðalhugmyndaflug og skilning á mannlegu samfélagi til þess að átta sig á samhengi og afli þessa héraðs. Sú mynd sem kem- ur hér fram í mynd 2 af íbúaþró- un svæðanna á þeim áratug sem nú er að líða í kjölfar framfar- anna á áttunda áratugnum verður því að teljast óeðlileg. Það þjóð- félagslega ástand og sú stjórnun sem leiðir til þess að slíkt hérað tapar fólki, sbr. einnig mynd 3, getur ekki talist vitræn. Mynd 2 Hlutfallslegar breytlngar íbúafjölda frá 1971 ---D EyjafjðrÖur — Arskógsbær •— Akurcyri Grcnivik og nágrenni —ö— Svcitahrcppar Mynd 3 Fólksflutningar aö og frá Eyjafiröi Breyting þróunarstefnunnar upp úr 1980 var átakanleg. Þessi breyting var bein afleiðing þess skilningsleysis sem þá ríkti meðal valdamanna á orsökum byggða- röskunar í landinu. En það ánægjulega er þó þegar horft er til Eyjafjarðar er, að síðustu árin hefur þróunin þar snúist til betri vegar samtímis því að brottflutn- ingur af landsbyggðinni sem heild eru meiri en nokkru sinni fyrr. Leiðandi í þeirri þróun er byggð- arlagið út með firði að vestan, sem ég ætla að leyfa mér að gefa bráðabirgðanafnið Árskógsbær. Akureyri fylgdi í kjölfarið ári seinna. Svæðið út með firði að austan hefur tapað fólki síðan 1984 en gæti núna verið að ná jafnvægi. Merkilegast er þó ef til vill hið ágæta jafnvægi sem sveitahrepparnir halda á meðan flest landbúnaðarsvæði landsins eiga í miklum erfiðleikum. Hins vegar er enn langt í land með að Eyjafjörður nái aftur snerpunni frá áttunda áratugnum. Það ger- ist varla nema héraðið fái víta- mínsprautu í formi stóraukins atvinnurekstrar. Árskógsbær Öflugt samfélag út með firði að vestan eflir hina eyfirsku heild mun meira en ef þar væri strjál- býlt en mismunur íbúafjöldans væri búsettur á Akureyri. Vita- skuld er þessi byggð og verður annexía frá þjónustumiðstöðinni, Akureyri. En fyrir það fyrsta, er þarna atvinnustarfsemi sem hag- kvæmara er að reka ytra en í stóra bænum og fleira getur til komið á atvinnumálasviðinu sem hentar betur út með firði en inni við fjarðarbotn. Á sama hátt og öflugur Eyjafjörður hefur jákvæð áhrif á byggð á milli hans og höfuðborgarinnar hefur öflugt samfélag út með firði mikil áhrif á búsetu á strandlengjunni á milli þess og Akureyrar. Við þetta má svo bæta aukinni tilbreytingu í mannlífinu öllu ef meiriháttar bæir eru fleiri en einn. En hvaða rétt á embættismaður suður í Reykjavík að vera að búa til bæ úr fimm sjálfstæðum sveitarfélög- um og það, þó hér sé af gamni gert og til hægðarauka, að gefa honum þó ekki sé nema bráða- birgðanafn. Þessi bíræfni helgast af tvennu. Annars vegar helgast hún af hinni miklu breytingu sem verður við það að Ólafsfjörður tengist hinum sveitarfélögunum fjórum með tilkomu Múlaganga en hins vegar af sögulegum stað- reyndum og umtali sem af og til hefur farið fram um aukið samstarf þessara sveitarfélaga, um sam- einingu sumra þeirra og, hjá þeim róttækustu, sameiningu þeirra allra. í skjóli þessa tek ég mér þann rétt að nota gagna- brunn tölvukerfis Byggðastofnun- ar til að búa þennan bæ til og nafnið vel ég vegna þess að mér finnst það fallegt. Árið 1986 var nokkurs konar botnár öfugþróunar níunda ára- tugarins við Eyjafjörð. Frá árs- lokum 1986 til ársloka 1988 fjölg- aði fólki við fjörðinn um 419 manns, þar af um 219 á Akur- eyri. í Árskógsbænum fjölgaði um 154 manns. Mest var fjölgun- in á Dalvík 91, í Ólafsfirði 38 í Svarfaðardal 21 og í Árskógs- hreppi 7. í Hrísey fækkaði um 3. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar, sem við notum í gagnabankanum, var heildar- íbúafjöldirm í árslok 1988 3525 manns. Sambærilegir bæir að íbúafjölda eru Selfoss og ísa- fjörður, höfuðstaðir Suðurlands og Vestfjarða. Á þessu má sjá að Árskógsbær er öflug eining sem ráðið getur við stór verkefni. Hér á eftir ætla ég að setja fram forv- itnilegar upplýsingar um Árskógsbæ í myndrænu formi. Tölvutæknin er notuð til að breyta tölum gagnabanka Byggð- astofnunar í myndir sem gefa þægilega og fljóta yfirsýn. Orðin verða tiltölulega fá. Sú fyrsta af þessum myndum, mynd 4 sýnir breytingar á íbúa- fjölda svæðisins síðan 1941. Unt þá þróun er fátt að segja. Á myndinni sést, að erfið tímabil hafa gengið yfir Árskógsbæ þótt heildarþróunin hafi verið jákvæð og lengst af ör. Mynd 4 Fjöldi íbúa í Árskógsbæ Mynd 7 Atvinnuskipting 1987 0.0% - Landbúnaður Úivcgsgrcinar Iðnaður Byggingar Þjónustugrcinar hlutfall útvegsgreinanna, en inn- an bæjarins eru nú fimm útvegs- pláss, Ólafsfjörður, Dalvík, Hrísey, Árskógssandur og Haugancs. Hlutfall útvegsgrein- anna er nógu hátt til þess að á öðrum Norðurlöndum væri Ár- skógsbær talinn hafa mjög ein- hæft atvinnulíf. Hér á landi er þó hægt að finna fjölda bæja með hærra hlutfall útvegsgreina, hæst um og yfir 60%. Mismunurinn á hlutföllum iðngreina og þjón- ustugreina er afar eðlilegur. Á heildina litið er bærinn livað atvinnuskiptingu varðar áþekkur sumum öðrum íslenskum útvegs- Mynd 5 Síðan kemur mynd nr. 5, sem ,ýnir fólksflutninga að og frá \rskógsbæ síðan 1971. Þróun ressara fólksflutninga er ekki úns og algengast er á landsbyggð- nni á þessu tímabili. Algengasta rróunin, og einnig þróun á lands- jyggðinni sem heild, var þannig rð við upphaf áttunda áratugar- ns var brottflutningur mikill en iíðan fór hann ört minnkandi og jm miðjan áratuginn var flutn- ngsjöfnuðurinn orðinn lands- oyggðinni hagstæður. Síðan fór jöfnuðurinn aftur að þróast landsbyggðinni í óhag og það hefur hann haldið áfram að gera. Nú er svo komið að um 1,5% íbúa landsbyggðarinnar sem heildar flytja til höfuðborgar- svæðisins á ári. Gagnstætt þessu er flutningaþróun Árskógsbæjar skrykkjótt frá ári til árs. Érá árinu 1982 til 1985 minnkuðu aðflutningar mjög en brottflutn- ingar sveifluðust til frá ári til árs eins og áður. Síðan 1986 hafa aðflutningar farið vaxandi. Mynd 6 Aldurssklpting 1.1. 1989 60.0%-1 stöðum. Næst síðasta myndin sýnir svo breytingar á atvinnulífi Arskógsbæjar frá 1981 til 1987 og sú síðasta er byggð á sömu tölum, sýnir nettóbreytingar á fjölda ársverka. Mynd 8 samstarf. Ekki er vafi á að sem eitt sveitarfélag væri Árskógsbær sterkur. Hins vegar þarf margt að athuga áður en sameining yrði ákveðin. En ekki er alltaf þörf fyrir byltingar, markviss þróun er oftast betri kostur. Þótt íslend- ingum sé oft illa við að horfa fram fyrir nef sér er það mjög gagnlegt fyrir sveitarstjórnir. Menn verða að geta hugsað sér, að ákveðin þróun verði á svæðinu sem jafnvel eigi sér ákveðið markmið og síðan geta menn gengið þróunarbrautina skref fyr- ir skref. Niðurlag Ég lét koma fram hér framar að ákveðinn sannleikur sé fólginn í gönrlu stjörnukenningunni ef hún er rétt túlkuð. Þá er ekki bara tekið mið af einhverjum örfáum, einangruðum stórbæjum, einum í hverjum Iandshlúta. Það afbrigði stjörnukenningarinnar sem er í fullu gildi og er að verulegu leyti grunnur þeirra kenninga sem nú eru settar fram urri hvernig ís- lensk byggðastefna eigi að vera næstu ár, byggir á að með mikl- um vegabótum verði byggð upp „kjarnasvæði", þar sem þjón- ustumiðstöðvar, sérhæfðir bæir og kauptún og sveitir verði tengd saman til þess að verka sem ein félagsleg og efnahagsleg heild. Með þcssu móti verði byggðir upp stærri markaðir úti á landi og með þessu móti verði einnig hægt að bjóða upp á meira úrval atvinnu. Slík svæði vonast menn nú til að geta byggt upp á Vest- fjörðum og á Áusturlandi með mikilli jarðgangagerð. Eyjafjörð- ur er slíkt svæði, það öflugasta í landinu og er raunar fyrit myndin þegar um þessi mál er fjallað í almennu samhengi. En þessi kenning hrynur ef hún ekki getur sannast hjá fyrirmyndinni. Því er mikilvægt að í Éyjafirði komi ótvírætt fram að tiltölulega fjöl- v,‘" ZL Landbúnaður Útvegsgreinar Iðnaður Mynd 9 Byggingar Þjónustugreinar 0-19 ára 20-69 ára 70áraogyftr Aldurshópar I mynd 6 er gerður samanburð- ur á grófri aldursskiptingu í Árskógsbæ og á Akureyri. Þessi mynd sýnir í báðum bæjum aldursskiptingu sem ekki er ýkja frábrugðin landsmeðaltali. Börn og unglingar eru ívið fleiri í Árskógsbæ en á Akureyri og fólk á starfsaldri og eldra fólk aðeins færra. Ekki er hægt að segja ann- að en að þetta sé hagstæð aldurs- skipting fyrir atvinnulíf og rekst- ur sveitarfélags. Að síðustu koma fáeinar myndir sem eiga að lýsa atvinnu- skiptingu og atvinnuþróun í Árskógsbæ. Mynd 7 er saman- burður á atvinnuskiptingu í Árskógsbæ og á Akureyri. Hér gefur að líta afar ólíka atvinnuskiptingu. Tiltölulega hátt hlutfall landbúnaðar stafar auðvitað af því að innan Ár- skógsbæjar eru all miklar sveitir. Stærsta frávikið er þó hið háa Landbúnaður Útvegsgreinar Á þessum myndum sést hvar vöxturinn hefur verið í atvinnu- lífi svæðisins. Eins og annars staðar skara þjónustugreinarnar fram úr, enda er nú svo komið að yfir 90% eru í þjónustugreinum sem er sams konar hlutfall og hjá mörgum þjóðum sem eru á svip- uðu þróunarstigi og við íslend- ingar erum á. Hjá ýmsum iðnað- arþjóðum fækkar reyndar störf- um í framleiðslugreinum þannig að fjölgun í þjónustugreinunum er komin yfir 100%. Sá lauslegi fróðleikur sem hér hefur verið settur fram um svæðið, sem ég hef leyft mér að kalla Árskógsbæ, bendir til þess að sem heild sé þetta svæði á íslenska vísu mjög sterk eining. Þetta afl nýtist að sjálfsögðu mun betur ef sveitarfélögin starfa náið saman. Til þess að sanna það þarf engar frekari rannsóknir né kannanir. Sameining sveitarfé- laga er mun flóknara mál en Iðnaður Byggingar Þjónustugreinar menn atvinnu- og þjónustusvæði geti þróast ört og geti boðið fólki upp á þá atvinnu og aðra aðstöðu til að lifa, sem það er sátt við. Ég held að engan langi til að búa í íslenska borgríkinu við Faxaflóa með landsbyggðina að öðru leyti í auðn. Kannski verður þeim spurningum svarað við Eyjafjörð á allra næstu árum hvort ástæða sé til þess að óttast að sú þróun verði sem við í Byggðastofnun höfum reiknað að verði með óbreyttri byggðaþróun, þar sem fólksfjöldi sent svarar til allra íbúa Norðurlandskjördæmis eystra flytur suður á árunum fram til 2010. Við, sem viljum umfram allt fá jákvætt svar að norðan, viljum þá að sjálfsögðu að þróun byggðarinnar við Eyja- fjörð rati inn á þá þróunarbraut sem styrki hana mest. Þá verður að ríkja byggðajafnvægi við fjörðinn og til þess að svo verði verður byggð að dafna í Árskógs- bæ.

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.