Norðurslóð - 29.03.1990, Side 6
Svarfdælsk byggð & bær
Tímamót
Skírnir
10. mars var skírður í Dalvíkurkirkju Stefán Hrafn. Foreldrar
hans eru Hrafnhildur Hafdís Sverrisdóttir (í Tungu) og Stefán
Björnsson Þorleifssonar (frá Hóli), Hjarðarslóð 6 a, Dalvík.
11. mars var skírð í Dalvíkurkirkju Sigríður Linda. Foreldrar
hennar eru Ólöf Gunnlaugsdóttir Hofsárkoti, og Þórarinn Geir
Gunnarsson Þórarinssonar, Svarfaðarbraut 16 Dalvík.
Afmæli
Þann 24. febrúar sl. varð 70 ára Hjörtur E. Þórarinsson bóndi á
Tjörn.
Þann 28. febrúar-1. mars (fæddur á hlaupársdag 29. febrúar
1920) varð 70 ára Árni Arngrímsson Goðabraut 3 Dalvík.
Þann 24. mars varð 70 ára Guðlaug Kristjánsdóttir Uppsölunt.
Norðurslóð árnar heilla.
Andlát
11. mars lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri.
Hrefna Júlíusdóttir Bjark-
arbraut 1, Dalvík.
Hrefna fæddist í Sunnu-
hvoli, Dalvík. 7. ágúst 1914,
dóttir Júlíusar Björnssonar
og Jónínu Jónsdóttur. Var
hún þriðja elst barna þeirra
hjóna er upp komust, en
elsta dóttirin lést kornung.
Önnur systkini Hrefnu eru:
Egill, Sigrún sem er látin,
Kristín, Baldur, María sem
lést ung, Hjálmar, Ragn-
heiður og Gunnar.
Arið 1937 giftist Hrefna eftirlifandi manni sínum, Jónasi Hall-
grímssyni frá Melum. Bjuggu þau hjón meðal annars í Steðja
sem þau hjón byggðu, en árið 1950 fluttu þau í Bjarkarbraut 1,
sem þau byggðu einnig og var heimili þeirra æ síðan. Þau hjón
eignuðust þrjú börn sem eru: Þóra Nanna, Halla Soffía og
Júlíus Óskar.
Þeir sem þekktu Hrefnu fundu að þar fór kona með hlýtt
hjarta sem vildi öllum vel. Hún hafði gott eyra fyrir tónlist og
lék á fleira en eitt hljóðfæri.
Hrefna var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 17. mars s.l.
Við opnun Svarfdælabúðar 26. niars 1985
ann 26. mars fyrir 5 árum
síðan var opnuð með pomp
og pragt ný stór sölubúð KEA á
Dalvík. Verslunin hlaut nafnið
Svarfdælabúð og voru menn mis-
jafnlega hrifnir af nafninu. Allt
um það hefur búðin notið vax-
andi vinsælda þennan hálfa ára-
tug, sem síðan er liðinn.
Afmælisveislur eru í mikilli
tísku á vorum dögum og er það
vel. Kaupfélagið hélt líka upp á
afmæli þessa yngsta barns síns.
Öllum jafnöldrum búðarinnar
var boðið í afmælisveislu í búð-
inni og boðið upp á afmælistertu
og aðrar veitingar. Komu mörg
börn á ýmsum aldri og þáðu góð-
gerðir.
Fyrir eldri viðskiptavini var
hins vegar sett upp nýtt ávaxta-
og grænmetisborð, í búðinni,
með sjálfsafgreiðslusniði. Þar
geta menn handleikið vöruna
áður en keypt er (en ekki er þó
leyfilegt að bíta í hana). Þykir
þetta vera ágæt nýbreytni, sem á
að standa til frambúðar. (Sjá
auglýsingu.)
Ennfremur var sett í gang „til-
boðsvika" með ýmsar vöruteg-
undir. Þ.e. vikan 26.-31.mars.
Norðurslóð óskar afmælisbarn-
inu og aðstandendum þess til
hamingju.
Nýja Hríseyjar-Grímseyjar-
ferjan mun væntanlega
koma til landsins í næsta mánuði.
Fyrst í stað mun hún aðallega
vera í vöruflutningum, en 1. júní
byrjar hún áætlunarferðir með
fólk, Hrísey, Dalvík, Grímsey,
tvisvar í viku, einnig Hrísey,
Akureyri, Hrísey, einu sinni í
viku. Ferðaskrifstofan Nonni við
Ráðhústorg á Akureyri mun hafa
afgreiðslu fyrir ferjuferðirnar.
Laugahlíð og nágrenni. Myndin tekin í Jakobslundi. Ljósmynd Helga Hauksdóttir.
Ný byggð við Laugahlíð?
Byggðarskógur í brekkunum?
Samkvæmt bestu heimildum
hefur hrcppsnefnd Svarfaðar-
dalshrepps til meðferðar hug-
mynd um skipulag fyrir sumar-
húsahverti í landi hreppsins við
Laugahlíð.
Það er að nokkru leyti endur-
vakin gömul hugmynd um að
skipuleggja byggingarsvæði neð-
an við Sundskálann. Nú er hins
vegar unt að ræða svæði á
námunda við sjálf bæjarhúsin í
Laugahlíð. Staðurinn hefur
margt til brunns að bera, nálægð
við Sundskálann og Húsabakka-
skóla, dýrðlegt útsýni og Skóga-
arlund Jakobs Frímannssonar rétt
ofan við. Reyndar hefur sjálfur
Stuðmaður Jakob Frímann
Magnússon ásamt Grýlunni sinni
Ragnhildi Gísladóttur fyrirætlan-
ir á prjónunum um að byggja sér
sumarhús í eða fast við lundinn,
hvað sent úr þeim fyrirætlunum
verður.
En gaman verður að fylgjast
með hvað út úr þessum plönum
kemur. Þess má ennfremur geta,
að komið hafa fram tillögur um
að girt verði stórt svæði í Lauga-
hlíðarbrekkum þar sem mönnum
yrði úthlutað skákum til skóg-
ræktar, sumarhúsaeigendum og
öðrum. Enginn þarf að efast um að
skilyrðin eru þar ákjósanleg til
skógræktar. Þar er Jakobslundur
órækur vitnisburður.
Fréttahomiö
Glaðir gestir við munna Múlaganga.
Samgönguráðherra styður á linapp-
inn.
Fimmtánda mars sl. sprengdi
Steingrímur Sigfússon sam-
gönguráðherra síðustu metr-
ana út úr jarðgöngunum í
Ólafsfjarðarmúla og var þar með
náð merkum áfanga í vegagerð-
inni gegn um Múlann. Ólafsfirð-
ingar fögnuðu með veislu þar
sem bæjarbúar og gestir fjöl-
menntu. Göngin verða 3,4 km
fullgerð með vegskálum við opin
báðu megin. Mikil vinna er enn
eftir við göngin og er gert ráð fyr-
ir að þau verði opnuð fyrir
umferð næsta haust .
Björn Harðarson staðarverk-
fræðingur.