Norðurslóð - 24.03.1992, Síða 4

Norðurslóð - 24.03.1992, Síða 4
4 — I^ORÐURSLÓÐ Rjúkandi ráð Umsögn um sýningu Leikfélags Dalvíkur Starfsemi leikfélaga hefur oft á tíð- um verið öflug víða um land. Auð- vitað er starf slíkra félaga mismik- ið frá einum tíma til annars og ræðst þá sumpart af tíðaranda og sumpart af aðstæðum á hverjum stað. Starf í leikfélagi getur verið mjög skemmtilegt og uppfyllt flest það sem fólk sækir að jafnaði í með þátttöku í félagsstarfi. Alla jafna tekur fólk þátt í félagsstarfi til að komast í félagsskap með góðu fólki, taka þátt í skapandi starfi og eiga möguleika á að fá umbun og viðurkenningu þegar vel gengur. Leikfélag Dalvíkur hefur starf- að í bráðum hálfa öld. Félagið var stofnað 1944. Leikstarfsemi á sér hins vegar miklu lengri sögu hér á Dalvík og í Svarfaðardal. Saga Leikfélags Dalvíkur er ein sér merkileg og vonandi verður á öðru leikári héðan í frá minnst á vegleg- an hátt 50 ára afmælis félagsins. Leikfélag Dalvíkur er í hugum flestra, sem fylgjast með starfi leikfélaga um landið, metnaðar- fullt og hefur oft á tíðum verið með góðar sýningar. Svo er það annað mál hvað er að vera metnað- arfullt leikfélag. Vafalítið vilja einhverir skilgreina það sem svo að félagið setji á hverjum vetri upp bókmenntaverk sem skilur eitt- hvað eftir hjá áhorfendum til um- hugsunar um lífið og tilveruna. Betri og eðlilegri skýring á metn- aðarfullu leikfélagi er að lögð sé rækt og alúð við hverja uppsetn- ingu sem í er ráðist. Það er svo annað að hafa sæmilega blöndu af bókmenntaverkum og sýningum sem teljast til afþreyingar. Sýning sú sem leikfélagið býð- ur áhorfendum upp á í vetur verður ekki talin meðal vandaðra bók- menntaverka. Höfundar söngleiks- ins Rjúkandi ráðs hafa aldrei ætlað því þann sess. Einn af höfundun- um segir í leikskránni sem gefin er út nú, að stykkið sé orðið „klassísk della“ sem vafalaust hefur verið metnaðarfyllsta einkunnin sem höfundar hafa gert sér vonir um að verkið hlyti. Undirritaður sá aldrei þetta skykki á sviði á meðan það var eignað huldumanninum Pír O. Man. En satt best að segja finnst manni höfundareinkenni á verkinu vera svo skýr að það sé með ólík- indum að þeim hafi ekki verið eignað það strax. Það er auðvitað auðvelt að segja þetta núna þar sem höfundamir eru þekktari af verkum sínum en fyrir rúmum 30 árum þegar verkið var fyrst sýnt. Þetta leikrit er meiri farsi en þeir söngleikir sem bræðumir Jón Múli og Jónas Amasynir em einir höfundar að. Þar koma án efa fram áhrif Stefáns Jónssonar sem átti svo létt með að sjá hlutina í fárán- legu og jafnframt spaugilegu sam- hengi. Hins vegar verður ekki greint á milli áhrifa hvers þeirra um sig á persónugerðir leikritsins. Jákvæð afstaða til þeirra sem em undir í lífsbaráttunni, svo sem rón- ans, og meðhöndlun þeirra á lag- anna vörðum hefur varla verið deilumál í hópi höfundanna. Auðvitað nýtur verkið þess að lög Jóns Múla em gullfalleg og þekkt þannig að flestir hefðu getað raulað með. Það er alltaf kostur að kannast við lögin í söngleikjum, það lætur einfaldlega betur í eymm a.m.k. ef sæmilega er með þau far- ið. Það er engin ástæða til að rekja efni þessa leikrits, hvað þá að ætla að greina textann eða leggja út frá honum. Söngtextamir eru sumir smellnir enda fáir betur fallnir til að koma slíku saman en einmitt þessir höfundar. Uppfærsla Leikfélags Dalvíkur á Rjúkandi ráði tókst að flestu leyti mjög vel. Sýningin gekk lipurlega og fumlaust. Greinilegt er að leik- stjórinn Sigurgeir Scheving hefur náð góðum tökum á hópnum ,sér- staklega þegar lesa má út úr leik- skrá að helmingur leikenda hefur ekki verið á sviði fyrr. Söngatriðin tókust heilt yfir vel þó lagið „I augum þér“ hafi greinilega vafist fyrir flytjendum. Það virðist erfitt í flutningi, í það minnsta virkar það þannig í þessari uppsetningu. Það fór svolítið í taugamar á mér að heyra hjá hljómsveitinni bregða fyrir lögum úr öðmm söng- leikjum eins og „Við heimtum aukavinnu" úr Jámhausnum. Þó það sé eftir Jón Múla eins og ann- að sem spilað var þá finnst mér að verið sé að blanda saman hlutum sem eiga ekki saman. Þetta verður að sjálfsögðu að skrifa á reikning leikstjórans. Hlómsveitin stóð á- gætlega fyrir sínu. Leikendur stóðu sig í flestu ágætlega. Það mátti auðvitað sjá hverir vom sviðsvanir. Þetta er ekki sagt til að gera lítið úr þeim sem vom að stíga á fjalimar í fyrsta sinn, heldur frekar til að leiða hugann að því hversu mikils virði það er hverju leikfélagi að hafa innan sinna raða kjama sem getur borið uppi sýningar og veitt nýliðunum styrk. Það er ekki meining mín að fara að dæma um frammistöðu einstaka leikara, þó í framhaldi af hugleið- ingum um reynslu leikendanna megi bendi á góð tilþrif hjá Stein- þóri Steingrímssyni og Kristjáni Hjartarsyni. Það skipti miklu fyrir leikinn í heild að þessi hlutverk vom í ömggum höndum. Svo er mjög gaman að sjá hversu ömggir þeir Birkir Bragason og Sigurbjöm Hjörleifsson em á sviði og ágætir gamanleikarar. Nú er ég farinn að telja upp og þá fara einhverir að sakna þess að bent sé á góða frammistöðu Helgu Matthíasdótt- ur, Hjörleifs Halldórssonar o.s.frv. en látum þetta nægja. Ekki leyndi sér að áhorfendur höfðu gaman af sýningunni því mikið var hlegið. Kosturinn við svona uppfærslu er að koma í leik- hús og hlæja dátt mitt í öllu svart- sýnistalinu. Eini boðskapurinn sem leikritið flytur er að taka hlut- ina ekki of alvarlega. Gleraugun sem höfundamir lána okkur til að horfa á lífið eina kvöldstund em síst verri en þau sem aðrir bjóða. Hópurinn sem að sýningunni stóð skilaði sínu vel og því ekki annað að segja en: hafi allir þökk fyrir. Jóhann Antonsson Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför Jóhönnu Sigurbjargar Jónasdóttur Gmndargötu 6, Dalvík. Ingimar Guttormsson Jónas Ingimarsson Guðrún Ingimarsdóttir, Sigurður Kr. Jónsson Steingeröur Ingimarsdóttir, Hermann Baldvinsson barnabörn og fjölskyldur þeirra. VELTA KEA DALVlK 1991 KR. 1,648,668 ÞÚS + 16,49% ÞJONUSTA 11% . iri.MIQTA 188.736 ÞJONUSTA T1%_____VERSLUN 21% VERSLUN 19% 315.238 Ú.D. 24% :!jjijj#7 FISKVI. 42% 1991 LANDAFURÐIR 3% 1990 LAUNAKOSTN. KEA DALVÍK 1991 KR. 403,265 ÞÚS + 22,03% Ur ársskýrslu KEA fyrir Á deildarfundum KEA á Grund og Dalvík 3. mars sl. komu fram í tölum, máli og myndum miklar upplýsingar um rekstur á vegum KEA á árinu 1991. Hér verða aðeins sýndar nokkrar myndir, sem ætla má, að lesendur þessa blaðs hafi sérstak- an áhuga á, þ.e. úr rekstri Kaupfélagsins á Daivík og frá Mjólkursamlaginu á Akureyri. Mynd 1 sýnir magn innveginnar mjólkur í lítrum talið árin 1985-1991. Mjólkurmagnið hefur minnkað um ca. 2 milljón lítra, en áður hafði það minnkað um annað eins og meira til frá toppárinu 1978. Mynd 2 sýnir mjólkurmagn hinna einstöku sam- lagsdeilda 1991. Fremstu deildimar 3 eru Hrafnagils- Saurbæjar- og Öngulsstaðadeildir en sú næstsíðasta er Svarfdæladeild. Hún er nú önnur framleiðslumesta deildin. Mynd 3 sýnir veltu KEA á Dalvík 1991 og grófa skiptingu í starfsgreinar 1990 og 1991. Hlutur fisk- vinnslu eykst, slátrun fellur út. Mynd 4 sýnir launagreiðslur á Dalvík 1990 og 1991. Mynd 5 sýnir hráefnismagn innlagt í Frystihús KEA á Dalvík og skiptingu milli vinnslugreina 1989 - 1991. Heildarlaunagreiðslur KEA á Dalvík 1991 voru rösklega 400 milljón krónur. Fróðlegt væri að vita hvað þetta mundi vera stór hluti allra greiddra launa í kaupstaðnum? FRYSTIHÚS HRÁEFNI TIL VINNSLU 8000 7000 6000 6000 4000 3000 2000 1000 0 1989 1990 1991 EZJ SKREID Iþróttamaður ársins á Dalvík Snjólaug Vilhelmsdóttir 10. mars s.l. var Snjólaug Vil- helmsdóttir, 18 ára afrekskona kjörin íþróttamaður Dalvíkur- bæjar 1991. Er þetta annað árið í röð sem Snjólaug hlýtur þenn- an titil. Hún hefur að undan- förnu látið mjög til sín taka á frjálsíþróttamótum og skipar sér í flokk með landsins fremstu frjálsíþróttakonum. Það sem af er þessu ári hefur hún tekið þátt í nokkrum íþróttamótum og sópað að sér verðlaunum. Á ís- landsmóti í atrennulausum stökkum sem haldið var í lok janúar vann hún gull í tveim af þeim þrem greinum sem keppt var í, þ.e. lang- stökki og þrístökki. Um miðjan febrúar tók hún þátt í Meistaramóti Islands í fjölþraut. Þar er keppt í 6 greinum: 50 m hlaupi, 50 m grinda- hlaupi, langstökki, hástökki, kúlu- varpi og 800 m hlaupi. Þar hreppti Snjólaug 2. verðlaun. Um mánaðar- mótin febrúar/mars var haldið Meistaramót íslands í frjálsum í- þróttum 22 ára og yngri. Þar vann Snjólaug 50 m grindahlaup og langstökkið og varð í öðru sæti í 50 m hlaupi. Nú um miðjan mars krækti hún sér í fimmta ís- landsmeistaratitilinn á þessu ári á Meistaramóti Islands í frjálsum íþróttum. Það var í 50 m grinda- hlaupi. Auk þess náði hún 2. sæti í 50 m hlaupi og 3. sæti í langstökki (sigurvegarinn í langstökki, Sunna Gestsdóttir USAH, er reyndar af svarfdælsku bergi brotin, dóttir Gests Guðmundssonar frá Gull- bringu/Karlsá). Þeir skipta nú orðið einhverjum Snjólaug Vilhelmsdóttir, íþrótta- maður ársins 1991 á Dalvík, er kom- in með fimm íslandsmeistaratitla og árið rétt að byrja. tugum íslandsmeistaratitlamir sem Snjólaug hefur unnið til í sínum aldurshópi í gegn um tíðina. Á síð- asta ári bætti hún 11 íslandsmeist- aratitlum í safnið og það sem af er þessu ári hafa sem sagt fimm nýir bæst í safnið. Snjólaug er nú í 3ja bekk M.A. en Nsl. greip hana nýkomna í helg- arfrí fyrir skömmu til að fregna um glæstan feril hennar sem hún vildi ekki gera mikið úr. „Ætli ég hafi ekki byrjað að æfa íþróttir svona 12, 13 ára. Svo var maður bara beðinn um að keppa og þannig byrjaði þetta. Við höfum verið saman í þessu Þóra og ég og höfum haft stuðning hvor af ann- arri. (Þóra Einarsdóttir er önnur dalvísk frjálsíþróttakona sem einnig hefur verið sigursæl á mót- um, einkum í hástökki;innsk. Nsl.) Nú er Þóra „au pair“ í Englandi og hefur ekki verið með á mótum að undanfömu" - Hverjar eru þínar eftirlætis- greinar? „Það em stuttu hlaupin, 100 og 200 metrar, og langstökk. Þetta er það sem ég legg aðaláherslu á þó ég keppi í fleiri greinum.“(Vilhjálmur Bjömsson segir að 400 m hlaup sé hennar sterkasta grein; innsk. Nsl.) - Hvernig hagar þú œfingum? „UMSE er með æfingar á Hrafnagili tvisvar í viku og tvisvar í Iþróttahöllinni á Akureyri og svo emm við nokkur sem hlaupum saman alla daga nema sunnudaga." - Tekur þetta ekki mikinn tíma frá náminu? „Þetta tekur náttúmlega dálítinn tíma. íþróttaæfingamar taka svona 1 l/2tímaplúsferðirþegarþæreru á Hrafnagili en ég hef tíma fyrir skólann líka.“ - Hvert er framtíðarmarkmið- ið? „Ja, það er nú það. Eg veit svo sem ekkert hvað ég ætla að verða en ég stefni að því að bæta árang- urinn í íþróttunum. Auðvitað væri gaman að komast í landsliðið í frjálsum. Ég get eiginlega ekki sagt til um hvar ég stend í augna- blikinu. Ég held það komi betur í ljós í sumar.“ Við þökkum Snjólaugu þetta stutta spjall og óskum henni til hamingju með glæsilegan árangur. Hj.Hj.

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.