Norðurslóð - 24.10.1990, Blaðsíða 3
NORÐURSLÓÐ - 3
kort af Svarfaðardal
- Óþarflega margar villur
Undanfarna mánuði hafa verið
að koma á markaðinn ný kort frá
Landmælingum íslands í mæli-
kvarðanum 1:50.000. Pað var
orðið meira en tímabært að þessi
kort kæmu út. Gömlu íslands-
kortin eru að vísu bæði falleg og
vel gerð, en þau byggja á land-
mælingum sem gerðar voru á
fyrstu áratugum þessarar aldar,
en mælitæki og kortagerð hefur
fleygt æði mikið fram síðan eins
og nærri má geta. Nú er allt unn-
ið eftir loftljósmyndum en áður
var hlaupið með mælistöng og
kíki út um allar þorpagrundir. A
gömlu kortunum er fyrir vikið
mjög varhugavert að treysta á
hæðalínur. Hæðir fjalla virðast
líka víða víkja nokkuð frá réttu
lagi. Gömlu kortin eru í mæli-
kvarðanum 1:100.000 þ.e. í
helmingi smærri mælikvarða en
þau nýju. Nýju kortin ættu því í
alla staði að vera miklu betr i og
nákvæmari og ekki er að efa það
að í þeim er mikill fengur fyrir þá
sem sinna skipulagsmálum, vega-
gerð og öðrum stórframkvæmd-
um. Hátt í 300 kortblöð þekja
landið allt og enn er ekki kominn
út nema helmingur þeirra. Á
meðal þeirra korta sem út eru
komin er kort af Svarfaðardal.
Blaðskiptingin er heppileg fyrir
dalinn og hann rúmast nær allur á
blaðinu. Dalvík er í norðaustur-
horninu, Sveinsstaðir í Skíðadal
við suðurjaðarinn og Heljardals-
heiðin við vesturjaðarinn. Á
norðvesturhluta kortsins er Lág-
heiði og Stífla.
Kortið er unnið og gefið út af
Landmælingum íslands og Korta-
stofnun bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins. Pað er að vísu hálf
skammarlegt að þurfa að leita á
náðir erlends hers til að gera kort
af eigin landi en flestir myndu
láta sem þeir sæju það ekki ef hin
amerísku áhrif væru ekki svo
augnaístingandi sem raun ber
vitni. Ensk-ameríska er nefnilega
aðalmál þessa korts. I skýringun-
um er enskan letruð feitu letri
fyrst en íslenskan grönnum stöf-
um neðanundir. Það brýtur auð-
vitað algerlega í bága við mál-
ræktarstefnuna og allt velsæmi að
íslenska skuli gerð að undirmáli á
opinberu íslandskorti frá Land-
mælingum fslands.
Á kortablaðinu stendur á ein-
um stað: „Gert 1989 eftir bestu
fáanlegum heimildum." Pessi
fullyrðing er því miður ekki rétt
því kortið úir og grúir af villum
stórum og smáum. Prófarkalest-
ur virðist hafa gleymst og kunn-
ugur maður hefur ekki verið lát-
inn líta yfir kortblaðið áður en
það var prentað. Undirrituðum
sárnar t.d. að Tjarnartjörnin er
ekki sýnd á þessu korti. Bæjar-
nöfn eru víða á röngum stað og
vantar sumstaðar alveg. Hánefs-
staðir eru t.d. komnir vestur fyrir
á og tróna á milli Húsabakka og
EYJAFJQRÐUR
l(Lækjarbakki)
p Dalvík
(fjöggvisjtaöir)!
Hrísahöfði
(Ytraholt)
Syörbholt
(Hamar^líptJ.
Húnefsstaj
/jaféim/
Norðausfurhorn nýja kortsins,
Jarðbrúar. Eyðibýli eru sýnd í
byggð og byggðir bæir í eyði.
Vegakerfið er full endasleppt,
Kot og Atlastaðir eru samkv.
kortinu ekki í þjóðvegasambandi
við byggðina.
Pað er ánægjulegt að sjá að
Dýjafjallshnjúkur, hæsta fjall við
Skíðadal, hefur fengið hæðatöl-
una 1445 m. Á gömlu kortunum
er hann sýndur 1421 m hár. Nýja
talan mun vera réttari. Pað slær
þó aðeins á gleðina að Landmæl-
ingar skuli, með tilstyrk ameríska
hersins, hafa breytt hreppamörk-
um á þessum stað svo Dýja-
fjallshnjúkur, þetta stolt okkar
Svarfdælinga, er allur kominn
yfir í Skriðuhrepp.
í skýringum neðst á kortablað-
inu eru ýmis óskiljanleg furðuleg-
heit m.a. tilskipun, skráð rauðu
feitu letri á ensku, um að kortið
skuli eyðilagt að notkun lokinni
eins og um hernaðarleyndarmál
sé að ræða.
Pað er leitt að þurfa að vera
svona neikvæður vegna þess að
það var svo sannarlega kominn
tími til að gott kort byggt á flug-
myndum og nýjustu tækni væri
gefið út. En því miður, þrátt fyrir
allar framfarir síðustu áratuga
verður að segjast eins og er að
gamla Svarfaðardalskortið, sem
mælt var af Dönum árið 1931, er
miklu betra og fallegra en þetta
nýja kort.
Á.H.
Kerlingin séð af toppi Stólsins. T.h. Tjarnhólahnjúkar.
Maður er nefndur
Á sunnudaginn 21. kl. 14.30 vatt
sér skyndilega inn á eldhúsgólf
ungur maður, grannvaxinn og
stæltur að sjá, sólbrenndur í and-
liti, og kastaði kveðju á heima-
fólk um leið og hann togaði frant
af sér hvítan stakk með stórum
blóðblettum. Rjúpnablóð, sagði
hann til skýringar.
Hér var kominn Ari Gunnars-
son frá Akureyri einn mesti
fjallamaður og rjúpnabani, sem
um getur hér nærsveitis. Reyndar
á hann ekki langt að sækja veiði-
náttúruna því hann er sonur Álf-
hildar Gestsdóttur Hjörleifssonar
og Gunnars Arasonar Kristins-
sonar, sem sagt af mögnuðu
svarfdælsk/dalvíksku veiði-
- Ari Gunnarsson
Ari á toppi Month Blanc sumarið
1990. Hæð 4810 m.
mannakyni í báðar ættir. Ari er
stýrimaður á Sólbaki frá Akur-
eyri og er í fríi þessar vikurnar og
hentar honum vel því fjallapríl
og rjúpnaveiði eru honunr hálft
lífið.
Nú var hann að koma framan
af Klaufabrekknadal með 14
rjúpur og á morgun fer hann upp
að Nykurtjörn og þaðan kannske
yfir fjallið og inn á Holtsdal.
Hann er ekki búinn að fá nema
120 rjúpur nú á vertíðinni. Það er
nokkuð mikið undir metárinu
1989, en þ á fékk hann 502.
Ari lætur sér ekki nægja að
klífa fjöll hér innanlands heldur
leitar hann á fjarlægari mið, sjá
mynd.
Mér er spum
Smátt og smátt er miðbær Dal-
víkur að fríkka, gras- og trjá-
gróður er vel hirtur og fer að
setja svip á umhverfið. Og sýn til
hafnarinnar er óhindruð og mjög
upplífgandi.
Kaupfélagshúsið er að sjálf-
sögðu sterkur dráttur í myndinni.
Boglínan er óvenjuleg og
skemmtileg, enda kölluðu börn
Snjólaugar skáldkonu frá Skálda-
læk húsið „Litla JL húsið" eftir
því sem hún sagði hér í blaðinu
fyrir margt-löngu síðan. Húsið
var í meðferð á árinu 1989, þaki
lyft o.fl. sem vel hefur tekist og
er það síður en svo lakara útlits
eftir en áður. Nú væntu menn
þess að sjálfsögðu, að á þessu
nýliðna sumri fengi húsið fallega
andlitslyftingu. Af því varð þó
ekki og er andlit KEA á Dalvík
því heldur dapurlegt þessa stund-
ina, satt að segja.
Og eftir þennan Ianga formála
kemur svo stutt spurning til
ráðamanna KEA, Dalvík:
- Mega menn ekki vænta þess,
að verslunar- og skrifstofuhús
Kaupfélagsins verði frágengið og
málað bæði fljótt og vel á kom-
andi ári?
Rögnvaldur Skíði Friðbjörns-
son, útibússtjóri svarar: Það er
algert forgangsverkefni hjá
Kaupfélaginu hér á staðnum að
mála og ganga frá þessu húsi að
utan snemma á vori komanda.
Okkur þykir alveg eins leiðinlegt
eins og öðrum að horfa á húsið í
þessu ástandi. En svo er eftir að
ákveða liti og þá er nú ekki víst,
að auðvelt verði að gera öllum til
hæfis. En það verður leitað til
fagmanna og trúlega haft samráð
við hönnuð hússins, Mikael
Jóhannesson hjá KEA á Akur-
eyri. Það þykir sjálfsögð tillits-
semi.
Um frekari vinnu við innrétt-
ingar á efstu hæðinni er ekkert
ákveðið enn sem komið er. Þetta
er 300 fermetra gólfflötur og
ágætispláss til að innrétta fyrir
skrifstofur eða aðra „létta“ starf-
semi og hefur ýmislegt verið rætt
í því sambandi.
En hitt er klárt: Þegar vorið
kemur með lit í tún og móa, þá
kemur líka litur í fölt andlit
Kaupfélagshússins.
Gott er að heyra það, og blað-
ið þakkar Rögnvaldi fyrir svarið.