Norðurslóð - 29.06.1990, Qupperneq 6
Tímamót
Skírnir
4. júní voru skírð í Dalvíkurkirkju Kristjana Lóa og Kristján
Loftur. Foreldrar Kristjönu Lóu eru Rósa Sigrún Kristjánsdótt-
ir og Sölvi Haukur Hjaltason, Hreiðarsstöðum, og foreldrar
Kristjáns Lofts eru Guðrún Kristjánsdóttir og Helgi Sigfússon,
Munkaþverárstræti 30, Akureyri.
17. júní var skírð Jónína Björt. Foreldrar hennar eru Margrét
Brynjólfsdóttir og Gunnar Smári Björgvinsson Svarfaðarbraut
4, Dalvík.
Skírn
Þann 24. júní var skírður Jóhann Björgvin, foreldrar Elísabet
Sigursveinsdóttir (Friðrikssonar frá Hánefsstöðum) og Elías Þór
Höskuldsson frá Hátúni. Þau eru tii heimiiis að Öldugötu
15,Árskógssandi. Prestur var sr. Hulda Hrönn Helgadóttir
sóknarprestur.
Hjónavígslur
2. júní voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju Einar
Víkingur Hjörleifsson og Lilja Guðnadóttir Lynghólum 4,
Dalvík.
Á sjómannadaginn 10. júní, voru gefin saman í hjónaband í
Dalvíkurkirkju Kristmundur Sigurðsson og Arný Hólm
Stefánsdóttir, Brimnesbruut 17. Dalvík.
16. júní voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju Stefán
Hallgrtmsson og Sigríður Gunnarsdóttir, Brimnesi, Dalvík.
Merkisafmæli
Þann 9. júní varð sjötugur Olafur Tryggvason, fyrrv. bóndi á
Ytra-Hvarfi, organisti í kirkjum Svarfaðardals, nú til heimilis í
Lambhaga, Dalvík.
Þann 27. júní varð sjötugur Friðgeir Jóhannsson, fyrrv. bóndi á
Tungufelli, nú á Mímisvegi 15, Dalvík. Friðgeir er formaður
nýstofnaðs Félags aldraðra (60 ára og eldri) á Dalvík og ná-
grenni.
Þann 26. iúlí verður áttræð Lilia Tryggvadóttir, húsfreyja
Goðabraut 18, Dalvík.
Þann 23. júlí verður 99 ára Soffía Jóhannesdóttir á Urðum,
elsti borgarinn hér í byggðarlaginu.
Heillaóskir.
„Hin gömlu kynni gleymast ei . . .
Mót 40 ára fermingarbarna á Dalvík 23. júní 1990. Standandi f.v.:
Jón Pálsson, Jónas Fransson, Ingólfur Jónsson, Kristinn Antonsson,
Matthías Jakobsson, Loftur Baldvinsson. Fremri röð f.v.: Þóranna
Hansen, Sólveig Antonsdóttir, Svanhildur Björgvinsdóttir, Kristín
Tryggvadóttir og Osk Jónsdóttir. Á myndina vantar Garðar
Björnsson, Gylfa Björnsson og Snjólaugu Guðmundsdóttur. Úr
hópnum er dáinn Marinó Jóhannsson.
Ekkí karIrembusvín
- Skeyti úr Skíðadalnum
Ágæti ritstjóri.
Það hefur verið árátta hjá mér
að lesa fyrst leiðara hvers blaðs
sem eg hefi komist yfir. Það er
sennilega vani frá þeim árum er
eg var ritstjóri vikublaðs á Akur-
eyri. Hefur ástæðan eflaust verið
sú að vita hvort kollegar mínir á
hinum blöðunum sendu mér
skeyti.
í síðasta tölublaði Norðurslóð-
ar las eg leiðarann með athygli
svo sem venja mín er. Alveg er
ég sammála því að grannar okkar
Dalvíkingar eru hreinir snillingar
í því að búa til Iistakokteil, að
því undanskildu að hinir óháðu
er samrekktu með Sjálfstæðis-
flokknum skyldu þegjandi og
hljóðalaust samþykkja D-ið, sem
er jafntengt flokknum og fálkinn,
er líta má yfir höfði formannsins
á landsfundum.
Já, svo er það karlremban í
honum Svarfaðardal, sem þú, rit-
stjóri góður, ferð um hörðunt
orðum. Sá er þessar iínur ritar
hefur alla tíð verið jafnréttissinn-
aður þótt lítillar kvenhylli hafi
notið á rölti sínu upp æviveginn.
Minn sagnarandi hvíslar því að
mér að úrslit kosninganna hér í
hreppi, stafi eigi af karlrembu
heldur karlelsku, þ.e. að eigin-
konur og dætur elski og virði svo
menn sína og feður að þær hafi
nreð glöðu geði hafnað kvenna-
listakenningunni og kosið karla
sína sökum mannkosta þeirra,
því þeim hefði verið næsta auð-
velt að ná meirihluta í
hreppsnefnd, ef þær hefðu ekki
látið karlelsku sína ráða úrslit-
um.
Hér er um merkilegt rann-
róknarefni að ræða sem brýnt er
að fá vísindalega niðurstöðu á.
Legg eg til að ráðnir verði til
starfans félagsfræðingur og einn-
ig sálfræðingur svo að vandað
verði til verksins, og þá er niður-
staða liggur á borðinu, efa ég
ekki að nýi oddviti hreppsins
stingi að fræðingunum nokkrum
þúsundköllum fyrir púlið.
Virðingarfyllst,
Sigurjón Jóhannsson.
P.S. Ofanskráð skemmtileg
athugasemd er frá Sigurjóni Jó-
hannssyni í Hlíð í Skíðadal. Það
skal upplýst yngri lesendum til
uppfræðslu að Sigurjón var hér á
árum áður velþekktur og velmet-
inn ritstjóri Álþýðunrannsins á
Akureyri á meðan það blað var
og hét. Sigurjón skrifaði blaðið
að miklu leyti sjálfur og þótti stíll
hans persónulegur og voru grein-
ar hans lesnar með athygli.
Hvað viðvíkur athugasemd
hans við ritstjórnargrein í síðasta
blaði, þá er hún líklega alveg
hárrétt. Og um karlrembuna,
sem þar var talin meiri í Svarfað-
ardal en annars staðar, þá kom
það nú fljótlega í ljós, að í meiri-
hluta eyfirskra hreppa fékk engin
kona inngöngu í hreppsnefnd,
svo gáfulegt sem það nú er. Við
þökkum Sigurjóni tilskrifið og
óskum honum til hamingju með
nýju ritvélina sína.
Ritstj.
Fréttahomið
Fermingarbörn við Urðarkirkju á
hvítasunnu 1990. Fremri röð t'.v.:
María Vilborg Guðbergsdóttir,
Þverá niður; Lárus Arnór Guð-
mundsson, Húsabakka; Jökull
Bergmann Þórarinsson, Klængs-
hóli; Stefán Birnir Sverrisson,
Meluni; Sara Dögg Árnadóttir,
Ytra-Garðshorni; Inga Sigrún
Ingvadóttir, Þverá fram. Aftari röð
f.v.: Sr- Jón Helgi Þórarinsson;
Aðalbjörg Hólm Stefánsdóttir,
Jarðbrú og Áslaug Hólm Stefáns-
dóttir. Ljósm. H. Ein.
Kaffihlé. Konur í Tjarnasókn vinna
í kirkjugarðinum. Ljósm. s.H.
Söngkór Dalvíkurkirkju hélt kon-
sert í kirkjunni 2. dag hvítasunnu-
dag. Stjórnandi Hlín Torfadóttir.
Ljósm. H. Ein.
Jónsmessufagnaður á Flötutungu
1990. Góðaksturskeppni á traktor
með kerru. í baksýn Ytra-Hvarf.
Ljósm. S.H.