Norðurslóð - 26.02.1992, Side 4

Norðurslóð - 26.02.1992, Side 4
4 — NORÐURSLÓÐ Að sameinast eða sameinast ekki - Það er þessi spurning sem sveitarstjórnir og almenningur þurfa að finna svar við Segja má að nýtt líf hafi færst í umræður um sameiningu sveitarfélaga bæði hér og annars staðar á landinu eftir að birtar voru tillögur og greinargerð „Nefndar um skiptingu landsins í sveitarfélög“ á vegum Félagsmálaráðuneytisins. Skýrsla þessi kom út í tveim bæklingum í september 1991 og var henni fylgt eftir með fundum með sveitarstjórnarmönnum um allt land. Segja má að tvær meginhug- myndir hafi verið þar fyrirferðarmestar: annars vegar að landið skiptist í 60-70 sveitarfélög og hins vegar 25 sveitarfélög eða svipaðar einingar og sýslurnar. Samkvæmt fyrr nefndu hugmyndinni var talað um að 5 sveitarfélög við utanverðan Eyjafjörð yrðu samein- uð: Ólafsfjörður, Dalvík, Svarfaðardalur, Árskógsströnd og Hrísey. Af því tilefni lék okkur forvitni á að heyra álit sveitarstjóra viðkomandi sveitarfélaga á þessum hugmyndum. Dal- víkingar og Ólafsfirðingar hafa raunar fengið að láta Ijós sitt skína um þessi mál í öðrum fjölmiðium en minna hefur heyrst í forystumönnum smærri sveitarfélaganna. Við snérum okkur því til forsvarsmanna Svarfaðardalshrepps, Árskógshrepps og Hríseyjarhrepps og spurðumst fyrir um hug þeirra til sameiningar. Jónas Vigfússon, sveitarstjóri í Hrísey Hér er töluvert rætt um sameining- armál bæði manna á meðal, í hreppsnefndinni og í samráðs- nefnd sem í eiga sæti oddvitar, sveita- og bæjarstjórar þessara fimm sveitarfélaga hér út með firð- inum. Ég var einmitt að ganga frá fundargerð 46. fundar samráðs- nefndarinnar þar sem fjallað var um samstarf á hinum ýmsu sviðum s.s. hafnamálum, heilsugæslu, skólamálum, atvinnuuppbyggingu og samgöngumálum. Umræðan er því ekkert ný en ég get ekki sagt að það sé farið djúpt í hlutina. Mest er þetta á yfirborðinu. Við hér í Hrísey höfum mikla sérstöðu í þessuin hópi. Þetta er jú eyja. Við sjáum ekki fram á að yf- irstjóm þessa stóra sveitarfélags yrði eitthvað skilvirkara apparat en það sem fyrir er eða að okkar þátt- taka skilaði okkur einhverju meiru almennt séð. Ég tel að Héraðs- nefnd sýslunnar geti mun betur sinnt því hlutverki sínu að vera tengiliður sveitarstjómanna en sýslunefndin gamla vegna þess að fulltrúar í henni eru beint kjömir af hverri sveitarstjóm fyrir sig. Hér- aðsnefndin ætti að hafa starfsmann á sínum vegunt sem sinnir þessum samstarfsmálum. Við hér erum hins vegar hlynnt auknu samstarfi við nágranna- Viðskiptavinir sparisjóðanna hafa vinninginn H /FSTA ÁRSÁVÖXTUN Á INNL ANSREIKNIN GI mitpm MIW JAfN musi ÖRVGGISBÓK 12 MÁNAÐA SPARIREIKNINCL R BESTI KOSTURIH 24 MÁN. SPARIREIKNINGUR Hæsta ársávöxtun á innlánsreikningum hjá bönkum og sparisjóðum kom í hlut þeirra sem skipta við sparisjóðina. Annað árið í röð hefur reynslan pannig sýnt að peir sem vilja ávaxta sparifé á innlánsreikningum geta borið mest úr býtum hjá sparisjóðunum. Hafðu petta íhuga árið 1992 Komdu til okkar - hjá sparisjóðunum Ávöxtun innlánsreikninga 1991 Ársávöxtun TROMPBOK sparisjóöanna 12,40% 67 ára og eldri 12,65% ÖRYGGISBÓK -12 mánaöa sparisjóöanna l.þrep 13,98% 2. þrep 14,24% 3. þrep 14,49% BAKHJARL - BESTI KOSTURINN sparisjóöanna 15,40% Ávöxtun umfram lánskjaravísitölu 4.40% 4.70% 5.90% 6.10% 6.40% 7.20% SPARILEIÐ íslandsbanka 1. leiö 11,43% 3,50% 2. leiö 11,97-12,52% 4,02-4,50% 3. leið 13,99% 5,90% 4. leið 15,33% 7,10% 5. leiö 15,33% 7,10% GULLBÓK Búnaöarb. 11,49% 3,60% HÆKKUN Iánskjaravísitölu1991: Frá 1/1 '91 til 1/1 '92 2969 3196 =7,65% METBOK Búnaöarbanka Island KJÖRBÓK Landsbanka íslands 15,22% 7,00% grunnþrep 12,06% 4,10% 1. þrep - 16 mán. 13,46% 5,40% 2. þrep - 24 mán. 14,11% 6,00% LANDSBÓK Landsbanka íslands 14,75% 6,60% Sparisjóður Svarfdæla Dalvík byggðimar á ýmsum sviðum þó sameiningin sé ekki borðliggjandi. Ég bjó sjálfur áður inni í Eyja- fjarðarsveit og var mjög hlynntur því þar að sveitimar yrðu samein- aðar undir einn hatt. Þar var sam- einingin að mínu mati borðliggj- andi þar sem var þrefaldur rekstur á flestum sviðum á ekki stærra svæði en sveitarfélögin svo svipuð að allri gerð. Sömuleiðis tel ég að sveitarfélög hér á ströndinni inn til Akureyrar hefðu góð skilyrði til sameiningar. Um sveitarfélögin austan fjarðarins gegnir öðru máli. Þar eru tvö þorp og ekki um sama atvinnusvæðið að ræða. Eftir til- komu Ólafsfjarðarganganna má orðið tala um Dalvík og Ólafsfjörð sem eitt atvinnusvæði. Hér í Hrís- ey er hlutunum öðru vísi háttað. Við teljum okkar málum ekki bet- ur borgið ef þeim er stjórnað úr landi af sveitarstjóm sem við ætt- um kannski einn fulltrúa í. Við sækjum t d. nú þegar mun meira til Akureyrar en nokkum tímann til Dalvjkur. Mér sýnist kostimir vera þrír: I fyrsta lagi sameining í smá- um stfl, kannski svona 10 sveitar- félög á E.yjafjarðarsvæðinu. I öðru lagi sameining í stærri stfl eins og þessi sem við höfum verið að tala um. Og í þriðja lagi að allt Eyja- fjarðarsvæðið yrði eitt sveitarfé- lag. I dag er ég hlynntastur fyrsta kostinum. Ég sé ekki ástæðu fyrir okkur hér að sameinast öðrum sveitarfélögum en hins vegar tel ég að þau sveitarfélög hér sem sjá hagræði í mjög miklum sameigin- legum daglegunt rekstri ættu að sameinast. Ef ég á að raða þessum kostum upp eftir því hver þeirra er fýsilegastur fyrir Hríseyinga mundi ég telja fyrsta kostinn best- an, þriðja kostinn næstbestan og miðkostinn sístan. Sveinn Jónsson. Oddviti Árskógshrepps Hér hafa að sjálfsögðu átt sér stað töluverðar umræður um samein- ingarmál bæði innan sveitarstjóm- ar, í samráðsnefnd við fulltrúa ná- grannasveitarfélaganna og eins við sameiningamefnd á vegum Fé- lagsmálaráðuneytisins undir for- sæti Sigfúsar Jónssonar. Það er á- stæða til að velta því máli fyrir sér þegar samstarf sveitarfélaga er í mörgum málaflokkum hvort ekki sé hagkvæmara að hafa allt undir einni stjóm. Við hér á Ströndinni erum í 8-9 samstarfsverkefnum með Dalvíkingum og fleirum og greiðum þar okkar hlut í rekstrin- um en höfum í sjálfu sér ekki mik- ið af stjómuninni að segja. Ég tel hiklaust að ná megi fram mikilli hagræðingu með sameiningu á ýmsum sviðum eins og sameigin- legri veitustjórn, samræmdri hafn- arstjóm, einum mengunarvamar- búnaði fyrir hafnimar og sameig- inlegri tölvuvæðingu sem allar hafnireru dæmdar til að taka þátt í. Hins vegar hef ég líka velt upp kostnaðarauka sem óhjákvæmi- lega verður við sameiningu bæði fyrirtækja og sveitarstjóma. Ég vil sjá það að fólk hafi hag af samein- ingu, að þjónustan við íbúana dragist ekki saman vegna ein- hverra hagkvæmnisútreikninga og að sameiningin komi fram sem sem sókn jaðarbyggðanna en ekki undanhald í nafni hagræðingar. Aðalatriðið er að við setjumst til samninga með þessu hugarfari og látum ekki einhver yfirvöld skikka okkur til að sameinast. Við þurfum að vanda okkur og íhuga vel t.d. hvort þessi sameining nokkurra sveitarfélaga sé aðeins tii skamms tíma og seinna verði svo farið í að sameina öll sveitarfélög frá Grenivík til Ólafsfjarðar. Ef sú yrði raunin tel ég skynsamlegra að bíða frekar og sjá og eyða ekki orku og fjármunum í eitthvert millibilsástand. Við hér sækjum nú mun meira til Akureyrar en út með firðinum. Við létum gera óformlega könnun á því meðal í- búanna hér hvort þeir kysu að hafa bæjarfógetann á Ólafsfirði og voru flestir andvígir því. Ef menn telja slíkar ráðstafanir íþyngja sér er það náttúrulega engin hagræðing. Atli Friðbjörnsson, oddviti Svarfaðar- dalshrepps Umræðan um sameiningarmál hef- ur fengið meiri alvörutón hér eftir að nefnd á vegum Félagsmála- ráðuneytisins fór um landið og fundaði með sveitarstjórnarmönn- um. Þar voru kynntar hugmyndir nefndarinnar og sömuleiðis leitað eftir hugmyndum frá okkur. Þar var meðal annars kynnt þessi hug- mynd um sameiningu þessara 5 sveitarfélaga við utanverðan Eyja- fjörðinn. Upp úr því hittumst við fulltrúar þessara sveitarfélaga mestmegnis til að kynnast aðstæð- um hver hjá öðrum. I rauninni er ekkert áþreifanlegt farið að gerast og nú halda menn að sér höndun- um og bíða eftir lagafrumvarpi frá Félagsmálaráðherra sem væntan- legt er í kjölfarið á þeirri forvinnu sem farið hefur fram. Það hlýtur að ráðast mikið af þeim lögum hvað menn hér aðhafast. Mér sýnist það ekki lengur spuming hvort af sam- einingu verður heldur hvenær. Stjómvöld stefna að því að stækkq, sveitarfélögin til að þau hafi bol- magn til að taka við auknum verk- efnum af ríkinu en sjálfsagt einnig til að ná fram meiri hagræðingu. Lítið sveitarfélag eins og okkar á í erfiðleikum með að standa undir þeirri þjónustu sem því er ætlað að veita og ef bæta á við, verða á móti að koma auknir tekjustofnar. Svo er spurning hvemig landbúnaðin- um reiðir af í framtíðinni í kjölfar- ið á þessum Gatt-málum öllum. Hér byggjum við alfarið á land- búnaði og ef tekjur bændanna minnka minnka einnig tekjur sveitarfélagsins. Það kynni einnig að hafa áhrif á þessi mál. Mér heyrist menn hér frekar hlynntari þessari 5 sveitarfélaga hugmynd en þeirri að slá öllu Eyjafjarðar- svæðinu saman í eitt. Mönnum líst betur á að fara inn í minni einingu ef ræða á um sameiningu á annað borð. Hj.Hj.

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.