Norðurslóð - 23.11.1989, Page 6
Tímamót
f
íslcnsk skírn í Lissabon.
Þann 26. nóvember verða 75 ára tvíburabræðurnir Hjalti Þor-
steinsson, Bjarkarbraut 15, Dalvík og Skafti Þorsteinsson,
Efstakoti, Dalvík.
Blaðið árnar heilla.
Andlát
31. október lést Björn Þór Árnason, skipstjóri, Smáravegi 8,
Dalvík.
Björn í>ór fæddist 29. september 1958, sonur Ingibjargar Jónínu
Björnsdóttur og Árna Reynis Óskarssonar. Var hann elstur sex
barna þeirra hjóna sem eru auk hans: Helga Kristín, Óskar
Reynir, Víkingur Arnar, Þorbjörg Ásdís og Snjólaug Elín.
Björn Þór fór ungur á sjóinn og var á sjónum að mestu leyti upp
frá því, utan hann settist á skólabekk á Dalvík veturinn 1981-
1982 og lauk þaðan skipstjórnarprófi. Hann var á nokkuð mörg-
um bátum á sínum sjómannsferli enda duglegur og eftirsóttur.
Var hann gjarnan stýrimaður á bátum frá því í byrjun þessa ára-
tugar og skipstjóri hin síðari ár, nú síðast á Hafsteini.
1979 eignaðist hann dóttur, Sigrúnu Birnu, með Guðrúnu Rún-
arsdóttur.
Björn Þór var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 4. nóvember.
JHÞ
7. nóvember lést Kristján Loftur Sölvason,
Hreiðarsstöðum, Svarfaðardal.
Kristján fæddist 1. júlí 1970 sonur Rósu
Sigrúnar Kristjánsdóttur og Sölva Hauks
Hjaltasonar. Var hann elstur fimm barna
þeirra hjóna sem eru auk hans: Sigurður
Jóhann, Ómar Hjalti, Anna Heiða og Jón
Haraldur.
Kristján ólst upp á Hreiðarsstöðum en eft-
ir skólagöngu í Húsabakkaskóla lá leið
hans til Dalvíkur þar sem hann lauk 9. bekk. Fór hann síðan að
vinna fyrir sér, var á sjó um tíma en vann einnig m.a. í Salthús-
inu og hjá Otri. Var hann skemmtilegur félagi, skrafhreifinn og
glaðlegur í viðmóti sem eignaðist marga félaga nær og fjær.
Kristján var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 11. nóvcmber.
JHÞ
Skírnir
Þann 23. september var skírð í Lissabon í Portúgal Jara Fatínia
Foreldrar hennar
eru hjónin Sandra
Carla Barbosa og
Brynjólfur Odds-
son, Lækjarstíg
7, Dalvík.
Skírn í Grundarkirkju. Katrín mcð Úlfur, Jóhann Ólafur með
Halldór.
Skírðir voru í Grundarkirkju í Eyjafirði 12. nóv. sl. tvíburarnir
Halldór Rafn og Úlfar Bjarki. Foreldrar þeirra eru Katrín
Úlfarsdóttir frá Grísará, Eyjafirði og Jóhann Ólafur Halldórs-
son frá Jarðbrú, Svarfaðardal, nú búsett Grundargötu 4, Akur-
eyri. Sr. Hannes Örn Blandon skírði.
Afmæli
Þann 8. nóvember varð áttræður Sigvaldi Gunnlaugsson bóndi í
Hofsárkoti, nú búsettur á Skeggsstöðum. (Sjá grein.)
Bókmenntaafrek við Árgerðisbrúna
Hér í Svarfaðardal hefur á
undanförnum árum og áratug-
um verið unnið hljóðlátt og
hógvært stórvirki á sviði
íslenskra bókmennta. Þar hef-
ur verið að verki fyrrverandi
héraðslæknir okkar Daníel Á.
Daníelsson í Árgerði, og verk-
ið er Ijóðaþýðingar.
Nú er komin út bókin Sonnett-
ur Shakespeares í þýðingu Daní-
els. Útgefandi er Bókaútgáfa
Menningarsjóðs og Þjóðvinafé-
lagsins. Það er ekki smáverk, sem
hér um ræðir. Sonnetturnar eru
154 að tölu, 14 ljóðlínur hver
samkvæmt hinu hefðbundna og
fastmótaða formi þessarar Ijóða-
gerðar. Flestir kannast við hið
mikla enska skáld, William
Shakespeare (d. 1616) og leikrit
hans, sem margir telja, að séu
mestu snilldarverk á því sviði,
sem nokkurn tímann hafa verið
skrifuð. Færri kannast við hina
miklu Ijóðabálka, sonnetturnar,
sem eru e.t.v. að sínu leyti ekkert
ómerkari bókmenntir þótt ekki
séu þær eins vel þekktar.
Mörg af leikritum Shakespear-
es, sem yfirleitt eru öll ort í
bundnu máli, hafa verið þýdd á
íslenska tungu. Þar koma við
sögu m.a. Matthías Jochumsson
og á síðari árum Helgi Hálfdán-
arson. Fáir nokkrir'hafa á hinn
bóginn tekist á við sonnetturnar
til þessa, þangað til nú að
D.Á.D. stígur fram og hefur upp
raust sína.
Það er álit undirritaðs, að þetta
verk Daníels sé fyrirtaks gott og
muni lengi halda nafni hans á
lofti. Það er ekki heiglum hent að
glíma við hið knappa form sonn-
ettunnar og verða um leið að
heiðra kröfur íslenskunnar um
stuðla og höfuðstafi en vera jafn-
framt trúr höfundinum um merk-
ingu og anda ljóðsins. Ég held að
þýðandinn hafi leyst þessa þraut
frábærlega vel.
Það gefur þessari bók stórauk-
ið gildi að Daníel skrifar í hana
langan og ítarlegan formála til
skýringar á þessum ljóðum hins
enska skálds, en mönnum hefur
lengi verið það nokkur ráðgáta,
hvernig þau urðu til og hvaða
saga, persónuleg og þjóðfélags-
leg, liggur að baki þeim. Enn-
frernur skrifar hann langan eftir-
mála um ákveðið svið vesturevr-
ópskra bókmennta, sem ensk
ljóðskáld á tímum Shakespeares
skutu rótum í. Allt mun þetta
vera nýstárlegur og merkilegur
fróðleikur fyrir hina ljóðelsku
íslensku þjóð.
Og svo skilgetið afkvæmi
Daníels læknis í Árgerði er þessi
bók, að jafnvel mynd Williams
Shakespeares fremst í bókinni er
Daníel Ixknir í árgcrði.
teiknimynd, sem hann gerði ung-
ur maður árið 1926.
Það má vera mikið ánægjuefni
hinum mikla bókmenntamanni
D.Á.D. að þessi bók er nú full-
búin og gefin út af einni virðuleg-
ustu stofnun íslenska ríkisins,
Menningarsjóði.
Okkur Svarfdælum má líka
vera það til nokkurrar upphefð-
ar, að slíkt andans afrek skuli
hafa verið unnið hérna á hólnum
við Árgerðisbrúna, í jaðri kaup-
staðarins á Dalvík og þó úti í
sveit, sem jafnframt er einn feg-
ursti staður í héraðinu. E.t.v. á
það einhvern þátt í hve hér hefur
fágætlega vel tekist til.
HEÞ.
Fréttahomið
Hjá KEA á Dalvík eru
breytingar nokkrar í
starfsliðinu. Nú lætur af störfum
sem dcildarstjóri Byggingavöru-
deildar eftir mjög langt og heilla-
drjúgt starf Friðþjófur Þórarins-
son, en hann mun þó halda áfram
að starfa hjá félaginu. Við starfi
sem deildarstjóri tekur Bragi
Jónsson húsasmíðameistari. Frá
því var sagt í síðata blaði, að
hann væri ráðinn húsvörður Dal-
víkurskóla. Af því verður sem sé
ekki og er sú staða því aftur laus
til umsóknar.
Friðþjófur. Birgir.
Pá hefur verið ráðinn „mat-
reiðslumeistari“ til Svarf-
dælabúðar. Er það Gunnar
Björgvinsson frá Fellum austur,
en hann hefur verið búsettur hér
um skeið. Er spennandi að sjá,
hvort breyting (til bóta) verður á
kjöt- og fiskborðinu, því lengi
getur gott bestnað eins og kerl-
ingin sagði.
s
Iþriðja lagi er þess að geta að
eftir mánaðarmótin flyst um-
boð Samvinnutrygginga og
Brunabótafélags íslands, nú sam-
einuð í Vátryggingafélag íslands
hf., í nýtt húsnæði í gömlu Bygg-
ingavörudeild á jarðhæð vestast í
Kaupfélagshúsinu. Er verið að
innrétta þar væna skrifstofu fyrir
umboðið, sem Birgir Sigurðsson
veitir forstöðu.
Leikfélag Dalvíkur hóf vetr-
arstarfsemi sína sl. laugar-
dag. Þetta var kynning á rithöf-
undinum Guðlaugi Arasyni og
var lesið upp úr bók hans „Vík-
ursamfélagið". Þráinn Karlsson
stjórnaði upplestrinum og hafði
hann ásamt höfundinum, valið
kaflana sem lesnir voru. Hvorki
meira né minna en 18 upplesarar
komu fram. Á milli atriða léku 3
ungar stúlkur úr Tónlistarskólan-
um á Dalvík á þverflautur og
einnig léku 3 harmonikuleikarar
á sín hljóðfæri. Þetta var góð til-
breyting í hversdagsleikanum og
er vonandi að L.D. bjóði oftar í
vetur upp á dagskrá í líkingu við
þetta.
Foreldrafélag Húsabakka-
skóla sem stofnað var á
fyrra ári hélt basar í þinghúsinu
Grund síðastliðinn laugardag til
styrktar starfsemi félagsins.
Þarna var líka spilað bingó.
Margt fólk mætti þarna bæði for-
eldrar og velunnarar skólans, og
margir eigulegir munir seldust
upp á stuttum tíma.
Haltur ríður lirussi (hjólhesti). Þórarinn P. Þorlcifsson.