Norðurslóð - 26.02.1992, Qupperneq 6

Norðurslóð - 26.02.1992, Qupperneq 6
Svarfdælsk byggð & bær FRETTAHORNIÐ TIMAMOT Skírnir 2. febrúar var Hafþór skírður í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hans eru Guðrún Kristín Björgvinsdóttir Sunnubraut 9, Dalvík og Ágúst Sigurðsson Grenivöllum 14, Akureyri. 2. febrúar var Herbert skíður í Urðakirkju. Foreldrar hans eru Gunnhildur Gylfadóttir og Hjálmar Herbertsson, Karlsrauðatorgi 16, Dalvík. 15. febrúar var Ivar skírður í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hans eru Elfa Heiðrún Matthíasdóttir og Jón Kristinn Gunnarsson, Sunnu- braut 8, Dalvík'. Afmæli Þann 11. febrúar varð níræð Helga Vilhjálms- dóttir handavinnukennari frá Bakka. Hún fæddist á Ölduhrygg 11. febrúar 1902, en flutt- ist tveggja ára gömul í Bakka með foreldrum sínum, Vilhjálmi Einarssyni og Kristínu Jóns- dóttur árið 1904. Á Bakka ólst hún upp í stór- um hópi systkina. Af þeim hópi er Helga nú ein á lífi. Hún aflaði sér menntunar erlendis til við- bótar stuttri barnaskólagöngu að hætti þeirra tíma. Hún nam við lýðskólann í Hpng í Dan- mörku 1926 og Voss í Noregi 1927 og lagði áherslu á handavinnu og latasaum. Hún hélt áfram að mennta sig hérlendis og erlendis, var t.d. nemi við mjólkurskólann á Hvítárbakka í Borgarfirði. Það er til marks um dugnað hennar og áhuga, að hún fór ríðandi að norðan á Alþingishátíðina á Þingvöllum 1930. Annars hefur ævistarf Helgu fyrst og fremst verið fólgið í kennslu, fyrst í Ólafsfirði, þá við Kvennaskólann á Blönduósi, en síðast og lengst við Húsmæðraskólann á Varmalandi í Borgarfirði, 1947 og fram um 1970. Handavinna var hennar aðal kennslugrein. Eftir Bogarfjarðarárin flutti hún norður á Sauðárkrók. Þar er hún enn og dvelur á deild aldraðra á sjúkrahúsinu þar. Helga er mikill Svarfdælingur og hefur alla tíð haldið góðum samböndum hingað heim í dalinn og sýnt fólki og stofnunum hér mikla ræktarsemi. Norðurslóð flytur henni bestu heillakveðjur úr heimabyggðinni. Andlát 31. janúar lést á Hornbrekku, Ólafsfirði, Kristín Sigurhanna Sig- tfyggsdóttir, Karlsbraut 1, Dalvík. Kristín fæddist á Þverá í Dalsmynni 30. júlí 1904, eina bam Sig- tryggs Júlíusar Markússonar og Amfríðar Jóhönnu Ámadóttur. Hún átti hálfbróður, Sigurð Þorsteinsson, sem nú er látinn. 6. maí 1927 gekk hún í hjónaband með Jóhanni Guðlaugi Kristjánssyni og hófu þau búskap á Hánefsstöðum í Svarfaðardal. Fjórum árum síð- ar fluttu þau til Ólafsfjarðar, bjuggu fyrst í Hólkoti en síðan niðri í byggðinni, í Horninu eins og það var kallað. Til Dalvíkur fluttu þau árið 1939 og setjast að fáum ámm síðar í Bergþórshvoli hvar þau áttu heimili í rúma þrjá áratugi. Þau hjón eignuðust 6 böm sem eru: Amfríður Jóhanna, kona Sigþórs Bjömssonar, Hjörleifur, maður Þorgerðar Sveinbjörsdótt- ur, Kristján Loftur, Marinó Jóhann sem er látinn, Sigrún Rósa, kona Einars Amþórssonar og Sigtryggur Elinór, maður Sólveigar Krist- jánsdóttur. Ævistarf Kristínar var að stærstum hluta tengt börnum og heim- ili. Hún var glaðlynd og afskaplega hlý í öllu viðmóti og fljót að kynnast fólki. Hún vann þó einnig utan heimilis eftir að þau hjón fluttu hingað til Dalvíkur og þá í fiskvinnu og einnig annaðist hún skepnur þeirra að þó nokkru leyti á meðan þau höfðu búskap enda Jóhann oft til sjós. 1975 fluttu þau Kristín og Jóhann í Hruna, Karlsbraut 1, þar sem að þau áttu heimili æ síðan, ásamt sonum sínum Kristjáni og Mar- inó þar til hann lést. Og þangað heim komu margir ættingjar og vin- ir enda fjölskyldan stór, barnabömin orðin 18 og bamabamabömin 20 og eitt bamabamabamabam. Kristín og Jóhann fengu bæði dvöl á Hornbrekku, heimili aldr- aðra í Ólafsfirði, árið 1990, þar sem þau dvöldu til dauðadags. Jó- hann lést 27. febrúar 1991 90 ára á aldri en Kristín lést þar 7. febr- úar s.l. á 88 aldursári. Kristín var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 8. febrúar. Eins og fram kom í fréttahorni síðustu Norðurslóðar lítur ekki út fyrir að bátar hefji rækjuveiðar fyrr en kemur fram á vorið. Hrá- efnisöflun fyrir rækjuvinnslu SFD hefur því verið óviss og fryst hrá- efni sem unnið hefur verið að und- anfömu er takmarkað. Því hefur SFD nú leigt Náttfara HF til út- gerðar á rækju og hefur jafnframt kannað möguleika á að kaupa það skip með einum eða öðrum hætti. Rætt er um í því sambandi að stofnað verði sérstakt útgerðarfé- lag til að gera skipið út. Samningar um kaup á skipinu sem nú liggja fyrir gera ráð fyrir að það kosti 215 milljónir króna. Með skipinu mun fylgja 710 tonna þorskígildiskvóti og um 100 tonna rækjukvóti. Dal- víkurbær hefur fyrir sitt leyti sam- þykkt að leggja fram 8,5 milljónir í hlutafé annað hvort til aukningar í SFD eða í nýtt fyrirtæki. Reiknað er með að alls þurfi á tveimur næstu árum 45 milljónir í eigið fé til að kaupin gangi upp. Ljóst er að nokkur fyrirtæki eru tilbúin að leggja fram hlutafé til að af þessum kaupum geti orðið. Tíðarfarið að undanförnu hefur lagst afskaplega misjafnt í menn. Það er ekki síst snjóleysið sem menn líta misjöfnum augum. Margir gleðjast yfir snjóléttum vetri en þó eru undantekningar þar á. Það sem af er þessum vetri hafa skíðalyftumar í fjallinu einungis verið í gangi í tvo daga. Aðstaða skíðafólks hefur alltaf verið að batna. Nú síðast hefur verið reistur myndarlegur skíðaskáli, en notkun á mannvirkjunum hefur þó verið að minnka. Ekki er það áhugaleysi sem veldur heldur snjólausir vetur. Mikill áhugi hefur komið í ljós þegar snjórinn hefur sýnt sig og ár- angur yngstu flokkanna héðan hef- ur verið mjög góður á mótum sem þau hafa tekið þátt í. Landsmót ís- lands á að halda hér í byrjun apríl ef snjórinn kemur. Eins og horfir í dag er á því fullkominn vafi. Ekki þarf að taka ákvörðun um að flytja mótið annað alveg á næstunni svo ekki er öll nótt úti enn. Náttfari HF við bryggju á Dalvík. Skíðaskálinn er risinn við neðri endann á lyftunni í Böggvisstaðafjalli. Hann liefur hlotið nafnið Brekkusel og auk þess að þ.jóna skíðafólki verður veitingasalurinn leigður út fyrir smærri sanikvæmi. Snjóleysið mun íþyngja fjárhag Skíðafélags Dalvíkur. Tekjur þær sem félagið hefur haft úr að spila koma fyrst og fremst af sölustarfsemi á skíðasvæðinu, svo sem lyftugjöldum. Nú eru tekjur engar og í raun hafa verið mun minni síðustu árin en í venjulegu árferði. Þó Dalvíkurbær hafi staðið myndarlega á bakvið félagið við uppbyggingu liðinna ára hefur fé- lagið sjálft staðið straum af tals- verðum hluta kostnaðar. Ákveðið er nú að framkvæmdum við skíða- skálann verði að mestu lokið í vet- ur og að lán verði tekið til að svo megi verða. Ef landsmótið verður mun koma sér vel að hafa skálann svo til fullgerðan því hann skapar þá tekjur. Hins vegar verður tekju- leysið enn tilfinnanlegra ef ekkert verður landsmótið og enginn snjórinn. MER ER SPURN Nú þegar dalvískir hestamenn liafa sest að til frambúðar frammi í Hringsholti hefur umferð ríðandi manna aukist til muna um þjóð- veginn þar í grennd. Oft á tíðum eru menn að þjálfa hesta sína þeg- ar komið er brúnamyrkur jafnvel með nokkra til reiðar í vegakantin- um. Ekki þarfað fara mörgum orð- um um það hver slysahœtta er þessu samfara ekki síst þegar menn og hestar eru illa eða alls- endis vanbúnir endurskinsmerkj- um sem allt of mikil brögð eru að. Hafa margir hrelldir bílstjórar haft samband við blaðið og kvart- að undan „óupplýstum“ hesta- mönnum ífleiri en einum skilningi. Taki það til sín sem eiga. Því beinum viðþeirri spurningu til hlutaðeigandi hvort ekki standi til að ráða bót á aðstöðu hesta- manna til litreiða frá Holti og beina umferðinni frá akveginum. Við höfðurn samband við lngva Baldvinsson á Bakka, fráfarandi formann Hestamannafélagsins Hrings og bárum þetta undir hann. Ingvi sagðist hafa vakið máls á þessu vandamáli á nýafstöðnum aðalfundi hestamannafélagsins og hefði þar komið fram eindreginn vilji allra viðkomandi að bregðast skjótt við því með fyrirbyggjandi aðgerðum. Rætt var um að útvega góð glitmerki sem mönnum yrði skylt að bera og sömuleiðis merki á hrossin. Einnig var talað um að Fjárhagsáætlun Dalvíkur lögð fram Fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar kom til fyrri umræðu í bæjar- stjórn þann 18. febrúar s.l. Heildarrekstrargjöld ársins 1992 eru áætluð 183.465 þús. kr. á móti 177.033 árið 1991 og er því um að ræða tæplega 4% hækkun þessara gjalda milli ára. Stærstu tekjuliðimir eru þrír, þ.e. staðgreiðsla, aðstöðugjald og fasteignaskattur og breytast álagn- ingarreglur ekki frá fyrra ári. Þjón- ustuframlag úr Jöfnunarsjóði sveit- arfélaga er áætlað 5.000 kr. á íbúa. Skatttekjur eru nú áætlaðar 155,4 millj. kr. á móti 150,6 millj. króna við fjárhagsáætlun síðasta árs. Þetta samsvarar um 3% hækk- un. Tekjur af útsvörum og stað- greiðslu em áætlaðar 95 milljónir. Hækkun frá fyrra ári er tæp 6%. Aðstöðugjöld em nú áætluð 29,5 millj. og lækka um rúm 9% frá áætlun síðasta árs. Fasteignaskatt- ur mun skila um 23,3 milljónum króna og er það um 8% hækkun. Skatttekjur pr. íbúa eru áætlaðar 103 þús. kr. og gjöld 76 þús. kr. Áætlunin er í grófum dráttum sambærileg við fjárhagsáætlun síð- asta árs. Þó eru á nokkrar undan- tekningar eins og gengur og sú stærsta að fjármagnsgjöld lækka um 10 milljónir milli áætlana. Fé- lagsþjónustan eykur aftur á móti umfang sitt um tæpar 7 milljónir. Þegar litið er til þess hvaða málaflokkar það eru sem taka til sín stærstan hluta af um 180 millj- ón króna útgjöldum þá skera sig úr æskulýðs- og íþróttamál. Ráðgert er að verja til þessara mála rúmum 47 milljónum króna og vega þar þyngst 25 milljón króna útgjöld vegna byggingu sundlaugar. Ætl- unin er að sundlaugarbygging verði hafin á þessu ári. Gert er ráð fyrir lántökum hjá bæjarsjóði að upphæð 18.503 þús. kr. og afborg- anir lána eru áætlaðar um 11,3 milljónir. Á árinu 1991 voru ný lán tekin nokkum veginn til jafns við afborganir. Síðari umræða í bæjarstjóm verður að öllum líkindum þriðju- daginn 3. mars nk. menn væru ekki á þjóðveginum með lítt tamin hross. Ingvi sagði að rætt hefði verið um að setja upp viðeigandi um- ferðarmerki við veginn en einhver áhöld eru um það á milli Vega- gerðarinnar og Dalvíkurbæjar hvor aðilinn eigi að borga. Varðandi það atriði að bæta að- stöðuna til útreiða sagði Ingvi að á þessum árstíma væru sjaldnast aðr- ar leiðir færar en þjóðvegurinn en reyndar byggjum við svo vel að hafa reiðgötu meðfram honum á þessum slóðum. Vissulega eru til ýmsir möguleikar fyrir skemmti- legar reiðleiðir í Ytraholtslandi og víðar en þær yrðu varla nothæfar nema á sumrin. Hrossaumferð við þjóðveginn og jafnvel á honum yrði því áfram staðreynd. Flestir þeir ökumenn sem um veginn fara vissu af þessari hættu og ættu því ekki síður en hestamenn að fara varlega. Norðurslóð þakkar Ingva grein- argóð svör og tekur undir áskorun til hestamanna að merkja sig og sín hross í bak og fyrir með glitmerkj- um og borðum. Það sama á raunar við um ört stækkandi hóp trimmara sem skokka sér til heilsu- bótar á þjóðveginum í rökkrinu. Og þá er aldrei ofbrýnt fyrir bíl- stjórum að taka fullt tillit til þessar- ar auknu umferðar manna og mál- leysingja um veginn og fara vai- lega.

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.