Norðurslóð - 24.03.1992, Blaðsíða 2
2 — NORÐURSLÓÐ
NORÐURSLÓÐ Útgefendur og ábyrgðarmenn: Hjörleifur Hjartarson, Laugahlfð, Svarfaðardal Jóhann Antonsson, Dalvík Framkvæmdastjóri: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 96-61555 Blaðamennska og tölvuumbrot: Þröstur Haraldsson, Dalvík Prentun: Dagsprent hf. Akureyri
Er byggðastefn- an gjaldþrota? Pví er oft haldið fram um þessar mundir að byggða- stefnan sé gjaldþrota. Sá sem fremstur fer í því að kveða upp dauðadóminn er forsætisráðherra þjóð- arinnar, Davíð Oddsson, sem hefur margoft ráðist gegn Byggðastofnun og síðustu ríkisstjórn og sakað þær um að hafa í sameiningu stundað ótæpilegt sukk með almannafé. Hann hefur haldið því fram að byggðastefna síðustu tuttugu ára hafi litlum sem engum árangri skilað og nú sé svo komið að rétt sé að íhuga hvort ekki beri að borga fólki fyrir að flytja frá vonlausustu plássunum á landsbyggðinni. Hér verður ekki hlaupið í vörn fyrir áðurnefndar stofnanir, né heldur tekið undir orð Davíðs. Hins vegar er það rétt að þrátt fyrir margra áratuga byggðastefnu í orði er staðan um þessar mundir sú að tvær helstu atvinnugreinar landsbyggðarinnar, landbúnaður og sjávarútvegur, eiga báðar við mik- inn samdrátt að etja. Bændur hafa gert samning við ríkisvaldið um það hvernig haga skuli niðurskurði sauðfjár og þar með fækkun bænda. Og í sjávarút- vegi er við lýði kvótakerfi sem er andsvar við minnk- andi fiskistofnum. Miklar sviptingar eru í síðar- nefndu greininni sem án nokkurs vafa munu leiða til fækkunar fiskiskipa, fiskvinnslufyrirtækja - og sennilega einnig útgerðarstaða. Þótt benda megi á mörg dæmi þess að byggða- stefnan hafi skilað árangri í blómlegum atvinnufyr- irtækjum er hitt jafnljóst að tilviljanakennd fyrir- greiðslupólitík þar sem stjórnmálamenn fá að vera í jólasveinaleik með almannafé er ekki líkleg til árangurs. Hún sviptir íbúa landsbyggðarinnar öllu frumkvæði og nú er svo komið að við höfum ekki efni á henni lengur. Það er líka ljóst að við getum ekki sett traust okkar á að nýjar atvinnugreinar bjargi málunum. Við verðum að spila úr því sem við eigum. En hvað á að taka við af byggðastefnunni eins og hún hefur verið rekin? Það ríkir engin eining um það á landsbyggðinni hvernig tekið skuli á varidanum. Sumir hafa lagt til að valin verði úr þau svæði sem lífvænlegust eru og best liggja við fiskimiðum og samgöngum og þau styrkt sérstaklega, en önnur svæði látin bjarga sér sem best þau geta. Önnur tillaga gengur út á að velja ákveðna staði sem þjónustumiðstöðvar. Þar beri að byggja upp þjónustu sem íbúar annarra staða verði að sækja þangað. Þessar tillögur eiga það sameiginlegt að taka þarf ákvörðun um það hvaða staðir eða svæði séu á vetur setjandi og hver skuli lögð í eyði. Ekki ætlar Norðurslóð sér þá dul að kveða upp úr um bestu leiðina. Blaðið vill hins vegar hvetja lands- byggðarfólk til þess að horfast í augu við þær stað- reyndir sem við því blasa. Fordæmi strútsins sem stingur hausnum í sandinn dugar skammt og það er alveg öruggt að ekki verður snúið aftur til hinna góðu gömlu daga. Það má taka undir með Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra á Dalvík þegar hann hvatti fólk til að ræða af alvöru tillögur eins og þá sem Davíð Oddsson setti fram. Ef við höfnum um- ræðunni kvikna engar nýjar hugmyndir og þá „bíð- ur okkar ekkert annað en seigdrepandi eyrndin“. Landsbyggðarfólk verður að eiga frumkvæði að Iausn byggðavandans. Að öðrum kosti verður hann leystur fyrir okkur - á forsendum sem við fáum engu ráðið um. -ÞH
Samstarfið við krakkana
hefur verið mjög gott
Rætt við Bjarna Gunnarsson æskulýðs- og íþróttafull-
trúa um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar í Gimli
Fyrir fímmtán árum tóku sig
saman nokkrir unglingar hér á
Dalvík, fengu með tilstyrk bæj-
arins leigt gamla Sogn og inn-
réttuðu húsið sem félagsmiðstöð.
Var þetta hið merkasta framtak
og gekk undir nafninu Böggver.
Síðar var félagsmiðstöð í Kiwan-
ishúsinu Bergþórshvoli þar til
Gimli var innréttað að hluta fyr-
ir æskulýðsstarf. Frá árinu 1983
hefur verið starfandi á Dalvík
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
Gísli Pálsson gegndi þessu starfí
fyrstur.
Fram til þess tíma höfðu ýmsir
verið ráðnir í hlutastarf eða til
skamms tíma í senn til að sinna
æskulýðsstarfsemi. Eftir að Gísli
hættir kemur Ingimar Jónsson til
starfa en Hannes Garðarsson tók
síðan við af honum. Haustið 1990
réðst Bjarni Gunnarsson til þessa
starfs. Blaðamaður Norðurslóðar
mælti sér mót við Bjama eitt síð-
degi í félagsmiðstöðinni Gimli til
að fræðast um starf hans og miðla
lesendum blaðsins nokkm af því
sem þar kom fram.
Spennandi kosningar
Bjami sagði að í raun væri hann
framkvæmdastjóri íþrótta- og
æskulýðsráðs sem væri nefnd á
vegum Dalvíkurbæjar. En um leið
er starfið skilgreint þannig að 20%
þess er við Dalvíkurskóla til að
sinna félagsstarfi innan skólans.
Auk þess að aðstoða nemendur við
félagsstarf er skipulagning íþrótta-
mála innan skólans í verkahring
Bjama. í skólanum kjósa nemend-
ur í íþróttaráð og nemendaráð í
byrjun skólaárs. Kosning hefur
verið spennandi síðustu tvö haust.
Hver bekkur í eldri árgöngum kýs
fulltrúa sinn í ráðin og hafa verið
alvöm framboð og síðan fram-
boðsfundir áður en gengið er til
kosninga.
A hverju vori fara 10. bekking-
ar í skólaferðalag, nú síðustu ár til
útlanda. Viðamikið fjáröflunar-
starf er hjá þeim yfir veturinn til að
standa straum af kostnaði við ferð-
imar. Bjami hefur aðstoðað þau
við þetta starf. Annars segir hann
að það séu óglögg skil á milli þess
hvenær hann starfar innan skólans
og hvenær við almennt félagsstarf
utan hans. Starfið er oftast bundið
krökkunum sem em á skólaaldri
svo það er kannski engin ástæða til
að reyna að greina þama á milli.
Diskótek og
mömmumorgnar
Æskulýðsstarfið utan skóla er mik-
ið tengt félagsmiðstöðinni í Gimli.
Tónlistarskóli Dalvíkur var til
húsa í Gimli þar til á síðasta hausti
að hann flutti í elsta hluta Dalvík-
urskóla. Þar með er allt húsið til
nota fyrir æskulýðsstarf. Ýmsar
lagfæringar vom gerðar á húsinu
fyrri hluta vetrar þannig að starf-
semi lá niðri fram að ármótum. En
frá áramótum hefur verið talsvert
líf í húsinu. Þrjá daga vikunnar er
opið hús. Fyrir yngri krakkana er
opið frá klukkan 17 til 19 og fyrir
þá eldri frá 20 til 22.30 eða 23.
Ýmis leiktæki eru í Gimli og
em þau mikið notuð. Bjami segir
að gjaman megi bæta við tækjum
og einnig þurfi að endumýja hús-
gögn, það er sem sagt hægt að
betrumbæta þama ýmislegt.
Stundum em sýndar kvikmyndir
því þar er myndbandstæki og sjón-
varp. Diskótek er einu sinni í mán-
uði eða svo. Þá er spilað á spil og
teflt. Utan þessa formlega opnun-
Bjarni Gunnarsson æskulýðs- og
íþróttafulltrúi á Dalvík
artíma em ýmis afnot af húsinu,
t.d. hefur Taflfélag Dalvíkur verið
með skákkennslu eða æfingar einu
sinni í viku hjá krökkunum. Tafl-
félagið hefur sinnt þessum þætti
með mikilli prýði.
Það má geta þess hér að á
þriðjudagsmorgnum em svokall-
aðir mömmumorgnar. Þá er opið
fyrir foreldra með ungaböm.
Raunar geta allir mætt sem vilja en
reynslan er að mömmur með ung
böm sækja þetta mest. I annað
hvort skipti eru fræðsluerindi en
annars er setið og spjallað. Skipti-
markaður fyrir föt og leikföng hef-
ur myndast í tengslum við starf-
semina. Aðsókn hefur verið mjög
góð. 25 fullorðnir og 30 böm þeg-
ar best hefur verið.
Klúbbastarf unglinga hefur
ekkert verið í vetur en í fyrra var
það reynt með sæmilegum árangri
til að byrja með. Bjami segist hafa
í hyggju að endurvekja slíka starf-
semi í breyttri mynd og miða starf
við allt árið.
Samstarf félagsmiðstöðva
Hús eins og Gimli er kallað félags-
miðstöð og í flestum kaupstöðum
er starfsemi af þessu tagi. Félags-
miðstöðvamar hafa með sér sam-
starf í Landssambandi félagsmið-
stöðva. Nemendaráð Dalvíkur-
skóla hefur síðustu tvö haust sótt
þing landssambandsins og segir
Bjami að mikið gagn og ánægja
hafi verið af því. Að undanfömu
hefur verið að þróast samstarf við
félagsmiðstöðvar hér í nágrenninu.
I janúar sl. fór hópur héðan til
Húsavíkur um eina helgi einmitt í
þeim tilgangi að skapa tengsl á
milli unglinga þessara tveggja
staða. Farið var á föstudegi og gist
eina nótt í Stóru-Tjamarskóla og
síðan farið til Húsavíkur og gist
þar aðra nótt. Húsvíkingar koma
svo til Dalvíkur eina helgi núna í
lok mars.
Samstarfið við Ólafsfjörð hefur
verið meira á milli skólanna og þá
á íþróttasviðinu. Árlega er íþrótta-
keppni milli skólanna. UMSE hélt
skólamót í íþróttum í fyrra en það
hefur ekki verið neitt á þessum
vetri. Bjami taldi æskilegt að auka
samvinnu skóla eða félagsmið-
stöðva hér á svæðinu, þróunin væri
í þá átt og væri það vel.
Vinnuskólinn
íþrótta- og æskulýðsráð hefur með
styrkveitingu til reksturs félaga hér
á Dalvík að gera. Sú upphæð er
ekki há. Hins vegar styrkir Dalvík-
urbær félögin árlega til uppbygg-
ingar á aðstöðu þeirra. Bjami seg-
ist vera tengiliður við þessi félög
og stundum aðstoða þau við skipu-
lagningu einstakra verkefna þegar
þau fara fram á það.
Á sumrin er það í verkahring
Bjama að skipuleggja leikjanám-
skeið yngstu krakkanna. Þau voru
tvö haldin í fyrrasumar og vel sótt.
Þá skipuleggur hann starf vinnu- •
skólans í samráði við þá sem sjá um
verklegar framkvæmdir hjá bæn-
um.
Bjami segir að starfsemi vinnu-
skólans á síðast sumri hafi verið
erfið að því leyti að krakkamir hafi
verið ungir og það hafi takmarkað
um of hvað hægt var að vinna við.
Allir 10. bekkingar og flestir 9.
bekkingar hafi fengið vinnu hjá
fyrirtækjum sem að sjálfsögðu var
gott fyrir þau en þessa árganga
þurfi að hafa í bland í vinnuskólan-
um til að vinna yngri krakkanna
nýtist sem best.
Þó ekkert sé vitað um hvemig
þessi mál þróast á komandi sumri
er margt sem bendir til þess að erf-
iðara verði fyrir krakkana að fá
vinnu hjá fyrirtækjunum og því má
reikna með að starfsemi vinnuskól-
ans verði þýðingarmeiri en áður og
þá ef til vill auðveldara að skipu-
leggja starfið en oft áður.. Sem sagt
„fátt er svo með öllu illt...“.
Óþvinguð samskipti
Þegar hér var komið sögu í spjalli
okkar Bjama voru krakkar komnir í
húsið þvf þar var að byrja opið hús.
Þau vom að koma til hans og spyrja
um hvemig eitt og annað mál stæði.
Ekki var annað að sjá en samskipti
krakkanna og æskulýðsfulltrúans
væru afar óþvinguð og góð. Að-
spurður um samstarfið við krakk-
ana segir Bjami að það gangi mjög
vel. Hann segir að starfið sé erfitt
og krefjandi en það gefi honum
mjög mikið. Hann segir að í raun
verði að spila þetta af fingrum fram
á hverjum degi. Þannig hafi hann
ekki gengið til starfsins fyrir einu
og hálfu ári með fullmótaðar hug-
myndir um hvað í því fælist.
Reynslan á þessum tíma hafi hins
vegar sýnt honum hvað hægt er að
gera og úr þessari reynslu sé hann
nú að vinna í starfinu í dag. JA
Á öskudaginn klæddu börnin á Dalvík og í Svarfaöardal sig upp á og slógu
köttinn úr tunnunni fyrir utan ráðhúsið á Dalvík. Búningarnir voru margir
hverjir hinir glæsilegustu eins og þessar myndir bera með sér. Myndir: Hj. Hj.