Norðurslóð - 26.05.1992, Side 4

Norðurslóð - 26.05.1992, Side 4
4 — NORÐURSLÓÐ / „Eg lít í anda liðna tíðu Sigvaldi Gunnlaugsson í Hofsárkoti rifjar upp endurminningar sem tengjast Þinghúsinu á Grund en það verður 100 ára á þessu vori - Seinni hluti í aprílblaði Norðurslóðar var fyrri hluti þessara minningar- brota Sigvalda í Hofsárkoti. Sagði þar frá tildrögum þess, að hann var sendur til Dalvíkur og fór niður Vesturkjálka af því að ákveðið var að hann fengi lánaðan vagn á Steindyr- um til að halda áfram ferðinni til Dalvíkur. Greinin endaði þar sem Sigvaldi fer niður hjá Þinghúsinu á Grund og verður honum tilefni til upprifjunar gamalla minninga. Aður en höfundurinn fær aftur orðið mun rétt að leið- rétta það, sem stendur um ald- ur hússins, þegar það var flutt, og þingstaðurinn með, frá Tungukoti niður að Grund. Það var vorið 1912 svo húsið hefur þá staðið á tvítugu, ekki 17 ára, eins og ranglega var sagt. Biðjumst við velvirðingar á þessu. Ritstj. Ósköp fannst mér á þessum árum þetta stórt hús. Kennslustofan sem var nú mest allt húsið, fannst mér heill geimur. I endanum að sunnan voru tvær kompur. Önnur þeirra var forstofa þar sem komið var inn í húsið eftir að hafa farið upp fjór- ar steintröppur sem voru utan við dymar syðst á húsinu. Hin kompan var vestan við forstofuna með inn- gangi í salinn. Var hún mjög lítil og hafði aðeins að geyma þau litlu kennslugögn sem skólinn átti en það var nú heldur fátæklegt, aðeins einn aflangur kassi sem hýsti nokkur landabréf og einhvert kort af mannslíkamanum og myndir af líffærum sem notuð voru við kennslu þegar það átti við. I þessu húsi fór fram, auk kennslunnar, margskonar starf- semi. Þar voru haldnir flestir ef ekki allir fundir á vegum hreppsins og annarra félaga sem störfuðu í sveitinni auk þess fjölmargar sam- komur af ýmsu tagi. Þar vom haldnir dansleikir og leiksýningar og var mikill áhugi ungs fólks í sveitinni að vinna að þessum mál- um - jafnan þó við frumstæð skil- yrði. Bar á þessum árum, eins og löngum síðar, mest á starfi Ung- mennafélagsins Þorsteinn Svörf- uður enda um þessar mundir mikið af ungu fólki í sveitinni sem var fullt af áhuga á starfsemi ung- mennafélagsins og ólatt að leggja krafta sína fram í þágu þess. Kennarinn, Þórarinn á Tjörn Þegar hér var komið sögu er aðeins um að ræða húsið sem llutt var framan af Tungum. Þannig var það meðan eg gekk í skólann þama og þannig er það þetta ár 1927. Ennþá stendur kennarinn okkar þama hann Þórarinn Kristjánsson Eld- jám á Tjöm mér ljóslifandi fyrir sjónum. Þéttur á velli en þó léttur upp á fótinn, því öll þessi ár, sem hann kenndi á Þinghúsinu, sem mun hafa verið milli þrjátíu og Ijörutíu gekk hann á milli Tjarna' og Þinghússins kvölds og morgna sex daga vikunnar - líklega hátt á þriðja kílómetra í ýmsum veðmm og í misjöfnu færi. Eg sé hann fyr- ir mér í anda þegar hann kemur inn í húsið, býður góðan daginn, fer úr frakkanum sem hann jafnan var í, hengir hann upp og trefilinn sem hann er með um hálsinn þegar eitt- hvað er að veðri, sem oft er, heng- ir hann utan á frakkann. Tekur síð- an kaffiflöskuna sem hann er jafn- an með í tösku sinni, setur hana upp á krónuna á háum kolaofni sem stendur í homi suðvestanmeg- in í stofunni og kyntur er þegar kalt er í veðri. Þeir taka þá oft tal saman smástund Haraldur Stefáns- son í Ytra-Garðshomi sem kemur í Þinghúsið á morgnana og kveikir upp í kolaofninum svo farið sé að hlýna ofurlítið í húsinu þegar krakkamir og kennarinn koma. Hann sér líka um að halda húsinu hreinu. Þetta starf vann Haraldur lengst af þeim tíma sem eg gekk í skólann. Það var kolageymsla und- ir ytri enda hússins og hleri í veggnum sent veit mót austri. Þangað þurfti oft að sækja kol. Mér fannst alltaf eitthvað óhugn- anlegt við þessa kolageymslu, dimma og svarta og forðaðist hana eins og frekast eg gat. Þegar Þórar- inn var búinn að losa sig við frakk- ann og trefilinn og Haraldur hafði kvatt, snéri hann sér að verkefni dagsins. Hann byrjaði jafnan á því að safna okkur krökkunum saman og láta okkur syngja eitt eða tvö eða jafnvel þrjú lög áður kennsla hófst. Stóð hann þá gjama fyrir framan hópinn sló taktinn með penna eða blýanti og söng sjálfur með. Enn man eg nokkur þessara laga og texta sem hann lét okkur syngja eins og t.d. „Úr augum stír- ur strjúkið fljótt“ og „Inn milli fjallanna hér á eg heima“ og svo lét hann okkur oft syngja „Ó jesú bróðið besti“. Eg minnist þess sér- staklega að hann hafði það fyrir venju að á síðasta tóninum sló hann hendinni í sveig niður og snéri sér við um leið og hann gekk upp í kennarapúltið, þetta gamla góða kennarapúlt sem ég hygg að fylgt hafi skólanum á Grund með- an hann starfaði á þeim stað. Oft byrjaði hann kennsluna á stuttum huglciðingum þar sem hann áminnti nemendur sína um að stunda heilbrigt lífemi, heiðra föð- ur sinn og móður og bera virðingu fyrir heimili sínu og fósturjörð. Þórarinn Eldjárn bóndi og kennari Sigurjón Jónsson læknir í Árgerði. á Tjörn. Elsti hluti Þinghússins á Grundinni sem reistur var í Tungunum en fluttur á Grundina árið 1912 og stendur þar enn. Aldrei man eg eftir ólátum í tímum hjá Þórami. Eg held að nemendur hafi borið svo mikla virðingu fyrir kennara sínum að þeir hafi ekki viljað angra hann með ólátum í kennslustundum. Hins vegar kom fyrir að hann þurfti stöku sinnum að stilla til friðar í frímínútum þeg- ar áflogaglöðum unglingum bar eitthvað á milli og vildu þá í hita leiksins láta hendur skifta, en slíkt kom nokkrum sinnum fyrir og var þá sá ágreiningur jafnaður með nokkrum vel völdum orðum frá kennaranum, þannig að báðir aðil- ar undu sæmilega við. Þórarinn skrifaði mjög fallega og reglulega ritHönd. Hann gaf nenendum sín- um venjulega forskrift í forskrifta- bækur sínar sem þau áttu svo að æfa sig í að skrifa eftir - því þá var bömum kennt að skrifa. Og það orð lá að það hafi verið hægt að þekkja nemendur Þórarins fram eftir árum á skriftinni, svo vel höfðu þau tamið sér að stæla rit- hönd hans. I skriftarbækurnar skrifaði hann venjulega vísur, málshætti og sitthvað í þeim dúr. Lærði eg nokkrar vísur er hann skrifaði í skriftarbók mína. Þvi miður eru allar þessar skriftarbæk- ur glataðar núna. Svarfdælsk fræði í Munchen Jóhann (Hans) Stötter og Thomas Háberle sérfræðingar í jarðfræði Trölla- skagahálendisins. Þeir tluttu báðir erindi á ráðsefnunni í Munchen. Allt frá því um 1960 hafa erlend- ir háskólastúdentar og vísinda- menn komið í rannsóknarferðir í Svarfaðardal. Rannsóknir þess- ar hafa verið af ýmsum toga og inismerkilegar. Sumir hafa rannsakað mannlífið í dalnum, aðrir hafa skoðað gróðurfar, sumir jarðfræði og enn aðrir jökla. Öft hefur verið um að ræða æfingarverkefni fyrir stúd- enta sem hafa lítið fræðilegt gildi. En einnig hafa verið gerð- ar hávísindalegar rannsóknir, einkum um almenna jarðfræði og jöklafræði og skrifaðar um það merkilegar greinar og jafn- vel doktorsritgerðir. Það eru einkum Bretar og Þjóðverjar sem hafa stundað þessar rann- sóknir og sumir þeirra hafa orð- ið heimagangar í dalnum og heimilisvinir víða. Fyrir síðustu jól var mér boðið á ráðstefnu sem haldin var / Munchen í Þýskalandi. Þar var saman kominn hópur manna frá ýmsum löndum sem stundað hafa rannsóknir á Islandi. Þama voru auk Islendinga, Bretar, Irar, Þjóð- verjar, Svisslendingar, Austurrík- ismenn og Rússar. Fjölmörg erindi voru flutt um rannsóknir víða um land, mörg þeirra tengdust Svarf- aðardal og Skíðadal og Trölla- skagahálendinu. Helsti skipuleggjandi ráðstefn- unnar var Johann Stötter sem mörgum Svarfdælingum er að góðu kunnur. Sumar eftir sumar hefur hann búið á Másstöðum með fylgdarliði sínu og gert út á fjöll og firnindi. A síðasta ári kom út bók eftir hann hjá Háskólanum í Munchen en það er doktorsritgerð hans um rannsóknimar í dalnum. Hún heitir Geomorphologische und landschaftsgeschichtliche Untersuchungen im Svarfaðardal- ur-Skíðadalur, Tröllaskagi, N-Is- land. Þetta útleggst á voru máli; Rannsóknir á landmótun og lands- lagssögu í Svarfaðardal og Skíða- dal, Tröllaskaga, N-Islandi. A ráð- stefnunni flutti Johann Stötter mjög fróðlegan fyrirlestur sem byggði á reynslu hans frá Svarfað- ardal. Thomas Haberle heitir maður sem lengi dvaldi við rannsóknir í Hörgárdal og fjalllendinu þar í kring. Hann er nú kennari í Zurich og talar mjög góða íslensku. Eindi hans fjallaði um jarðsögu Hörgár- dals, einkum um ísaldarlok í daln- um. Þriðja erindið sem fjallaði um rannsóknir á Tröllaskaga var eftir W.B. Whalley sem prófessor við háskólann í Belfast á Norðurír- Iandi. Það var um svokallaða grjótjökla en þeir eru fremur sjald- gæft náttúrufyrirbrigði sem þó er algengt í háfjalladölum Trölla- skaga. Þetta em jöklar sem þaktir eru möl og grjóti þannig að lítið sem ekkert sér í þá. Þeir líta úr eins og hverjar aðrar stórgrýtisurðir en undir henni er jökulís sem skríður undan halla eins og skriðjökull. Fjórða erindið var eftir C.J. Caseldine sem margir Svarfdæl- ingar þekkja en hann hefur margoft dvalið í sveitinni. Hann er háskólakennari í Exeter á Englandi. Erindi hans fjallaði um sérkennilega aldursgreiningarað- ferð sem notuð er í jarðfræði og fomleifafræði og byggir á mæling- um á skófum og fléttum. Nöfnin Svarfaðardalur og Skíðadalur hljómuðu ekki einungis í öðm hverju erindi á þessari fjöl- þjóðaráðstefnu, ýmist með þýsk- um, enskum eða norrænum hreim, upp um alla veggi vom myndir og kort úr sveitinni. A göngum Há- skólans í Munchen virtist manni sem nafli heimsins væri í þessunt dölum norður á Tröllaskaga. Það er að vísu ekki ný kenning í mínum eyrunt, þetta mun vera skoðun okkar Svarfdælinga almennt, en að hún væri alþjóðleg og viðurkennd vísindaleg staðreynd það hafði ég ekki vitað fyrr. AH Læknirinn, Sigurjón í Árgerði Enn var sá atburður þama í skólan- um vetur hvem skömmu eftir skólasetningu á haustin og vakti töluverða eftirvæntingu. Það var þegar Sigurjón læknir í Argerði kom til að skoða krakkana. Þetta var víst skylda, sem honum bar að hlýða, það þurfti að ganga úr skugga um, að börnin væru ekki haldin næmum, smitandi sjúkdómi eða væm með neina þá líkamlegu galla, sem gerði þeim ófært að sækja skólann. Sigurjón kom ætíð ríðandi, um önnur farartæki var ekki að ræða, bílaöld var ekki gengin í garð. Sig- urjón var meðalmaður á vöxt, heldur grannholda með hökutopp og eins og hann væri síjaplandi á einhverju. Hann kom inn í skóla- stofuna með læknistösku sína og kom sér þar fyrir til að geta hafið hina lögskipuðu skoðun. Við krakkamir sátum inn í púltum okk- ar með tilhlýðilegum hátíðleika- svip því ekki dugði nú annað en að haga sér skikkanlega gagnvart svo háttsettum manni sem læknirinn var. Hann þéraði okkur krakkana og gagnvart slíku vissum við ekki vel hvemig okkur bæri að bregðast - öllu slíku óvön Svo byrjaði skoðunin. Við vor- um kölluð eitt og eitt í einu til læknisins og hann hóf skoðunina, sem var í því fólgin, að hann skip- aði okkur að opna munninn og kom með eitthvert áhald, sem hann ýtti ofan á tunguna og sagði okkur

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.