Norðurslóð - 29.06.1990, Page 3

Norðurslóð - 29.06.1990, Page 3
NORÐURSLÓÐ - 3 16. júní 1990. 50 ára MA-stúdentar í heimsókn á Tjörn. A leiöinni heimsótti hópurinn kirkjuna á Mööruvöllum og heilsuöu upp á Davíö skáld í garöinum í Fagraskógi. , ; Þjóðhátíð á Dalvík Séð úr kirkjuturni á Dalvík 17. júní 1990. Ljósm. Hcimir Þátttakendur á aðalfundi Sambands norðlenskra kvenna. Hinn árlegi aðalfundur Sam- bands norðlenskra kvenna var haidinn að Lundi í Öxarfirði dagana 12. og 13. maí sl. Meðal mála sem fjallað var um á fundinum var könnun sem landbúnaðarráðuneytið lét gera á síðasta ári á stöðu kvenna í land- búnaði og atvinnumöguleikum þeirra. Elín Líndal Lækjamóti í V.-Húnavatnssýslu sagði frá þessari könnun. Sólveig Arnórsdóttir Útvík Skagafirði talaði um Ferðaþjón- ustu bænda. Kristín Sigfúsdóttir, matvælafræðingur, flutti erindi um hollustuhætti i mataræði. Gerður Pálsdóttir, húsmæðra- kennari, sagði frá könnun sem hún vinnur að um matarvenjur íslendinga á fyrri hluta þessarar aldar. Margar tillögur voru sam- þykktar á fundinum. Meðal ann- arra var tillaga þar sem skorað er á konur í bændastétt að taka virkari þátt en verið hefur í starf- semi búnaðarfélaganna. Önnur tillaga skorar á konur á sam- bandssvæðinu að gangast fyrir aukinni fræðslu um mataræði og hollustuhætti í samræmi við markmið Manneldisráðs íslands og stuðla þannig að heilbrigði fyrir alla. Margt fleira var rætt á fundin- um. Kvöldvaka var í Skúlagarði kvöldið 11. maí, sem heimakon- ur sáu um. Par voru mörg vönd- uð skemmtiatriöi og veisluföng á boðstólum og var þetta hin besta skemmtun sem endaði með Sam- bartdssöng norðlenskra kvenna, cn texti hans er eftir Laufeyju Sigurðardóttur frá Torfufelli í Eyjafirði en höfundur lags er Björg Björnsdóttir Lóni í Keldu- hverfi. Björg stjórnaði söngnum af miklu öryggi, svo og öðrum söng á kvöldvökunni. Formannsskipti urðu á þessum fundi. Elín Aradóttir Brún Reykjadal, sem hefur verið for- maður sl. 14 ár, lét af störfum og í hennar stað var kosin Anna Helgadóttir, kennari á Kópa- skeri. Aðrar stjórn eru Sigríður Hafstað Tjörn í Svarfaðardal og Guðrún Óskarsdóttir Akureyri. (Frcttatilkynning) Aðalfundur Samb. norðlenskra kvenna: Konur taki virkari þátt í starfí búnaðarfélaganna í minningu Kristjáns Eldjáms Að kvöldi þess dags sem mér barst sú harmafregn að Kristján Eldjárn fyrverandi forseti íslands væri dáinn, reit ég grein á valdi þeirra sáru tilfinninga er fréttin á öldum Ijósvakans olli mér. Þessi grein hefur legið niður í skúffu hjá mér í nær átta ár, og því aidrei birst á prenti. Til þess hafa legið allnokkrar ástæður m.a. sú, að ég hefi vonast eftir að áhrifa- meiri Svarfdælingur, heima eða að heiman, kæmi fram með þá hugmynd, sem er megininntak hinnar 8 ára gömlu greinar minnar. En því miður hefur bið mín orðið til.einskis. Af þeim sökum bið ég ráðendur Norður- slóðar að Ijá þessum línum rúm. Þær eru ekki ritaðar af sama til- finningarhita og fyrnefnd grein mín, þótt hugmynd mín og skoðanir hafi í engu slævst gegn- um árin. Megininntak títtnefndr- ar greinar var eftirfarandi, svo að stytt sé mál: Að Svarfdælingar heima og heiman reisi Kristjáni Eldjárn vandaðan minnisvarða á bernsku- og æskuheimili hans Tjörn, sem væri tákn sveitunga hans um að eigi skuli gleymast sú staðreynd í gegnum nið ókominna ára, að þriðji forseti íslenska lýðveldis- ins, göfugmennið Kristján Eld- járn var fæddur og uppalinn í Svarfaðardal, dalnum fagur- krýnda. Að vísu hefur Kristján sjálfur reist sér óbrotgjarnan varða með afkastamiklum rann- sóknar- og fræðistörfum að ógleymdu rismiklu starfi sem þjóðhöfðingi um tólf ára skeið. Menningarsjóði ber að þakka fyrir útgáfu á ræðum og ávörpum Kristjáns Eldjárns, sem hann flutti í forsetatíð sinni. Sú bók er perla íslenskrar mál- og stilsnilld- ar. í þessu greinarkorni mínu hefi ég beint orðum til Svarfdælinga en vil taka fram að þar á ég einn- ig við granna okkar á Dalvík, því mér finnst bær og sveit svo samofin að vart er hægt að greina á milli, og óefað myndi fólk víðs- vegar um landið vilja leggja þessu máli lið, því eigi er ofsagt að Kristján Eldjárn hafi verið ástmögur þjóðarinnar alla sína forsetatíð. Á næsta ári, þann 6. desember hefði Kristján orðið 75 ára. Er það óraunsær draumur að einmitt þann dag verði fjölmennt að Tjörn þar sem séra Jón Helgi víg- ir og blessar veglegan minn- isvarða til heiðurs og í minningu þriðja forseta lýðveldisins, Kristjáns Eldjárns? Sigurjón Júhannsson. Allt smáprent Allt smáprent Allt smáprent Dagsprent Strandgötu 31 © 96-24222 Akureyri N

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.